Morgunblaðið - 24.05.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 24.05.1978, Síða 1
64 SÍÐUR 105. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 Prentsmiöja Morgunblaðsins. Brzezinski í Asíu: Kóreusamning- ar í bígerð? Innrásarlidid hörfar til Angóla um Zambíu Briissel, París, Lusaka, Kolwezi, 23. maí. Reuter — AP. FRANSKIR hermenn fundu í dag í Kolwezi lík tuttugu Evrópu- manna til viðbótar þeim sem þegar hafa fundizt oir talið er að innrásarmenn í Shaba-héraði hafi myrt. í hópi þessara tuttugu var að finna lik 12 barna. Hermenn fundu einnig í dag hóp kvenna og barna sem ráfaði um frumskóg- inn í útjaðri Kolwezi skelfingu lostinn og aðframkominn af hungri, en fólk þetta hafði flúið „Þessari kyn- slóð ekki fyr- irgefið mistak- ist afvopnunar ráðstefna SÞ” New York, 23. maí. AP, Reuter. WALDHEIM framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lagði til í dag að þjóðir heims legðu fram eina milljón dollara til afvopnunar- mála fyrir hvern milljarð sem varið væri til hergagna. Waldheim sagði þetta í ræðu við setningu aukafundar allsherjarþings Sam- einuðu'þjóðanna um afvopnunar- mál sem hófst í dag, en þar verður rætt um leiðir til að draga úr vígbúnáðarkapphlaupinu í heimin- um sem árlega kostar mannkynið um 400 milljarða Bandaríkjadoll- ara (um hundrað þúsund milljarða ísl. króna). Waldheim lagði einnig til í ræðu sinni að sett yrði á laggirnar nefnd virtra stjórnmálamanna og sér- Framhald á bls. 19 úr borginni undan innrásar- mönnum cftir að eiginmenn kvennanna og feður barnanna höfðu verið drepnir. Alls er nú talið að um 200 Evrópumenn hafi verið drepnir í innrásinni í Shaba. Vopnaður hópur innrásarmann- anna var í dag á ferð í Zambíu skammt frá landamærum Shaba-héraðs í Zaire og var á leið til Angóla að því er sjónarvottar töldu. Höfðu þeir með sér marga evrópska gísla og mikinn ránsfeng frá Kolwezi. Ekki er ljóst hverra þjóða gíslarnir eru, en franska stjórnin telur að um 70 Frakka og annarra Evrópumanna sé enn saknað í Kolwezi. Heimildir í Lusaka, höfuðborg Zambíu, hermdu að innrásarmennirnir hafi ekið inn í landið í nótt og haldið eftir þjóðveginum beinustu leið í átt til Angóla. Engum var gert mein í Zambíu á leiðinni, og lögreglan þar gerði ekki tilraun til að hefta för liðsins um þann landskika sem þarna skilur að Angóla og Zaire. Giscard d‘Estaing Frakklands- forseti sagði í dag á blaðamanna- fundi að franska herliðið mundi hverfa á braut jafnskjótt og komist hefur verið á snoðir um afdrif þeirra Evrópumanna sem enn er saknað. IT i Um 1000 hðsmenn frönsku útlendingaherdeildar- innar eru nú í Zaire. Deildin missti tvo menn í bardögum við upp- reisnarmenn og nokkrir særðust, Framhald á bls. 18 Sýni hvorki miskunn né þolinmæði framar — segir Anwar Sadat um andstædinga sína Kaíró, 23. maí. AP. Reuter. SADAT Egyptalandsforseti sagði í dag að pólitískir óvinir hans í landinu hefðu leitt Egyptaland fram á brún blóðugs stéttastrfðs og að í framtíðinni „yrði hvorki sýnd miskunn né þoiinmæði". Ilann sagði að hinn gífurlegi BRETADROTTNING í V-ÞÝZKALANDI. — Elízabet Bretadrottning er nú í opinberri heimsókn í V-Þýzkalandi. Hún sést hér ásamt manni sínum, Philip prins, á tali við Helmut Schmidt kanzlara og eiginkonu hans. (Símamynd AP). stuðningur við hann f þjóðarat- kvæðagreiðslunni fyrir nokkrum dögum hefði verið holl lexía fyrir andstæðinga hans. Sadat ræddi í dag við egypzka blaðamenn við heimili sitt og sagði að sér hefðu orðið á þau mistök að heimila spillingaröflum sem nutu stuðnings Sovétríkjanna að hefja stjórnmálastarf í landinu en nú myndi endi á það bundinn. „Þetta er lexía öllum þeim sem vita ekki Framhald á bls. 19 Þyrla villist inn í Tékkóslóvakíu Vín. 23. maí. Reuter. AUSTURRÍSK herþvrla villtist í dag inn fyrir landamæri Tékk- óslóvakíu og lenti þar. Stjórn Austurríkis hefur beðið tékk- nesku stjórnina afsökunar á þessu og farið fram á að fá þyrluna og flugmanninn afhent. en í kvöld höfðu tékknesk yfir völd engu svarað. Tókýó — 23. maí — AP ZBIGNIEW Brzezinski fer á miðvikudag til Seoul til viðræðna við stjórn S-Kóreu. en talið er að hann hafi átt mikilvægar viðræð- ur við Peking-stjórnina um mál- efni Kóreuskagans. Ekkert hefur verið látið uppi um efnisleg atriði í þessu sambandi. en víst er þó talið að rætt hafi verið um að gera endanlega friðarsamninga. Bandaríkjastjórn hefur lýst yfir samningsvilja sfnum. þó með því skilyrði að S-Kórea yrði aðili að viðraróum. en Kínverjar hafa til þessa haldið því fram að N-Kóreu- stjórn sé hin eina löglega ríkis- stjórn á skaganum. Við komuna til Tókýó í dag tjáði Srzezinski japanska forsætisráð- herranum, Fukuda, að Bandaríkin hefðu í hyggju að treysta tengslin við Kína og koma samskiptum Framhald á bls. 19 Franskir fallhlífarhermenn yfirheyra nokkra íbúa í Kolwezi á meðan þeir gerðu leit að þeim uppreisnarmönnum sem eftir kunna að vera í borginni. (Símamynd AP). Sprengjuhót- un um borð í skemmtiferða- skipi í gær á Atlantshafi London, 23 maí. Reuter, AP. ÞRÍR sprengjusérfræðingar brezka hersins flugu í kvöld með flutningaflugvél að skemmti- ferðaskipinu Oriana þar sem það var statt skammt frá Azoreyjum og var ráðgert að þeir vörpuðu sér þar út í fallhlífum til að kanna hvort sprengjuhótun sem eigendum skipsins hafði borizt fyrr um daginn hefði við nokkur rök að styðjast. Flugvélin sem mennirnir voru í hringsólaði í nokkurn tíma yfir skipinu, en loks var talið að áhöfn þess hefði sjálf leitað af sér allan grun og var flugvélinni þá snúið aftur til Bretlands og því lýst yfir að um gabb hefði verið að ræða. Alls voru 2400 manns um borð í skipinu, 1600 farþegar og 800 manna áhöfn. Tvívegis áður hefur verið tilkynnt um sprengjur um borð í brezku skemmtiferðaskipi, í bæði skiptin var um að ræða Queen Elizabeth II og var þá aðeins um gabb eitt að ræða. Enn finnast í Kolwezi lík 20 Evrópumanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.