Morgunblaðið - 27.01.1978, Side 5

Morgunblaðið - 27.01.1978, Side 5
 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978 5 Gunnar Friðriksson, forseti SVFf Leiðrétting I FRÉTT í Mbl. í gær um 50 ára afmæli Slysavarnafélags islands var nafn forseta þess, Gunnars Friðrikssonar, misritað og hann nefndur Gunnar J. Friðriksson. Mbl. biðst velvirðingar á þessum mistökum. 1978 Aætlun Útivistar árið 1978 komin ÚT ER komin ferðaáætlun Úti- vistar fyrir árið 1978 og í henni kemur fram að um töluverða aukningu er að ræða i starfsemi félagsins frá árinu áður. Áætlað er að farnar verði a.m.k. 126 styttri ferðir, 41 helgarferð, 12 lengri sumarleyfisferðir og að auki Þórsmerkurferðir allar helg- ar frá 30. júnf til 11. ágúst. Þá kemur einnig fram í áætluninni að ráðgert er að fara nokkrar ferðir til útlanda, t.d. til Færeyja og Grænlands en þær ferðir verða auglýstar nánar síðar. Þá kemur fram í áætlun þessari að höfuðáherzlan í þessum ferð- um sé öðru fremur lögð á útiveru fremur en endalausan akstur í bílum. Gönguferðir eru við flestra hæfi. Þá er fólk hvatt til þess að láta ekki veður aftra sér frá þvi að fara í ferðir, heldur einfald- lega búa sig vel í samræmi við veður. í áætluninni segir að verð sé ekki hægt að áætla með svo löng- um fyrirvara, vegna hins óstöð- uga verðlags sem sé ríkjandi í þjóðfélaginu. Eins og áður greiða félagar i Útivist lægra verð en aðrir. Hálft gjald greiðist fyrir börn á skyldunámsaldri til ferm- ingar, nema í einsdagsferðum en þá er frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Að lokum kemur frarn að fararstjórar eru í öllum ferðum félagsins, er fram- kvæmdastjóri félagsins er Einar Þ. Guðjohnsen, Þór Jóhannsson formaður og Jón I. Bjarnason rit- „Samvinna Vesturlanda - Sókn til frelsis” gefa út barmmerki Samtökin hafa verið með fjöl- sótta fundi víða um land SAMTÖKIN „Samvinna Vesturlanda — sókn til frelsis," hafa nýlega sent frá sér barmmerki, sem nú eru kom- in í dreifingu og fást í öllum helztu bóka- og ritfangaverzlunum lands- ins Þá hafa samtökin gengist fyrir fjölmörgum fundum víðsvegar um land að undanförnu og hafa þeir fundir verið fjölsóttir Þeir Skafti Harðarson og Kristján Hjaltason sögðu í samtali við Morg- unblaðið. að samtökin hefðu haldið 7 fundi í skólum á Reykjavíkursvæð- inu og 3 fundi úti á landi, þ e. á ísafirði, á Bifröst i Borgarfirði og i Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Kefla- vík. Fundirnir hefðu verið með fjöl- sóttari fundum i viðkomandi skólum og umræður alls staðar verið miklar og fjörugar Hlutfallslega hefðu um- ræður verið mestar i Bifröst, þar sem rúmlega helmingur nemenda hefði sótt fundinn, og tæplega % tekið til máls. Skafti og Kristján sögðu að á allflestum fundum hefðu þeir tölu- lega séð likast til verið undir með fylgi, en hins vegar hefðu þeir hvergi hvikað i málefnalegri baráttu og málstaðurinn því komizt vel til skila. Þá hefðu þeir fyrst og fremst kosið að koma fram i þeim skólum, þar sem fylgi herstöðvaandstæðinga væri hvað mest Þeir sögðu, að Þjóðviljinn hefði birt fréttir af þessum fundum og samvinna vesturlanda SÓKN TIL FRELSIS Barmmerkið, sem samtökin „Samvinna Vesturland — Sókn til frelsis" hafa látið útbúa. þannig sýnt málinu áhuga. en þess- ar fréttir hefðu ekki að sama skapi verið áreiðanlegar Blaðið hefði breytt orðalagi ályktana, farið rangt með atkvæðatölur af fundum o.s.frv. Auk þessara fundahalda hafa full- trúar ..Samvinna Vesturlanda — sókn til frelsis" haldið fyrirlestra hjá ýmsum félagasamtökum á Reykja- víkursvæðinu og eru fulltrúar sam- takanna tilbúnir að mæta á fundum hjá samtökum og félögum hvar og hvenær sem er. ..Það hefur sýnt sig eftir þessa fundi," sögðu þeir Skafti og Kristján, að nú um nokkurt skeið. hafa herstöðvaandstæðingar einok að umræður um varnarmál Okkar stuðningsfólk hefur því tekið þ'ess- um fundum fegins hendi. og sums staðar hafa verið stofnaðir umræðu- hópar meðal stuðningsfólks okkar Þá höfum við orðið varir við það, að af hálfu herstöðvaandstæðinga á þessum fundum, hafa yfirleitt taláð fulltrúar smárra sértrúarsafnaða eins og Maóista, Trotskyista og jafnvel Stalínistar Hefur málflutningur þeirra gengið svo langt. að jafnvel Fylkingunni hefur verið afneitað " Að lokum sögðu Skafti og Kristján að það sem nú lægi fyrir væri að Framhald á bls. 18 ma rg efti rspu rð u komnir TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS ^S&KARMARÆR WKARNABÆR Laugaveg 20. Laugaveg 66. Austurstræti 22 Glæsibæ Simi 28155 ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.