Morgunblaðið - 15.01.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978
Bjarni
Forberg
látinn
BJARNI Forberg, fyrrverandi
bæjarsimastjóri, er látinn og var
hann á sjötugasta og fjórða
aldursári.
Bjarni Forberg fæddist í
Noregi árið 1904 og var hann son-
ur O. Forbergs síðar landsíma-
stjóra í Reykjavík og konu hans.
Hann stundaði nám við verk-
fræðiháskóla í Noregi og nam
einnig hjá norska ríkissímanum,
en var siðan í þjónustu hans um
skeið.
Hann var skipaður aðstoðar-
símaverkfræðingur i Reykjavík
árið 1926 og var síðan skipaður
bæjarsímstjóri i Reykjavík sex ár-
um síðar, en því starfi gegndi
hann allt til þess að hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Bjarni lætur eftir sig eigin-
konu, Agústu, og uppkomin börn.
Veiðibann
UM MIÐJAN desember 1977
voru veiðar með botn- og flot-
vörpu bannaðar á utanverðu
Strandagrunni til 15. janúar
1978 á svæði sem afmarkast af
eftirgreindum línum:
að norrtan af 67# 26’N
að sunnan af 67* 07'N
að austan af 20° 00’V
að vestan af 20# 40’V
Samkvæmt könnun á r/s
Bjarna Sæmundssyni 12. janú-
ar s.l. er nú talsvert af smá-
þorski á þessu svæði, eða að
jafnaði um 63% undir 58 cm.
Sjávarútvegsráðuneytið hef-
ur því ákveðið að framlegja
lokun svæðisins um óákveðinn
tíma.
Hafrannsóknastofnunin
mun fylgjast með, hvort breyt-
ingar verði á svæðinu.
Teódór Jónsson, formaður landssambands fatlaðra tekur við
gjafabréfinu úr hendi Víglundar Þorsteinssonar, framkvæmda-
stjóra B.M. Vallár. Við hlið hans standa Magnús Benediktsson og
Sigursteinn Guðsteinsson, starfsmenn B.M. Vallár, við happ-
drættisbílinn.
Afhentu Sjálfs-
björg vinninginn
VINNINGSHAFI í happdrætti
Sjálfsbjargar, steypustöðvar
B.M. Vallár, vildi ekki taka við
vinningnum og gáfu hann
landssambandinu.
A blaðamannafundi með
stjórn landssambands fatlaðra,
Sjálfsbjörg, skýrði Teódór
Jónsson, formaður sambands-
ins, frá því, að steypustöðin
B.M. Vallá, sem vann Ford
Fairlane bifreið árgerð 1978, í
happdrætti Sjálfsbjargar, hefði
gefið landssambandinu vinn-
inginn, sem metinn er á um 3.4
milljónir króna.
Tvisvar á ári stendur Sjálfs-
björg fyrir skyndihappdrætti
með 100 vinningsmöguleikum,
þar af einum bíl. Að sögn Teó-
dórs eru þessi happdrætti ein
aðaltekjulind Sjálfsbjargar,
þar sem því miður sé ekki enn
fundin öruggari tekjustofn.
Teódór þakkaði Víglundi Þor-
steinssyni, framkvæmdastjóra
B.M. Vallár, Magnúsi Ben'e-
diktssyni og Sigursteini Guð-
steinssyni, sem afhentu gjöfina
fyrir hönd fyrirtækisins, þessa
höfðinglegu gjöf.
Hann sagði að gjöfin kæmi
sér mjög svo vel fyrir lands-
sambandið, sem væri ekki of
vel statt fjárhagslega, en nú
væri verið að innrétta 36 íbúða
álmu í húsi Sjálfsbjargar að Há-
túni 12. Gjöfin myndi flýta fyr-
ir þeim framkvæmdum, en
fyrirhugað er að taka hluta
þessara íbúða í notkun um
næstu mánaðamót.
