Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 15 Ragnheiður Garðarsdóttir á hveríaskrifstofu sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi. Hverfaskrifstofa sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi heimsótt: „Fólk þarf að notfæra sér betur viðtalstíma borgarfulltrúa hér” „OKKAR helzta verkefni hér er að fá fólkið í hverfinu til að starfa, bæði fyrir kosningarnar og á kjördaginn sjálfan. Við höfum skipt hverfinu upp í umdæmi til að auðvelda það að ná til fólks en fyrir hverju umdæmi er sérstakur umdæm- isfulltrúi, sem er ábyrgur fyrir sínu umdæmi,“ sagði Ragnheið- ur Garðarsdóttir starfsmaður hverfaskrifstofu sjálfstæðis- manna í Hlíða- og Holtahverfi í samtali við Mbl. Ragnheiður kvað fólk hjá sér ekki hafa nýtt eins og skyldi þá þjónustu sem veitt er með viðtalstímum borgarfulltrúa. Það fer þannig fram að borgar- fulltrúar eru til viðtals á ákveðnum tíma dagsins fyrir íbúa hverfisins. Ég vil sérstak- lega leggja á það áherzlu að fólk notfæri sér þessa þjónustu meira, því að það er allt of algengt að fólk sé að spyrja ranga aðila um borgarmálefnin, það er langbezt að spyrja borgarfulltrúana sjálfa. Fólk er lítið farið að koma til að spyrja ókkur um kosningarn- ar og þau mál sem þeim eru tengd, en ég á von á þreytingu þar á þegar líða tekur að kosningunum. Síðustu dagana og á sjálfan kjördaginn er alltaf mikið um að fólk komi til að fá úrlausn á ýmiss konar vanda- málum.“ sagði Ragnheiður að lokum. Morgunblaðið ræddi einnig við Asgrím P. Lúðvíksson, sem er formaður hverfafélagsins í Holta- og Hlíðahverfi um starf skrifstofunnar og félagsins. — „Skrifstofan er fyrst og fremst miðstöð fyrir allan undirbúning fyrir kosningarnar. Þaðan er hópnum haldið saman og honum stýrt. Þá er skrifstofan sam- komustaður stjórnar hverfafé- lagsins," sagði Ásgrímur. Ásgrímur kvað hverfafélögin sprottin úr gamla Verði sem var félag allra sjálfstæðismanna í Reykjavík hér áður fyrr, en með aukinni fjölgun íbúa hafi borið nauðsyn til þess að stofna sérstök hverfafélög. Það væri því verkefni félagsins að halda uppi almennu starfi sjálfstæðis- manna í hverfunum og efla samheldni fólksins. Væru t.d. á vegum félagsins haldnir al- mennír fundir um ýmis mál, s^s. atvinnumál, sjávarútvegsmál og mörg fleiri. Baldvin Tryggvason kjörinn formaður AB Aðalfundur Almenna bóka- félagsins var haldinn fyrir skömmu og kom fram í skýrslu stjórnarinnar að alls voru gefnar út 28 bækur á liðnu ári auk eftirprentana. Hefur félagið gefið út að jafnaði 30 bækur á síðustu 10 árum. Söluaukning á árinu 1977 varð 66% og hagnaður varð af starf- seminni. -Greiddi félagið yfir 10 milljónir í höfundarlaun. Á undanförnum árum hefur AB tekið þátt í alþjóðlegri bókasýn- ingu í Frankfurt ásamt Iceland Review og kynnt þar íslenzkar bækur og segir í frétt frá AB að fyrirtækin hafi náð nokkrum árangri í sölu íslenzkra bóka til erlendra útgáfufyrirtækja. Hefur félagið notið aðstoðar íslenzku útflutningsmiðstöðvarinnar á sýn- ingum þessum. Á aðalfundinum minntist fundarstjóri Karl Kristjánssonar fyrrv. alþingismanns er lézt á árinu en hann var einn af stofn- endum félagsins og sat í stjórn Baldvin Tryggvason lögfræðing- ur. formaður Almenna bóka- félagsins. þess frá upphafi. Hann var for- maður félagsins s.l. 7 ár. í stjórn AB voru kjörnir: Bald- vin Tryggvason formaður, Davíð Oddsson, Erlendur Einarsson, Gylfi Þ. Gíslason, Halldór Hall- dórsson, Jóhann Hafstein og Jón Skaftason. Formaður útgáfuráðs er Tómas Guðmundsson. Kosningaskrifstofa sjálfstæðismanna í Árbæjarhverfi heimsótt: „Almennur kosningaundirbúningur og virkjun félaga aðalstarfíð” „Við vinnum hér að öllum almennum kosningaundirbún- ingi í hverfinu, þurfum í því sambandi að hafa samband við umdæmisfulltrúana sem aftur hafa samband við fólkið hver í sínu umdæmi til að virkja sem flesta", sagði Einar Atlason starfsmaður á hverfisskrif- stofu sjálfstæðismanna í Árbæ í samtali við Mbl. fyrir skömmu. Einar sagði það nokkuð al- gengt að hinir almennu borgar- ar kæmu til þeirra og spyrðu um ýmis atriði varðandi kosning- arnar. Þá hefði sú nýbreytni verið tekin upp að vera með borgarfulltrúa til viðtals á hverfaskrifstofunni og hefði það gefist mjög vel. Þar hefði fólk getað spurt borgarfulltrúa beint um sín hugðarefni og fengið svör frá fyrstu hendi. Einar Atlason er einnig nú- verandi formaður í Félagi ungra sjálfstæðismanna í Árbæjar- hverfi, svo að tækifærið var notað og hann inntur eftir starfi félagsins. Félagið er mjög ungt hér í Árbæjarhverfi, svo að við notum hvert tækifæri til að taka sem mestan þátt í starfi Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, en við erum nokkurs; konar undirfélag í því. — „I vetur hefur starfið reyndar verið nokkuð óvenjulegt þar sem við höfum staðið í húsbyggingu, þ.e. sjálfstæðisfélögin hér eru að koma sér upp félagsheimili. Hefur nánast allur okkar tími farið í ýmiss konar Vínnu við heimilið," sagði Einar að síð- ustu. XH FRAMFARIR U UPPBYGGING ALMENNUR D-LISTA FUNDUR um bæjarmálefni í Hafnarfjarðarbíói miðvikudaginn 24. maí kl. 20.30 8v«lnn Þ Quöb|»rt«*on Fundarsetning: Sveinn Þ. Guðbjartsson Fundarstjóri: Oliver Steinn Ávörp flytja: Árni Grétar Finnsson Eggert ísaksson Ellert Borgar Þorvaldsson Guðmundur Guðmundsson Hildur Haraldsdóttir Stefán Jónsson Auk þess koma fram: Siegiinde Kahmann og Sigurður Björnsson undirleikari: Carl Billich Jón Mýrdal (píanóleikur) Halli og Laddi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.