Morgunblaðið - 22.12.1977, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977
50
IR-ingar hyggja
á miklar fram-
kvæmdir í Mjóddinni
I FJÖLMENNUIVI íbúðahverfum
eins og Breiðholti er mikil þörf á
gróskumiklu íþróttastarfi. Hafa
framtakssamir menn gert sér þaó
Ijóst og í dag starfa í hverfunum
tvö íþróttafélög, Iþróttafélag
Keykjavíkur og Leiknir. Verdur
því fyrrnefnda gerö nokkur skil
hér, en Leikni síóar.
íþróttafélag Reykjavíkur hasl-
aði sér snemma völl í Breiðholti.
Hefur félagið í nokkur ár verið
með æfingar í íþróttahúsi Breið-
holtsskóla, en félagið situr að öll-
um-lausum tímum í húsinu utan
skólatíma. Er tíminn vel nýttur að
sögn Þóris Lárussonar formanns
ÍR, en það hefur þó ekki reynst
nóg, félagið hefur einnig æfinga-
tíma í gamla iR-húsinu við Tún-
götu, Langholtsskólanum, undir
stúku Laugardalsvallar og í Laug-
ardalshöllinni.
Þórir sagði að segja mættf að
félagið væri nú algerlega flutt í
Breiðholtið. „Starfsemi félagsins
hefur svo til að öllu leyti miðast
við Breiðholtið undanfarin ár,“
sagði Þórir. ,,Þar höfum við nú
komið upp félagsheimili, að Arn-
arbakka 2, og höfum við nýverið
sótt um 500 fm. lóð til framtíðar-
bygginga í Mjóddinni, en þar mun
í framtíðinni rísa mikið íþrótta-
svæði,“ bætti Þórir við.
Þórir sagði að lóðaúthlutun til
félagsins undir byggingar íþrótta-
húss og félagsheimilis væri mjög í
brennidepli núna. Árið 1974 sam-
þykkti borgarráð að IR hefði for-
gangsrétt að íþróttasvæði sem
Körfuknattleiksmaður úr IR
sendir knöttinn í körfuna. 1
fjölda ára hafa körfuknattleiks-
menn úr IR hreppt Islandsmeist-
aratitilinn I þessari fþróttagrein.
Þórir Lárusson formaður IR.
bæði á íþróttasviðinu og félags-
lega sviðinu. Eru íþróttamenn fé-
lagsins í dag meðal þeirra allra
fremstu í þessum íþróttagreinum.
Allt frá þvi að félagið var stofnað
i marz 1907 hefur félagið reyndar
haft hverju sinni mörgum afreks-
mönnum og flokkum á að skipa í
hinum ýmsu íþróttagreinum.
Þórir Lárusson sagði í spjallinu
við Mbl. að skíðadeild félagsins
hefði komið sér upp góðri aðstöðu
til skiðaiðkana á landsvæði félags-
ins í Hamragili nálægt Hveradöl-
um. Þar var fyrir stór skiðaskáli
og skiðalyfta, en í sumar hefur
verið unnið þar mikið starf að
frekari uppbyggingu svæðisins.
Reist hefur verið unnið þar mikið
starf að frekari uppbyggingu
svæðisins. Reist hefur verið ný
600 metra löng lyfta og grundvöll-
ur lagður að annarri jafnlangri,
hugsað væri að risi í Mjóddinni.
Þórir sagði að í fyrsta áfanga
hugsaði IR sér að reisa á væntan-
iegri byggingarlóð sinni íþrótta-
hús með um 44x20 metra gólffleti
svo og félagsheimili. „Við biðjum
um það mikió svæði að við getum
reist annan eins sal og þann sem
rísa mun í fyrstu og við þá verða
áhorfendastæði fyrir800 manns,"
sagði Þórir.
Þórir Lárusson sagði að á fyrir-
huguðu íþróttasvæði í Mjóddinni
yrðu nokkrir Iþróttavellir, einn
stór knattspyrnuvöllur og tveir
minni vellir. Þá er gert ráð fyrir
að borgin reisi þar íþróttahöll.
Segja má af þessu að nokkuð
vel líti út með aðstöðu fyrir starf-
semi félagsins i framtíðinni,“
sagði Þórir.
íþróttafélag Reykjavíkur sam-
anstendur af sex sérdeildum, fim-
leikadeild, frjálsiþróttadeild,
handknattleiksdeild, körfubolta-
deild, knattspyrnudeild og skiða-
deild. Hefur félagið átt miklum
uppgangi að fagna hin siðustu ár,
sem mun verða reist á næsta ári,
en sú lyfta mun flytja fólk á topp
fjallsins í beinu áframhaldi af
fyrri lyftunni. Sagði Þórir að
þarna yrði þvi góð aðstaða til
skiðaiðkana i framtiðinni.
Þórir sagði í lok spjallsins að
ekki væri hægt að segja til um
hvenær byggingar hæfust á því
sviði sem sótt hefur verið um til
borgarinnar. Sagði Þórir að félag-
ið stæði nokkuð vel fjárhagslega
og því ættu framkvæmdirnar að
geta hafist von bráðar. Hjá hon-
um kom fram að niðurstöðutölur
rekstrarreiknings félagsins fyrir
síðasta starfsár hljóðuðu upp á 13
milljónir, rekstrarhalli varð um
150 þúsund krónur. Er það betri
útkoma en undanfarin ár og líkur
fyrir betri afkomu í framtíðinni.
