Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977 Heiðursmaður segir sögu sína Ragnar Þorsteinsson: Lífið er saltfiskur Víkurútg. 1977 Ragnar Þorsteinsson ritar eftir- mála, sem er í rauninni dánar- minning sögumannsins, Elíasar Pálssonar, lengi yfirfiskmats- manns. Elías sagði söguna hel- sjúkur, og hann lézt yiku eftir að handrit Ragnars var fullunnið, enda lagði Elías hart að sér til þess að ljúka sögunni og kyYinast handritinu. Hvers vegna var svo þessum meira en hálfniræða öld- ungi það slíkt áhugamál að fá sögu sína færða í letur og gefna út? Ragnar, sem var hikandi við að taka að sér að skrá þessa bók og kveðst ekki mundi hafa gert það e'f gamall sjómaður hefði ekki átt í hlut, segir svo í eftirmálan- um: „Ég tel nú, að það hafi verið mér einstakt happ að kynnast þessum gamla sjóvíkingi, öðlingi og atorkumanni. Það er sannar- lega mannbætandi á þessum tím- um upplausnar og virðingarleysis fyrir verðmætum að kynnast slík- um hugsjónarmanni, sem hefur það að leiðarljósi, að ekkert verk sé svo Iítilfjörlegt, að ekki beri að leysa það af hendi af alúð og kostgæfni." Að loknum lestri bók- arinnar komst ég að þeirri niður- stöðu, að hinn aldni heiðursmað- ur, sem vart mátti mæla, þá er hann sagði síðustu kafla sögu sinnar, hafi talið skyldu að segja Bókmenntlr eftir GUÐMUND G. HAGALÍN þjóð sinni þessi sannindi og þætt- ist ekki sízt geta úr flokki talað sakir þess, að hann barðist í ára- tugi harðri baráttu fyrir því að valdamenn og máttarstoðir þess atvinnuvegar, sem er undirstaða þjóðarinnar, gerðu sér ljósa þá ábyrgð, sem á þeim hvílir, og breyttu samkvæmt því. Lífið er saltfiskur — mönnum mun þykja þetta hlálegt heiti á bók, og kannski hefði mátt frekar segja eins og nú er komið: lífið var saltfiskur. En þó er engan veginn nein fjarstæða að láta salt- fiskinn tákna allt það, sem er und- irstaða efnalegrar afkomu þjóðar- innar og þar með menningu henn- ar og sjálfstæðis. Sú var tíðin, að þjóðin gerði sér fyllstu grein fyrir, að skilyrði þess, að hér yrðu þær framfarir, sem gerðu henni fært að standa á eigin fótum til frambúðar, var það, að allir, sem á einhvern hátt stóðu að verkun saltfisks, gerðu þá skyldu sina að stuðla að því, að hún tækist sem allra bezt. Og þar komumst við svo langt, að við urðum fyrirmynd annarra þjóða. Og svo ber þá þess að gæta, að sama gildir um vöndun allrar vöru sem þjóðin framleiðir. Ég er og á þeirri skoðun, að í öllum hinum mörgu' og margbreyttu skólum þessa lands ríði mest á því, að kennarinn geri sér grein fyrir ábyrgð þeirri, sem á honum hvilir, og leggi sífellt, hvað sem hann kennir, áherzlu á þetta við nemendurna. að ekkert verk sé svo lítilfjörlegt, að ekki beri að leysa það af hendi af alúð og kostgæfni. Saga Elíasar Pálssonar er öll þess verð, að hún sé lesin. Fyrri hluti hennar er einkum forvitni- legur sakir þess, hve athyglisgáfa hans er vökul og næm fyrir öllu nýju, sem hann kynnist — og hve kímilega og allt að því barnalega það kemur honum stundum fyrir sjónir. En sjómennska hans á ára- bátum, vélbátum og togurum, hvort sem hann hefur verið þar hálfdrættingur, háseti, bátsmað- ur, stýrimaður eða skipstjóri, hef- ur orðið honum ómetanlegur und- irbúningur undir það áratuga starf frá miðjum aldri til ellidaga, sem gerði hann að einum þeirra manna, sem þjóðin megi sízt án vera. Sá hluti bókarinnar, sem um það starf hans fjallar, er ekki að minum dómi aðeins áhugaverður, heldur og beinlínis skemmtilegur, því að eldlegur áhugi Elíasar og sívökul ábyrgðartilfinning litkar Höfundur: Jan Terlouw Þýðing: (Jlfar Hjörvar Káputeikning: Brian Pilkington Prentun: Offsettækni sf. Útgefandi: Iðunn Saga unglings, 15 ára snáða, sem lifir í víti stríðsóttans. Það eru ekki aðeins rottur sem læðast um í húminu í leit að mat, heldur líka menn, lafhræddir, skjálfandi menn, sem engu treysta: „Hann var orðinn svo tortrygginn, að bráðum færi hann að gruna móð- ur sina um að vera þýskur njósn- ari.