Morgunblaðið - 27.01.1978, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
'■'tyrmir Gunnarsson.
1 orbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, simi 10100.
Aðalstræti 6, simi 22480.
Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 90.00 kr. eintakið.
Rangar ákvarðanir
þarf að leiðrétta
Skýrsla Amnesty
bönnuð í S-Afríku
Yfirnefnd - Verðlagsráðs
sjávarútvegsins hefur ákveð-
ið hækkun fiskverðs um 13%.
Eftir þessari ákvörðun hefur
verið beðið um hríð. Hún var erf-
ið. Ákvörðun var að lokum tekin
með atkvæðum oddamanns og
fulltrúa seljenda, sjómanna og út-
gerðarmanna. Áður en þessi
hækkun fiskverðs var ákveðin var
staðan sú, að fiskvinnsla var kom-
in í hallarekstur en óbreytt fisk-
verð hefði þýtt vaxandi halla-
rekstur hjá útgerð og að útgerðin
hefði ekki verið samkeppnisfær
um vinnuafl við atvinnurekstur í
landi.
Hækkun fiskverðs um 13% þýð-
ir að dómi hinna fróðustu manna,
að fiskvinnslan í heild stefnir í 12
milljarða hallarekstur á þessu ári.
Meðalhalli frystihúsanna er tal-
inn verða um 20% og halli salt-
fiskvinnslunnar jafnvel meiri.
Svo mikill hallarekstur leiðir
óhjákvæmilega til stöðvunar þess-
arar undirstöðuatvinnugreinar
verði ekkert að gert. Stöðvun fisk-
vinnslunnar þýðir mjög verulegt
atvinnuleysi í landinu.
Eins og jafnan er staða fisk-
vinnslufyrirtækja mjög misjöfn.
Sum þeirra standa mjög illa og
eru þvi engan veginn undir það
búin að taka á sig enn aukinn
hallarekstur. Önnur voru rekin
með einhverjum hagnaði á síðasta
ári, þannig að þau gætu þraukað
eitthvað lengur, en fyrr eða síðar
hlytu þau að stöðvast. Aðgerðir til
eflingar fiskvinnslunnar er auð-
vitað ekki hægt að miða við af-
komu verst reknu fyrirtækjanna
heldur ber að nota sem mæli-
kvarða þau fiskvinnslufyrirtæki,
sem bezt standa sig.
Til viðbótar þessum vanda í
fiskvinnslunní blasir við vísitölu-
hækkun kaupgjalds — líklega
veruleg — hinn 1. marz n.k. í
Páll Gíslason, yfirlæknir og
borgarfulltrúi, gerði nýlega I
borgarstjórnarræðu grein fyrir
framkvæmdum Reykjavíkur á
heilbrigðissviði. Þar kom m.a.
fram að á árunum 1970 til 1971
hefur framkvæmdakostnaður
Reykjavíkurborgar í heilbrigðis-
málum numið tæpum 900 m.kr.
Þar af hefði ríkissjóður átt að
greiða 732,4 m.kr. en hefur aðeins
greitt 277,8 m.kr. Umframgreiðsl-
ur borgarinnar nema því 454,6
m.kr.
Þær framkvæmdir, sem nú er
unnið að í borginni á þessum vett-
vangi eru: 1. Þjónustumála
Borgarspftala, sem hýsa á nýja
slysadeild, göngudeild fyrir sjúkl-
inga og heilsugæzlustöð fyrir
Fossvog og nágrenni. 2. B-álma
horgarspítala, sem hýsa á starf-
semi í þágu öldrunarlækninga,
hjúkrunardeildir aldraðra og lang-
legusjúklinga. 3. Arnarholt á
Kjalarnesi, þar sem hluti geð-
deildar Borgarspítalans hefur
starfsaðstöðu 4. Hafnarbúðir, þar
sem í senn verður sjúkrahússað-
staða og dagspftali fyrir aldraða.
