Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 1978
17
Hólabrekkuskóli — Nú er unnið að framkvæmdum við annan áfanga Hólabrekkuskóla,
sem hér sést, og stækkar húsnæði skólans við það um helming. Ljósm. Mbl. RAX.
Hólabrekkuskóli stækk-
ar um helming—Selja-
Skólahúsnæði í Breiðholtshverfum:
skóli boðinn út
NÚ ERU starfandi í Breið-
holtshverfum fimm skólar.
Eru það Breiðholtsskóli,
Fellaskóli, Hólabrekkuskóli,
Ölduselsskóli og Fjölbrauta-
skólinn. Um þessar mundir
er verið að bjóða út bygging-
arframkvæmdir við nýjan
skóla í Breiðholti, Seljaskóla,
en kennsla á að hefjast þar
haustið 1979. Nú er unnið að
framkvæmdum við annan
áfanga Hólabrekkuskóla og
stækkar skólinn við þetta um
helming frá því, sem nú er, og
svarar stækkunin til 16
kennslustofa og á þessi við-
bót að komast í notkun á
næsta ári. Þá er unnið að
byggingu bóknámshúss við
Fjölbrautaskólann og verður
hluti þess tekinn í notkun á
þessu ári. Eini skólinn í
Breiðholti, sem er fullbyggð-
ur, er Fellaskóli en auk
framkvæmda, sem nú standa
yfir við Hólabrekkuskóla og
Fjölbrautaskólann, er gert
ráð fyrir að byggja í framtíð-
inni við Breiðholtsskóla og
Ölduselsskóla.
Á síðast liðnum fjórum
árum hefur verið unnið að
margvíslegum framkvæmd-
um við byggingu skólahús-
næðis í Breiðholtshverfum.
Árið 1974 var annar áfangi, 1.
og 2. hæð Fellaskóla, tekinn
í notkun og þetta sama ár var
fyrsti áfangi Hólabrekku-
skóla tekinn í notkun. Næsta
ár er tekinn í notkun íþrótta-
salur við Fellaskóla ásamt
búningsklefum og öðru fylgi-
húsnæði auk húsnæðis fyrir
heilsugæzlu og tekinn er í
notkun annar áfangi fyrsta
256 kr.
fyrir kílóið
í Hull
TOGARINN Dagný frá Siglufirði
seldi 60 tonn af blönduðum fiski
í Hull í gærmorgun og fengust
256 kr. að meðaltali fyrir hvert
kfló. Dagný selur aftur í dag,
einnig um 60 tonn, en í gær náðist
ekki að selja nema helming
aflans.
byggingarstigs Fjölbrauta-
skólans. Þetta sama ár er
neðri hæð 1. áfanga Hóla-
brekkuskóla tekin í notkun
og Ölduselsskóli tekur til
starfa í færanlegum kennslu-
stofum. Árið 1976 er tekin í
notkun útisundlaug við
Breiðholtsskóla, skólasmiðja
og innisundlaug ásamt bún-
ingsklefum við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Á síðast
liðnu ári var tekinn í notkun
fyrsti áfangi Ölduselsskóla
og ein hæð í húsi við Fjöl-
brautaskólann, sem enn er í
smíðum. Þá var einnig tekin
í notkun neðri hæð 1. áfanga
Hólabrekkuskóla.
Varðandi skólabyggingar á
næstu árum er ætlun borgar-
yfirvalda að lögð verði
áherzla á að ljúka fram-
kvæmdum við skólana í
Breiðholti, Hólabrekkuskóla,
Fjölbrautaskólann, Öldusels-
skóla og Seljaskóla. Sá síðast
nefndi er eins og kom fram
hér að framan nú að fara í
útboð og verður boðið upp á
tvo valkosti, það eru annars
vegar einingarhús og hins
vegar skólahús byggt á hefð-
bundinn hátt.
Hlutur togara í
heildarafla vaxandi
Fyrstu 17 skuttogararnir keyptir
í tíð viðreisnarstjórnar
SVO virðist sem hlutfall togara
í hejldarafla botnlægra fiska
við Island fari vaxandi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Fiski-
félagi íslands stunduðu 78
togarar. þar af 76 skuttogarar,
fiskveiðar við ísland árið 1977,
837 vélbátar og 455 opnir
(litlir) vélbátar. Hlutdeild tog-
ara í afla botnlægra fiska hefur
vaxið úr 43% árið 1975 í 50,6%
1977. Heildarafli af þessum
fisktegundum var 421,4 þús.
tonn árið 1975, þar aí 181,3
þús. tonn togarafiskur. 1977
var heildaraflinn 471.4 þús.
tonn. Afli togara þar af 283.2
þús. tonn.
Á síðustu átta 'arum hefur
mikill fjöldi skuttogara verið
keyptur til landsins og gjör-
breytt atvinnuástandi víða um
land. Þessi uppbygging hófst á
tímum viðreisnarstjórnarinnar
og var að hennar frumkvæði
búið að semja um kaup á 17
skuttogurum þegar stjórnar-
skiptin urðu í júlí 1971, þ.á.m.
