Morgunblaðið - 27.01.1978, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978
KRINGUM
ÁFENGISGLASIÐ
EFTIRFARANDI listi sýnir áfenigsneysla á hver ibúa i nokkdum
londum árið 1975. Eins og sjá má koma rómönsku löndin fyrst og
vega þar léttu vinin þyngst á metunum. Norðurlöndin öll að undan
skilinni Danmörku eru neðarlega Áustur-Evrópuþjóðirnar virðast
vera mest gefnar fyrir sterku drykkina og eru Pólverjar þar fremstir.
íslendingar virðast ekki eiga sér neina von um að komast i undanúr-
sftit i þessari keppni og má vafalitið þakka það að þeir eru eina landið
á listanum, sem ekki hefur sterkt öl. Eins og fram kemur eru Belgar
meðal þeirra þjóða, er mest drekka af áfengu öli. í þvi landi munu 95
af hundraði allra drykkjusjúklinga vera öldrykkjumenn.
co
2 '5)
t'f C <D </> -ra
■o .75 .E £ l E ro ^
.5 c£ > 3 5 2 « o
£g •5 — £ .= >■ O
i/)._ _j._ ú) .1 z ._
1 Frakkland 5.2 102 45 1 7.0
2 Portúgal 1.8 120 33 16.9
3 Spánn 5.2 76 47 14.1
4 ítalia 4.0 108 13 13.4
5 Vestur Þýzkaland 6.1 23 148 12.5
6 Lúxemborg 7.0 41 129 12.3
7 Austurriki 3.3 35 104 11.1
8 Sviss 3.9 44 72 10,5
9 Belgia 4.0 1 7 131 10.1
1 0 Nýja Sjáland 3.4 12 133 9,8
1 1 Ástralia (74 — 75) 2.6 1 1 142 9.7
1 2 Ungverjaland 6.0 37 63 9.5
1 3 Tékkóslóvakia 6.0 15 142 9.1
14 Kanada (74 — 75) 7.2 7 86 9.0
1 5 Danmörk 3.6 1 1 1 1 7 8.9
1 6 Holland 6.8 10 79 8.8
1 7 Júgóslavia (74) 6.0 29 44 8.6
1 8 Bretland 2.9 5 1 18 8.4
1 9 Austur-Þýzkalnd 6.8 7 1 18 7.7
20 Pólland 9.2 7 37 7.3
21 Bandaríkin 6,3 7 82 7.0
22 Búlgaria 4.0 20 52 6,7
23 Irland 4.1 4 84 6.7
24 Sovétríkm 6,6 16 22 6,3
25 Fmnland 6.0 5 51 6.2
26 Sviþjóí 5.9 8 46 6.0
2 7 Japan 7.9 0 35 5,4
28 Noregur 3.7 3 42 4.3
29 Suður Afrika 2,8 10 20 3,6
30 Kýpur 3.6 6 18 3.5
31 ísland 4.8 3 0 2,9
32 Tyrkland 1.0 1 4 0.8
Tafla tengin hjá Afengisvarnarráði
lltrrr lo _ te^.Jur t bCl3
t-.t , i -i a '. líT. L ivcrn
•> • íb'.q VoLa
. . -V - 66
:.7o . X / - 66
. / \ . \ !/ . Ólf
/• \ H /
?. -•o / ■ 7/ . 6?
2.'io / i - 6o
>'' /
2.^o \ fj \ / - 53
- 56
2.-lo ■ * - 54*
2.oo - / - 5?
.To • J* / 5o
I.wo ; 46
' '-y /
1 .'-o í 46
'60 '6- 'ó;*. 'o? '-ó 'Ó7 'ó ■ 'Ó9 ',0 “71
Eins og sjá má af meðfylgjandi línuriti hefur sala áfengis i litrum
fylgt eftir brúttótekjum á hvern íslending i þúsund isl. króna. Ritið er
nokkuð gamalt og miðar við gengi krónunnar 1 960. Neðri linan sýnir
sölu i litrum 100% áfengis á ibúa en efri linan brúttótekjurnar.
