Morgunblaðið - 09.04.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978
3
MITT FLEY ER SVO LÍTID
■ EN LÖGUR SVO STÓR C
' MITT LÍF ER í __
—FRELSARANS IIÖNI) ~
Sjómannaskjöldinn hefur Tómas Tómasson teiknað.
STORMVIDRíjvj,
kha DROTTNí
SAKKA
totStc
#»*«
SALMUR
Nýr sjómanna-
veggskjöldur
NÝLEGA er kominn út vegg-
skjöldur sem (élagsskapurinn
Kristilegt sjómannastarf gefur
út, en það var stofnað fyrir 10
árum. Hcfur það séð m.a. um að
dreifa jólapökkum til skipshafna
og gefið út ritið vinur sjómanns-
ins.
Árið 1975 gaf Kristilegt sjó-
mannastarf út veggskjöld úr
postulíni sem nú er uppseldur og
er nýi skjöldurinn teiknaður af
Tómasi Tómassyni, eins og hinn
fyrri, og framleiddur í „Gleri og
postulíni." Er veggskjöldurinn til
sölu í húsakynnum sjómanna-
starfsins að Vesturgötu 19.
Sr. Kolbeinn Þorleifsson hefur
að undanförnu ferðast um ná-
grannabyggðir Reykjavíkur og
kynnt starfsemi Kristilegs sjó-
mannastarfs með erindaflutningi
og litskyggnum.
Stendur í stappi um ryð-
varnarstöð Eimskips
Fjármálaráðuneytið heimilar ryðvörn ótoll-
aðra bíla en tollstjóri vill frekari skýringar
EIMSKIPAFÉLAG íslands
hefur fengið heimild fjár-
málaráðuneytisins til að
ryðverja ótollafgreiddar bif-
reiðar í ryðvarnarstöð fé-
lagsins við Borgarskála, en
tollstjóraembættið hefur
hins vegar lagzt gegn þessu
og beðið ráðuneytið um
frekari skýringar á
framkvæmd fyrirmælanna.
í samtali við Mbl. sagði Björn
Hermannsson, tollstjóri, að Eim-
skipafélagið ræki ryðvarnarstöð
innan svæðis síns þar sem geymd-
ar væru ótollafgreiddar bifreiðar.
Björn kvaðst jafnan hafa talið
óheppilegt að nokkuð væri átt við
innflutta vöru fyrr en hún hefði
verið tolluð og væri sú skoðun
hans óbreytt, en hins vegar hefði
nú fjármálaráðuneytið heimilað
skipafélaginu að ryðverja þessar
ótolluðu bifreiðar. Þó vær í bréfi
ráðuneytisins sett fram einhvers
konar skilyrði, sem starfsmönnum
tollsins þættu þó óljós og hefði
verið beðið um nánari skýringar á
þeim.
Höskuldur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu,
sagðist ekki geta tjáð sig um það
atriði er tollstjóraembættinu
þætti óljóst þar sem hann hefi
aðeins rétt séð bréf tollstjóra og
ætti eftir að kynna sér málið
frekar. Hins vegar sagði hann um
aðdraganda þess að ráðuneytið
veitti Eimskipafélaginu framan-
greinda heimild, að árum saman
hefði þessum málum verið háttað
á þann veg að innflytjendur
bifreiða gátu fengið að láta
ryðverja þær áður en til tollaf-
greiðslu kom gegn ákveðinni
tryggingu. I framhaldi af þessu
hefði Eimskipafélagið látið byggja
ryðvarnarstöð innan bílageymslu-
svæðis síns í þeim tilgangi að láta
ryðverja bíla sem væru í vörzlu
þar á svæðinu, enda hefði félagið
borið að nokkru leyti ábyrgð á
þessum bílum og viljað firra sig
hugsanlegu tjóni af þeim sökum.
