Morgunblaðið - 22.12.1977, Síða 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977
Bækur — Bækur — Bækur — Bækur — Bækur — Bækur — Bækur — Bækur —
Sjö bækur frá Hörpuútgáfunni
HÖRPUUTGÁFAN á Akranesi
sendir frá sér 7 bækur á þessu
hausti, og eru þær af ýmsum toga
spunnar, eins og fram kemur í
þessari bókakynningu:
BORGFIRZK BLANDA —
sagnir og fróðleikur úr Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, safnað hefur
Bragi Þórðarson. Bókin skiptist í
þjóðlífsþætti, persónuþætti,
sagnaþætti, frásagnir af draum-
um og dulrænu efni, frásagnir af
slysförum, ferðaþætti og vísna-
þátt. Fátt af þessu efni hefur
verið prentað áður. Meðal
höfunda sem eiga efni i bókinni
eru: Andrés Eyjólfsson í Síðu-
múla, Árni Öla, ritstjóri, Björn
Jakobsson,' tónskáld og ritstjóri
frá Varmalæk, Guðmundur
Illugason, frá Skógum í Flókadal,
Hallgrímur Jónsson, f.v. hrepp-
stjóri á Akranesi, Magnús Sveins-
son, kennari og fráeðimaður, frá
Hvítsstöðum, Ólafur B. Björns-
son, ritstjóri, Akranesi, Sigurður
Jónsson frá Haukagili, Sypin-
björn Beinteinsson frá Draghálsi,
Þórður Kristleifsson söngstjóri og
kennari frá Stóra-Kroppi, Bragi
Þórðarson, Akranesi.
I Borgarfjarðarhéraði hefur
ekki verið útgáfa af þessari gerð
síðan Kristleifur Þorsteinsson
fræðimaður á Stóra-Kroppi,
skrifaði þætti sína, sem birtir
voru í Héraðssögu Borgarfjarðar
og bókunum Ur byggðum Borgar-
fjarðar. Borgfirzk blanda er 240
blaðsíður í stóru broti. I henni
eru myndir og nafnaskrá.
FRA UMSVÖLUM er 10. frum-
samda ljóðabók Jóhanns
Jóhann Hjálmarsson
Hjálmarssonar og sú lengsta. En
fyrsta ljóðabók skáldsins, Öngull í
tímann, kom út 1956. Frá Um-
svölum er ævisaga ungra hjóna,
sem víða hafa farið um heiminn
og kynnst flestum hliðum mann-
lífsins. Umhverfi bókarinnar er
þó fyrst og fremst íslenskt. Hún
er samin á Kópaskeri og er mann-
líf og landslag þar og á Sléttu
ríkur þáttur hennar, svo og jarð-
skjálftarnir þar nyrðra og áhrif
þeirra á fólk. Jóhann Hjálmars-
son er löngu þekktur fyrir að fara
ekki troðnar slóðir i skáldskap
sínum, og er í þeim efnum
skemmst að minnast bókar hans
Myndin af langafa, sem markaði
tímamót í þeim efnum.
OG AÐRAR VlSUR — söng-
textar með nótum, eftir Friðrik
Guðna Þórleifsson tónlistar-
kennara á Hvolsvelli. Vísur
Friðriks Guðna og söngtextar
hafa orðið vinsælir hér á landi.
Söngflokkar og kórar hafa flutt
þá. Hluti textanna var ortur
vegna útgáfu jólalagaplötu, sem
Eddukórinn syngur á og kom út
1971, svo og nokkrir sem kennslu-
efni samkvæmt pöntun frá skóla-
rannsóknum, en aðrir af öðrum
tilefnum.
SKÆRULIÐAR 1 SKJÓLI
MYRKURS er 10. bókin, sem út
kemur á íslensku eftir Francis
Clifford. Þessi bók segir frá
nútíma skæruhernaði.
ELDHEIT AST er 9. bókin, sem
Hörpuútgáfan sendir frá sér eftir
Bodil Forsberg. Þetta er ástar-
saga.
Friðrik Guðni Þorleifsson
LIFSHÆTTULEG EFTIRFÖR
eftir Gavin Lyall. A siðastliðnu
ári kom út hjá Hörpuútgáfunni
bókin TEFLT A TÆPASTA VAÐ
eftir sama höfund. Sú bók seldist
upp fyrir jól.
AST I SKUGGA ÖTTANS er ný
bók eftir danska rithöfundinn
Erling Poulsen. I fyrra kom út
bókin Hjarta mitt hrópar á þig,
eftir sama höfund. Ast í skugga
óttans er 2. bókin i röðinni af
Rauðu ástarsögunum, sem Hörpu-
útgáfan byrjaði að gefa út á
síðastliðnu ári.
Þrjár barnabækur koma nú
fyrir jólin í endurútgáfum. Eru
það bækurnar: HEIMS UM BÓL
HELG ERU JÓL, jólasálmar vald-
ir af séra Jöni M. Guðjónssyni.
Teikningar gerði Gyða L. Jóns-
dóttir.
VIÐ JÓLATRÉÐ, jolavísur
valdar af Hermanni Ragnari
Stefánssyni danskennara. Teikn-
ingar eftir Halldór Pétursson og
NÚ ER GLATT HJA ALFUM
ÖLLUM, álfaljóð valin af Ölafi
Hauki Arnasyni fyrrv. skóla-
stjóra. Teikningar eftir Halldór
Pétursson.
Það er áriö 1932. Kreppan leggur dauða hönd sína á
atvinnulíf um land allt. í Reykjavík er fimmti hver maður
atvinnulaus. Það á aö lækka kaupið um þriójung. Verka-
menn úr öllum flokkum sameinast. Það slær í blóðugan
bardaga. Yfir 20 lögregluþjónar særast og eru óvígir.
Verkamennirnir hafa Reykjavík á valdi sínu. Verka-
mannauppþot? Byltingartilraun?
Þetta er 9. nóvember 1932. Þetta er Gúttóslagurinn.
Ólafur R. Einarsson Einar Karl Haraldsson
nóvember
; 19:12
baráttuáriö mikla
í miöri
heimskreppunni.
AMERÍSKIR
SLOPPPAR
Aldrei meira úrval.
Tízkuskemman,
Laugavegi 34a