Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978 Etirfarandi er hluti viðtals, er Bkmenntagagnrýn- andi, við v-þýzka blaðið „Die Zeit“, Hanja Kesting að nafni, átti við rithöfundinn Heinrich Böll í tilefni að 60 ára afmæli hans 21. des. 1977. Af sama tilefni voru skáldsögur Bölls og frásagnir gefnar út í fimm bindum i Þýzkalandi fyrir jól. „Herra Böll, þér eigiö sex- tugsafmæli. Það eru skrifaðar afmælisgreinar, flutt erindi og verk yðar tekin til umfjöllunar. Veldur það yður óþægindum?" Heinrich Böll: Ég er að eðlis- fari lítið gefinn fyrir afmæli." „Að minnsta kosti eftir að þér hlutuð Nóbelsverðlaunin í bókmenntum hafið þér verið „opinber persónuleiki", sem er kynlegt, þegar þess er gætt, að þér eruð fremur óvenjulegur einstaklingur. Þegar þér flutt- uð ræðu yðar um „Tilraun með ljóðræna skynsemi" við afhend- ingu verðlaunanna 1972, voruð þér í kjólfötum sem fór yður mjög vel". Heinrich Böll: „Það held ég nú varla, þau voru fengin að láni.“ „Það eru til menn, sem eru raunverulegir, fæddir fulltrúar hinna; tökum til dæmis Tómas Mann.“ Heinrich Böll: „Þessi um- boðslist kemur mér ólýðræðis- lega fyrir sjónir. Hafi ég póli- tiska tilhneigingu, er hún í lýð- ræðis- eða lýðveldisátt... Mér er einfaldlega ómögulegt að vera einhvers konar fulltrúi. Svo er ekki verðleikum eða lít- ilþægni fyrir að þakka, og væri því öfugt farið, væri það heldur ekki af stærilæti." „Margt af því, sem þér segið lætur eins og svartsýnistal í eyrum. Gefur það rétta mynd af dagfarslegri lund yðar?“ Heinrich Böll: „Nei, alls ekki. Ég held að þér séuð að rugla saman þunglyndi og svartsýni. Þunglyndi heyrir til áskapaðri skapgerð. Það á ekk- ert skylt við svartsýni. Þung- lyndi hefur, þvert á móti, sterkt kímilegt ívaf. Maðurinn á einn- ig tilkall til sorgar. Okkur hSett- ir til að líta svo á, að sá, sem er dapur, sé einnig sjúkur, að harmur hans sé jafnskjótt úr sögunni og hamingjuhjólið fer að snúast á ný. Ég hallast að því að þeir, sem eilíft eru með hýrri há, verði einnig lýstir sjúkir, að þeim sé gefin sprauta svo þeir komist lika á snoðir um hvernig það er að vera sorgbit- inn . ..“ „A fimmtugsafmæli yðar fyr- ir 10 árum birtist hátíðarútgáfa með nafninu „Þættir af Böll“ sem i var grein eftir Adorno þar sem hann hélt því fram að með hliðsjón af uppruna yðar, kaþólskri trú, framfarastefnu og - undirtéktum, væruð þér ákveðið orðinn „embættislegt skáld“. En það eruð þér sannar- lega ekki.“ Heinrich Böll: „Nei, guði sé lof. En það er hvorki kostur né löstur af minni hálfu. Því mið- ur hefur Þýzka sambandslýð- veldið sjálft vanrækt að skapa menningarlegan kúf, í besta skilningi þess orðs. Það er hið merkilega frávik Þjóðverja frá þeirra eigin menningu, bók- menntum og arfleifð ... Það er yfirsjón, missir og gloppa í þró- un Þýzka sambandslýðveldis- ins. Ég verð æ öfan i æ skelf- ingu lostinn þegar ég á eitt- hvert erindi til Bonn og sé hvers konar myndir þeir hengja þar á veggi. Það er til þýzk málaralist síðan eftir stríð, á sama hátt og til eru eftirstrfðsárabókmenntir. Af hverju ber þetta aldrei fyrir augu í Bonn? Við erum þó líka hluti af Þýzka sambandslýð- veldinu, rithöfundar og málar- ar. Við tilheyrum þvi. Því skyldi það ekki fá að sýna sig i einhverju? Ég á ekki við að fólk hafi móttökur og lofi s'na ást- kæru listamenn. En mórgu er einfaldlega ekki tekið eftir — eða aðeins með tregðu. Svo æsa menn sig út af þessari eða hinni bókinni, eða einhverri ræðu og. án þess að gefa því minnsta gaum að þetta er líka hluti af menningu eftirstríðsáranna. Ég vona sífellt að augu manna opn- ist, því afneitanir af þessu tagi leiða til viðsjárverðs ástands." „En á sama tima og við hér ræðum brestina verður ekki sagt að mikið rætist úr. Hátt- settur embættismaður, ekki alls fjarri forsætisráðherra Baden- WUrtemberg, benti nýlega á að ef Böll likaði ekki hér gæti hann farið til A- Þýzkalands...