FasteignagjÖld í Reykjavík:
3 gjalddagar
í stað tveggja
INNHEIMTA fasteignagjalda i
Reykjavfk verður nú með nokkuð
öðrum hætti en verið hefur, þar
sem eigendum fbúða í sambýlis-
húsum verður nú hverjum sendur
sinn reikningur f stað sameigin-
legs reiknings. Borgarstjórn
Reykjavfkur hefur samþykkt að
gjalddagar fasteignagjalda verði
nú þrfr; 15. janúar, 15. marz og
15. aprfl, f stað tveggja áður. I
frétt frá Gjaldheimtunni f
Reykjavfk segir, að breytingarn-
ar valdi þvf að innheimtugögn
verði sfðbúin og megi búast við að
sending gjaldseðla og kröfubréfa
dragist að minnsta kosti viku
fram yfir gjalddagann 15. janúar.
1 fréttinni segir, að tekið verði
tillit til þessa, þegar kemur af
útreikningi dráttarvaxta frá
fyrsta gjalddaga.
Með þessum breytingum
skapast möguleikar á að senda
gjaldendum greiðslukröfu með
gíróseðlum. Gjöld þau, sem inn-
heimt eru sameiginlega, eru sömu
og áður; það er fasteignaskattur,
vatnsskattur, aukavatnsskattur,
lóðarleiga, tunnuleiga, bruná-
bótaiðgjald, viðlagatryggingarið-
gjald og söluskattur af tveimur
síðastnefndu gjöldunum.
A sfðasta ári setti Alþingi ný lög
um skráningu og mat fasteigna,
þar sem segir að líta beri á sér-
greinda eignarhluta í fasteignum
sem sjálfstæðar eindir, enda liggi
skipting fyrir í þinglýstum
heimildum.
Eignayfirfærslur
frjálsar heim
en takmarkaðar út
MORGUNBLAÐIÐ spurðist fyrir
um það hjá Gjaldeyriseftirlitinu f
gær hvaða reglur giltu um eigna-
yfirfærslu, annars vegar fólks
sem flytti til tslands og hins veg-
ar fólks sem flytti til útlanda.
Ingólfur Þorsteinsson forstöðu-
maður gjaldeyrisdeildar bank-
anna kvað þær reglur gilda að
eignayfirfærslur væru frjálsar
heim en takmarkaðar út. Morgun-
blaðið spurði sem dæmi um
erlenda konu sem giftist fslenzk-
um manni og vildi eiga áfram
eignir sem hún ætti erlendis.
„Erlend kona gift íslenzkum
manni og búsett hér er búsetu-
maður hér og heyrir þvi undir
íslenzku gjaldeyrislögin,“ sagði
Ingólfur, „og því er henni skylt að
flytja eignir sínar hingað nema
hún sæki um annað, en hvernig
slík umsókn yrði afgreidd er ekki
hægt að svara um almennt. Hins
vegar getur íslenzk kona gift
erlendum manni og búsett erlend-
is sótt um eignayfirfærslu og eru
um þetta nýjar reglur sem hafa
gilt í nokkra mánuði. Ef sótt er
um með fullnægjandi upplýsing-
um er unnt að fá í slíkum tilfell-
um yfirfærðar á erlendan gjald-
eyri allt að 300 þús. kr. á ári.
Fjármálaráðuneytið hafnar
ríkisábyrgð á stálbræðslu
Sænskur sérfræðingur væntanlegur til frekari könnunar
„ÞAÐ stendur i rauninni
engan veginn hjá okkur
með stálhræðsluhugmvnd-
ina og framleiðslu steypu-
styrktarjárns fyrir lands-
menn,“ sagði Haukur Sæ-
valdsson verkfræðingur í
samtali við Morgunhlaðið í
gær, en Haukur er einn
sextíu og fjögurra aðila
sem lagt hafa fram fjár-
magn til þess að kanna
möguleika á stofnun stál-
bræðslu.
„Fjármálaráðuneytið
Rökin fyrir þeim reglum sem
um þessi mál gilda eru þau að
skilaskyldan á þessu landi er al-
gjör fyrir þann sem er búsettur
hér eða búsetur sig hér og á eign-
ir erlendis, en möguleikar eru nú
til þess að sækja um annað eða
flytja eignir yfir á nýju gjald-
eyrisreikningana hér ef um er að
ræða peninga eða skuldabréf.
