Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978 33 lýsa því yfir hér, að honum hefur tekist, vitandi eða óvitandi, að skapa þá tegund listaverka með þessum myndum, sem ætíð hafa verið talin í sérstökum gæða- flokki. Þetta er klaufalega til orða tekið, en ég á við það, sem á Norðurlandamálum nefnist „kvalitetskunst". Það er tilfinn- ing Gröndals fyrir formi og ekki síður lit, sem veldur því, hve list- rænar þessar dýramyndir verða í meðferð hans. Ég hef ekki hugmynd um, hverja menntun Gröndal hafði í myndlist, en margt bendir til þess, að skóiaganga hans á þvf sviði hafi ekki verið löng. Hann segist sjálfur hafa fengið tilsögn i teikningu fyrir náttúrufræðinga, en lítið lært og fljótlega hætt. Eins segist hann hafa hlotið til- sögn í málun, en ekkert lært og snemma hætt að sækja þá kennslu. Það er Gröndal líkt. Hann gat verið þver og hofmóðug- ur og taldi'sig iðulega hafa lítið til kennara sinna að sækja. Sérlund- in leynir sér ekki frekar en fyrri daginn, hvað myndlistarnám hans snertir, en þar liggur mér við að vera Gröndal sammála. Svo ósnortinn er hann af málaralist samtíðar sinnar, að flokka verður frá því, að ef til vill gæti sérvitr- ingur nokkur, sem væri að fást við að koma saman náttúrugripa- safni, hjálpað honum; þessi ná- ungi fiktaði nefnilega með liti við þetta starf sitt. Collingwood þang- að, en ekki leist honum á litina, sem Gröndal notaði. Collingwood var enda góðu vanur, þar sem hann kom frá landi, sem státað gaf af sérlega endingargóðri lita- framleiðslu á þessum árum. Win- sor & Newton fyrirtækið hafði þá þegar starfað lengi og starfar enn f Bretlandi. Litirnir, sem Colling- wood fékk hjá Gröndal, dugðu honum að vísu til bráðabirgða, þar eð ekki var annað að hafa, en i rauninni taldi hann þá ónýta með öllu. Hvaða liti hefur verið um að ræða, er ekki gott um að segja. Ef til vill hafa þetta verið danskir litir, en allt eins líklegt er, að það hafi verið heimatilbún- ir litir úr jarðefnum ýmiss konar og jurtum. Um það er ekkert vit- að, en eitt er vist: litir Gröndals hafa haldið sér ótrúlega vel, enda hafa myndirnar verið varðveittar í möppum og ekki orðið fyrir áhrifum sólarljóssins. Trúlegast er þó, að lakkið hafi bjargað þeim og gefið þeim þann ferskleik, sem einkennir þær. Það eitt, að Grön- dal lakkaði myndir sínar, sýnir list hans undir upprunalega (primitiva) list, en það er einmitt sá eiginleiki, sem gefur myndum Gröndals sérstakan blæ og per- sónulegan stíl. Hæfileikar hans á myndlistarsviðinu eru svo eðlis- lægir, að hann þarf enga utanað- komandi hjálp við að koma þvi á örkina, sem honum liggur á hjarta, og tilfinning hans fyrir vatnslitum og meðferð þeirra er svo næm, að furðu sætir. Gröndal hefur einnig tekist að ganga jþannig frá verkum sinum, að þau hafa sama ferskleikablæ og væru þau unnin í seinustu viku, en hann lakkaði yfir (fixeraði) myndir sínar þannig, að varð- veisla þeirra er einstök. 1 sambandi við störf Gröndals að myndlist, langar mig til að skjóta hér inn stuttri frásögn um viðskipti Gröndals og enska mál- arans W.G. Coliingwood, sem við komu sína hér til lands árið 1897 skrifaði heim til Englands og sagði þar farir sínar ekki sléttar. (Frá þessu bréfi Collingwoods sagði mér Örlygur Hálfdánarson útgefandi, en hann hafði sjálfur séð nefnt bréf). Collingwood hafði ekki gáð að sér á leiðinni til íslands og meðan hann staldraði við í Færeyjum, hafði málað svo mikið, að hann var orðinn lita- laus, er til Reykjavikur kom. Þar ætlaði hann að láta það verða sitt fyrstá verk að kaupa liti. En viti menn, enga liti var að fá i Reykja- vík. Nóg fékkst brennivín og alls konar kramvara, en engir litir. Eftir langa leit var honum sagt hins vegar glöggt, að nokkuð hef- ur hann kunnað fyrir sér f tækni- brögðum myndlistarinnar. Það yrði aðeins til að lengja þetta mál að óþörfu að fara nánar Út i lýsingar á myndum Gröndals i því afburðaverki, sem ég fjalla hér um. Sjón og kynning er sögu ríkari, og ég er ekki í minnsta vafa um, að fleiri en ég eiga eftir að hafa mikla ánægju af þessari myndlist, en það er einlæg von min, að þessar línur verði til að vekja einhverjum áhuga á mynd- um Gröndals, en það er sannar- lega kominn timi til, að þær hljóti verðskuldaða athygli og viður- kenningu. Ég hef heyrt, að til sé safn af fuglamyndum eftir Bene- dikt Gröndal, og væri mikill feng- ur að fá það safn fyrir almenn- ingssjónir. Að baki Vesturgötu 16 stendur litið og lúið timburhús. Það er hús Benedikts Gröndals. Geri maður sér ferð að húsabaki til að berja þetta hús augum, kemst maður ekki hjá því að finna sögufrægð þess geisla frá þvi. Ekkert virðist þó gert til að sýna þessu snotra húsi viðeigandi virðingu. Það kúr- ir þarna í skugga steinkumbalda, sem bókstaflega gleypir það. Svo sérstök s^ga er tengd litla húsinu, að það á sannarlega betra skilið en að grotna þarna niður. Hvar eru nú friðunarpostularnir? Eins og áður segir, var Gröndal iðulega sár út í samtíð sína og hélt því þá fram, að enginn hefði Framhald á bls. 37. REPORT DE LUXE: LÚXUS FYRIR LÍTIÐ Rafritvél meö fisléttum áslætti, áferöafallegri skrift, dálkastilli 28 eöa 33 sm valsi. Vél sem er peningana viröi fyrir jafnt leikmenn sem atvinnumenn. Fullkomin viögeröa- og varahlutaþjónusta. Leitiö nánari upplýsinga. Ewisa w m w w wt ar * m -tr ;* * * 55 W' W W w: .e: w x v x: :W. m s5i :r :T' o Olympia Intemational wmímsum kjaraim hf isx skrifstofuvélar & verkstæði — Tryggvagötu 8, sími 24140 GREIÐENDUR vinsamlega veitið eftirfarandi erindi athygli: Frestur til aö skila launamiðum rennur út þann 19. janúar. Þaö eru tilmæli embættisins til yöar, aö þér ritið allar upplýsingar rétt og greinilega á miöana og vandió frágang þeirra. Meö því stuöliö þér aó hagkvæmni í opin- berum rekstri og firriö yöur óþarfa tímaeyðslu. RÍKISSKATTSTJÓRI VANTAR ÞIG VENNU (n VANTAR ÞIG FÓLK í Þl’ AI GLÝSIR L'M ALLT LAND ÞEGAR Þl Al’G- LÝSIR í MORGL'NBLAÐINT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.