Morgunblaðið - 11.06.1978, Síða 16

Morgunblaðið - 11.06.1978, Síða 16
Kosningaávarp Sj 48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JUNI 1978 Valið stendur um virðingu fyrir einstakli Alþingiskosningar snúast nú um það, hvort ný vinstri stjórn tekur við völdum að þeim loknum loknum eða Sjálfstæðisflokkurinn verði í stjórn landsins. Virðingin fyrir einstaklingnum og athafna- frelsi hans er kjarni Sjálfstæðisstefnunnar. Sjálfstæðisflokkurinn telur nauðsynlegt að móta fjölbreytt þjóðfélag, sem stuðlar að því, að hæfileikar hvers einstaklingsins fái notið sín sem bezt. Frelsi og ábyrgð einstaklinganna skapar aðhald fyrir stjórnvöld og vinnur gegn stöðnun, öfgastefnum og spillingu í þjóðfélag- mu. Aldrei aftur vinstri stjórn Sagan hefur sýnt, að vinstri stjórnir geta ekki ráðið við efnahagsmálin vegna sundur- þykkju- og ágreinings. Vinstri stjórnin sem hrökklaðist frá 1974 hafði bæði stefnt öryggi þjóðarinnar í voða og komið á algjöru efnahagsöngþveiti. Á árunum 1971—1974 stóð vinstri stjórnin 12 sinnum að skerðingu eða — tilraunum til að skerða kjarasamninga og atlögu hennar að þeim lauk með algjöru afnámi vísitölubóta. Atkvæði greitt öðrum flokkum en Sjálfstæðisflokknum í kosningun- um nú, er lóð á vogarskál nýrrar vinstri stjórnar — efnahagsöngþveitis og upplausnar í varnarmálum. Sjálfstæðismenn skora á alla frjálshuga Islendinga að veita flokknum brautargengi í komandi kosningum og hrinda þannig atlögu vinstri aflanna með öflugu og samstilltu átaki. Valið stendur um það, hvort þjóðin kýs að takast á við viðfangsefnin á raunhæfan hátt á grundvelli frjálslyndra viðhorfa eða með frelsisskerðingu og ríkisforsjá sósíalismans. Ný sókn Sjálfstæðisflokksins í Alþingiskosn- ingunum er eina tryggingin fyrir því, að hann geti hér eftir sem hingað til gegnt mikilvægu hlutverki sínu sem málsvari frelsis og framfara í íslenzku þjóðfélagi. Viðnám gegn verðbólgu Takist ekki að sigrast á verðbólgunni blasir atvinnuleysi við og hagsmunum einstaklinga, fyrirtækja, stétta og þjóðarinnar allrar er stefnt í voða. Til þess að árangur náist í viðureigninni við verðbólguna leggur Sjálf- stæðisflokkurinn megináherzlu á eftirfarandi atriði: 1. Skipulögð samráð stjórnvalda, stjórnmála- flokka og hagsmunasamtaka um kjaramál, sem leiðir til þjóðarsáttar í stað sundrung- ar. 2. Endurskoðun vísitölukerfisins til að tryggja að tekjur launþega séu í eðlilegu samræmi við þjóðartekjur og hag atvinnu- vega án víxlhækkana verðlags og kaup- gjalds. 3. Hallalaus viðskipti við útlönd og stöðvun erlendrar skuldasöfnunar. 4. Rétta gengisskráningu og frjálsan ferða- gjaldeyri og önnur framleiðni. 5. Eflingu jöfnunarsjóða til að mæta sveiflum í verði og framleiðslu útflutningsafurða. 6. jvirka samkeppni og frjálsa verðmyndun til að lækka vöruverð. 7. Örvun sparnaðar með raunhæfri vaxta- stefnu og auknu frelsi til verðtryggingar fjárskuldbindinga. 8. Jafnfrétti atvinnugreina þannig að lána- kerfið veiti fjármagninu í arðbærustu farvegi. 9. Samerátt í ríkisútgjöldum og hagræðingu í opinberum rekstri til að auka ráðstöfun- arfé almennings. 