Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978 ÞÓTT ijóma Ieggi af skáldinu Einari Benediktssyni hefur persóna hans ekki sfður verið sveipuð ævintýrablæ fyrir hið veraldlega vafstur hans, einkanlega á sviði f jármála og stórframkvæmda ýmiss konar, sem oftar en ekki reyndust þó aðeins loftkastalar. Einhvern veginn hefur sú þjóðsaga greipzt inn f huga flestra, að slfkt hafi þó ekki komið verulega að sök hvað efnahagslega velferð skáldsins áhrærði, þvf að hann hafi haft iag á þvf að koma jafnvel loftköstulum sfnum f pening. Alltaf hefur þó verið talið að með kvæðum sfnum hafi hann reist sér óbrotgjarnari minnisvarða en með fjármálavafesti sfnu og þykir það þvf töluverðum tfðindum sæta þegar fram f dagsljósið kemur eitt af hlutafélögum þeim sem Einar setti á laggirnar með enskum auðjöfrum þegar hvað mestur völlur var á skáldinu og með þeim hætti að félag þetta kann hugsanlega að valda lögfræðilegum vangaveltum. Hver sem vantrúaður er á sannleiksgildi þessa, skyldi bregða sér á skrifstofu borgarfógeta f Reykjavfk og fá að fletta þar upp þinglýsingum varðandi þjóðjörðina Hólm f Seltjarnarneshreppi, þ.e. Hólmur f grennd við Rauðhóla, en þar kemur fram að með þinglýsingu 31.10 árið 1911 hefur The British North Western verið afsalaður veiðiréttur og fyrir liggur að sá veiðiréttur nær til efri hluta Elliðaáa, þ.e. Elliðavatns og áa og vanta þar fyrir ofan a.m.k. Hins vegar hefur frá árinu 1964 verið starfandi Veiðifélag Elliðavatns fyrir þetta vatnasvæði og eru þar í eigendur og fulltrúar þeirra jarðeigenda sem land eiga að þessu vatnasvæði. Reykjavíkurborg fer með veiðiréttindi Hólms innan þessa veiðifélags enda eigandi sjálfrar jarðarinn- ar en nú er sem sagt sýnt að veiðiréttur Hólmsjarðar er enn á nafni The British North — Westen Syndicate en það var viðskiptafélag og til þess stofnað á breiðustum grundvelli allra fésýslusamtaka, er Einar stóð að, segir Steingrfmur J. Þorsteinsson, prófessor, í Æviágripi Einars Benediktssonar. Var þessi veiðiréttur hluti af framlagi Einars við stofnun Breska Norður-Vestur samlagsins f London árið 1910. ■ Einar Benediktsson árið 1906. Brezkt hlutafélag Einars Ben. enn þinglýstur eigandi veiði- réttar í efsta hluta Elliðaáa Lfklega hafa ekki staðið hat- ammari deilur um neina land- spildu hérlendis en vatnasvæði Elliðaáa nú á sfðari öldum. Upp- hafið var að um miðja síðustu öld keypti Ditlev Thomsen, kaup- maður eldri, veiðiréttindi jarð- anna Bústaða og Ártúns af kon- ungi úr Elliðaárvogi og upp eftir ánum að Skorarhylsfossi eða Stóra Fossi en landamærin milli Ártúns og Árbæjar lágu þar þvert yfir ofanvert í Ártúnshólma. Fað- ir Einars, Benedikt Sveinsson, sýslumaður á Elliðavatni, átti jarðirnar fyrir ofan, Árbæ, Vatns- enda, Elliðavatn, o.fl. og hefur einnig fengið veiðirétt þeirra aft- ur frá konungi, sem áður átti all- an veiðirétt í ánum. ThomsenJiélt þvf fram, að hann hefði eignazt allan veiðirétt í Elliðaánum frá konungi, lét þver- girða árnar neðarlega og nýtti veiðina þar svo grimmt að lítill fiskur mun hafa komizt upp árnar og á það svæði sem Benedikt átti veiðirétt. Benedikt vildi ekki una þessu og urðu úr þessu Elliðaár- málin hatrömmu, með margvfs- legum málarekstri og skemmdar- verkum, og stóðu um árabil. Þegar Thomsen tók að þreytast á allri