Morgunblaðið - 27.01.1978, Page 1

Morgunblaðið - 27.01.1978, Page 1
32 SÍÐUR 22. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hlutar úr sovézka njósnahnettinum fundnir í Kanada: „Stórhættuleg geisla- £ ^ | § i a • - segir kanadíski virkni mælist — Ottawa, 26. janúar. Reuter. HLUTAR úr sovézka njósnahnettinum sem hrapaði til jarðar í Kanada á þriðjudag hafa fundist. Kanadíski varnarmálaráð- herrann, Barnev Danson, tilkynnti í dag að hlutar úr hinum kjarnorkuknúna hnetti hefðu verið staðsett- ir nálægt Baker-vatni í óbvggðum Norður-Kanada og gæfu þeir frá sér „stór- hættulega geisla“. „Við vitum fvrir víst að þarna er eitthvað á jörð- inni sem gert hefur verið af mannavöldum," sagði ráðherrann og bætti við að „mikil geislavirkni er á svæðinu sem líklega stafar frá kjarnorkunni í hnettin- um“. Njósnahnötturinn, Cosmos 954, hafði innbvrð- is 45 kíló af úraníumefni, sem notað var til að knýja kjarnorkuvélar hans, en úraníumefni þetta getur verið banvænt. Danson ráðherra sagði að sér- fræðingar mundu reyna að nálg- ast svæðið og sannreyna nákvæm- lega uppruna geislavirkninnar og komast að þvi hve mikil hún væri. Hann sagði að geislarnir væru mjög hættulegir og þyrfti fleiri tonn af blýi til að skýla mönnum Framhald á bls. 18 40% Skota verða að samþykkja heimastjórn London, 26. janúar. AP, Reuter. BREZKA þingið lagði í gærkvöld stein f götu áætlunar stjörnar Verkamannaflokksins um aukna sjálfstjórn f Skotlandi. Þingið samþykkti tillögu þess efnis að heimastjórn verði aðeins komið á ef meira en 40% alira Skota lýsa sig samþykka henni f þjóðarat- kvæðagreiðslu. 1 kosningum f Framhald á bls. 18 Ræningjarnir vilja stórfé fyrir Empainí Parfs, 26. janúar. AP. Reuter. — Ræningjar belgfska iðnjöfnursins Edouard-Jean Empain hafa lagt fram kröfur um geysihátt lausnargjald fyrir hann, um 10 milljónir dollara (2160 milljónir króna). Lögreglan telur sannað að þessir aðilar hafi Empain I haldi og að pólítískir hópar sem eignað hafa sér mannránið hafi verið að blekkja. Leitar lögreglan mannræningjanna ákaft en myndin sýnir vopnaða lögreglumenn leita þeirra í bílum. Soares myndar stjórn Sa Machado verður utanríkisráðherra Lissabon, 26. jan. Reuíer. AP. MARIO Soares, Ieiðtogi sósfalista f Portúgal, tilkynnti f dag að Ean- es forseti hefði fallizt á ráðherra- lista sinn, stjórn sfn væri þvf formlega mynduð og ráðherrar myndu sverja embættiseið á mánudag. I stjórninni verða þrír miðdemókratar og einn þeirra, Vitor Sa Machado, verður utan- rfkisráðherra. (Sa Machado er kvæntur fslenzkri konu, Kirst- en Thorberg, eins og kom fram f Mbl. sl. sunnud). Varnarmálaráð- herra verður Mario Firmino Framhald á bls. 18 Rhodesía: Hvltum mönnum tryggð sérstök vernd í 10 ár Salisbury. 26. janúar. AP. Reuter. IAN SMITH forsætisráðherra Rhodesíu og þrír blökkumannaleiðtogar f landinu eru nú sagðir hafa náð samkomulagi um öll atriði sem máli skipta varðandi nýja stjórnarskrá í landinu og meirihlutastjórn svartra manna, en beðið er með formlega tilkvnningu um samkomu- lagið þar til ósamkomulagi um formsatriði hefur verið rutt úr vegi. Heimildir herma að nýja sam- komulagið feli f sér að hvitir menn, en þeir eru minna en 5% allra íbúa Rhodesíu, fái 28% sæta í nýju þingi sem komið verður á laggirnar, og að 78% atkvæða