Morgunblaðið - 11.06.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1978 37
ísland og Kanada
hefja samstarf á
sviði rannsókna
og kennslu
Ilinum erlendu gestum sýnd aöstaða í skynjunarlífeðlisfræöi að
Grensásvegi 12. Talið frá vinstri. Jean-Guy Pilon, forscti líffræðideild-
ar Montreal-háskóia, prófessor Jóhann Axelsson forstöðumaður
rannsóknarstofu Háskólans í lífeðlisfræði. Guðmundur Einarsson sem
hefur að sérsviði heyrnar- og þrýstiskyn. prófessor M.A. Ali (sitjandi)
með sjónskyn sem sérgrein og Logi Jónsson með sérgrein á sviði
bragð- og lyktarskyns. Á myndina vantar Sigfús Björnsson
lífverkfræðing. sem aðallega hefur unnið með sjónskyn. Ljósm.
Kristján.
Um nokkurt skeið haía tveir
vísindamenn frá líffræðideild
Montreal-háskóia dvalist hér á
landi í boði Rannsóknarstofu
Iláskóla íslands í lífeðlisfræði
og lífverkfræði. Markmið heim-
sóknarinnar var að koma á
víðtæku samstarfi á sviði rann-
sókna og kennslu miili Háskóla
íslands og Montreal-háskóla.
Einnig fluttu hinir erlendu
prófessorar nokkra fyrirlestra
um rannsóknir sínar.
Fréttamaður Mbl. hitti kana-
dísku vísindamennina, þá próf.
M.A. Ali, sem þekktur er fyrir
rannsóknir sínar á sjón og
prófessor Jean-Guy Pilon, for-
seta líffræðideildar
Montreal-háskóla, á Rannsókn-
arstofu Háskóla íslands í lífeðl-
isfræði að Grensásvcgi 12. þar
sem prófessor Ali var að
fjarlægja auga úr fiski til að
rannsaka.
Fyrirlestrar prófessors Ali
fjölluðu allir að einhverju leyti
um sjónskyn fiska t.d. sjón-
bundna hegðun þeirra í slæmu
skyggni og rafmælingar á sjón
fiska tengdar umhverfi og hegð-
un. Fyrst var hann því spurður
hvers vegna áhuginn beindist
fremur að sjón fiska en annarra
dýra?
— Sjónskyn fiska er líffræði-
lega heillandi, sagði próf. Ali,
vegna margbreytileika þess.
Fiskar lifa við gífurlega breyti-
legar aðstæður miðað við önnur
dýr, á dýpi frá nokkrum senti-
metrum upp í marga kílómetra,
í ísköldu vatni eða 30 gráðu
heitu, í tæru vatni eða gruggugu
og menguðu, í ósöltu vatni og
söltu o.s.frv. Þessar breytilegu
aðstæður gera miklar kröfur til
aðhæfingar sjónskyns hjá hin-
um ýmsu tegundum.
— Einnig hljóta slíkar rann-
sóknir að hafa mjög hagnýta
þýðingu. Hvernig sjá fiskar t.d.
lit og gerð néta og annarra
veiðarfæra? Hvernig greina þeir
hreyfingar o.s.frv.? Aukin þekk-
ing á sjónskyni fiska er nauð-
synleg þjóðum íslands og Kan-
ada, sem byggja atvinnu og
afkomu að miklu leyti á fisk-
veiðum.
Hér tekur prófessor Jóhann
Axelsson mjög í sama streng en
bendir á að skynjunarhópur
rannsóknarstofunnar, sem svo
er kallaður, einskorði sig ekki
við sjón fiska. Logi Jónsson
vinni t.d. með bragð og lyktar-
skyn þeirra, Guðmundur Ein-
arsson með þrýstiskyn og
heyrnar, en sjónsviðið sé aðal-
áhugamál Sigfúsar Björnssonar
lífverkfræðings. — Allt er þetta,
sagði Jóhann, eðlilegt áfram-
hald á vinnu Sigurðar St.
Helgasonar lektors, sem árum
saman hefur unnið að uppbygg-
ingu fiskalífeðlisfræði.
Fara slíkar rannsóknir ein-
göngu fram á vegum háskól-
anna?