“ (44) Höfundur reynir að gera þess- um heimi skil, menn eru skotnir, menn eru á flótta, særðir húka menn í holum og eiga björg sina undir börnum, menn eru limlest- ir, eigum er hrært saman við ryk og lík. Það er ekki helviti heldur Hollandi, 1944, sem höfundur er að lýsa. Hann gerir meir, hann leiðir lafði til sögunnar, t.þ.a. skriðdýrseðli kúgaranna komi skýrt í ljós, viðbjóðurinn verði algjör. Aðeins einu sinni læðist að Ragnar Þorsteinsson lesandanum sá grunur, að meðal vondu þjóðarinnar sé til einn og einn sæmilegur maður, það er, þegar þýzkur hermaður bjargar dreng af húsþaki, hitt allt er kynding haturs, ef undan eru skildir kossar og strokur særðs Breta og ungrar stelpu. Sjálfsagt þykir þessi saga merk í heimi þar sem lesandinn hefir lifað það sem sagt er frá, hún hefir meira að segja hlotið æðstu verðlaun í föðurlandi höfundar, en í huga þess sem þekkir ekki stríð nema af afspurn, er þetta aðeins enn eitt sprekið á bál hat- urs, sáning til nýrra stríða. Kannski er þetta rangt, fyrir höfundi vaki aðeins, eins og þeim öðrum sem slikar sögur skrifa, einlægur vilji t.þ.a. sá til friðar- heims. Vonandi, en illa gengur þrátt fyrir allt gubbið um stríð úr kvikmyndavélum og prentvélum, engu líkar en þyrstum manni sé gefið salt vatn að drekka. Með orðum höfundar sjálfs: „Mörg ár eru liðin, Michiel er nú orðinn fjörutíu og þriggja ára gamall. hann og lýsir. Það gildir einu hvort hann er á þeytingi um allt Island eða á ferð um Spán eða Brasilíu, hann er ávallt gagntek- inn af skyldu sinni, og það er sama, hver i hlut á og hvort hann kynni jafnvel að vera sviptur starfi sinu sakir óvinsælda hjá þeim, sem meta stundarhagnað sjálfs sín meira en framtiðarhags- muni þjóðarinnar. Rétt er svo að geta þess, að þetta kemur betur til skila en ella hefði orðið sakir þess, að sá, sem söguna ritar, hóf sjómennsku — og stundaði hana síðan lengi sem stýrimaður og skipstjóri á þeim tímum, sem sjálfsagt þótti að fara með fisk í samræmi við gildi hans fyrir okkur Islendinga á í raun- inni öllum sviðum þjóðlífsins. Guðmundur Gíslason Hagalín Bókmenntlr eftir SIGURÐ HAUK GUÐJÓNSSON Hann hefur fylgst vel með í blöð- um og veit að siðan þeir Dirk fóru i gönguferðina kvöldið forðum hefur verið barist í Indónesiu, Júgóslavíu, Ungverjalandi, Norð- ur-Irlandi, Kína, Kóreu, Víet Nam, Kambódíu, Kongó, Alsír, Israel, Egyptalandi, Sýrlandi, Jórdaniu, Líbanon, Ekvador, Dómíníku, Kúbu, Hondúras, Mósambík, Bíafra, Angóla, Kashmir, Bangladesh, og fjölda mörgum löndum öðrum.“ (161) Það fer ekki milli mála að höf- undur kann mjög vel til verka, sagan er hlaðin spennu, og áður en lesandinn veit af, er hann orð- inn þátttakandi í lifi Michiels, glímir við torráðnar gátur með honum, og læðist með honum undir burði erfiðra verkefna. Listilegur sögumaður Terlouw. Þýðingin er á ailra þokkaleg- asta máli. Frágangur bókarinnar allur góður. Stríðsvetur Átti Mafían og CIA aðild að morði Bandaríkjaforseta? „Mest spennandi bók ársins" Sunday Ttmes Marco Riccione er félagi I Mafíunni og kunnur fyrir að geta framið fullkomna glæpi. Frammistaða hans i störfum Mafiunnar gerði það að verkum að hann komst frá fátæku þorpi á Sikiley til æðstu starfa á vegum Mafíunnar i Bandarikjunum. Samstarf Mafiunnar og CIA í ákveðnum verkefnum varð til þess að hann var valinn i verkefni, sem talið var það erfiðasta. En hann vissi ekki I hvað mikilli hættu hann var sjálfur..... „Það risa á manni hárin við lestur þessarar bókar" Financial Times CIA FÉKK LÁNAÐAN SÉRFRÆÐING FRÁ MAFÍUNNI Verö kr. 2.990.- M X H X M £ o m x ? oc NORMAN LEWIS c ~ NORMAN LEWIS Síkílcyjar leíkurínn SAMSTARF MAFIUNNAR OG CIA FÉKK ÓVÆNTAN ENDI. ..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.