Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 Stálvík gengur frá samning- um um að smíða 2 skuttogara Smíðaverð beggja skipanna 2600 milljónir króna STÁLVÍK h.f. í Garðabæ heíur nú gengið frá samningum um smíði tveggja 499 brúttórúmlesta skut- toKara. Fer annar toKarinn til Grindavíkur en hinn á Snæfells- ncs. Miðað við núverandi verðlag cr grunnverð hvors togara milli 1.300 og 1.400 milljónir króna. Jón Sveinsson forstjóri Stálvíkur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að samningar um smíði togaranna hefðu staðið yfir nú í nokkurn tíma, en hér er um nýja gerð af skuttogurum að ræða, cins og skýrt hcfur verið frá í Morgunhlaðinu áður. Skipin eru 56 metra löng og eru sérstaklega hönnuð í því skyni að olíunotkun verði sem minnst. Þá er lestarými skipanna óvenjustórt eða 660 rúmmetrar. Að sögn Jóns eru kaupendur annars togarans á Snæfellsnesi, þ.e. Guðmundur Runólfsson út- gerðarmaður á Grundarfirði o.fl. Magnús Sverrisson, og Bjarni Gunnarsson. í togurunum verða 2100 hestafla aðalvélar, Simrad-fiskileitartæki, Decca-ratsjár, Anzúts-stýribúnað- ur. Sagði J«i Sveinsson að önnur tæki og vélabúnaður væru vart fyllilega ákveðin enn, og sagði ennfremur að nú hefði Stálvík tryggt sér verkefni nokkuð fram í tímann, en það væri líka nauðsyn- legt fyrir hverja skipasmíðastöð að vera með verkefni langt fram á við þar sem efnispantanir tækju ávallt langan tíma, og nauðsynlegt væri fyrir Stálvík að bæta enn við sig verkefnum. en undanfarið hafa staðið yfir samningar um aðild Hraðfrysti- húss Grundarfjarðar, Zóphaníasar Cecilssonar útgerðarmanns á Grundarfirði, Þórsness h.f. í Stykkishólmi og Hraðfrystihúss Sigurðar Ágústssonar í Stykkis- hólmi. Kaupandi togarans sem fer til Grindavíkur er Sverrir h.f. en aðaleigendur þess fyrirtækis eru Guðmundur Qlafsson kennari: Lestur bréfa íslenzkra námsmanna í Moskvu er skjalfest staðreynd „ÁSTÆÐA þess að enginn hefur skýrt frá þessu opinberlega fyrr er ef til vill sú, að menn hafa verið ragir við að fullyrða hluti, sem þeir gætu ekki staðfest óyggjandi,“ sagði Guðmundur Ólafsson kennari cr Mbl. ræddi við hann í framhaldi af þeim ummælum hans á kappræðufundi í Stapa fyrir nokkru. að íslenzkir námsmenn í Moskvu vissu að bréf þeirra væru lcsin og að sá sem það gerði væri Vladimir Jakúb. Þegar Mbl. spurði Guðmund, hvernig íslendingarnir hefðu kom- izt að þessu, sagði hann: „Að sjálfsögðu mun ég ekki í þessu máli segja eitt eða neitt sem gæti komið fólki þar eystra í vandræði. En ég bendi hins vegar á, að meðal uppljóstrana í bók þeirra Med- vedjef-bræðra, sem út kom fyrir sjö árum, er sérstakur kafli um vélabrögð rússnesku póstþjónust- unnar og þar er sagt frá ákveðnum Framhald á bls. 19 Þessi mynd var tekin í gær þegar gengið var frá samningum um togarann, sem fer á Snæfellsnes. Fyrir miðju eru þeir Jón Sveinsson og Guðmundur Runólfsson útgerðarmaður á Grundarfirði en Guðmundur hefur áður keypt skuttogara af Stálvík þ.e. togarann Runólf sem smíðaður var fyrir 3 árum. Valdimar Ólafsson látinn VALDIMAR Ólafsson fulltrúi hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur and- aðist á sjúkrahúsi s.l. laugardag eftir 3 mánaða sjúkdómslegu. Valdimar var fæddur 4. janúar 1904 í Dalasýslu. Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur hóf hann fljótlega störf hjá Rafmagnsveit- unni og starfaði hjá henni til dauðadags eða í meir en 40 ár. Valdimar starfaði mikið að félags- málum og þá sérstaklega að málefnum Sjálfstæðisflokksins. Hann sat í stjórn Varðar og var gerður að heiðursfélaga félagsins árið 1956. Eftirlifandi kona Valdimars er Vibeka Jónsdóttir og áttu þau tvö börn. Reykjavíkurhöfn: Áætlun um hafnargerð fyrír 3 milljarða króna til ársins 1986 „SAMKVÆMT áætlun um hafn- argerð sem nær til ársins 1986 eru ráðgerðar framkvæmdir fyrir um þrjá milljarða króna á verð- Iagi í árslok 1977,“ sagði Ólafur B. Thors borgarfulitrúi er Mbl. spurði hann hvaða framkvæmdir væru fyrirhugaðar hjá Reykja- víkurhöfn. „Við reiknum með að geta fjármagnað framkvæmdir Kvenframbjóðendur Alþýðu- bandalags í hár saman út af því hvort Karl Marx eigi að verða næsti borgarstjóri TVÆR konur, sem skipa frámboðslista Alþýðu- bandalagsins til borgar- stjórnar Reykjavíkur, þær Guðrún Helgadóttir og Alf- heiður Ingadóttir, eru nú komnar í hár saman yfir því, hvort þær berjist fyrir því eða ekki, að Karl Marx verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur. í ræðu, sem Guðrún Helgadóttir hélt á „baráttufundi" Alþýðu- bandalagsins í Háskólabíói sl. sunnudag sagði hún m.a.: „Og það skal tekizt á um það á sunnudaginn kemur, hvor verður borgarstjóri í Reykjavík næsta kjörtímabil, Birgir ísleifur eða Karl Marx.“ í útvarpsumræðum í gærkvöldi talaði hins vegar annar kvenframbjóðandi Alþýðubandalagsins í Reykjavík, Álfheiður Inga- dóttir, og sagði m.a. í ræðu sinni: „Halda menn virkilega að Karl Marx verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur? Nei, svo sannarlega ekki.“ Af þessum tilvitnuðu orð- um má marka, að alvarleg- ur ágreiningur ríkir milli þessara tveggja kvenfram- bjóðenda Álþýðubanda- lagsins um það, fyrir hverj- um þær berjast sem borgarstjóra. að minnsta kosti að hálfu með sjálfsaflafé hafnarinnar miðað við það að hún fái að halda sambærilegri verðskrá við þá sem nú er í gildi og að áframhald verði á aukningu vöruflutninga um höfnina en einnig hefur hafnarsjóði verið heimiluð erlend lántaka til íramkvæmdanna.“ „I Vesturhöfninni er áætluð fylling norðan Grandagarðs til að fá aukið landrými í fiskihöfn," sagði Ólafur. „Unnið er að gerð sameiginlegrar fiskmóttöku og kæligeymslu á hafnarbakka og unnið er að lagningu rafdreifikerf- is til skipa á hafnarsvæðinu. í Vatnagörðum í Sundahöfn er að ljúka lengingu Korngarðs og Sundabakka og hefur næsta fram- kvæmd verið áætluð gerð Klepps- bakka sem er 180 metra langur bakki en endanleg ákvörðun um röð framkvæmda hefur ekki verið tekin. Framkvæmdir við hafnar- gerð í Kleppsvík í Sundahöfn hófust með landfyllingu á síðasta ári. Dýpkun og efniskaup eru áætluð á þessu ári og hafnarbakk- Framhald á bls. 19 Borgarfulltrúi Framsóknarflokks: Harður dómur um stefnu og störf Alþýðu- bandalags í borgarstjóm Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins, gagnrýndi harkalcga borgarfulltrúa Alþýðubandalags- ins, störf þeirra og stefnu í útvarpsumræðunum í gærkvöldi um horgarmál Reykjavíkur. Kristján Benediktsson minnti á, að í sjónvarpsumræðum á dögun- um hefðu frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins sagt, að í þessum borgarstjórnarkosningum ætti að kjósa um landsmálin. „Þessir frambjóðendur hafa sjálfsagt fylgst vel með störfum Alþýðu- bandalagsins í borgarstjórn síð- asta kjörtímabil,“ sagði borgar- fulltrúinn, „en þeir vilja ekki láta Reykvíkinga kjósa um þá hluti.“ Kristján Benediktsson sagði síðan, að þessi aístaða bæri vott um góða dómgreind en væri um leið harður dómur yfir störfum borgarfulltrúa Alþýðubandalags- ins og stefnu flokksins í þessum borgarstjórnarkosningum. Kristján Benediktsson bætti því við, að fyrir borgarstjórnar- kosningar 1974 hefðu frambjóð- endur Alþýðubandalagsins ekki hvatt kjósendur til þess að kjósa um landsmálin. En þá hefði háttað svo til. að Alþýðubanda- lagið hefði átt sæti í ríkisstjórn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.