rekistefnunni, bauð hann bænum ftrekað að kaupa land sitt ásamt veiðiréttinum, en bæjar- stjórn hafnaði og komst þessi neðsti hluti Elliðaáanna árið 1890 f hendur Englendingsins Harry A. Payne, dómara. Fimm árum síðar keypti Payne einnig veiði- réttinn í Elliðaánum þar fyrir of- an af erfingjum Benedikts Sveinssonar og ábyrgðist að þar væru einnig með veiðiréttindi, þau sem jarðirnar Breiðholt og Grafarholt kynnu að hafa átt f EUiðaánum. Stundaði Payne þarna stangveiðar ásamt ýmsum löndum sfnum til ársins 1906 en þá keypti Reykjavíkurbær veiði- réttindi og eignir Paynes, þar sem vatnsveitumál bæjarins voru þá mjög í deiglunni og stóð til f fyrstu að taka neyzluvatnið úr Eiliðaánum sjálfum. Bærinn keypti einnig jarðirnar Breiðholt og Árbæ og taldi sig þar með eiga örugglega allan veiðirétt f ánum upp undir Elliðavatn og Vatns- enda en auk þess einnig rétt til vatnstöku og virkjunar, þegar þar að kæmi. if Veiðiréttindum skipt Þó svo að erfingjar Benedikts seldu bænum jarðir og veiðirétt- indi f Elliðaám neðan EUiðavatns aldamótaárið var dánarbú hans ekki tekið til skipta fyrr en 13. ágúst 1904 og samkvæmt veðmála- bók Gullbringu- og Kjósarsýslu frá þessum tíma kemur í ljós að til skipta komu samtals kr. 37.220.04 eða liðlega 9300 kr. í hlut hvers hinna fjögurra erfingja. A útleggi Einars má sjá að hann hefur áður meðtekið úr dánarbúinu röskar 7000 krónur, þannig að það umtalsverðasta er f hans hlut kemur er „veiðiréttindi búsins í vötnum og ám fyrir ofan Elliðaár með Hólmsá og Bugðu og engjastykki það úr Elliðavatni er nú notar Hólmsbóndi", segir f skiptagjörðinni og er þessi liður metin á um 2000 krónur. Ragn- heiður, systir Einars, fékk á hinn bóginn veiðiréttindi búsins í Korpúlfsstaðaá með Hafravatni, og f Grafarvogi ásamt leigu- réttindum yfir Korpúlfstaðaá og með þeim rétt til að veita þeirri á f Grafarvog og loks silungs- og laxveiði frá Blikastaðalandi. Ein- ar kaupir þessi veiðiréttindi syst- ur sinnar og mánuði sfar afsalar hann The British North-Western þessum veiðiréttindunum og einnig sínum rétti f efri hluta Elliðaáa, en því afsali er þinglýst árið eftir eða í lok október 1911. Réttu ári síðar hefur Einar síðan látið þinglýsa skiptagjörðinni frá 1904, svo að ljóst er að hann hefur viljað hafa vaðið fyrir neðan sig. if Brezka norður— vestur samlagið stofnað Einar Benediktsson fluttist bú- ferlum til Bretlands vorið 1910, enda vann hann þá að þvf að koma á fót með brezkum peninga- mönnum þessu mikla viðskiptafé- lagi, The British North-Western Syndicate og var hann þetta ár á stöðugum þönum milli fslands og Bretlands til að vinna að fram- gangi þessa máls. 1 kjölfar þess- ara ferða semur hann greinar- gerðir eða skýrslur á ensku og voru þær birtar sem „einka- og trúnaðarmál" f skýrslnasafni, sem út var gefið f upplýsinga- og aug- lýsingaskyni handa félagsmönn- um The British North-Western Syndicate, að þvf er Steingrfmur J. Þorsteinsson segir. Hann segir svo um þessar skýrslur: „Enn er Einar staddur f Reykja- vík 23. maí (1910), því að þá er þar dagsett hin fyrsta af þremur félagsskýrslum hans, “um tsland eftir herra Einar Benediktsson, sýslumann frá tslandi. Til stjórn- enda The British North-Western Syndicate hf.