Þess ber þó að geta að sam-
kvæmt mínu mati lítur þetta mál
öðruvísi út ef um er að ræða
mann sem ekki er íslenzkur ríkis-
borgari og yrði væntanlega tekið
tillit til þess þótt hann væri
búsettur hér.“
Borgarstjóri:
Tók mið af tillögum
atvinnuveganna við
samningu tSlagnanna
TILLÖGUR borgarstjóra Re.vkjavíkur að stefnuskrá í atvinnu-
málum voru nýverið kynntar í Mbl. Viðbrögð forystumanna í
atvinnumálum við tillögum borgarstjóra hafa verið jákvæð og
hafa menn sérstaklega lofað vinnubrögð þau sem viðhöfð voru
við undirbúning tillagnanna, en leitað var álits atvinnuveganna
og starfsfólks hvernig framtíð í atvinnumálum Reykjavfkur
skyldi mótuð. Til að fræðast um þá starfshætti sem viðhafðir voru
leitaði Mbl. til borgarstjóra í gær:
veganna og stéttarsambanda
um skýrsluna. Óskað var eftir
hugmyndum frá þeim um at-
vinnumálin og hver aðili beð-
inn um að skila skýrslu uti)
málin. Jafnhliða þessum
fundarhöldum vann ég svo
sjálfur að tillögunum. Tók ég
mikið mið af hugmyndunum
sem fram komu á fundunum og
í greinargerðum viðræðufull-
trúa. I samvinnu við embættis-
menn borgarinnar samdi ég síð-
an tillögur þessar eins og þær
liggja nú fyrir,“ sagði Birgir
Isleifur Gunnarsson í gær.
„Upphaf þessara mála er að
nokkrum embættismönnum
borgarínnar var í ársbyrjun
1976 falið að gera sérstaklega
könnun og úttekt á atvinnumál-
um Reykjavíkur. Skýrslu um
þessi mál var skilað á síðast-
liðnu sumri. Var hún kynnt al-
menningi og lögð fram í borgar-
stjórn og varð tilefni til allmik-
illa umræðna þar, í fjölmiðlum
og á öðrum vettvangi.
Þegar skýrslan lá fyrir var
nefnd sett á laggirnar og fundir
haldnir með fulltrúum atvinnu-
Birgir Isleifur Gunnarsson
hefur hafnað að sinni
a.m.k. beiðni okkar um rík-
isábyrgð fyrir 3A hlutum af
stofnkostnaði, en hann er
áætlaður um 2 milljarðar í
dag. Þessi mál fara þó
væntanlega að skýrast bet-
ur á næstunni. Við eigum
von á sænskum sérfræð-
ingi hingað til lands á okk-
ar vegum til þess að yfir-
fara með okkur áætlunina
um uppbyggingu og rekst-
ur fyrirtækisins. Við höf-
um að sjálfsögðu margoft
farið yfir þetta og Þjóð-
hagsstofnun þrisvar ávallt
með jákvæðri útkomu.
Jóhannes Ölafsson læknir
Framhald á bls. 47.
Jóhannes Olafsson til
læknisstarfa í Eþíópíu
JÖHANNES Ölafsson kristni-
boðslæknfr hélt til Eþfópfu í gær
frá Ósló til starfa á fylkissjúkra-
húsinu f Irgalem, en eins og sagt
hefur verið frá f fréttum fóru
íslenzku kristniboðarnir frá Eþfó-
píu s.l. ár af öryggisástæðum þeg-
ar óeirðir með blóðsúthellingum
blossuðu upp þar f fyrra. Innlend-
ir kristniboðar tóku þá við stjórn
fslenzku kristniboðsstöðvarinnar
f Konsó og á öðrum stöðum það
sem tslendingar höfðu verið.
Doktor Jóhannes Ólafsson hef-
ur verið 15 ár kristniboðslæknir í
Eþiopiu og í grein um hann í
Morgunblaðinu s.l. ár kom fram
að hann hefur sinnt þar um 300
þúsund sjúklingum á læknisferli
sinum þar i landi. Jóhannes mun
vinna við læknisstörf i Irgalen í 3
mánuði, en þangað koma, eins og
til margra annarra sjúkrahúsa í
landinu, særðir menn úr þeim
bardögum sem víða eiga sér stað í
landinu.