Morgunblaðið - 09.04.1978, Page 1
48 SÍÐUR
72. tb. 65. árg. SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
O wen og V ance
hitta skæruliða-
leiðtoga Ródesíu
VOR í LOFTI — og vorannirnar raunar líka komnar í háaloft. að minnsta kosti hjá
mönnunum þeim arna. Friðþjófur tók myndina vestur í Slipp.
Ráðherrar EBE
nær samkomulagi
Maputo 8. apríl. Reuter.
LEIÐTOGAR skæruliða-
hreyfingarinnar Þjóðernis-
fylkingarinnar í Ródesíu,
þeir Joshua Nkomo og
Víetnamar
fjölga Uði við
landamærin
Washington 8. apríi. AH
VÍETNAMAR hafa safnað
saman um eitt hundrað
þúsund manna herliði með-
fram landamærunum við
Kamhódíu vegna vaxandi
spennu milli landanna. að því
er bandaríska stórblaðið
Washington Post skýrði frá í
dag. Sú frétt kom samtímis því
að víetnamska stjórnin sagði a
hundruð manna hefðu látizt í
landamærahardögum milli
ríkjanna.
í Washington Post segir. að
þrjár víetnamskar herdeildir
hafi lcngst af verið við landa-
mærin en þeim hafi nú verið
fjölnað upp Pfólf. bær eru m.a.
búnar bandarískum vopnum.
Víetnam og Kambódía, sem
bæði eru kommúnistaríki,
hafa löngum eldað saman
grátt silfur, en upp úr sauð þó
ekki fyrir alvöru fyrr en eftir
að Víetnamstríðinu lauk árið
1975.
Síðustu mánuði hafa hvað
eftir annað verið fréttir um
harðvítuga bardaga milli land-
anna en þær eru hins vegar
ekki allar áreiðanlegar, þar
sem fréttamenn cru fáir á
þessum slóðum og eru strang-
ar hömlur á starfssemi þeirra.
Kína vill
svissneska
franka
Peking 8. apríl Reuter.
KÍNVERJAR hafa ítrekað
þann vilja sinn að fá sviss-
neska franka fyrir útflutn-
ingsvörur sínar vegna þcss
hve mikil óvissa er varðandi
Bandarikjadollar á gjaldeyris-
mörkuðum. Var þetta haft
eftir svissneskum heimildum í
dag. bar sagði að þessar óskir
Kínverja væru þó ekki settar
sem cndanlcgt skilyrði og þar
af leiðandi þyrfti ekki að hafa
af þessu áhyggjur að sinni.
Sömu heimildir sögðu að
Kínverjar hefðu beðið Malay-
síumenn að borga fyrir hrís-
grjónafarm, sem afhentur var
nýlega, í svissneskum frönkum
í stað dollara eins og venjan
hefur verið.
Reuter segir að með öllu sé
óljóst hvort Kínverjar muni
reyna að færast undan að taka
við greiðslu í dollurum á
vorkaupstefnunni í Kanton sem
hefst þann 15. apríl.
Robert Mugabe, hafa fallizt
á að hitta Cyrus Vance
utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna og David Owen
utanríkisráðherra Breta í
Afríku síðar í þessum mán-
uði, að því er opinberar
heimildir greindu frá í dag.
Er búizt við að fundurinn hefjist
þann 13. apríl og verður að
líkindum í Arusha í Norð-
ur-Tanzaníu. Þessi fundur er liður
í þeirri viðleitni Breta og Banda-
ríkjamanna að reyna að leggja
fram sinn skerf til að binda endi
á Ródesíudeiluna og fá leiðtogana
til að samþykkja einhvers konar
aðild að því samkomulagi sem
hefur verið gert um meirihluta-
stjórn svertingja i Ródesíu.
Marcos
Manila, Filippseyjum
8. apríl. Reuter. AP.
FERDINAND Marcos for-
seti Filippseyja tilkynnti í
dag, að eiginkona hans,
Imelda, og 20 aðrir fram-
bjóðendur flokks hans hefðu
náð kosningu með glæsi-
brag í Manila, höfuðborg
landsins. Hann sagði að
allmargir frambjóðendur
stjórnarinnar hefðu beðið
lægri hlut úti á landi. Þrátt
fyrir það mun Marcos verða
því sem nær einráður sem
fyrr að kosningum loknum
og hafa ríkulegan meiri-
hluta á þinginu, en þar sitja
200 fulltrúar. Mun hann því
sitja áfram og hafa svipuð
völd og hann tók sér fyrir
átján mánuðum.