Sífellt yngri,
oftar, meira
Áfengisneysla á mann á íslandi
hefur stórum aukist siðan 1920,
menn byrja að drekka yngri að
árum og likur eru til að tiu af
hverjum hundrað piltum, 14 ára
að aldri. verði ofdrykkjumenn fyrir
sextugt, samanborið við eina af
hverjum hundrað stúlkum. Aðeins
10 af hundraði karla á íslandi nú
neyta ekki áfengis og svo er um
fjórðung kvenna, en munurinn á
fjölda karla og kvenna, er áfengis
neyta, er langminnstur i yngsta
aldurshópnum. Þetta eru nokkur
atriði, sem nýleg könnun á vegum
Geðrannsóknarstofnunnar Há-
skóla íslands leiddi i Ijós, en hana
framkvæmdu þeir Tómas Helga
son, Gylfi Ásmundsson og Jó-
hannes Bergsveinsson, en þær
upplýsingar, er hér koma fram eru
að mestu teknar úr grein Tómasar
i Geðvernd, 1. tbl. '77.
Eins og fram kom í síðasta áfeng-
isþætti i blaðinu má rekja orsakir
drykkjusýki til þriggja þátta, ein-
stakiingsins. vimugjafans og um-
hverfisins Þau áhrif er menn sækj-
ast eftir i vínandanum eru margs
konar, en í flestum tilvikum drekka
menn til að lina andlegar þrautir,
finna til sælu eða fylgja eftir tisku
Má segja að hina siðari áratugi hafi
aðstæður allar breytzt til vegar, sem
beint og óbeint greiðir fyrir aukinni
áfengisneyslu Nú er auðveldara en
var áður að ná i áfengi, einkum fyrir
yngri kynslóðina, en neyslan er eðli-
lega almennari og meiri því greiðari
aðgang sem menn eiga að þvi
Menn hafa sjaldan eða aldrei haft
meiri fjárráð, jafnframt þvi sem
hraði og samkeppm hefur aukist í
öllum greinum með þeim afleiðing-
um að fólk sækist nú í rikari mæli
eftir skjótvirkum og nærtækum
vimugjafa eins og áfengi Þá hefur
tiðarandi að því er virðist all mjög
snúist á sveif með áfengi sem öðr-
um vímugjöfum, það er t d auglýst
upp i kvikmyndahúsum erlendis
með glæstu og kynþokkafullu ungu
fólki, sem all mjög öfugsnúið þegar
þess er gætt að sannað þykir að það
sé bæði heilsuspillandi og slævir
kyngetu
Þótt bannað sé með lögum hér-
lendis að auglýsa vín og almenning-
ur eigi e.t.v. erfiðara um vik að
drekka þar sem hvorki er sterku öli
né krám til að dreifa er það engu að
síður staðreynd að áfengisneysla ís-
lendinga á mann hefur meira en
sexfaldast siðan árið 1920 að hún
var um hálfur líter á mann Má segja
að neyslan hafi aukizt stig af stigi að
undanskildu bilinu 1968 — '69
Þetta sést á meðfylgjandi súluriti en
linan á sömu mynd sýnir tíðni deler-
ium tremens samkvæmt rannsókn
Ólafs Grímssonar læknis. en eins og
kunnugt er, er það alvarlegur fylgi-
kvilli langvarandi frykkju
Talið er að sú atburðarás, er leiðir
til þess að menn verða drykkjusjúkl-
ingar. sé þeim mun hraðari sem fólk
byrjar yngra að drekka Könnun
Geðrannsóknarstofnunar var gerð í
hópi 3,01 7 karla og kvenna á aldr-
inum 20—49 ára hvarvetna á land-
inu, en úrtak hópsins. er upplýsing-
arnar voru unnar úr, var 3.7% Af
þessum upplýsingum mátti ráða að
hlutfall þeirra, er áfengis neyta, er
stærra þvi yngra, sem fólkið er
Dæmi í aldurshópnum 40 til 49 ára
neyttu 85,4% karla og 59,4%
kvenna áfengis samanborið við
92 0% karla og 81,8% kvenna í
aldurshópnum 20 til 29 ára Eins
og sést skiptir kyn einnig minna
máli í yngri hópnum Rannsóknin
sýndi ennfremur að yngsti aldurs-
hópurinn byrjaði fyrr að neyta
áfengis en hinir hóparnir og sömu-
leiðis að aldursmunur karla og
kvenna. er byrjað var að neyta
áfengis. hefur dregizt saman Látum
tölurnar tala í hópnum 40 til 49 ára
Eilítið
um
áfengis-
venjur
íslend-
inga
