Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 7 I Tveir gagn- I rýnispunktar. | Þrátt fyrir vídtækt I atvinnuleysí, sern tröllriö- 1 ið hefur iönríkjum heims | undanfarin ár, hetur I tekizt að tryggja atvinnu- öryggi hérlendis. Þetta I atvinnuöryggi hefur sagt I jafnt til sín hár í Reykja- vík sem i strjálli byggð- I um landsins. Engu að | síöur eru Þeir tvéir gagn- rýnispunktar, sem minni- I hlutaflokkar í borgar- | stjórn Reykjavíkur halda einkum á loft, tengdir I atvinnulífi höfuðborgar- | innar. Þessir tveir gagnrýnis- I punktar eru sóttir í | greinargerð embættis- manna borgarinnar, sem I gerðu úttekt á atvinnu- | uppbyggingu í Reykjavík, að frumkvæöi borgar- I stjórans, Birgis ísl. I Gunnarssonar. Fyrri ' punturinn felur pað í sér | aö tilteknar frumgreinar I atvinnuiífs, einkum út- 1 gerð og fiskvinnsla, hafi | dregizt saman. Hinn að I meðaltekjur Reykvíkinga 1 séu lægri en meöaltekjur | landsmanna. Þessi I atvinnuúttekt, sem 1 borgarstjórnarmeirihlut- inn átti frumkvæði að, varð síðan kveikjan að víðtækri atvinnumála- stefnu, sem borgarstjóri mótaði, og samÞykkt var í borgarstjórn með at- kvæðum sjálfstæöis- manna og framsóknar- manna, gegn atkvæðum kommúnista en hjásetu kratans. Orsakir þess- ara tveggja punkta. Samdráttur í sjósókn og fiskvinnslu á sér margÞættar orsakir. Lok- un Faxaflóa, sem gerð var af fiskifræöilegum ábendingum, kemur par mjög við sögu. Önnur orsök er sú, aö Reykjavík hefur verið sett til hliðar, bæði varðandi stofn- kostnað við hafnargerð og fyrirgreiðslu við atvinnurekstur úr opin- berum fjárfestingarsjóð- um, s.s. byggðasjóði. Allar fiskihafnir á land- inu, utan ein, Reykjavík, njóta 75—100p stofn- kostnaöarpátttöku úr sameiginlegum sjóði landsmanna, sem Reyk- víkingar greiða í, engu síður en aörir lands- menn. Þrátt fyrir pessa sérstööu hefur Reykja- víkurborg lyft grettis- tökum við hafnargerð. Á líðandi kjörtímabili hefur borgin varið rúmum pús- und milljónum króna til viöhalds og nýfram- kvæmda við höfnina, miðað við verðlag í dag. Hefði Reykjavík notið jafnréttis við önnur sveitarfélög varðandi stofnkostnaöarpátttöku úr sameiginlegum sjóði landsmanna, hefðu kom- ið 3000 milljónir króna til viðbótar til hafnarfram- kvæmda. Slíkt „jafnrétti" hefði pví sagt til sín í ólíkt meiri framkvæmdagetu við hafnargerð og sköpun aðstöðu fyrir útgerð og tengdar atvinnugreinar. En mergurinn málsins er að minnihlutaflokkarnir, sem nú biðla til atkvæöa Reykvíkinga, hafa barist eins og grenjandi Ijón gegn Því á löggjafarsam- komu Þjóðarinnar — og víðar — að borgin nyti jafnréttis í Þessum efn- um. í Reykjavík búa yfir 8000 ellilífeyrisÞegar eöa hlutfallslega mun fleiri aldraðir en í öðrum sveitarfélögum, ekki sízt vegna Þess, að hér er betur búið að öldruðu fólki en annars staðar. Þetta háa hlutfall aldraðra segir aö sjálf- sögðu til sín í lægri meðaltekjum borgarbúa — og er meginorsök Þeirrar tölulegu stað- reyndar sem minnihluta- flokkarnir hampa minnst. Gagnrýni minnihluta- flokkanna, varðandi Þennan tekjusamanburð, beinist Því fyrst og fremst aö hérveru hinna öldnu, svo smekklegt sem Þaö nú er. „Myndi fljótlega gera Reykja- víkurborg gjaldþrota“ Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins segir m.a. í viötali við Mbl. í gær: „Þvert á móti hefur verið tekið töluvert tillit til tillagna minnihlutans í ýmsum málum. Þá á ég ekki aðeins við tillögur fluttar í borgarstjórn heldur einnig tillögur, sem fluttar eru í hinum ýmsu ráðum og nefndum borgarinnar. Að sjálf- sögðu gildir Þetta ekki um óraunhæfar tillögur, sem stundum eru fluttar af einstökum minnihluta- flokkum eða fulltrúum Þeirra, enda er núverandi borgarstjórnarmeirihluti blessunarlega laus við alla ævintýramennsku í fjármálum. Fyrir Það má hæla Sjálfstæðisflokkn- um, Þó að ég sé ekki gjarn á að hæla honum.