ýmsum stærstu skuttogurum
landsins.
Upphaf skuttogaratímabilsins
má rekja aftur til ársins 1967, er
síldveiði brást. Það ár skipaði
ríkisstjórnin sérstaka skuttog-
aranefnd. I nóvember 1969
gerðu eigendur Ögurvíkur hf.
svo samning um kaup á tveimur
skuttogurum frá Póllandi, sem
var upphaf skuttogaratímabils-
ins. 1970 var síðan samið um
kaup á 6 togurum frá Spáni og
stuttu síðar um smíði á 5
miðlungsstórum skuttogurum
fyrir Vestfirðinga í Noregi. í
kjölfar þessa keyptu Norðfirð-
ingar og Eskfirðingar sinn
skuttogarann hvorir og Siglfirð-
ingar og Sauðkræklingar komu
rétt á eftir. Þannig var í tíð
Viðreisnarstjórnarinnar samið
um smíði á eða keuptir 17
skuttogarar til landsins, sem
varð upphaf þess sem síðar kom
um skuttogaraeign þjóðarinnar,
er spannar tíma þriggja ríkis-
stjórnar.
Cargolux fær
ekki leiguvélina
260 millj. kr. hagnaður af rekstri
félagsins á síðastliðnu ári ári
EKKERT verður af því að Cargo-
lúx fái Boeing 747 þotuna er
félagið hafði tekið á leigu í sumar
og fram eftir ári. Eigandi þotunn-
ar hætti á síðustu stundu við
leigusölu á þeim forsendum að
leigutíminn væri ekki nógu langur.
Forráðamenn Cargolux eru nú að
svipast um eftir flugvél, eða
flugvélum sem gæti komið í stað
Boeing 747 þotunnar, en ekki er
Morgunblaðinu kunnugt um hvort
samningar um leigu á flugvél eða
flugvélum hafi tekizt.
Rekstur Cargolux gekk mjög vel
á síðasta ári og jókst velta
félagsins um 20% og varð 74,6
millj. dollarar að því er Einar
Ólafsson framkvæmdastjóri fé-
lagsins tjáði Morgunblaðinu fyrir
nokkru. Þegar félagið var búið að
greiða skatta reyndist beinn hagn-
aður vera 1 millj. dollara eða 260
millj. ísl. kr. Til samanburðar má
geta þess að árið 1976 velti
Cargolux 52 milljónum dollara og
árið 1975 38 milljónum.
4230 lestir af rækju
bárust á land á
Vestfjörðum í vetur
RÆKJUVERTÍÐ á Vestfjörðum
lauk í endaðan aprfl, þegar
veiðum lauk á Arnarfirði. en það
var eina veiðisvæðið, þar sem
ekki var veitt leyfilegt magn. Við
ísafjarðardjúp var búið að veiða
upp í leyfilegan kvóta hinn 7.
aprfl og 15. aprfl við Steingríms-
fjörð. Rækjiiaflinn á allri vertíð-
inni, en hún hófst í fyrrahaust,
varð að þessu sinni 4.229 lestir á
móti 4.007 lestum í fyrra.
í yfirliti skrifstofu Fiskifélags
íslands á Isafirði um rækjuvertíð-
ina segir, að í apríl hafi borizt á
land 382 lestir af rækju, 74 lestir
á Bíldudal, 149 lestir við Isafjarð-
ardjúp og 159 lestir við Stein-
grímsfjörð. Alls höfðu þá borizt á
land 2.734 lestir frá áramótum og
í haust bárust á land 1.555 lestir.
í vetur stunduðu 56 bátar
rækjuveiðar frá Vestfjörðum, sem
er 9 bátum færra en árið áður. Frá
Ríldudal reru 6 bátar, Súðavík 4,
ísafirði 27, Bolungarvík 9, Hólma-
vík 6 og Drangsnesi 4. Á allri
vertíðinni bárust 520 lestir á land
í Arnarfirði, á móti 620 á síðustu
vertíð. Við ísafjarðardjúp bárust
2764 lestir á land (2.511) og í
Steingrímsffirði bárust 1.005 lestir
á land (885).
Tveir rækjubátanna náðu í
vetur 100 lesta afla eða meira, eru
þeir báðir frá Bíldudal. Vísir fékk
þar 114,6 tonn og Helgi Magnússon
104 tonn.
300 þús.
kr. stolið
í FYRRINÓTT var brotizt inn í
Skaftárskála á Kirkjubæjar-
klaustri og stolið þaðan um 300
þús. kr. að því er talið er.
Skaftárskáli er vinsæll áningar-
staður ferðamanna yfir sumartím-
ann, en er þó opinn allt árið um
kring.
Skálinn hefur verið í viðgerð að
undanförnu og fyrir einn glugga
hans hafði verið negld spónaplata.
Þjófarnir virðast hafa sprengt
þessa plötu upp og komizt síðan í
peningaskáp skálans inn af glugg-
anum. Málið er í rannsókn og
menn frá Rannsóknarlögreglu
ríkisins komu til Kirkjubæjar-
klausturs í gær og rannsaka þeir
nú málið.