Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
\
f
i
í
Mosfellssvert:
„Kosningarnar nú marka tíma-
mót — helmingi fleiri ganga að
kjörborðinu en fyrir 4 árum"
Geysilegar byggingaríram-
kvæmdir haía átt sér stað í
Mosfellssveit sJ. fjögur ár og
hefur íbúatalan tvöfaldast. A
s.l. kjörtímabili mynduðu full-
trúar Sjálfstæðisflokksins
meirihluta í hreppsnefnd Mos-
fellshrepps, voru með 4 fulltrúa
af 7. Salóme Þorkelsdóttir
skipar nú efsta sæti á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins til
hreppsnefndarkosninga í Mos-
fellshreppi. Morgunblaðið
ræddi við Salóme fyrir skömmu
um helztu framkvæmdir í Mos-
fellshreppi og viðfangsefnin
framundan. Fer samtalið hér á
eftir.
Þessar kosningar marka tíma-
mót í sögu sveitarinnar aö því
leyti, aö nú ganga að kjörborðinu
helmingi fleiri kjósendur en fyrir
4 árum, þar sem íbúatalan hefur
tvöfaldast á kjörtímabilinu. Mér
er efst í huga hvað þetta fólk
kemur hingað með jákvæðu og
opnu hugarfari og tekur með
miklu umburðarlyndi því ástandi,
sem skapast við svo hraða upp-
byggingu sem raun ber vitni. Þeir
sem fyrir eru kunna líka vel að
meta þetta og kemur það bezt
fram í því hve allt félagslíf hefur
dafnað vel, bæði meðal kvenna og
karla.
Skipulagsmál
Á s.l. kjörtímabili var markvisst
unnið að undirbúningi að gerð
aðalskipulags og fljótlega var
ákveðið að láta fara fram sam-
'■
Nýtt íbúðárhús fyrir aldraða á landi Hlaðhamra, með leikskólann í baksýn.
keppni um það. Áður en hægt var
að bjóða samkeppnina út, varð að
ljúka við umfangsmikla söfnun
gagna og úrvinnslu þeirra. Sam-
keppnin var undirbúin í samráði
við skipulagsstjóra ríkisins og
Arkitektafélag Islands. Við stefn-,
um síðan að því að samningur
verði gerður við höfund 1. verð-
launa og honum falin frekari'
úrvinnsla efnisins í samráði við
Tæknideild Mosfellshrepps.
Iþróttamál
Aðstaða til íþróttaiðkana hefur.
verið nokkuð slæm hér fram til nú
í haust, þó var og hefur verið
ákaflega blómlegt starf Ung-
mennafélagsins Aftureldingar.
Skólarnir höfðu sína einu aðstöðu
í félagsheimilinu, þar sem leikfimi
var kennd í samkomusalnum.
Afturelding varð að fara með alla
sína starfsemi til Reykjavíkur að
undanskildu sundinu að sjálf-
sögðu, því að hér er sundlaugin að
Varmá mjög myndarlegt mann-
virki, sem byggt var á sínum tíma
undir forystu Helgu Magnúsdótt-
ur, sem þá var oddviti. Það er
síðan sumarið 1975 að hafizt var
handa við byggingu fyrri áfanga
nýs íþróttahúss. Lokið var við að
reisa hann í júní 1976. Húsið var
síðan tekið í nötkun s.l. haust og
gjörbreytti það allri aðstöðu hér
til íþróttaiðkana.
Mjög margir sjálfboðaliðar
lögðu þar hönd á plóginn með
vinnuframlagi, bæði einstaklingar
og félög. Einnig við sölu skulda-
bréfa sem voru gefin út í fjáröfl-
unarskyni. Börn héldu hlutaveltu
og gáfu hagnaðinn. Stærst var þó
framlag Ungmennafélagsins Aft-
ureldingar. Það gerði sérstakar
fjáröflunarráðstafanir sem gáfu
góða raun. — Þá leggjum við
mikla áherzlu á uppbyggingu
íþróttasvæðisins við Varmá jafn-
framt því að bæta aðstöðuna við
sundlaugina að Varmá. Við sund-
laugina er nú verið að setja upp
heitan pott og stefnt er að því að
bæta sólbaðsaðstöðuna þar.
Gatnagerð
Varanleg gatnagerð er án efa
eitt af stóru málunum okkar hér.
Það snýr beint að því fólki, sem
hingað er að flytja í nýju hverfin.
Varanleg gatnagerð hefst hér 1975
þegar Þverholt var undirbyggt og
lagt á það olíumöl. — Árið 1976
var fyrirhugaðri gatnagerð frestað
vegna byggingar íþróttahússins,
að því undanskildu að aðkeyrslan
að barnaskólanum var fullgerð. Á
s.l. ári voru síðan lagðir olíumalar-
kaflar á um 1,5 km auk þess sem
lagt var á tvo sýsluvegi um 1 km
slitlag. — I dag eru allar nýjar
íbúðargötur undirbyggðar og lagð-
ar í þær holræsalagnir svo og
lýsingarstrengur, en mikil tímatöf
og kostnaðarauki hefur verið að
því í eldri götum sem hafa verið
olíubornar, að regnvatnslagnir og
lýsingarstrengir hafa alls ekki
verið fyrir hendi.
Holræsi og
umhverfismál
Á árinu 1975 var unnin áætlun
um holræsamál í Mosfellssveit í
tengslum við undirbúningsvinnu
að aðalskipulagi, þar sem gert er
ráð fyrir að byggðar verði rotþrær
fyrir helztu byggðakjarna og
ennfremur er gert ráð fyrir að í
framtíðinni yrði annað tveggja
gert, eftir því hvort hagkvæmara
reyndist: 1) Gerð svonefnd síubeð
í tengslum við rotþrær til frekari
hreinsunar eða — 2) afrennsli
rotþrónna dælt í pípum í framrás-
ir við Geldinganes eða Gunnunes,
sem yrði að gera í. samráði við