Morgunblaðið - 09.04.1978, Side 35

Morgunblaðið - 09.04.1978, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978 35 Leifur Gunnarsson — Minningarorð Til moldar oss vígði hið mikla vald, hvert mannslif, sem jörðin elur. Sem hafsjór. er rís með fald við fald, þau falla. en ^uð þau telur. því heiðloftið sjálft er huliðstjald. sem hæðina dýrð oss felur. E.B. Þessi orð skáldsins koma gjarna í hugann, þegar samferðamennirn- ir hverfa úr hópnum, og það er eins og við séum alltaf jafn vanbúin að átta okkur á slíku fyrst í stað, enda þótt það sé eitt af því fáa, sem við vitum með vissu, að við hljótum öll að hverfa héðan fyrr eða síðar. Leifur Gunnarsson lézt í Land- spítalanum að morgni 2. apríl s.l., 75 ára að aldri, og fer útför hans fram frá Fossvogskirkju á morgun kl. 13.30. Hann fæddist 6. marz 1903 í Saltvík á Kjalarnesi, og voru foreldrar hans Gunnar Guðnason, bóndi þar, og Þórunn Magnúsdótt- ir, kona hans. Leifur ólst upp í Saltvík til 9 ára aldurs, en flutti þá með föður sínum og systrum að Esjubergi í sömu sveit, en móðir hans var þá látin. Á Esjubergi dvaldist hann til ársins 1919, er fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. í Reykjavík stundaði Leifur al- menna verkamannavinnu og sjó- mennsku, þar til hann flutti til Akraness laust fyrir 1930. Á Akranesi stundaði hann áfram sjómennsku fram um árið 1940, en hóf þá bifreiðaakstur um nokkurra ára skeið, auk þess sem hann hafði á hendi ökukennslu við Bænda- skólann á Hvanneyri á vorin. Síðar varð hann stöðvarstjóri við Vöru- bílastöð Akraness, þar til hann flutti til Reykjavíkur á árinu 1958 með fjölskyldu sína. I Reykjavík stundaði Leifur einkum verzlunar- störfbúð. Er hann hætti eigin verzlunarrekstri, vann hann um nokkurt skeið í kjötverzluninni Búrfelli, en síðustu árin hjá Sláturfélagi Suðurlands, fyrst í verzluninni að Háaleitisbraut 68 og síðan í Glæsibæ. Hefur nú verið rakinn starfsferill Leifs í stórum dráttum. Hinn 25. maí 1930 kvæntist Leifur eftirlifandi eiginkonu sinni, Huldu Eyjólfsdóttur, mikilli ágæt- iskonu, sem reyndist manni sínum tryggur og traustur lífsförunautur til síðustu stundar, enda leyndi sér ekki, hve mikils hann mat hana. Þau eignuðust einn son, Brynjar Þór, verzlunarmann, búsettan í Kópavogi, en hann er kvæntur enskri konu, Jean að nafni, sem reynst hefur tengdaforeldrum sínum með eindæmum hlý og umhyggjusöm. Þau Brynjar og Jean eiga tvö börn, Bryndísi Ann og Bjarka. Ég kynntist Leifi fyrst að ráði í ársbyrjun 1951, er við hjónin fluttumst til Akraness með tvö kornung börn okkar. Líður mér ekki úr minni, hversu þau Leifur og Hulda tóku okkur öllum opnum örmum og voru góð alla tíð síðan. Slík vinátta, sem þau hafa sýnt okkur, og ekki síst börnunum, frá fyrstu kynnum, er meira þakkar- efni en með orðum verður tjáð. Á Akranesi var heimili þeirra Leifs og Huldu að Merkigerði 10, svo til öll árin, sem þau dvöldu þar. Leifur var einn hinna mörgu í þjóðfélaginu, sem háði sína lífs- baráttu hávaðalaust, án þess að sækjast eftir ýmsum ytri munaði eða vegtyllum, sem margir virðast fyrst og fremst lifa fyrir, enda verður enginn mikill af starfsheiti sínu einu saman, heldur því, að hann gegni vel þeim störfum, sem honum eru falin. Þeir, sem þekktu Leif, vita það, að hann gegndi öllum sínum störfum af frábærri samvizkusemi og