“ Önnur skýrslan, „um eignir samlagsins", ætluð sömu viðtakendum, er dagsett ,á Metrópólhótelinu f Lundúnum 20. apríl, en þriðja skýrslan, „um verzlun á tslandi," dagsett í Reykjavfk 19. maí, stfluð „til stjórnenda The North-Western Trading Company hf.“, sem var ein grein eða angi fyrrnefnds alls- herjarfélags," segir Steingrfmur. Þetta sumar dvelst hér einnig Englendingurinn F.L. Rawson ásamt fjölskyldu sinni og keypti hann hér jarðeignir og veiðirétt- indi í Mosfellssveit. Rawson þessi var einn helzti forsprakkinn f þessu brezka hlutafélagi eða sam- lagi, eins og Einar kallaði það og eftir þvf sem Steingrfmur J. Þor- steinsson segir var hann mjög ein- kennilegur maður og að sumu leyti skyld manngerð Einari — „annars vegar fésýslu- og fjárafla- maður og svo trú- og dulhyggju- maður, var „christian scientist" og trúði skilyrðislaust á mátt bæn- ar og hugsunar." if Stórkostlegar áætlanir Steingrfmur segir réttilega, að fFamangreindar skýrslur Einars séu einhver bezta heimild sem til sé um „þann ævintýralega stór- fengleik og hrffandi sannfæring- arkraft, sem verið gat yfir fyrir- ætlunum hans og málflutningi, og um það hve rfkan þátt skáldið f Einari átti f hinum fjarskalegu framkvæmdadraumum hans.“ Félagið hafi átt að taka til flestra atvinnugreina og gróðavega á ts- landi, það „stefnir að þvf að öðlast rétt til að starfrækja náttúruauð- lindir landsins," segir Einar og að möguleikar séu á þvf margir að efla framþróun á Islandi og hagn- ast af. Steingrfmur segir, að hér hafi sem oft endranær vakað fyrir Einari að sameina það tvennt — að veita erlendu fé inn til lands- ins því til efnahagslegrar eflingar og hljóta sjálfur verðskuldaða umbun framsýni sinnar og fram- taks. Möguleikarnir hér virðast ótæmandi samkvæmt lýsingum Einars — jarðakaup fyrir spott- prfsa sem skjótt munu gefa mik- inn hagnað, margvfslegur náma- gröftur og jarðefnavinnsla, fisk- veiðar og landbúnaður, en höfuð- auður landsins er að sjálfsögðu fólginn i vatnsaflinu. Einar virðist sjálfur hafa trölla- trú á fyrirtækinu og á einum stað í skýrslunni um eignir samlagsins hér á landi kveðst hann þess full- viss að framfaraefling tslands geti gefið stórfé í aðra hönd alveg áhættulaust og til að sanna skoð- un sfna f verki kveðst hann hafa afhent félaginu til eignar þær verðmætu fasteignir, sem hann kveðst ætla að skýra og séu meira virði en allur höfuðstóll samlags- ins. Hann tfundar sfðan rækilega þessar fasteignir — byggingarlóð- ir í austurhluta Reykjavíkur, sex jarðir í Tálknafirði, vöruhúsið í Reykjavík á bezta stað f bænum, og Einar kann að gylla hlutina — „Mér buðust mörg leigutilboð, meðan á hússmíðinni stóð. Til að mynda falaðist umboðsmaður Rockefellers eftir efri hæðinni \ 6 s ] ls.tm.ui \ . u.i ».* (Þrtnfitfafcis) ; ’(HréunhOM) -.4, héttMsfMt l )fr\ o Afbaejarhólma i He6n-&po<fitrytu< grjólrtim Selás fe, \ <n %■ \ % % Brónkollufnýft (fit#6run»w. 8ug6uhytu<j emist* H4t**vU* BrönkólMaut SlekkjarhóH :Ský<J9nir s t/óógétt Bvgðu Vatnsendahólmar Am6t % Wf Gtivafíshyha . 4» (Hótfíshvfwi » 0 Elbðavatn OM Mta tf/1' ' Háipttt Oímmu v ^ 4 V , \ * , % Hluti af korti Agústs Röðvarssonar af núverandi vatnasvæði Elliðaáa, sem hann gerði vegna útgáfu bókarinnar Elliðaár — paradís Reykjavíkur í samantekt Guðmundar Daníelssonar og GuðjónO gaf út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.