Á efnahagsreikningi félagsins
sagði Þórir að fram kæmi að fé-
lagið á mannvirki að verðmæti 57
milljóna, samkvæmt brunabóta-
mati o.þ.h., en fastafjármunir fé-
lagsins á síðasta starfsári voru
58.5 milljónir króna.
r w 1
1
. \ $
f vÉkh w fi
Frjálsíþróllafólk IR fagnaði í sumar sjötta sigri sínum í röð í Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands
Islands. Sigur í þeirri keppni er að jalnaði talinn Ijósastur vottur þess hvaða félag hafi bezta
frjálsíþróttafólkinu á að skipa.
Það er uppi fótur og fit í púðaher-
berginu og þar geta allir komið og
fengiS útrás ef þeim hitnar i
hamsi.
Glatt á
hjalla í
Fellahelli
..Við höfum gert okkur far um að
koma til móts við þarfir og vanda-
mál unglinganna, reynt að finna út
áhugamál þeirra og fengið þau til að
stofna klúbba af ýmsu tagi og vinna
að ólíkustu málefnum.” sagði Sverr-
ir Friðþjófsson. forstöðumaður fé-
lagsmiðstöðvarinnar Fellahellis, sem
rekm er af Æskulýðsráði Reykjavíkur
í Breiðholti 3
..Það eru tvö sem vinna hér allan
daginn,” sagði Sverrir. ..Elísabet B
Þórisdóttir og ég. en starfsliðið er
alls 11 manns og skiptir það með
sér vöktum'' H nn sagðist sjálfur
hafa verið ráðinn síðastliðið vor, en
Fellahellir hefði hins vegar verið
opnaður 9. nóv. 1974
Hann sagði að starfsemin í Fella-
helli væri tvískipt Annars vegar
væri um að ræða húsnæðisþjónustu
og fengju ýmis félög inni með fundi
á kvöldin, svo sem kvenfélög, skát-
ar, iþróttafélög o.s.frv., en á daginn
færi fram kennsla í námsflokkum
eða rekinn væri tónmenntaskóli.
eins og hann er kallaður Hins vegar
færi fram æskulýðsstarfsemi tvisvar
í viku fyrir unglinga 1 3 ára og eldri
Væri dansað á föstudags- og þriðju-
dagskvöldum en að auki væri um
aðra starfsemi að ræða síðarnefnda
kvöldið Væri spilað og spjallað i
hópum, eða krökkunum leiðbeint
við ákveðin áhugamál Á meðal
þriðjudagskvöldi sagði Sverrir að frá
1 50—200 manns væru á staðnum
Enn fremur kvað hann að jafnaði
opið á daginn og gætu krakkarnir þá
komið og stytt sér stundir eftir skóla,
ef þeim leiddist heima Einnig gætu
húsmæður, er sæktu námskeið hjá
námsflokkunum, skilið börn sin eftir
í gæzlu undir sama þaki og gerði
það þeim stórum léttara fyrir Þá
mætti nefna að Framfarafélagið i
hverfinu efndi til kvikmyndasýninga
fyrir börn á sunnudögum, en for-
eldra óaði oft við að senda börn sin
niður í bæ
Fram kom hjá Sverri að starfsemi
félagsmiðstöðvarinnar væri einungis
miðuð við þarfir íbúa í Breiðholti 3,
enda væri þar næg eftirspurn eftir
aðstöðunni. Hann sagði að börn úr
hverfinu fengju skírteim þess efnis
að þeim væri heimill aðgangur en
vitanlega mættu þau bjóða með
kunningjum sinum annars staðar
frá
..Það er mikilvægt að ná persónu-
legu sambandi við krakkana.'' hélt
Sverrir áfram, ,,að fá tiltraust þeirra
svo við getum hjálpað þeim til að
ráða fram úr vandamálum sínum Er
farið með slík vandamál sem algert
trúnaðarmál Það hefur komið á
daginn að krakkarnir eru yfirleitt alls
ófeimin að koma til okkar og leysa
frá skjóðunni Þau tjá sig oft eins og
þau mundu aldrei þora eða geta
heima hjá sér.”
Snar þáttur félagsstarfsins er eins
og áður segir fólginn i samvinnu um
málefm Svo dæmi sé tekið sagði
Sverrir að um tíma hefði nokkuð
borið á reykingum í húsinu og ann-
ars staðar þar sem unglingarnir
kæmu saman og hefðu þau þá verið
fengin til að stofna samtök gegn
reykingum og væru nú reykingar
ekkert vandamál lengur Ef tala
mætti um vandamál væri það helst í
sambandi við umgengni á staðnum
Hefði því nýlega verið settur á lagg-
irnar umgengnisklúbbur í því skyni
að gera hér bragarbót
Sverrir sagði að starfsliðið
fundaði einu sinni í viku um starfið
og árangurinn, og væri i mörg horn
að lita Hann kvaðst álita að Fella-
hellir væri ómissandi fyrir það sam-
félag er hann þjónaði og væri hætt
við að eitt og annað færi úr skorðum
ef honum yrði lokað ..Það hefði nú
ekki verið bagalegt að hafa aðra eins
aðstöðu þegar við vorum á svipuðu
reki,” sagði Sverrir að lokum
Fellahellir er að sögn forstöðu-
mannsins um 1000 fermetrar að
stærð Þar er danssalur og annar þar
sem leika má borðtennis og billjard.
auk annarra herbergja Einnig er þar
greiðasala Kom fram i viðtalinu að
á döfinni væri hjá Æskulýðsráði að
koma á fót sams konar starfsemi við
Sæviðarsund og í Árbæ. en hún
væri þegar fyrír hendi í kjallara Bú-
staðakirkju
Svona nokkuð fannst strákunum full mikið alvöruleysi, en hér æfa
stelpurnar nútimadans.