Morgunblaðið - 15.01.1978, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978
15
„ogstjórnin
bað herlið Sovét-
ríkjanna aðstoðar...”
LÖND OG LVÐIR
X. bindi.
Ungverjaland og Rúmenía.
Samið hefur’Þórunn Magnús-
dóttir.
Bókaútgáfa Menr.ingarsjóðs
1977.
Ungverjaland og Rúmenía er
tíunda bókin í bókaflokknum
Lönd og lýðir. Sumar þessara
bóka eru gagnlegar og fræð-
andi, aðrar veigaminni. Ekki er
sanngjarnt að gera kröfur til að
bækur af þessu tagi séu
skemmtiefni. Þær eru ekki
ferðabækur í venjulegum skiln-
ingi og þess vegna yfirleitt laus-
ar við persónulegt mat og
reynslu. Kennslubókastíll ræð-
ur oft ferðinni. En það verður
að segja að bækur sem eru fyrst
og fremst safn fróðleiksmola úr
ýmsum ■ áttum eru heldur
dapurlegur lestur þótt þær geti
að einhverju leyti dugað sem
handbækur. Ef ég ætlaði að
ferðast til Ungverjalands og
Rúmeníu þætti mér ekki ólík-
legt að ég gluggaði i bók Þór-
unnar Magnúsdóttur. Langaði
mig aftur á móti til að auka
skilning minn á þessum þjóð-
um, fá innsýn í líf fólksins, færi
ég í geitarhús að leita ullar ef
ég veldi þessa bók. Besta leiðin
væri að lesa eitthvað eftir ung-
verska og rúmenska rithöf-
unda.
Ljóðurinn á bók Þórunnar
Magnúsdóttur er að mínum
dómi sá að höfundurinn er of
háður margvíslegum heimildar-
ritum og þá ekki sist opinber-
um gögnum sem stjórnvöld
þessara þjóða láta frá sér fara,
stundum til að viila um fyrir
trúgjörnu fólki.
Flestum lesendum mun leika
forvitni á hvernig sagt er frá
uppreisninni í Ungverjalandi í
bók eins og þessari. Henni eru
gerð skil í fáeinum línum og
m.a. á þessa leið:
„Haustið 1956 dundi reiðar-
slagið yfir, þegar friðsamlegri
mótmælagöngu stúdenta í
Budapest var snúið upp i alls-
herjar aðför að miðstöðvum
verkalýðssamtakanna, skrif-
stofum . kommúnista og
stjórnarstöðvum ríkisins og
bæjarfélaganna. Þessir atburð-
ir hófust í Budapest 23. október
1956, en næstu tvo dagana á
undan höfðu nokkrir kommún-
istar verið myrtir í bæjum suð-
vestan til í landinu. Barist var á
götum Budapest í nokkra daga,
og stjórnin bað herlið Sovét-
ríkjanna aðstoðar til þess að
vinna bug á gagnbyltingunni."
Greinilega er þetta samið
eftir forskrift þeirra sem hafa
fengið pólitískt uppeldi í vin-
áttufélogum, svokölluðum
menningartengslum við „al-
þýðulýðveldin'*. Slíkt á erindi
til aðeins þröngs hóps, hinir
vita betur. En um þróunina í
Bókmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Ungverjalandi má annars segja
það að mikil gróska hefur verið
þar í listum, ekki síst bók-
menntum. Það getur þess
vegna verið rétt sem Þórunn
Magnúsdóttir segir að „mennta-
menn, vísinda- og listafólk
njóta góðra starfsskilyrða f
Ungverjalandi“l'
Auk þess sem Þórunn
Magnúsdóttir dáist mjög að
framvindu menningar í Ung-
verjalandi heillast hún lika af
iðnaði: „Þungaiðnaðurinn
hefur þróast sem undirstaða
vélvæðingar í landbúnaði og
iðnaði, en smíði flutningatækja
orðið einskonar sérgrein í sam-
vinnu við önnur alþýðulýð- V
veldi. Aburðarframleiósla
hefur stóraukist, svo og léttur
iðnaður og matvælaiðnaður".
Þórunn Magnúsdóttir leggur
áherslu á' að halda til haga
ýmsum tölfræðilegum upplýs-
ingum og leggur mikið upp úr
ártölum. Hún segir ítarlega frá
menningarmálum beggja land-
anna. Enginn skyldi halda að
hún sé öll i þungaiðnaðinum.
Upplýsingar hennar um listir
og skáldskap eru þó þess eðlis
að greinilegt er að heimildir
koma frá öðrum, þar sem sjald-
an lýst eigin reynslu af verkun-
um. Berfætlinga Rúmenans
Zaharia Stancu í þýðingu Hall-
dórs Stefánssonar hefur hún þó
áreiðanlega lesið því að nokkr-
um sinnum er minnst á þá í
bókinni.
í lokakafla bókarinnar, Sam-
skipti Rúmena og íslendinga,
er getið nokkurra manna sem
Framhald á bls. 38
SIGURÍADSTURRÍKI,
DANNÖRK N/EST?
Um leió og vió þökkum handknattleikslandslióinu
fyrir vióskiptinásíóastliónuári óskum vió því
góós gengis í úrslitum hei msmeistarakeppni nnar
ADAffliOAf^T
frá Kóróna