heiðarleika, og níddist ekki á neinu því, sem honum var til trúað. Slíkir menn eru undirstaða og kjarni hvers þjóðfélags, hvort sem þeir standa ofar eða neðar í metorðastiganum. Að eðlisfari var Leifur dulur og fáskiptinn um allt það, sem hann taldi sér óviðkomandi. Hann gekk hægt um gleðinnar dyr og fáraðist lítt, þó að á móti blési, en þessir eiginleikar eru ótvíræð einkenni þroskaðs manns. Og víst er það, að ytri ró hans stafaði ekki af kaldlyndi, því að á bak við hana sló hlýtt og viðkvæmt hjarta, enda brást ekki hjálpfýsi hans, væri til hans leitað, og tryggari vin vina sinna hef ég ekki þekkt. Ekki mun Leifur hafa eytt mörgum árum ævi sinnar í skóla- göngu, enda voru mjög takmörkuð skilyrði til þess á hans uppvaxtar- árum, en margfróður var hann og víðlesinn og orðheppinn í bezta lagi, enda eðlisgreindur vel. Hygg ég, að mesta tómstundayndi hans hafi verið lestur góðra bóka. Hagyrðingur var hann góður, en svo dult fór hann með þá gáfu sína, að ég hygg, að fáum, sem þekktu hann, hafi verið um hana kunnugt. Að endingu vil ég þakka Leifi áratuga vináttu og tryggð, um leið og ég bið honum blessunar Guðs í nýrri tilveru. Eftirlifandi eiginkonu, syni og Magnína dóttir — fjölskyldu hans, fóstursystur og öðrum vandamönnum, vottum við hjónin dýpstu samúð okkar. Valgarður Kristjánsson F. 29. maí 1895. D. 1. apríl 1978. Mig langar með nokkrum fátæk- legum kveðjuorðum að þakka tengdamóður minni Magnínu Salómonsdóttur fyrir samfylgd- ina. Nú þegar leiðir skilja þá er mér efst í huga öll sú vinátta og tryggð sem hún hefur sýnt mér og börnum mínum í gegnum árin. - Það er mikil gæfa að eiga góða ömmu, en um það geta mín börn best borið vitni. Jón og Signý voru fyrstu barnabörn hennar, Jón var ekki nema tveggja ára þegar hann fór í fyrstu sumardvölina til ömmu á Isafirði og þau voru mörg sumurin sem hann átti eftir að Salómons- Kveðja vera þar og síðan tók Signý við. Fyrir öll þessi sumur og allt það ástríki sem hún sýndi þeim vil ég nú færa henni mínar bestu þakkir. Signý dvelur nú við nám erlend- is og getur því ekki fylgt ömmusinni síðasta spölinn, en hún bað mig fyrir sérstakar þakkir og kveðjur. Þótt árin hafi orðið 83, þá lét Magnína það' ekki á sig fá, því segja mátti að hún væri við vinnu fram undir það síðasta. En nú er langri vegferð lokið, því segja má að ungur má, en gamall skal. Hafði hún þökk fyrir allt og allt. Hvíli hún í friði. Eint'na Einarsdóttir. Handunnir dúkar Lítið í gluggana um helgina. ^anngrðattrrzltumt irla Snorrabraut 44. Þau vita allt um IB-lán ■Æm% Hafir þú hug á að kynnast betur hinum nýju IB-lánum og IB-veð- lánum, skaltu bara koma eða hringja. IB-ráðgjafar okkar kunna svör við spurningum þínum. Sé þess óskað, geta þeir einnig rætt og ráðlagt um hve lengi sparað er og hversu há upphæð. Að ýmsu þarf að hyggja til að sparn- aðaráætlunin standist. Hvað þarf lánið að vera hátt til að takmarkinu verði náð? Hvað eru líkur á að hægt sé að leggja mikið inn mánaðarlega? Svör við þeim spurningum ráða mestu um hve langt sparnaðartímabilið þarf að vera. Kynntu þér möguleikana betur. Hafðu samband við IB-ráðgjafana í aðalbanka eða einhverju útibúanna. Fyrirhyggja léttir framkvæmdir. Banki þeirra sem hyggja að framtíðinni Iðnaðarbankinn Lækjargötu 12, Sími 20580

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.