Morgunblaðið - 09.04.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRIL 1978
5
Klukkan 20.30 í kvöld er þátturinn „heimsókn“ í sjónvarpi. í kvöld
verður íarið í heimsókn á dýraspítala Watsons í Selásnum við
Reykjavík. Sigríður Ásgeirsdóttir. stjórnarformaður dýraspítalans,
og Marteinn M. Skaftfells, formaður Sambands dýraverndunarfélaga
íslands. segja frá. bá er í þættinum einnig rætt við félaga í
hestamannafélaginu Fáki. Umsjónarmaður þáttarins er Valdimar
Leifsson.
„Byrjunin" nefnist norsk sjónvarpsmynd sem sýnd verður f kvöld
klukkan 21.00. Myndin fjallar um unga konu sem á von á sínu fyrsta
barni.
7~AK 0 6
6r£ ÍM i
K.O&LFi5*uR
ÞR ÝSTf L o FTS~
n s k í/ r
„Tak og fiskarnir", nýjasta sagan um geimveruna ágætu, „Tak“,
verður í „Stundinni okkar“ í kvöld klukkan 18.00. Höfundur
sagnanna um „Tak" er átta ára drengur, Iljaltf Bjarnason, en „Tak
og fiskarnir“ samdi systir Hjalta, Kristín. með honum. Les Kristín
söguna ásamt Iljalta og annast leikhljóð. Sögumaður í „Taki og
fiskunum" cr Guðrún Kristín Magnúsdóttir.
Sagan fjallar um hvcrnig Taki tekst með aðstoð vinkonu sinnar,
Geim nornarinnar, að leysa mengunarvandann á stjörnunni.
Unglingur frá ööru landi á þínu heimili?
AFS
býður þér, að taka inn á þitt eigið heimili 15—17 ára ungling til sumardvalar trá Bandaríkjunum,
eða til ársdvalar ungling frá Evrópu eða Bandaríkjunum. Þannig færðu tækifæri til að veita nýjum
menningarstraumum, inn á heimilið. Þú fræðist um líf og háttu fólks í öðrum löndum; hugsunarhátt
þess, siðvenjur, áhugamál, viðbrögð, lunderni, svefntíma, uppskriftir o.s.frv. o.s.frv. o.s.frv.
Og alla þessa forvitnilegu reynslu, geturðu öölast í stofunni heima hjá þér.
Umsóknarfrestur er til 28. apríl.
Upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 5—6. ■■ á Islandi,
Hverfisgötu 39,
sími 25450.
AFS
Látið drauminn rætast...
NJÓTIÐ LÍFSINS
í FERD MEÐ SUNNU
Nú býður Sunna upp á dagílug til allra eftirsóttustu sólarlandanna.
Hvergi fiölbrevttara ferðaval.
SPÁNN MALLORCA - COSTA DHL SOL - COSTA BRAVA -
KANARÍEYJAR
ÍTALÍA SORRENTO - KAPRÍ - RÓM
GRIKKLAND aþenustrendur - eyjarnar rhodos
OG KORFÚ - SKEMMTIFERÐASKIP
PORTÚGAL ESTORIL - LISSABON
Skrifstofur Sunnu á öllum dvalarstöðum með þjálfuðu íslensku starfsfólki veitir öryggi
og þjónustu. Barnagæsla og leikskóli með íslenskum fóstrum.
Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir. Dagflug með rúmgóðum þotum.
ÞÚSUNDIR ÁNÆGÐRA VIÐSKIPTAVINA VHLJA SUNNUFERÐ ÁR EFTIR ÁR
BANKASTRÆTI 10. SÍMAR 29322 - 16400 - 12070 - 25060