Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
31
• Hilmar Svavarsson og Borgþór Jónsson á fundi aganefndar
KSÍ í gær. Þorvaldur Lúðvíksson var farinn af fundi þegar
myndin var tekin.
Ljósm. KRÓL.
Eyjamenn sluppu
með áminningu
AGANEFND KSÍ ákvað á fundi í gær að veita ÍBV alvariega
áminningu vegna atviksins, sem varð á dögunum í leik ÍBV
alvarlega áminningu vegna atviksins, sem varð á dögunum í leik
ÍBV og Víkings, þegar ráðist var á annan línuvörðinn. Jafnframt
var Eyjamönnum bent á að auka þyrfti vallargæzlu svo ekki þurfi
til þess að koma að þeim verði bannað að leika á heimavelli.
Hilmar Svavarsson formaður aganefndarinnar sagði í samtali
við Mbl. að ekki hefði þótt rétt miðað við aðstæður að beita
heimaleikjabanni í þessu tilviki m.a. vegna þess að það hefði ekki
verið skylda heimaliðsins að halda uppi gæzlu á leiknum.
Aðspurður um það hvað þyrfti að gerast til þess að heimaleikir
yrðu teknir af liðum svaraði Hilmar því til, að í Vestmannaeyjum
hefði það gerst að línuvörðurinn hefði svarað árásarmanninum
í sömu mynt og hefði það verið tekið með í reikninginn við
ákvörðun nefndarinnar.
Markalaust jafn
tef li en ungling-
arnir nær sigri
ÚRVALSLIÐ KSÍ, sem leika á gegn stjörnuliði
Bobby Charltons og landslið leikmanna 21 árs og
yngri, léku æfingaleik í Keflavík í gærkvöldi og
lauk leiknum án marka, 0«0. Unglingaliðið átti
mun meira í leiknum og 1-2 marka sigur þess
hefði ekki verið ósanngjarn.
Veður var mjög fagurt í Kefla-
vík í gærkvöldi, ekta knattspyrnu-
veður en áhorfendur voru með
fæsta móti eða um 300. Fyrri
hálfleikurinn var jafn en þó voru
unglingarnir alltaf heldur ákveðn-
ari og þeir léku betri knattspyrnu.
Úrvalsliðið náði hins vegar ekki
saman í f.h. og ónákvæmni gætti
í sendingum. Virtist það sam-
merkt með báðum liðum að
leikmenn skorti áhuga á leiknum.
Seinni hálfleikurinn var öllu
líflegri og sótti unglingaliðið þá í
sig veðrið. Atli Eðvaldsson og
Albert Guðmundsson sýndu mjög
góðan leik á miðjunni og um tíma
í seinni hálfleik var um algera
einstefnu á mark úrvalsins að
ræða. Fengu unglingarnir t.d. 5
hornspyrnur með stuttu millibili
og skapaðist ætíð mikil hætta við
mark úrvalsins þegar þær voru
teknar.
Á 31. mínútu átti hinn kornungi
leikmaður Arnór Guðjohnsen
þrumuskot að marki úrvalsins frá
vítateig og tókst Diðrik með
naumindum að slá boltann yfir.
Skömmu síðar tókst Arnóri að
leika laglega á vörn úrvalsins og
sá Sigurður Indriðason ekki annað
ráð en bregða honum rétt utan
vítateigs. Atli Eðvaldsson tók
spyrnuna og smaug boltinn rétt
yfir þverslána.
Úrvalslið KSÍ náði illa saman að
þessu sinni og kann það að hafa
haft áhrif hjá úrvalinu svo og
landsliði 21 árs og yngri að
mannaskipti yoru óvenju ör í
báðum liðum. í úrvalinu átti Karl
Þórðarson beztan leik og hann
reyndi ætíð að byggja upp spil.
Árni Sveinsson, Diðrik Olafsson
og Hörður Hilmarsson áttu einnig
góðan leik og Janus Guðlaugsson
var þokkalegur.
Unglingaliðið var mun betra að
Framhald á bls. 19
Opið golfmót á
Leiru um helgina
GOLFKLÚBBUR Suðurnesja heldur
opið golfmót á Hólmsvelli í Leiru,
„Michelin"-mót, laugardag og sunnu-
dag 27.-28. maí n.k. Hefst keppnin
kl. 9 f.h. og 13:30 e.h. á laugardag.
Keppt verður um verölaun, gefin af
Michelin-umboöinu á íslandi, þar á
meöal 3 fólksbíladekk.
Keppnin er 36 hola punkta-keppni
„Stableford" meö 7—8 forgjöf, veitt
veröa aukaverðlaun sem hér segir:
1. Sá sem kemst næst holu i
teighöggi á 5. braut fær 1 fólksbíla-
dekk í verðlaun.