“ Heinrich Böll: „... Það er nokkuð, sem einnig á skylt við þýzka hefð. Þessi herramaður í Stuttgart heimfærði upp á mig orðatiltæki. Ég hafði sagt í við- tali: Mér finnst ég ókunnugur. En hugtakið „ókunnugleiki" skýrgreindi ég heimspekilega í sömu andránni. Ókunnugleiki hefur mörg blæbrigði, þú getur fundið til hans jafnvel í eigin fjölskyldu. Mér getur fundizt ég vera ókunnugur í Köln, í Rínarlöndum, í Sambandslýð- veldinu — í heiminum öllum. Svo er líka til hín undraverða og klassíska bók Albert Camus „Utlendingurinn". En það, sem þessir herrar segja, skiptir mig engu. Aftur á móti finnst mér athyglisvert að maður í stjórn- arflokki, sem kallar sig kristi- legan, skuli engan veginn skynja hinn heimspekilega eða trúarlega þátt „ókunnugleik- ans“ né eiga málgagn, sem það getur lengur.“ „Þér hafið á síðari tfmum átt hlut að deilum sem snúast um ógnvekjandi málorsakir hryðju- verkaöldunnar...“ Heinrich Böll: „Þegar fjallað er um orsakir hryðjuverkaöld- unnar, verður að leita mjög langt aftur, a.m.k. til Sófókles- ar, til fornmanna, til Nýja testa- mentisins, til klassískra bók- mennta. Hryðjuverk eiga sina fortfð i okkar sögu, þótt þau hafi ekki verið kölluð sínum Heinrich Böll, er hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels 1972, hefur sætt ofsóknum vissra aðila í V- Þýzkalandi fyrir viðleitni sína til að skilja málstað hr.vðjuverkamanna. Teikning eftir Loredano. „Hvernig „vinnið þér úr“ slíkum árásum og fordæming- um?“ Heinrich Böll: „Mér hefur boðizt það brattara, ekki í Sam- bandslýðveldinu, en á öðrum tíma í sögu okkar ... Það ætti að vera til menningarfrömuður, skiptir engu úr hvaða flokki, sem hefði kjark til að gera „Bambule" Ulríku Meinhof að skyldulesningu. Það sem gerir mér órótt og ég veiti athygli í hvert skipti, er ég hitti kenn- ara, er að það fólk, sem mestu ræður um mótun mennta- stefnu, ráðherrar menntamála, taka slfkum viðburðum með jafnaðargeði eða jafnvel ánægju, sem leitt getur til al- gerrar eyðileggingar. En þegar svo langt er gengið, skiljum við Sófókles ekki lengur. Vanda- mál Antfgónu verður raunveru- legt, ef þér leiðið hugann að útförinni i Stuttgart, sem þagað var um eða því sem næst. Mín fyrsta hugsun, það fyrsta, sem mér kom í hug úr bókmenntun- um við þennan atburð, var Antígóna. En er þá ekki líka tilefni til að fella Antígónu Só- fóklesar burt af kennsluskrán- um — og halda svo áfram frá Antígónu til Karls Marx?“ Rithöfundum hefur mjög ver- ið legið á hálsi fyrir það hve gjarnt þeim er að gagnrýna jafnframt þvi,sem þeir sjálfir séu mjög viðkvæmir fyrr gagn- rýni.“ Heinric Böll: „1 þessu efni ber að halda tveim hlutum að- greindum. Sérhver rithöfundur verður að þola gagnrýni. Ég hef staðið af mér ófáar orrahríðir án þess að verja hendur mínar. En það, sem hér er um að ræða, er af öðru tagi. Akúran um „kjökursemi“, sem ég hef sætt i sambandi við hryðjuverkadeil- una, kemur úr ákveðinni átt. Þetta er ný gildra. Það er ráðist á einhvern, ekki þó með lista- gagnrýni — og ef fórnardýrið snýst til varnar eða lætur frá sér heyra, þó ekki sé meira, er „Hermdarverk eru engin ný bóla á Vesturlöndum" - segir rithöfundurínn Heinrich BöH réttu nöfnum. 