Um svipað leyti hefði af fjármála-
ráðuneytisins hálfu verið gengið
frá samningum við bifreiðainn-
flytjendur um svonefnd tolllán, er
væru til skemmri tíma eða 10—20
daga og á þessum tíma ættu
innflytjendur að koma bílunum í
söluhæft ástand. Hins vegar hefði
ekki þótt eðlilegt að þeir inn-
flytjendur er létu ryðverja bíla
sína hjá Eimskipafélaginu áður en
til tollafgreiðslu kæmi, fengju
þessi lán með sama hætti og
afgreiðsla ráðuneytisins því orðið
á þá leið að þessum aðilum er
veittur skemmri greiðslufrestur.
Flóamarkaður
Myndlistar-
skólans í dag
FERÐASJÓÐUR Myndlistar
skóla íslands gengst fyrir flóa-
markaði í húsakynnum skólans,
Mímisvegi 15, Asmundarsal, í
dag, sunnudag, kl. 14.00. Á
boðstólum verða einnig kaffi og
pönnukökur. í tengslum við
markaðinn verður cfnt til skyndi-
happdrættis og eru vinningar 15
listaverk þekktra myndlistar
manna auk 5 eintaka bókarinnar
Heimslist/ Heimalist. Dregið
verður í happdrættinu sunnudag-
inn 16. apríl n.k.
Flóamarkaðurinn og happdrætt-
ið eru haldin til fjáröflunar vegna
námsferðar nemenda til Parísar,
sem fyrirhuguð er um miðjan maí.
Fjöldi eigulegra muna verður í
boði á flóamarkaðnum, að því er
segir í fréttatilkynningu frá
Myndlistarskólanum.
sæluvikur
í sumardýrð Spánar
— þú borgar kr.
fyrir brottför — eftir-
stöðvar á 4 mánuðum
eftir heimkomu.
Sumarið
komiö
Costa del
Hefurðu ráö á að sleppa pessu boði
— Brottför 23. apríl
'i hvað segja farþegarnir úr paskaferð
* ÚTSÝNAR TIL COSTA DEL SOL:
„Vio þokkum Utsýn
yndislega ferð til Costa
del Sol um páskana.
Gististaðurinn EL REMO
og allur aöbúnaöur var
meö því bezta, sem á
veröur kosiö svo og
fararstjórar, tilbúnir aö
leysa allan vanda ef
einhver var. Viö nutum
feröarinnar í ríkum
mæli, enda var veöur
eins og um hásumar."
Hilmar Þórarinsson og
fjölskylda,
Klapparstíg 5, Njarðvík.
„Veörið á Costa del Sor
um páskana var alveg
himneskt. El Remo er
gististaöur í sérflokki, öll
þægindi, en rólegt, góö-
ur garöur og öll aðstaða
í kring mjög góö og í
Torremolinos var allt í
fullu fjöri alls staðar.
Fararstjórarnir létu ekki
sitt eftir liggja aö gera
farþegunum til geös og
aöstoöa þá í hvívetna."
Margrét og Kristinn
Guðmundsson
Efstahjalla 7, Kópavogi.
„Páskaferö Utsýnar var i
einu oröi sagt frábær.
Veörið var alveg dýrö-
legt frá upphafi feröar til
enda. Gististaöurinn El
Remo er sá besti sem
viö höfum nokkurn tíma
haft þá ánægju af aö
gista. Fararstjórn var
alveg einstök og allt fyrir
mann gert. Sjáumst í
næstu páskaferö Út-
sýnar!“
Siguröur Guðmunds-
son og frú
Grenimel 36, Rvík.
Costa del Sol:
23. apríl — laus sæti
— sértilboö
14. maí — uppselt
4. júní — uppselt
25. júní — laus sæti
Costa Brava:
4. júní — örfá sæti laus
25. júní — laus sæti
Lignano:
13. maí — laus sæti
1. júní — uppselt
22. júní — örfá sæti laus
Grikkland:
13. maí — örfá sæti laus
1. júní — nokkur sæti
laus
22. júní — laus sæti
Jágóslavía:
9. júní — uppselt
30. júní — nokkur sæti leus
Loftbrú Útsýnar
lægri fargjöld
Pantið réttu ferðina
tímanlega
— Þær fyllast óðum.
Það er með Útsýn, sem
ferðin borgar sig.
Munið Útsýnarkvöldið með
ungu ffólki í Óðali í kvöld.
Austurstræti 17,
símar 26611 og
20100.