Morgunblaðið - 24.05.1978, Síða 3

Morgunblaðið - 24.05.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 3 Nýr hótel- stjóri á Raufarhöfn HÓTELIÐ á Raufarhöfn opnar um helgina, en veturinn í vetur var annar veturinn sem hótelið lokaði frá því það tók til starfa 1974, og var það opið fram í október sl. Hótelstjóri verður Halldór Vil- hjálmsson. au(;i.ysim;asiminn ek: 22480 JWorjjtmfclaöib Kjartan Árnason héraðslœknir látinn KJARTAN Árnason héraðslækn- ir á Ilöfn í Ilornafirði varð bráðkvaddur á ferðalagi í Skot- landi s.l. sunnudag. Kjartan var fæddur í Vestmannaeyjum 8. desember 1922. sonur hjónanna Árna Vilhjálmssonar læknis og Aagot Rolfsdóttur Johansen. Kjartan lauk stúdentsprófi frá MA 1941, lauk cand.med. prófi frá Háskóla íslands 1948. Að læknis- námi loknu starfaði hann m.a. á sjúkrahúsinu á Akureyri og við Landspítalann. Síðan varð hann aðstoðarlæknir í Vopnafjarðar- læknishéraði og héraðsláeknir í Lyfjaverzlun lokar vegna sumarleyfa „ÉG TELDI ekki frágangssök, þótt þrjú apótek í Reykjavík lokuðu í einu vegna sumarleyfa, því þau níu. sem áfram yrðu opin. gætu að mínum dómi veitt nægi- lega þjónustu þennan tíma. Lyf ja- búðir eru nú orðnar það margar í borginni, að þótt einhverjar lokuðu, þá gætu hinar veitt nægilega þjónustu og öryggi þessa sumarmánuði,“ sagði ívar Danielsson lyfsali í Borgar Apó- teki í samtali við Mbl. í gær, en Borgar Apótek sótti um og fékk heimild heilbrigðismálaráðuneyt- is til að loka vegna sumarleyfa frá 15. júlf til 14. ágúst n.k. „Það var mat ráðuneytisins að lokun Borgar Apóteks þennan tíma myndi ekki hafa hættuástand í för með sér og því var leyfi til lokunar veitt, en þó með skilyrðum um tilfallandi neyðarþjónustu," sagði Jón Ingimarsson skrifstofu- stjóri í heilbrigðismálaráðuneyt- inu er Mbl. ræddi þetta mál við hann. „Það er orðið það sæmilega vel séð fyrir þessari þjónustu í borginni, að stutt lokun einnar verzlunar á þessum tíma á ekki að skerða öryggi þjónustunnar." Werner Rasmusson, formaður Apótekerafélags íslands og Apó- tekarafélags Reykjavíkur, sagði, að hann vissi ekki til þess að öðrum apótekum en Borgar Apó- teki yröi lokað í sumar. „Þetta mál má auðvitað meta á margan hátt,“ sagði Werner. „Það er mun minna að gera í lyfjaverzlunum á sumrin ag í þessu tilfelli má benda á, að bað er ekki langt í önnur apótek i Háaleitishverfi og við Rauðarár- stíg, þannig að nokkuð vel er séð ’yrir þörfum fólksins." „Lokun apóteks vegna sumar- leyfa hefur einu sinni verið framkvæmd hér í Reykjavík áður,“ sagði ívar Daníelsson. „Það var í kringum 1950 en ég var þá eftirlitsmaður lyfjabúða, þannig að ég veit að það er fordæmi fyrir þessu. Ástæða þess að ég gríp til þessa nú er sú, að sumarfríin eru almennt orðin það löng nú, að vegna þeirra hafa 2—3 starfsmenn verið fjarverandi að staðaldri frá því í maí og fram í september. Þetta hefur skapað aukið álag á þá sem vinna, þannig að mér fannst rétt að reyna þessa leið. Mér er það auðvitað ljóst, að lokun apóteksins veldur einhverj- um óþægindum, en apótekin eru það mörg að öryggi þjónustunnar ætti ekki að líða fyrir það að eitt þeirra er lokað.“ Hafnarhéraði 31. maí 1950, þar sem hann starfaði nær ósitið sem héraðslæknir. Kjartan Árnason var kvæntur Ragnhildi Sigbjörnsdóttir og eiga þau 4 börn. SÉRA Jóhannes Pálmason fyrrum sóknarprestur á Stað í Súganda- firði andaðist í Landspítalanum s.l. mánudag. Jóhannes var fæddur þann 10. janúar 1914 í Kálfagerði í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði. Hann varð stúdent frá MA 1936, lauk prófi við Kennaraskólann 1939 og cand.theol. prófi frá Háskóla íslands 1942. Jó'hannes starfaði fyrst sem prédikari í Grímsey, en var síðan veittur Staður í Súgandafirði 1942, sem hann þjónaði lengi auk þess sem hann var skólastjóri barna- skólans á Suðureyri frá 1954. Jóhannes Pálmason var kvænt- ur Aðalheiði Snorradóttur og eiga þau 5 börn. Séra Jóhannes Pálmason látinn FLUGFÉLAG LOFTIEIDIR ISLAJVDS Hvort heldur þú kýst ys og þys stórborg- arinnar eða kyrrð og friðsæld sveitahérað- anna - þá finnur þú hvort tveggja í Luxemborg, þessu litla landi sem liggur í hjarta Evrópu. Næstu nágrannar eru Frakkland Þýskaland og Belgía - og fjær Holland - Sviss og Ítalía. Því er það að margir helstu sögustaðir Evrópu eru innan seilingar. Til dæmis er stutt á vígaslóðir tveggja heimstyrjalda Verdun og Ardennafjöll. Ef þú ferðast til Luxemborgar, þá ferð þú í sumarfrí á eigin spýtur - ræður ferðinni sjálfur - slakar á og sleikir sólskinið og skoðar þig um á söguslóðum. Sumarfrí í Luxemborg er hvort tveggja í senn einstæð skemmtun og upplifun sögulegra atburða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.