5. Heilsugæzlustöðvar í einstök-
utn borgarhverfum: í Árbæ, að
Asparfelli 12 fyrir hluta Breið-
holts, fyrsta fjárframlagið er
samræmi við kjarasamninga. Sú
hækkun kaupgjalds mun enn
auka á hallarekstur fiskvinnsl-
unnar og ýta undir enn aukinn
kostnað atvinnuveganna og ann-
arra. Verðbólgan stendur því í
fullum blóma og eflist fremur en
að úr henni dragi og stöðvun at-
vinnufyrirtækja er framundan.
Undirrót þessa vanda er sú
mikla hækkun kaupgjalds, sem
samið var um sl. sumar og haust.
Þar ber enginn einn aðili sök.
Verkalýðshreyfingin knúði fram
kauphækkanir, sem að lokum
hljóta að koma illa við félaga í
launþegafélögunum. Vinnuveit-
endur skrifuðu undir þessa samn-
inga enda þótt þeim væri Ijóst, að
þeir stæðust ekki til lengdar.
Ríkfsstjórnin varaði ekki nægi-
lega. sterkléga við þvi sl. sumar
hvað væri að gerast og var sjálf
knúin til að gera enn dýrari samn-
inga við opinbera starfsmenn sl.
haust. Morgunblaðið varaði marg-
oft við þessu við litlar vinsældir
og stundum aðkast og aðdróttanir
um fjaldskap við launáfólk. Væri
blaðinu í lófa lagið að vitna í mörg
dæmi um hvort tveggja en nú
blasir við, að launþegar verða að
axla þyngri byrðar en ella hefði
orðið.
Þeir sömu aðilar og kjarasamn-
ingana gerðu á síðasta ári bera nú
þá ábyrgð að standa að ráðstöfun-
um, sem geta leiðrétt þær röngu
ákvarðanir, sem þá voru teknar á
þann veg, að kaupmáttur launa
verði tryggður, að full atvinna
haldist og að hjól atvinnulífsins
haldi áfram að snúast. Það þarf
hugrekki til að standa að slíkri
leiðréttingu en ríkisstjórnin og
samtök verkalýðs og vinnuveit-
enda lúta traustri og sterkri for-
ystu, sem sameiginlega þarf að
veita þá leiðsögn á næstu vikum,
sem snúið getur þessu dæmi við.
fengið til heilsugæzlustöðvar í
Mjóddinni í Breiðholti, heilsu-
gæzlustöð verður í Borgarspítala
fyrir Fossvoginn og unnið er að
bættri starfsaðstöðu í Domus
Medica til samræmis við kröfur
heilbrigðismálaráðuneytis um
heilsugæzlustöðvar.
Framkvæmdir þessar eru mis-
munandi langt á veg komnar,
sumar á byrjunarstigi, aðrar að
komast í gagnið. Slysadeild
Borgarspítalans, sem fékk 21.000
heimsóknir úr Reykjavík og ná-
grannabyggðum á árinu 1976,
flytur líklega í nýtt húsnæði í
þjónustuálmunni á þessu ári.
Reykjavíkurborg hefur sýnt
myndarlegt framtak á heilbrigðis-
sviði; framtak, sem ekki þjónar
Reykvíkingum einum, heldur
fjölmennum nágrannabyggðum,
eins og dæmið um slysadeildina
sýnir ljóslega. í mörgum tilfellum
þjóna heilbrigðisstofnanir
borgarinnar landinu öllu. Það
veldur því erfiðleikum, að ríkis-
sjóður er langt á eftir með lög-
bundin framlög til heilbrigðis-
framkvæmda i höfuðborginni,
sem að sjálfsögðu takmarkar
framkvæmdagetu borgarinnar í
þessum málaflokki.
Jóhannesarborg, 26. jan. AP.
STJÓRNVÖLD í Suður
Afríku hafa bannað birt-
ingu á skýrslu frá samtök-
unum Amnesty Inter-
national þar sem fjallað er
um kerfisbundnar ofsókn-
ir, pyndingar og fangelsan-
ir á pólitískum andstæð-
ingum svo og mjög gróf
mannréttindabrot. Svo
sem venja er þegar slíkt er
ákveðið gaf yfirritskoðun
landsins enga skýringu á
málinu. Var málið afgreitt
með því að skýrslan var
sett á lista yfir „óæskileg-
ar“ bókmenntir.