“ „.. .Ég vil ekki leyna Því, aö mér litist illa á, ef AlÞýðubandalagiö ætti að hafa forystu í fjármál- um borgarinnar. Borgar- fulltrúar Þess eru oft á tíðum í sáralitlum tengsl- um við raunveruleikann... sú til- hneiging AlÞýðubanda- lagsmanna að koma öll- um einstaklingum frá vöggu til grafar á ein- hverjar stofnanir, myndi fljótlega gera Reykja- víkurborg gjaldÞrota. Mér er til efs, að samstarf núverandi minnihluta- flokka í hugsanlegum meirihluta undir stjórn AlÞýðubandalagsins myndi blessast. Þá álykt- un dreg ég af því, aö samstarf Þessara flokka á kjörtímabilinu, sem nú er aö Ijúka, hefur verið miklu skrykkjóttara undir forystu Albýðubanda- lagsins heldur en var á kjörtímabilinu Þar á und- an, Þegar Framsóknar- flokkurinn stjórnaöi Því...“ Þessi umsögn borgar- fulltrúa úr röðum sjálfs minnihlutans á vissulega erindi til borgarbúa nú. Povel Ramel Povel Ramel skemmtir í Norræna húsinu Povel Ramel, sænskur revíu- listamaður, ljóða- og lagasmiður verður gestur Norræna hússins í næstu viku og flytur hann þrjár dagskrár ásamt Tríói Sven 01- sons sem er með í förinni. Auk Norræna hússins stendur sænsk íslenska félagið að heim- sókn hans. í frétt frá Norræna húsinu segir svo um Povel Ramel: Hann hefur verið meðal þekktustu revíulista- manna Svía undanfarin 30 ár og hleypt nýju blóði í listgrein þá með „Knápp upp“ revíum sínum. Hann hefur náð mjög sérstæðum persónulegum stíl þar sem reynir á orðfimi og semur að mestu leyti sjálfur bæði tónlist og texta. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem þessi sérstæði listamaður kemur fram utan heimalands síns. Dagskrár Povel Ramels verða fluttar dagana 29., 30. og 31. maí kl. 20.30. Guðjón Jónsson endurkjörinn for- maður Málm- og skipasmiðasam- bands íslands 8. þing Málm- og skipasmiða- sambands íslands var haldið í Félagsheimili Kópavogs dagana 5.-7. maí s.l. A þinginu var aðallega rætt um atvinnu- og kjaramál, vinnuverndarmál. fræðslumál og starfsemi Lífeyris- sjóðs málm- og skipasmiða. í þinglok fóru fram kosningar til stjórnar og í aðrar trúnaðarstöð- ur. I miðstjórn sambandsins voru kosnir: Guðjón Jónsson formaður, Guðmundur Hilmarsson vara- forijiaður, Tryggvi Benediktsson ritari, Ástvaldur Andrésson vara- ritari, Helgi Arnlaugsson gjaldkeri og meðstjórnendur, Kristján Ottó- son, Hákon Hákonarson, Kjartan Guðmundsson og Hermann Breið- fjörð Jóhannesson. Þá voru og kosnir til sambands stjórnar 12 menn. Á þinginu voru samþykktar margar ályktanir, m.a. ályktun um kjara- og atvinnumál, þar sem mótmælt er ■ setningu laga frá Alþingi í febrúar s.l. um helmings- skerðingu verðlagsbóta, sem koma áttu til greiðslu 1. marz 8.1. og eiga að greiðast 1. júní, 1. september og 1. desember á þessu ári samkvæmt gildandi kjarasamningum. Þá er lýst fullri andstöðu við fyrirætlanir stjórnvalda að ríkisrekin