Marcos kom fram í sjónvarpi á
laugardag skömmu áður en endan-
legar niðurstöður voru kr.nnar.
Ræddi hann við fréttamenn og var
mjög ánægður með niðurstöður.
Þó sagði hann að sínir menn hefðu
beðið lægri hlut sums staðar, til
dæmis á Visayaneyju og hefðu
heimamenn komið sínum mönnum
að.
Kaupmannahöfn 8. apríl, Reuter.
ÁREIÐANLEGAR heimildir
hermdu að forystumenn
landa Efnahagsbandalags-
ins (EBE) hefðu næstum
komið sér saman um yfirlýs-
Ekki er ljóst hvort Cesar
Climaco, einn skeleggasti and-
stæðingur Marcosar, hefur náð
kosningu en eitt helzta baráttumál
hans í kosningunum var að herlög-
in í landinu yrðu afnumin.
Svo virðist sem kosningarnar
hafi farið friðsamlega fram en
kvöldið áður en þær hófust safnað-
ist mikill mannfjöldi saman í
höfuðborginni til að láta í ljós
Framhald á bls. 21
ingu um sameiginlegar leið-
ir til að auka hagvöxt og
minnka atvinnuleysi í
bandalagslöndunum, þegar
óformlegum umræðum leið-
toganna í gærkvöldi var
frestað fram yfir hádegi í
dag.
Umræður leiðtoganna í gær
snerust þó að mestu leyti um þá
hættu sem gjaldeyris- og efna-
hagsmálum landa Efnahags-
bandalagsins er búin af því umróti
sem verið hefur í alþjóðagjald-
eyrismálum að undanförnu.
í yfirlýsingu forystumanna EBE
er fjallað um aukinn hagvöxt,
leiðir til stöðugleika í gjaldeyris-
málum, langtíma fjármagns-
hreyfingar, orkusparnað og aukin
viðskipti á milli bandalagslanda.
Stjórnir landa EBE óttast að
útflutningur þeirra verði fyrir
skakkaföllum af frekari hrær-
ingum á sviði alþjóðagjaldeyris-
mála og lögðu forystumennirnir
því áherzlu á að finna þyrfti
sameiginlegar leiðir til að ein-
angra gjaldmiðil landanna frá
umróti í alþjóðagjaldeyrismálum.
Búist var við að þeir létu fjármála-
Framhald á bls. 21
Takmörkun lax-
veiða Japana
WashinKton 8. apríl AP.
BANDARÍKIN. Kanada og Japan
undirrituðu í gær samkomulag um
frekari takmörkun laxveiða Japana
í Kyrrahafi.
Samkomulagið felur það í sér að
Japanir hætta nú iillum laxveiðum
austan 175. gráðu austlægrar
lengdar. Það þýðir að veiðisva’ði
Japana minnkar mikið.
Japanir veiddu árlega um 25
miltjónir laxa á Kyrrahafi á síðustu
árum sjöunda áratugsins og fyrstu
árum þess áttunda. Nýja samkomu-
lagið þýðir að líkindum að Japanir
veiði í mesta lagi um hálfa milljón
laxa árlega í Kyrrahafinu að sögn
sérfræðinga.
Karamanlis fékk
Karlamagnúsar-
verðlaunin
Aachen, V-Þýzkalandi,
8. apríl. Reuter
CONSTANTINE Karamanlis.
forsa’tisráðherra (irikklands.
hefur fengið Karlamagnúsar
verðlaunin fyrir árið 1978 sem
horgaryfirvöld í Aachen í
V-Þýzkalandi veita árlega. Hann
hlýtur verðlaunin fyrir starf sitt
í þágu einingar Evrópu. að því er
talsmaður verðlaunanefndarinn-
ar sagði í dag. Meðal fyrri
verðlaunahafa má nefna Winston
Churchill og Konrad Adenauer.
í forsendum segir einnig, að
Karamanlis hafi verið óþreytandi
í þeirri viðleitni sinni að skapa
góða framtíð fyrir þjóðir Evrópu
og hann hafi leitt Grikkland á ný
á brautir lýðræðis.
Karamanlis.
Karamanlis mun taka við
verðlaununum við hátíðlega at-
höfn þann J. maí n.k. í Aachen.
Marcos og menn
hans sigruðu