Þetta eru fyrstu við-
brögð stjórnarinnar við
skjali Amnesty Int, sem er
rösklega 100 síður að lengd
og það ítarlegasta sem birt
hefur verið utan Suður-
Afríku um dauða, pynding-
ar, fangelsanir og meðferó
á þeim sem láta í ljós andúð
á stjórninni, svo og bann-
færingaraðgerðir stjórnar-
innar.
Skýrslan var birt hinn
18. jan. í London og var
reynt að afhenda hana
sendiráði Suður-Afríku í
handtekinn var af hermönnum
Sómalíi f bardögum í austurhluta
Eþfópfu sagði í dag að hvorki
Sovétrfkin né Kúba gætu komið f
veg fyrir ósigur Eþfópfu í eyði-
merkurstrfðinu f landinu, að þvf
er sómalska fréttastofan sagði frá
f dag. Kúbumaðurinn Orlando
London en þar var neitað
að taka við henni. Sagt hef-
ur verið frá skýrslunni í
flestum blöðum í Suður-
Afríku, en flest hafa aðeins
Carlos, að nafni, sagði frétta-
mönnum að hann hefði verið
handtekinn á sunnudag þegar
Eþfópfumenn gerðu áhlaup á
Harar-svæðinu með aðstoð Rússa
og Kúbumanna gegn Sómalfu-
mönnum. Hann sagði að þrjátfu
kúbanskir félagar hans hefðu
fallið f bardögunum.
Þessar upplýsingar Kúbu-
mannsins eru fyrsta staðfesting
getið hennar að litlu og
gefið mjög takmarkaða
mynd af þeim alvarlegu
ásökunum sem í henni fel-
ast.
þess að Kúbumenn taki þátt í
bardögum með Eþíópíumönnum,
en Sómalíustjórn hefur sakað
Kúbu um að hafa sent 6—7000
þjálfaða hermenn til Eþíópíu.
Eþíópíumenn hafa sagt að í land-
inu væru aðeins kúbanskir dipló-
matar og læknar.
Carlos sagðist hafa flogið frá
Kúbu til Eþíópiu með viðkomu í
Rabat í Marokkó og að i flugvél-
inni með honum hafi verið 129
aðrir hermenn frá Kúbu. Þeim
hafi verið sagt að þeir væru að
leið til að „hjálpa öðru sósíalista-
ríki í Afrfku“.
Diplómat
tekinn í
spilavíti
Kaupmannahöfn, 26. jan. AP.
TYRKNESKUR diplómat var
handsamaður þegar danska lög-
reglan gerði skyndileit á
skemmtistað þar sem grunur lék á
um að spiiað væri ólöglegt fjár-
hættuspil. Tyrkneski diplómatinn
krafðist þess að friðhelgi hans
sem diplómats yrði ekki rofin og
hann yrði látinn afskiptalaus. Um
57 útlendingar voru teknir til
yfirheyrslu og voru flestir Tyrkir,
Júgóslavar og nokkrir Indónesar.
Lögreglan gerði upptækar um 10
þús. danskar' krónur. Lögreglan
hafði fylgzt með klúbbi þessum
um hríð eftir að eiginkonur nokk-
urra félaga höfðu snúið sér til
hennar og kvartað undan því að
eiginmenn þeirra kæmu alltaf
staurblankir heim eftir veru þar'
Þetta gerðist
27. janúar. AP.
1974 — Leonid Brezhnev for-
maður sovézka kommúnista-
flokksins kom til Havana til
viðræðna við kúbanska ráða-
menn.
1973 — Samkomulag var undir-,
ritað í Parfs sem batt enda á
striðið í Vietnam.
1969 — Fjórtán menn, þ.á m.
níu Gyðingar voru líflátnir í
Irak fyrir njósnír í þágu ísra-
els.
1967 — Þrír geimfarar létu lif-
ið í bruna i Apollo-geimfari við
æfingar.