fyrirtæki hætti starfsemi og verði seld til einkaaðila og er í því sambandi vakin athygli á því, að tvö stór ríkisrekin fyrirtæki í málmiðnaði og skipasmíði, Landssmiðjan og Slippstöðin á Akureyri, skili árlega verulegum hagnaði og afkoma starfsmanna fyrirtækjanna sé tryggð þegar verkefni eru næg. Þá er ályktun um aðbúnað og heilsuvernd, þar sem segir meðal annars að heilsan sé dýrmætasta eign hvers manns. Það ætti því að hafa algjöran forgang við uppbygg- ingu og skipulag atvinnufyrirtækja, að hugsað væri fyrir þeim þætti, þannig að ekkert væri til sparað svo verkafólk biði alls ekki tjón á heilsu sinni við hin margvíslegu störf í þjóðfélaginu. Reynslan er sú, að heilsuverndarsjónarmiðið virðist í flestum tilfellum vera eitthvað sem atvinnurekendur láta sig litlu sem engu máli skipta, ef þrýstingur frá verkafólki kemur ekki til. Að lokum er harðlega vítt það tómlæti sem ríkjandi er víðast hvar í þessum málum. Ennfremur skorar þingið á þá aðila er um þessi mál eiga að fjalla að sýna meiri röggsemi og festu. Að lokum var gerð ályktun um fræðslu— og menningarmál, þar sem því er mótmælt harðlega að verkmenntun sitji ekki við sam borð og aðrar starfsgreinar, þar sem krafist er sérstakrar menntunar. Þá er heitið á yfirvöld iðnfræðslu í landinu að beita sér fyrir því sem allra fyrst að í verkmenntunarskól- unum verði komið upp fullkomnum búnaði til kennslu verklegs iðn- náms, þannig að þeir sem hyggja á iðnnám hljóti menntun sína í verkmenntunarskólum, jafnframt því sem þeir fái starfsreynslu úti á hinum almennu vinnustöðum. WiUUM KOKKA FÖTIN komin aftur PÓSTSENDUM VERZLUNIN GElsiP" „Hesta- íþróttirM Opið mót ípróttadeildar Fáks verður haldið 3. og 4. júní á Víðivöllum, Reykjavík. Keppt verður í eftirtöldum ípróttagreinum: Tölt, Fjórar gangtegundir, Fimm gangtegundir, Gæðinga- skeið, Hlýöniæfingar B og Hindrunarstökk. Mótið er opiö öllum keppendum. En tekið skal fram aö mótiö er um leið meistaramót íþróttadeildar Fáks. Hver einstaklingur getur aöeins keppt einu sinni í hverri grein, þ.e. á einum hesti. Lokadagur vegna skráningar er miövikudagur 24. maí. Skráningargjald er kr. 3.000 fyrir hvern keppanda í fyrstu keppnisgrein og kr. 1.000 í hverri grein þar á eftir. Nákvæm skráning á hesti og knapa þarf aö fylgja. 1. Nafn hests 2. aldur 3. litur 4. fæðingarstaöur 5. faðir 6. móöir 7. nafn knapa 8. nafn eiganda 9. keppnisgreinar. Skráningargjald þarf aö fylgja meö skráningu keppenda og hests. Skráningargjald verður aðeins endurgreitt ef um tímanlega boðuö forföll veröur aö ræða og þá aö hálfu. Skráningar séu sendar til skrifstofu Fáks merktar: „Hestaípróttir“, ípróttadeild Fáks Reykjavík. Vegleg verölaun veröa veitt 3—5 fyrstu keppendum í hverri grein. I mótstjórn eru: Friöþjófur Þorkelsson Gísli B. Björnsson Ragnar Tómasson Til vara: Viöar Halldórsson formaöur IDF. Ath.: Síöasti skráningardagur. EF ÞÚ ÍHUGAR hve íslenskir vegir líkjast rallývegum Afríku og Ástralíu ískyggilega mikið, að snotur japanskur fjölskyldubíll, sem kostar engin ósköp. hefur nú sigrað í Australian Southern Cross Rally 4 ár í röð og i Safari Rally tvisvar, ÞÁ GETUR ÞÚ dregið af því ályktanir um hæfni hans til að þjóna þér, bæði vel og lengi. AfIt á sama Staó mugavegt 118 - SÉw 22240 og 15700 EGILL VILHJÁLMSSON HE

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.