2. Sá sem kemst lengst í teighöggi
á 9. braut fær 1 fólksbíladekk í
verðlaun.
3. Sá sem bætir sig mest seinni
keppnisdag fær 1 fólksbíladekk í
verðlaun.
Þátttöku ber aö tilkynna tii Golf-
klúbbs Suöurnesja eða á þátttöku-
lista sem eru í öllum Golfklúbbum.
Á meðan keppnin stendur yfir
verður í gangi nokkurs konar Tívolí
þar sem öllum gefst kostur á aö
reyna hæfni sína í golfi.
Vormöt ÍRí fyrsta
skiptií Laugardal
HIÐ árlega Vormót ÍR í frjálsum
íþróttum mun að þessu sinni fara
fram á Laugardalsvellinum í
Námskeið
Leik- og íÞróttanámskeið á vegum
æskulýösnefndar Garöabæjar veröa
starfrækt í júni og júlí í súmar.
Námskeiöin eru ætiuo börnum á
aldrinum 6—13 ára og veröur
innritun miövikudaginn 24. maí kl.
9—12 í íþróttahúsinu Ásgaröi, og
stendur út mánuöinn. Námskeiðin
veröa tvö, annað í júní, hitt í júlí, og
veröur íþróttahúsiö notað nokkuð á
námskeiöunum. Þátttökugjald á
hvoru námskeiöi er kr. 2.000.- sem
greiöist við innritun.
--------------» » »
Bogaskyttur
stofna deild
STOFNFUNDUR bogfimideildar,
innan Skotfélags Reykjavíkur, vero-
ur haldin á Hótel Esju, 2. hæo,
fimmtudaginn 25. mai kl. 20.30,
stundvíslega. Allt íhugafólk vel-
komio. Skotfélag Reykjavíkur.
Reykjavík fimmtudaginn 25. maí.
Vormótið hefur um áraraðir
táknað, að nú sé keppnistímabil
frjálsíþrótta hafið fyrir alvöru
hér á landi, því það hefur að
jafnaði verið fyrsta meiri háttar
frjálsíþróttamót ársins og svo er
enn.
Vormótið hefur hingað til farið
fram á gamla Melavellinum en
vegna breytinga þeirra, sem þar
hafa átt sér stað, er mótið nú flutt
inn á Laugardalsvöll og fer þar
fram í fyrsta sinn.
Jafnframt er gerð tilraun til að
færa það betur til móts við
áhorfendur með því að láta það
hefjast kl. 19.40. Þá verður inn-
gangseyri stillt í hóf, en hann
verður kr. 500 fyrir fullorðna og
200 fyrir börn.
Keppnisgreinar verða nú: 100 m,
400 m, 1500 m hlaup, stangarstökk,
langstökk og kúluarp fyrir karla.
100 m, 400 m, 800 m hlaup, hástökk
og kúluvarp fyrir konur.
Þá verður einnig 200 m hlaup
drengja. Boðskeppni verður í
kringlukasti, þar sem Erlendur
Valdimarsson og Óskar Jakobsson
munu leiða saman hesta sína
ásamt 2—3 kösturum í viðbót.
• Þessir ungu leikmenn Breiðabliks, sem allir léku í unglingalands-
liðinu í Póllandi á dögunum, léku sinn fyrsta leik í 1. deild gegn
Skagamönnum á laugardaginn. Þeir eru> Hákon Gunnarsson,
Sigurður V. Halldórsson og Benedikt Guðmundsson, sem aðeins er 16
ára og leikur í sumar í drengjalandsliði.
¦r t=ewoA s'iot^ e^
H6it^aMfr(STA&»,-
KtPl^loK} HACDIU
>1 so^>oi?.-AMe-
RiKjJ- MöO TÍU-
KöMu fcOTAMNA
v>'ie*\sr CH'iue; ¦
LANJDHS MDÍIA
SVttc'v e'iUs
.-OAKU'V-CrT
Stjörnuliö Bobby Charlton gegn
ÚrValsMÖÍ K.S.I. á Laugardalsvelli, mánudaginn 29. maí kl. 20.00
Bobby Charlton, Tony Towers, Bobby Moore, Joe Royle, David Harvey, Mike Doyle, Peter Lorimer, Kenny Hibbitt, Francis Burns, Jimmy Greaves o.fl.
Emstakt tækitæri til aö sjá þessa heímsfrægu knattspyrnumenn leika saman í liöí. í fyrra sigraði úrvalsliöiö. Hvernig fer nú?
FORSALA VIÐ ÚTVEGSBANKANN 28/5 KL. 13—18. TRYGGIÐ YKKUR MIOA í TÍMA. VERÐ AÐGÖNGUMIÐA: STÚKA KR. 1.500.-
STÆÐI KR. 1.000- BÖRN KR. 300- „RR