10. Tekjuskattur verði ekki greiddur af almennum launatekjum. Á þessum grundvelli vill Sjálfstæðisflokkur- inn leita samstarfs við alla þá aðila, sem í raun vilja leysa efnahagsvanda þjóðarinnar. Sjálf- stæðisflokkurinn hafnar óraunhæfum skamm- tímalausnum. Barátta þjóðarinnar fyrir at- vinnuöryggi og bættum lífskjörum mun ráðast af því hvort sigrast verði á verðbólgunni og öflugt atvinnulíf fái að blómgast. Varið land — eða varnarlaust? í komandi kosningum verður um það kosið hvort ísland skuli áfram vera varið land eða óvarið. Hver sjálfstæð þjóð verður að sinna þeirri frumskyldu að tryggja öryggi sitt, annað hvort af eigin rammleik eða í samvinnu við vinveittar þjóðir. íslendingar tryggja öryggi og sjálfstæði sitt með aðild að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamvinnu við Bandaríkin og fá þannig jafnframt tækifæri til áhrifa á friðsamlega þróun í alþjóðamálum og viðleitni til afvopnun- ar. • Sífellt þarf að endurmeta varnarþörfina með hliðsjón af íslenzuum hagsmunum. Aðeins með öflugum stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn geta íslenzkir kjósendur tryggt sigur landvarnar- stefnunnar, enda munu Sjálfstæðismenn ekki fallast á neinar þær aðgerðir, sem veiki öryggi þjóðarinnar. Island hefur sökum legu sinnar mikla hernaðarþýðingu. Mikil og sívaxandi hernaðar- umsvif Sovétríkjanna í lofti og á hafsvæðunum umhverfis ísland sýna hættuna á, að ísland lenti á rússnesku áhrifasvæði, ef íslendingar væru ekki í varnarkeðju vestrænna ríkja og hefðu viðbúnað til varna í landinu. I landhelgisdeilum okkar kom hvað eftir annað í ljós hve miklu máli það skipti fyrir hagsmuni okkar að vera í Atlantshafsbanda- laginu. Sú aðild átti ekki hvað minnstan þátt í því að síðasta landhelgisdeila var leidd til þeirra farsælu lykta, sem tryggðu fullnaðarsig- ur íslands í landhelgismálinu. Sjálfstæðisflokkurinn hvetur alla kjósendur, sem fylgja vilja sömu stefnu og hann í öryggismálum að koma til liðs við sig í þessum kosningum og vinna þannig í samvinnu við flokkinn að því að tryggja áfram öryggi íslenzku þjóðarinnar. Jöfnun kosningaréttar Sjálfstæðisflokkurinn telur núverandi kjör- dæmaskipan og kosningatilhögun óviðunandi og mun beita sér fyrir jöfnun kosningaréttar borgaranna og eflingu tengsla þeirra og þingmanna. Varanlegt slitlag á hringveginn Sjálfstæðisflokkurinn mun leggja stóraukna áherzlu á varanlega vegagerð á komandi árum. Innan 15 ára skulu vegir til allra byggðarlaga landsins lagfærðir eða endurlagðir með bundnu slitlagi. Hér er um að ræða svipaða stefnumörkun og Sjálfstæðisflokkurinn beitti sér fyrir í Reykja- vík í byrjun síðasta áratugs og leiddi til malbikunar meginhluta gatna í borginni og kom henni í nútímahorf. Þessi vegagerð er álíka stórt verkefni fyrir þjóðina eins og gatnagerðin var fyrir Reykvíkinga á sínum tíma. Samhliða þessari vegagerð þarf að vinna áfram að endurbótum og styrkingu vega í öllum landshlutum til að tryggja sem öruggast- ar samgöngur og tengsl innan hvers byggðar- lags. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til, að þessar framkvæmdir verði fjármagnaðar úr Byggða- sjóði, enda er hér um að ræða framkvæmdir, sem hafa mikla þýðingu fyrir framtíð allra byggða landsins. Varanleg vegagerð er raun- hæf byggðastefna, sem allir landsmenn geta sameinast um. Endurskoðun skólakerfisins — aukin verkmenntun Sjálfstæðismenn telja, að einstaklingar, frjáls samtök þeirra og sveitarfélög skuli hafa sem mest sjálfstæði og frumkvæði í skóla- og fræðslumálum, en ríkisvaldið setji aðeins rúman lagaramma um það, hvernig menntun skuli háttað. Brýn nauðsyn ber til að allt skóla- og fræðslukerfi landsins sé skoðað í heild með ofangreind sjónarmið í huga. Sem allra fyrst þarf að setja lög um framhaldsskóla, þar sem verkmenntun skipi verðugan sess og um fullorðinsfræðslu. Þessi löggjöf verður að taka tillit til raunverulegra vandamála skólanna, tengsla við önnur skólastig og efnahags- og atvinnulíf þjóðarinnar. eða frelsisskerðingu o

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.