var meðalaldur karla 19,2 ár og
kvenna 22,2 þegar fyrst var dreypt
á vini. en í 20 til 29 ára hópnum var
hann 16,5 ár hjá körlum og 17,9
hjá konum í grein i Læknablaðinu
(sept — okt'7 7) skýrir Tómas
Helgason frá því að Félagsmálaráð
Reykjavíkur hafi einnig gert könnun
á áfengisneyslu unglinga á aldrinum
13 til 17 ára á höfuðborgarsvæð-
inu, sem leiddi i Ijós að 85% ungl-
inga á þessum aldri höfðu neytt
áfengis á siðustu 6 mánuðum fyrir
könnunina
Eitt af því sem vakti fyrir for-
sprökkum könnunarinnar var að
sýna áhrif ýmissa félagslegra atriða
á neysluvenjur Þáttur í því var að
athuga muninn á þéttbýli og dreif-
býli eða hver væru áhrif þess að
hafa áfengisútsölu á staðnum I
Reykjavik og nágrenni töldu 1 2.5 af
hundraði karla, sem áfengis neyta,
og 1,8 af hundraði kvenna að áfeng-
isneysla sín væri persónulegt vanda-
mál. í öðru þéttbýli með áfengisút-
sölu var hlutfall karla hið sama. en
engin kona gaf sig fram í þéttbýli
án áfengisútsölu voru það 8.3 af
hundraði karla og 2,4 af hundraði
kvenna og í dreifbýli svipað nema
þær konur, sem töldu sig eiga við
áfengisvandamál að etja voru enn
færri. Athugun á því hversu hátt
hlutfall fólks á sömu svæðum drekk-
ur áfram daginn eftir mikla drykkju
leiddi svipaðar niðurstöður í Ijós;
konur hverfandi fáar og meira en
helmingsmunur á Reykjavik og þétt-
býli með áfengisútsölu og dreifbýli
og þéttbýli án hennar Tekið er fram
að hafa verði í huga að fullnægjandi
könnun á aldursdreifingu hefur ekki
farið fram
Einn athyglisverðasti partur þeirra
niðurstaðna, er nú liggja fyrir, bend-
ir til þess að hlutfallstala bindindis-
manna fari lækkandi því lengri
AFENGISNEYSLA ÍSLENDINGA MIÐAÐ VIÐ 100% VÍNANDA A
MANN A ARI OG TfÐNI DELIRIUM TREMENS MEÐAL 100 ÞOS.
KARLA 20 ARA 0G ELDRI.
TfÐNI D.T.
1910 15 20 25 30 35 40 45 50 55 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 74
Áfengisbunan
brött í Belfast
EF ÞÚ hyggst taka þátt i sam-
drykkju i Belfast þarftu á hörðum
haus og sterkum maga að halda
Svo nefnt sé aðeins eitt dæmi um
drykkjuklúbb i þeirri glýstömu
borg þá neyttu 350 félagar hans
áfengis fyrir jafnvirði meira en
300,000 isl. kr. hver um sig á
einu ári — en samkvæmt mæli-
kvarða brezka heilbrigðismála-
ráðuneytisins þýðir það að þeir
eiga allir við drykkjuvandamál að
striða.
Klúbbur sá er um ræðir er nefnd-
ur Crumlm Bar og er að finna í
• llræmdu kaþólsku fátæktarhverfi í
Ardoyne-borgarhlutanum og var
hann efstur á lista yfir klúbba þar
sem félagar drukku fyrir jafnvirði
meira en 30 milljóna ísl króna í
heild og birti norður-írska fjármála-
ráðuneytið listann snemma i nóvem-
ber
Hins vegar fer þvi fjarri að
drykkjumenn í Ardoyne séu eins-
dæmi í því að þurfa brjóstbirtunnar
reglulega við Það á einnig við um
aðra hluta N Irlands, mótmælendur
ekki síður en kaþólska. að þeir eru
þéttsetnir fólki sem drekkir þannig
sorgum sínum
Áðurnefndar tölur segja og ein-
ungis til um áfengisneyslu i þeim
421 klúbbi sem skráður er Taka
þær ekki til greina drykkju á krám
eða hótelum. hvað þá leyfislausum
einkaklúbbum við útgötur i verstu
fátæktarhverfunum, sem nóg er af
jafnvel þótt lögreglan hafi látið til
skarar skríða fyrir nokkrum vikum
Klúbbar gegna veigameira hlutverki
í landi þar sem bannað er að hafa
bari opna á sunnudögum og þar
sem krár í miðborginni loka eftir að
húma tekur af ótta við sprengjutil-
ræði Hægindi eru ekki mikil og
hvarvetna er krafist snyrtilegs
klæðnaðar í trúarsamfélögunum