i þinginu þurfti til breytinga á stjórnarskrárákvæðum sem áhrif hafa á rétt hvítra manna i land- inu. Gefin verður út sérstök rétt- indaskrá fyrir hvíta menn, þeim tryggð núverandi atvinna þeirra og eftirlaun eins og um þau hefur þegar verið samið. Einnig eru ákvæði um ríkisborgararétt, sem gera mönnum kleift að hafa jafn- hliða borgararéttindi i öðru landi. Þá er ákvæði um að dómstólar skuli áfram starfa alveg óháð öðr- um stjórnarstofnunum. Gert er ráð fyrir að hin sérstöku ákvæði til verndar hvítum mönnum verði í gildi i 10 ár. Ósamið er um hvernig herlið hins nýja rikis verður samsett, þ.e. hvort yfirmenn verða þar áfram hvítir og hvort skæruliðar geti gengið í herinn, en samninga- mennirnir ákváðu að láta þeirri stjórn sem tekur við völdum til bráðabirgða i landinu eftir að leysa þetta mál. A nú aðeins eftir að ákveða endanlega hverjir sitja muni i bráðabirgðastjórninni, sem koma á i kring { almennum kosningum. Framhald á bls. 18 Nytin snarminnkar í kúnum: Mjaltakonur stút- fullar við störf Miðausturlönd: Nýjar viðræður á næstunni? Kairó, Jerúsalem 26. jan. Reuter. AP. HORFUR virtust f dag betri á þvf að samkomu- lagsumleitanir gætu á ný hafist f deilu Egypta og tsraelsmanna. Dayan utanrfkisráðherra tsra- els sagði f dag að rfkin tvö væru nálægt því að geta náð samkomulagi um yfirlýsingu um grundvallaratriði. Egypskir diplómatar voru á hinn bóginn önn- um kafnir við að skýra afstöðu sína fyrir rfkis- stjórnum ýmissa landa og reyna að fá sem flest- ar rfkisstjórnir á sitt band f deilunni. Eins og flestir vita hófust núverandi friðarumleitanir milfi Egypta og tsraelsmanna með hinni óvæntu heimsókn Sadats Egyptalandsforseta til tsraels f nóvember, en hann frestaði sfðan við- ræðunum með þvf að kalla óvænt heim utan- rfkisráðherra sinn á fundum f Jerúsalem f sfðustu viku. Frá þvf þá hafa Vance utanrfkisráðherra Bandarfkjanna og Al- fred Atherton aðstoðar- utanrfkisráðhcrra hans ferðast á milli höfuð- borganna tveggja og reynt að koma viðræð- unum af stað á ný. Atherton var f dag f tsrael og hitti Begin forsætisráðherra. Talið var að nokkur árangur hefði orðið af fundin- um. Framhald á bls. 18 Moskvu, 26. jan. AP. MJÖLKURFRAMLEIÐSLA hefur dregizt hastarlega saman á samyrkjubúi í grennd við Moskvu og má rekja það allt til drykkjuskapar og óreiðulifnað- ar mjaltakvennanna á bænum, segir f dagblaði f Moskvu f dag. Er löng grein um málið og segir þar að forstjóri búsins sem sé góður og merkur flokksmaður Strukov að nafni hafi reynt að ráða bót á þessu, en hann hafi átt við orfurefli að etja og sér- staklega hafi mjaltakonurnar orðið honum erfiðar f skauti. Komi þær þéttkenndar til mjalta og láti öllum illum lát- um f fjósinu, svo að kýrnar verði óstyrkar og nytin hrað- minnki. Auk þess láti hinar kenndu mjaltakvinnur það ógert að mjólka nema þær kýr sem laus- mylkastar eru og hefur þetta haft i för með sér að nú er dagleg mjólkurframleiðsla bús- ins ekki nema 1 kg á kú. Ráðist er harkalega að framkvæmda- nefnd samyrkjubúsins og henni legið á hálsi fyrir ómyndar- skapinn að geta ekki b'eint hin- um óreglusömu mjaltakonum inn á farsælli brautir og leitt þeim fyrir sjónir hversu lfferni þeirra vfki langt frá öllum flokkshugsjónum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.