Morgunblaðið - 09.04.1978, Page 46

Morgunblaðið - 09.04.1978, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1978 STUTTAR UMSAGNIR STJÖRNUBÍÓ: BITIÐ í BYSSUKÚLUNA Vestri af gamla skólanum, íburðarmikill og langdreginn, og hefði örugglega notið metaðsóknar fyrir svosem fimmtán til tuttugu árum síðan. Gene Hackman og James Coburn fara að venju, hressilega með hlutverk sín. Annars er myndin yfir höfuð ágætlega leikin þrátt fyrir að handritið bjóði tæpast upp á mikil, leikræn tilþrif. Tæknilega er BÍB dável unnin og verður að teljast sómasamleg afþreying. Á næstunni: NÝJA BÍÓ: THE OMEN — Þar sem aö filmueintakiö barst ekki til landsins í tæka tíö, varö þessi víðfræða hroll- vekja af þeim „heiðri" aö veröa páskamynd kvikmyndahússins í ár. Gamli Satan lætur ekki aö sér hæöa, frekar en fyrri daginn, og hér hreiörar hann um sig í ungum sveini, hvers faðir er seindiherra Bandaríkjanna í Bret- landi. Ot skal kölski meö illu eöa góöu, og fjallar myndin um þau ósköp öll. Með aöalhlutverkin fara þau Gregory Peck og Lee Remick. draumarnir rætast... TÓNABÍÓ, ROCKY Til hjálpar öllum þeim sem undir hafa orðið í lífsbaráttunni, mannfólk- inu sem aldrei hefur átt blóma lífs síns, hinum niðurbeygðu konum sem hafa beðið og beðið við síma, sem aldrei hefur hringt, — kemur Rocky. Rocky Stallone. The Italian Stallion. Atvinnuboxari frá Philadelphiu sem hefur af vafasömum gáfum að státa og frumstæðri tækni. Rocky, ólíkleg kvikmynda- hetja og mjög svo ósenni- legur til að fá okkur til að trúa á améríska drauminn. Fórnarlamb óþverralegs hrekkjabragðs Appollo Creed — heimsmeistarans í þungavigt í hnefaleikum — Rocky er einnig aðalpersón- an í Oskarsverðlaunamynd John Avildsen frá því í fyrra, ROCKY. Þetta er kvikmynd um kraft, áræði, fegurð, grimmd, jafnframt því sem hún slær á viðkvæmar tilfinningar og virðist í .upphafi hljóðlát, sæt-súr ástarsaga en breytist síðan í kandhæðnislega gagnrýni á Bandaríkin í gleðivímu á tvöhundruð ára afmælinu. Undir lokin breytist hún svo í geysandi verk um goðafræði og þjóðtrú, full- skapað með grískum nöfn- um, hofum, epískum átök- um og lýkur með tilheyr- andi lúðrablæstri. Þrjár myndir og þó kannski ein: Einstaklega mannleg saga um mann sem ætíð er að tapa, en fær annað tækifæri í lífinu, gerir uppreisn gegn ömur- legri tilveru sinni og hörmuiegri atvinnu. Auga Rockys hefur oröiö fyrir áverka í keppninni, og hér bíöur hann næstu lotu, ásamt þjálfara sínum, Mickey (Burgess Meredith). Þégar heimsmethafinn ákveður að gamni sínu aö setja upp bardaga í Phila- delphiu í tilefni tveggja aida afmælisins, þá velur hann alls óþekktan þriðja flokks hnefaíeikamann það- an úr borginni. Hið kæn- lega hrekkjarbragð er aug- ljóst: Koma með smælingja fram á sjónarsviðið, af- greiða hann í þremur, blóð- ugum lotum, nota bardag- ann til að gabba Bandarík- in — land tækifæranna. En Apollo velur rangan mann. Rocky gerir sér ekki grein fyrir því að þetta er „show“, að því að okkur skilst. Rocky telur víst að Leikstjóri næstu myndar Nýja Bíós, Richard Oonner. Lítilmagninn gagnvart heimsmeistaranum; Sylvester Stallone og Carl Weathers í hlutverkum sínum. um sé að ræða virkilega keppni um heimsmeistara- titílinn, Hann byrjar að æfa af kappi undir stjórn gamals hnefaleikaþjálfara (sem er leikinn af sannkall- aðri snilld af Burgess Mere- didth), hann býr sig undir keppni lífs síns af trúarleg- um áhuga. I minnisstæðu atriði hleypur hinn kraftalegi hnefaleikari upp tröppur sem liggja að stórri, opin- berri byggingu í grískum byggingarstíl. Rocky stend- ur fyrir framan súlurnar, armleggirnir uppréttir, um- myndunin geislar af hon- lengur h'nefaleikakeppni né íþróttaviðburður. Er myndavél James Crabe þýtur um hringinn, er engu líkara en að við séum komin inn í goðaheim, þar sem tveir afskræmdir risar berjast á fjallstoppi, og illvíg, mannskæð högg þeirra knýja fram hryll- ingsblandað andrúmsloft. í lokin er ROCKY kald- hæðinn og, öfugt við aðrar myndir Avildsen, flytur hún von og trú — andleg mynd. Að þessu sinni finna þeir rithöfundurinn/ leik- arinn Sylvester Stallone (sem er ekki síðri höfundur sannra, stífra samtala en hann er hæfileikaríkur, ósvikinn leikari9, og Avild- sen, hið góða í hinum glötuðu sálum eyrarinnar í Phylli. Hin þögula og hlé- dræga stúlka (nettlega leik- in af Taliu Shire — systur leikstjórans alkunna, Francis Ford Coppola, mun innan skamms blómstra, Rocky sjálfur hefur hlotið umbun erfiðisins og breyt- ingarnar hafa fært hann á hátind hamingjunnar og jafnvel fyrrverandi hús- bóndi hans, okurlánarinn, slettir í hann fé til að standa undir þjálfuninni í ófimlegri tilraun til að sýna sinn betri mann. Af augljósum ástæðum verður ekki farið nánar út í endinn á ROCKY, en þess má geta að hann er ekki jafn augsýnilegur og níaður gæti haldið. Við komumst að því í myndarlokin að heimsmeistaratitillinn er ekki málið. Rocky er annars konar meistari, af þeirri gerð sem við þörfnumst annað veifið til að rétta okkar betri manni hjálpar- hönd. SV. um; þjálfunin hefur borið árangur. Goðsagan hefst, Rocky er tilbúinn að mæta Apollo. I fyrstu lotunni lætur hinn reigingslegi meistari, eldsnögg vinstri handar höggin bylja á Rocky, og við óttumst það versta. í þrem- ur, áðurgerðum myndum um mislukkaða menn og útskúfaða þjóðfélagsþegna Joe, Stoolie, Save The Tiger, — verða söguhetj- urnar í myndum John Av- 'ildsen að láta í minni pokann, bila. Verður Rocky niðurlægt fórnarlamb? I fyrstu lotunni miðri gerist kraftaverkið. Skyndi- lega greiðir Rocky heims- meistaranum þrumandi kjaftshögg og sendir hann furðulostinn í gólfið. Eftir að dómarinn hefur talið góða stund, skrönglast Appolo á fætur, ruglaður og illa meiddur. Keppnin held-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.