1965 — Herforingjar i S-
Vietnam steyptu af stóli borg-
aralegri rikisstjórn Tran Van
Huang forsætisráðherra.
1964 — Frakkar stofnuðu til
stjórnmálasambands við Kfna.
1950 — Bandaríkjamenn geng-
ust inn á að sjá aðildarþjóðum
NATO fyrir vopnum.
1943 — Bandarfkjamenn hófu
sínar fyrstu loftárásir á Þýzka-
land í heimsstyrjöldinni síðari.
1931 — Pierre Laval tók við
embætti forsætisráðherra i
Frakklandi.
1914 — Oreste forseti Haiti
sagði af sér embætti er upp-
reisn var gerð í landinu. Banda-
ríski sjóherinn steig á land á
eyjunni til að friður kæmist á.
1865 — Sjálfstæði Perú var
viðurkennt með undirrituh
sáttmála við Spán.
1695 — Must'afa II varð soldán I
Tyrklandi eftir lát Ahmad II.
I dag eiga afmæli: Samuel
Foote, enskur leikari
(1720—1777), Wolfgang A.
Mozart, tónskáld (1756—1791),
Edouard Lalo, franskt tónskáid
(1823—1892), Jerome Kern,
bandarískt tónskáld
(1885—1945).
1944 — Leningrad var aö fullu Hugieiðing dagsins: „Besta
frelsuð undan yfirráðum trúarkenningin er umburðar-
nazísta í síðari heimsstyrjöld- lyndið." Victor Hugo, franskur
inni. rithöfundur (1802—1885).
Heilbrigðisfram-
kvæmdir í Reykjavík
Borgarskæruliði
verði framseldur
Haag, Hollandi, 26 janúar. AP
HOLLENZKUR dómstóll hefur úrskurðað að ríkisstjórn landsins muni ganga
að kröfum v-þýzkra yfiralda um framsal á Christoper Wachernagel og Gerd
Schneider, félaga í Baader Meinhof hryðjuverkasamtökunum. Nokkrar
óreirðir urðu fyrir utan hollenzka þinghúsið er úrskurðurinn var gerður
opinber.
J.A. van Goethem dómari sagði að framsalið byggðist á samningi sem
Evrópulöndin hefðu gert með sér um framsal sakamanna. En samkvæmt
þeim samningi væri það skilyrði að viðkomandi hefði gerst sekur um lögbrot
sem væri refsivert i þessu tilviki bæði i Hollandi og V-Þýzkalandi.
Verjandi Wachernagels og Schneiders hélt þvi fram í ræðu sinni fyrir
dómstólnum að brot tvimenninganna væru af pólitiskum toga spunnin og
þeir fengju þvi ekki réttláta meðferð fyrir dómstólum i Þýzkalandi.
Það er nú undir ákvörðun dómsmálaráðherra landsins Job de Ruiter komið
hvort þeir verða framseldir eða ekki.
Wackernagel er grunaður um fjölda brota, þ.á m. aðild að ráninu og
morðinu á Hanns Martin Schleyer, og Gerd Schneider er eftirlýstur fyrir aðild
að sprengjuárás á dómshúsið i Zweibruecken. Þeir hafa báðir beðið um hæli i
Hollandi sem pólitískir flóttamenn svo að til framsals geti ekki komið, og eru
þær beiðnir þeirra nú til meðferðar í dómsmálaráðuneyti landsins. Knut
Folkert sem þegar hefur hlotið 20 ára fangelsisdóm i Hollandi hefur einnig
beðið um slíkt hæli en dómstóll hefur einnig úrskurðað að framselja megi
hann til Þýzkalands.
Þegar úrskurðurinn var tilkynntur kom til árekstra lögreglu við hóp fólks
sem safnast hafði saman við þinghúsið og á fleiri stöðum i Haag til að
mótmæla honum.
30 Kúbumenn féllu í
bardaga 1 A-Eþíópíu
Mogadishu, Sómalíu, 26. jan.
AP. Reuter
KlJBANSKUR hermaður sem