Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978 3 Hubert Humphrey hinn brosmildi baráttumaður HUBERT Humphrey, einn kunnasti og ástsælasti stjórn- málamaður Bandarfkjanna, er látinn, 66 ára að aldri, eftir hetjulega baráttu við dauðann. Hann hafði lengi þjáðst af krabbameini í ristli og læknar sögðu honum fyrir nokkrum mánuðum að það væri orðið ólæknandi. Ýmsir töldu þá að áratugaferli hans f bandarísk- um stjórnmálum væri lokið, en lífsþrek hans var óbugandi og í október í fyrra fór hann til Washington frá heimili sínu í Minnesota í fylgd með Carter forseta f einkaþotu forsetans og tók aftur til starfa. Glaðlyndi og brosmiidi voru aðalsmerki Humphreys og hann lét aldrei bugast þótt á ýmsu bjátaði á litríkum stjórn- málaferli. Hann var varaforseti Lyndon B. Johnsons forseta 1965—1969 og frambjóðandi demókrata í forsetakosningun- um 1968 en beið ósigur fyrir Richard Nixon. Hann bauð sig þá aftur fram til öldungadeild- arinnar, þar sem hann hafði átt saéti um árabil áður en hann varð varaforseti, og náði auð- veldlega kosningu. Minnstu munaði að hann reyndi að keppa að tilnefningu i forseta- framboð fyrir síðustu forseta- kosningar, en hann stóðst þá freistingu. Siðan beið hann ósigur í kosningu um leiðtoga demókrata í öldungadeildinni og síðla árs 1976 var hann skor- inn upp við krabbameinssjúk- dómi þeim sem dró hann til dauða. I ágúst í fyrra sögðu læknar hans á sjúkdómurinn væri ólæknandi: að hann gæti kannski lifað nokkra mánuði, kannski nokkur ár. Það þótti lýsa Humphrey vel að hann kvaðst hafa sagt við lækna sfna: „Það er eins gott fyrir ykkur að halda í mér lífinu, því ef ég dey tapið þið milljónum dollara, sem ég hefði getað aflað til krabbameins- rannsókna." Og þegar hann sneri aftur til Washington í haust þrátt fyrir veikindin (á réttum tíma aldrei þessu vant, því hann var frægur fyrir óstundvísi) sagði hann hlæjandi: „Ég ætlaði að vera kominn fyrir nokkru, en beið eftir að fá frítt far, þar sem ég hef alltaf verið sparsamur, og auk þess hef ég beðið i 20 ár eftir því að fá að ferðast með einkaþotu forsetans.“ Þegar hann tók sér aftur sæti í öldungadeildinni hylltu sam- herjar hans' og andstæðingar hann i fimm mínútur og Robert Byrd, leiðtogi demókrata, sagði: „Hann hefur verið trúr hjarta sínu og ekkert fær bugað bjartsýni hans og sál hans er ódrepandi." Wendell Ander- son, félagi hans frá Minnesota, sagði: „Þeir sem halda að hetj- ur séu ekki lengur til þekkja ekki Hubert Humphrey." Stjórnmálamenn í Washing- ton vildu þannig heiðra góðan, frjálslyndan og heiðarlegan mann. Og frá þvi Humphrey tók fyrst sæti í öldungadeild- inni var hann einn helzti for- göngumaður baráttumála frjálslyndra þingmanna, Hann tók mikinn þátt í baráttu sem varð til þess að lög um mann- réttindi voru samþykkt, barðist gegn tilraunum með kjarnorku- vopn og barðist fyrir sjúkra- tryggingum auk fjölda annarra mála, stórra og smárra. Hann varð fyrst landsfrægur þegar hann barðist fyrir mannréttind- um á flokksþingi demókrata, þá nýbakaður borgarstjóri frá Minneapolis. Humphrey kailaði það „lengsta dag ævi sinnar“ þegar hann tapaði fyrir Nixon 1968, en þótt barátta hans virtist von- laus í upphafi vegna Víetnam- stríðsins og atburðanna á flokksþingi demókrata vann Nixon með aðeins 510.000 at- kvæða mun. En Humphrey hafði áður orðið fyrir vonbrigð- um: hann keppti að útnefningu 1960 og beið ósigur fyrir John F. Kennedy, og hann reyndi aftur 1972 og beið ósigur fyrir George McGovern. Humphrey var tryggur samstarfsmaður Johnsons þegar hann var vara- forseti („Ég var sá sem helzt varði æ ljótara og óvinsælla strið fyrir utan forsetann," sagði hann seinna) og missti þar með stuðning frjálslyndra og var lengi að bæta það tjón, en naut stuðnings valdahópa flokksins og verkalýðshreyfing- arinnar 1972 og 1976. Humphrey var varaleiðtogi demókrata í öldungadeildinni 1960—1964 og sagði seínna að það hefðu verið mestu hamingjuár ævi sirfnar og þótt hann yrði aldrei forseti urðu mörg baráttumál hans að veru- leika: stofnun friðarsveitanna, tilraunir hans snemma á ferli sínum til að takmarka kjarn- orkuvopnatilraunir, full atvinna tryggð með því að al- ríkisstjórnin útvegi atvinnu þegar allt annað þrýtur (þótt sú hugmynd hafi ekki orðið að lög- um eins og hann beitti sér fyrir) o.fl. Og Humphrey var ánægður þegar dauðinn nálg- aðist. Hann sagði í ræðu þegar öldungadeildin hyllti hann í haust: „Það eina sem ég þrái nú ... er virðing ... Ég vil ekki verða forseti ... varaforseti, utanríkisráðherra eða leiðtogi meirihlutans. Ég veit ég mun ekki öðlast þetta og hef vikið því til hliðar án nokkurrar eft- irsjár. Ég vil hins vegar fá þann dóm sögunnar að hafa lagt fram minn skerf í stjórnmálum, vald- ið starfi minu, verið góður mað- ur og átt frumkvæði að fram- kvæmd mikilvægra mála.“ Humphrey þegar hann var varaforseti ásamt konu sinni. Dean Rusk utanrfkisráðherra og Lyndon B. Johnson forseta. Spánn Costa del Sol Marz. 22 Apr.: 2., 23. Mai: 14. Júní: 4.. 25. Júli: 9., 23., 30. Ágúst: 6., 13.. 20.. 27 Sept.: 3.. 10.. 17.. 24. Okt.: 8.. 29. Meó ÚTSÝN til annarra landa Spánn Costa Brava Júní: 2,23. Júli: 14. Ágúst: 4., 18. Sept.: 1. Pantið réttu ferðina tímanlega! Öryggi - Þægindi — Þjónusta AUSTURSTRÆTI 17, II. SÍMAR 26611 0G 20100 Júgóslavía Portoroz/ Porec Júni: 9., 30. Júli: 13 Ágúst: 3^ 1 7. Sept.: 7.J Italía Lignano Mai: 13. Júni: 1.. 22. Júli: 6.. 13.. 20.. 27. Ágúst: 3.. 10., 17.. 24., 31. Sept: 7.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.