1 trúarbragða- styrjöldunum voru hryðjuverk unnin á báða bóga, í öllum trú- arbragðadeilum áttu sér hermdarverk stað í stærri stil en við getum ímyndað okkur nú. Við ættum ekki að láta eins og Vesturlönd hafi aldrei þekkt ofbeldisstefnu. Sesar beitti Gaulverja ofbeldi, við skulum ekki gleyma ofsóknunum gegn Keltum, keltneskri menningu, en það er harmsaga að mínum dómi. Með þvi að fara langt aftur i tímann getum við vissu- lega gengið úr skugga um að það hafa alltaf verið til menn og mannflokkar, er talið hafa ofbeldi — ég á við líkamlegt ofbeldi — eina úrkostinn. En nú láta menn eins og eitthvað, sem aldrei hafi áður fyrir borið, hafi skollið yfir eins og helli- skúr úr heiðríkju. En þessar blikur hafa verið á lofti. Mér eru lifandi fyrir hugarsjónum hryðjuverk nasista á götum úti. Ég vil ekki setja hryðjuverka- menn á okkar dögum í samband við ógnarstjórn nasista, hvorki stjórnmálalega né menningar- lega, en við höfum nú um tólf STUTT ÆVIÁGRIP BÖLLS 21.12. 1917 Fæðist í Köln, sonur Viktors Böll myndhöggv- ara og trésmíðameistara. 1937/38 Böll byrjar sem lærlingur hjá bóksala 1938 Þjónar vinnuskyldu í Þriðja ríkinu 1939 Innritast til náms i háskóla í germönskum fræðum og fornmálum 1939—45 í herþjónustu. 1946 Fyrsta smásaga Bölls kemur á prent 1949 „DerZug war punktlich ", fyrsta bók Bölls kemur út, en síðan hafa fimmtíu útgáfur hennar birzt. 1951 Hlotnast fyrsta bókmenntaviðurkenningin, en siðan hefur hann unnið til meira en tuttugu verðlauna (þ.ám. Buchner-verðlaunanna, 1967, og Nóbelsverðlaunanna, 1972) 1946/77 Verk Bölls hafa verið þýdd á meira en 35 tungumál og heildarupplag bóka hans nemur yfir 20 milljón- um eintaka ára skeið lifað tíma ofbeldis- verka í Þýzkalandi." „Nú virðast mörgum deilur menntamanna um ofbeldi fela i sér leynilega réttlætingu þess. Er þá enginn heilagur blettur í þessum efnum““ Heinrich Böll: „Jú, það væri blindni, sem ekkert stoðar, að halda því fram. Ég tók mér einmitt í hönd „Djöflana" eftir Dostojefskí og las enn einu sinni, af því hún er innlegg í umræðuna um ofbeldisverk, auk þess sem ég sá hluta mynd- arinnar sem gerð var eftir henni, en þar gefur að líta klassísk dæmi ofbeldis. En skáldsagnahöfundur, er færir slíkt í sögubúning, er þó á eng- an hátt „faðir hryðjuverka- stefnunnar“. Og mér finnst illt í efni, þegar verk eins og „Hin- ir réttiátu“ eftir Camus, sem byggir á Dostojefskí, er felld af skrá. Það er enginn ávinningur að þvi, heldur þvert á móti. Slík verk gætu orðið til skilnings- auka. Rithöfundur, er skrifar skáldverk og gæddur er ímynd- unarafli — snefil ímyndunar- afls verður hann að hafa — verður að geta skilið ofbeldis- verk af verstu tegund, þótt þar með vaki ekki fyrir honum að réttlæta þau. Af og til þarf hann meira að segja á að halda glæpsamlegu ímyndunarafli, þótt hann sé þar fyrir enginn,, glæpamaður". hann kallaður „viðkvæmur", „kjökursamur” eða „vælukjói". Nýjasta dæmið var herra Frei, Eduardo Frei, kristilegur demókrati frá Chile. Herra Strauss og hann þrættu um ástæðurnar fyrir kollsteypu og dauða Allenders og voru þeir á öndverðum meiði. Herra Freið varðist og á samri stund var hann orðin „vælukjói". Það var orðtakið, sem notað var“. „Hafið þér og aðrir rithöf- undar á undanförnum árum e.t.v. látið hafa eitt og annað eftir yður, sem yður hefur snú- ist hugur um og þér munduð ekki hika við að segja um núna: Það var nú eins og kringum- stæður gáfu tilefni til að halda — og sennilega var það rangt?" Heinrich Böll: „Að vísu. Allt hefur sinn tima. Aðal árásirnar áttu sér rætur í einum af harð- vítugustu ritdeilum, sem ég hef nokkru sinni tekið þátt í. Hún beindist gegn Bild-blaðinu, ekki gegn lögreglunni eða einni eða annarri mynd löggjafans eða framkvæmdavaldsinS, held- ur var það hörð og illskeytt gagnrýni gegn sérstökum fréttamiðli. Nú á dögum mundi ég fara ólfkt að um margt og sennilega hafði ég á röngu að standa. En fyrir hugsanleg heimskupör, sem ég hef framið, hef ég orðið að gjalda svo óhneppilega að ég mun e.t.v. aldrei iðrast.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.