Því svarar prófessor Ali:
Okkur hefur verið tekið framúr-
skarandi vel af Veiðimálastofn-
un og Hafrannsóknastofnun og
öðrum, sem við höfum heimsótt
og Jóhann bætir við: Við von-
umst eftir nánu samstarfi við
rannsóknarstofnanir atvinnu-
veganna um þessar rannsóknir
sem aðrar.
Kennaraskipti
Hvert var upphaf þessarar
samvinnu milli Montreal-há~
skóla og Háskóla íslands?
— Upphaf þessa má rekja til
þátttöku þeirra Jóhanns, Sigfús-
ar og Guðmunduar á'ráðstefnu
um skynjunarvistfræði í Kan-
ada s.l. sumar, sagði próf. Pilon,
og um samvinnu á sviði kennslu
má segja að sérfræðingar frá
Kanada koma hingað og halda
stutt námskeið um valin efni
eða taka þátt í námskeiðum sem
þegar eru kennd hérlendis.
Kennaraskiptin verða gagn-
kvæm, því Kanadamenn geta
margt lært af Islendingum.
En hvaða ávinning teljið þið
ykkur hafa af rannsóknarstarf-
inu?
— Hann er margvíslegur og
gagnkvæmur einnig, sagði
prófessor Ali. Tökum nýtingu
tækja sem dæmi. Tæki á rann-
sóknarstofu minni hafa verið
keypt á 18—20 árum og kosta
a.m.k. 250 þúsund dali. Það tæki
ykkur aldrei styttri , tíma að
byggja upp sambærilega að-
stöðu á sviði efna- og líffæra-
fræði, sem þó eru aðeins tveir
þættir rannsóknanna á sjón-
skyni fiska. Hins vegar er svo
hér til tækjabúnaður og fræði-
leg og tæknileg kunnátta, sem
okkur er ómetanleg. Þá má
nefna efniviðinn, fiskana og
aðstöðu til að rannsaka hinar
ýmsu tegundir. Með því að
starfa saman getum við flýtt
rannsóknum mjög mikið, gert
þær víðtækari, ódýrari og hag-
nýtari.
Samningur
Gerður hefur verið samningur
um samstarfið:
Við höfum náð samkomulagi,
segir próf. Pilon, um skamm-
tima verkefni, er tekur uiþ.b.
hálft annað ár og langtímaáætl-
un til fjögurra ára. Skammtíma
verkefnið tekur aðallega til
uppsjávarfiska og ferskvatns-
fiska t.d. laxfiska, en langtíma-
verkefnið beinist að rannsókn-
um á sjónskynjun t.d. djúpsjáv-
arfiska.
Nú tekur próf. Ali til við að
lýsa hvernig skal rannsaka
nethimnu fiskaugans, hlutföll
ljósnæmra skynfruma, magn
litarefna í frumum og tengja
þetta rafmælingum atferlis- og
litarskyns mælinguni, en nánar
verður ekki farið út í það hér.
Að lokum skaut prófessor Ali
því að hann teldi fiskasafnið í
Vestmannaeyjum til fyrirmynd-
ar og að slíkt safn í Reykjavík
myndi mjög bæta aðstöðu til
hagnýtra fiskirannsókna hér á
landi.
Sófasett
Aukin þjónusta
Sérpantanir á Ulferts
húsgögnum.
Hafið þið leitað lengi að réttu húsgögnunum?
Farið búð úr búð og ekki fundið það rétta?
I vali á húsgögnum ræður smekkur miklu. Nýi
Ulferts litmyndalistinn er fullur af smekklegum
húsgögnum: Raðstólum, borðum, stólum, rúmum ofl.
Þið finnið áreiðanlega eitthvað við ykkar hæfi.
Skrifið eftir nýja Ulferts litmyndalistanum og
veljið síðan eftir ykkar eigin smekk.
Eins og áður er úrval Ulferts húsgagna
að jafnaði til á lager verslunarinnar.
Til Kristjáns Siggeirssonar hf.
Laugavegi 13,101 Reykjavík.
Vinsamlega sendið mér ókeypis Ulferts
litmyndalistann.
Nafn:
HÚSGflGDflVERSLUn
KRISTJflnS
SIGGEIRSSOnflR HF.
LAUGAVEG113 REYKJAVIK SIMI 25870
Heimilisfang: