Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 1
48 SIÐUR
12. tbl. 65. árg. SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
S-Líbanon:
Átök
blossa
upp
Beirut 14. jan. AP.
ÁTÖK blossuðu upp aðfararnótt
laugardags f Suður-Líbanon rétt
við landamæri Israels milli
lfbanskra sveita þar og skæruliða
Palestínumanna. Fallbyssuskot-
hríð stóð yfir lengst af alla nótt-
ina en um manntjón er ekki vitað.
Sveitir Líbana á þessu svæði eru
einangraðar vegna þess að
Palestínuskæruliðar hafa um-
kringt þær og skorið á allar
aðflutningsleiðir til S-Líbanons.
lsraelar hafa hótað að grfpa til
fhlutunar ef friðarsveitir Sýr-
lendinga yrðu sendar á vettvang.
Þá sagði biaðið Magazine, sem
er gefið út í Beirut, frá þvi í dag
að Bandaríkin hefðu boðið fram
Framhald á bls. 47.
Jarðskjálft-
ar í Japan
Tókíó 14. jan. AP.
JARÐSKJÁLFTAHRINA gekk
yfir Japan í dag, laugardag, og
snarpasti skjálftinn mældist 6.4
stig á Richterkvarða og fannst
hann landshorna á milli. Um
manntjón er ekki full ljóst, en
vitað er þó að átta manns hafa
týnt lífi, átta er saknað og að
minnsta kosti þrettán slösuðust.
í fréttum sagði að komið hefðu
meira en 100 kippir en þeir hefðu
verið mjög mismunandi harðir,
frá því síðdegis á föstudag og til
jafnlengdar á laugardag. Meiri
háttar skjálftar voru um tíu og
urðu þeir allir um og eftir hádegi
á laugardag.
Manntjón það sem vitað er um
varð þegar stór björg losnuðu úr
fjalli í einni hrinunni og féllu á
bifreiðar sem fóru um fyrir neð-
an. Meðal annars féll stórgrýti á
fólksflutningabíl með 38 farþeg-
um.
Verstir og harðastir voru
skjálftarnir á eyjunni Oshima og
auk þess að þar létust menn varð
þar mikið tjón á byggingum. Raf-
magn fór af, skólum var lokað og
ekki var hægt að fljúga til eyjar-
Framhald á bls. 47.
Rauðu khmer-
arnir í sókn?
Bangkok — 14. jan.—AP. t
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimilduni að Rauðu khmera-
sveitirnar hafi nú heldur betur
sótt f sig veðrið f landamæraátök-
unum við Víetnama. Hafi veru-
legt mannfall orðið f liði hinna
sfðarnefndu á að minnsta kosti
fernum vfgstöðvum á Páfagauks-
nefinu, en þar til fyrir fáeinum
dögum virtust ' Víetnamar hafa
þar öll ráð í hendi sér.
Kambódíumenn hafa síður en
svo dregið úr stórbrotnum lýsing-
um á viðburðum á þessum slóð-
um, og halda því nú fram að þeir
hafi undanfarna daga eyðilagt
hundruð skriðdreka fyrir Víet-
nömum og fellt hvorki- meira né
minna en 40 þúsund manns úr liði
þeirra, enda sé hér um að ræða
sögulegan sigur.
Samkvæmt þeim fregnum, sem
helzt má telja marktækar, hafa
Kekkonen spáð
90% atkvæða
en búizt við dræmri kjörsókn
Helsinki 14. jan. AP. Reuter
ALLT BENDIR til þess að
Urho Kekkonen, ■forseti Finn-
lands, fáP yfirgnæfandi meiri-
hluta í forsetakosningunum í
landinu á morgun, sunnudag,
og mánudag. Aftur á móti hníg-
ur flest í þá átt að þátttaka
verði ekki mikil í kosningunum
og er naumast spáð meira en
60% kjörsókn. Fréttaskýr-
endur segja að dræma kjörsókn
nú megi túlka sem vantraust á
þá utanríkisstefnu sem
Kekkonen hefur fylgt alla sfna
forsetatíð eða 22 ár.
Kekkonen er nú 77 ára gam-
all. Hann sagði fyrir þremur
árúm að hann myndi ekki gefa
kost á sér nú, en eftir að
stærstu flokkar landsins höfðu
lagt hart að honum að bjóða sig
fram ákvað hann sig. Kekkonen
sagði í sjónvarpsviðtali í gær-
kvöldi er kosningabaráttunni
var að Ijúka, að hann myndi
leggja á það megináherzlu, ef
hann yrði kjörinn, að þróa efna-
hagsleg samskipti við Sovétrík-
in og vinna að einingu innan-
lands. Kekkonen var undir lok
Framhald á bls. 47.
Kekkonen
Víetnamar þó enn undirtökin og
hafa hvergi hafið undanhald.
Flestum ber saman um að Víet-
namar sýni þess engin merki að
þeir hyggist ráðast á Phnom
Penh, höfuðborg Kambódíu, en
þaðan berast þau tíðindi að gífur-
legur viðbúnaður sé í borginni,
hersveitir séu í viðbragðsstöðu
allan sólarhringinn og gripið hafi
verið til víðtækra varúðarráðstaf-
ana varðandi aðflutningsleiðir að
borginni.
Talið er að nú hafi Víetnamar
komið sér upp átta virkjum á
Páfagauksnefinu, en fregnir
benda til þess að nú sæki
Kambódíumenn hart að einu
þeirra.
Stjórnin í Thailandi segir, að á
landamærunum, sem liggja að
Kambódíu, hafi Rauðu khmerarn-
ir nú hafið skæruhernað á ný
eftir að tiltölulega rólegt hafi ver-
ið á þeim slóðum um nokkurra
vikna skeið.
Miðausturlönd:
Hubert
Humphrey
látinn
Sjá grein á bls. 3
Waverly, Minnesota,
14. janúar. AP Reuter.
HUBERT Humphrey, einn
kunnasti stjórnmálamaður
Bandaríkjanna, lézt á heimili
sfnu f gærkvöldi eftir langa
baráttu gegn krabbameini, 66
ára að aldri.
Jimmy Carter forseti sendi
Framhald á bls. 47.
Vance skerst í leikinn
— ef þörf krefur
Washington 14. jan. AP.
Reuter.
CYRUS Vance, utanrfkisráðherra
Bandaríkjanna, mun hafa umboð
Bandarfkjastjórnar til að beita
áhrifum sfnum eftir megni á
Jerúsalcmfundinum um helgina,
ef útlit er fvrir að málið sé að
sigla í strand, segir f fréttastofu-
fregnum frá Bandaríkjunum.
Vance mun koma til tsraels sfðla
laugardagskvölds. Vance mun
sérstaklega hvetja til að Egyptar
og tsraelar finni lausn á vanda-
máli Palestínumanna og sagði
Framhald á bls. 47.