Morgunblaðið - 14.07.1978, Qupperneq 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978
r
Listasafn Islands:
Grafík eftir þekkt-
an myndhöggvara
OPNUÐ hefur verið í Listasafni íslands sýning á
grafíkverkum bandarísku listakonunnar Louise Nevel-
son, en hún er einkum þekkt fyrir höggmyndir sínar
og á verk í öllum stærri söfnum í Bandaríkjunum og
hefur unnið til fjölda verðlauna. Sýningin sem hér um
ræðir hefur verið á ferð um Evrópu undanfarin ár og
fékkst hingað til lands fyrir milligöngu Menningar-
stofnunar Bandaríkjanna á Islandi.
Louise Nevelson, sem fæddist aldamótaárið í Kiev
í Rússlandi, fluttist með fjölskyldu sinni til
Bandaríkjanna, árið 1905, þar sem hún hefur starfað
síðan.
Myndirnar á þessari sýningu eru frá tímabilinu
1953—1975 og eru þær unnar með margs konar tækni.
Sýningin verður opin næstu þrjár vikur frá kl.
13.30—16 daglega, eins og Listasafnið.
Meðfylgjandi mynd tók Emilía af einu verkanna á
sýningunni, en það er unnið í pappírsmassa og nefnist
Dögun.
Bátatrygging
fjörutíu ára
HINN 12. þ.m. átti Bátatrygging
Breiöafjarðar 40 ára starfsafmæli
og var þess minnst á seinasta
aöalfundi s.l. laugardag.
Bátatryggingin varstofnuð 1938
og átti Sigurður Ágústsson fv. útg.
og alþm. frumkvæði að stofnun
hennar og var formaður í 36 ár
samfleytt. Fyrstu stjórn með
honum skipuðu Sigurður Stein-
þórsson kaupfélagsstjóri og Guð-
mundur Jónsson frá Narfeyri.
Framkvæmdastjóri varð þá Krist-
mann Jóhannsson. Núverandi
stjórn skipa Víglundúr Jónsson
Olafsvík formaður og Soffanias
Cesilsson Grundarfirði og Ingvar
Ragnarsson Stykkishólmi. Fram-
kvæmdastjóri nú er Gissur
Tryggvason.
Nú eru tryggðir 57 bátar hjá
félaginu og einnig hefir félagið
umboð fyrir slysatryggingar.
Niðurstöður efnahagsreiknings í
árslok 1977 voru 158 milljónir. Á
s.l. ári varð Bátatryggingin að
bæta tvö stærstu tjónin til þessa
en það voru tveir skiptapar. Var
tjónið samanlagt um 70 milljónir
króna.
Sumartónleikar í
Skálholtskirkju
AÐ VENJU verður í sumar efnt
til tónleikahalds í Skálholts-
kirkju fyrir ferðamenn og vel-
unnara staðarins. Sumartónleik-
ar þessir, sem standa .yfir í um
það bil.eina klukkustund, verða
hvern laugardag og sunnudag kl.
15 frá miðjum júlí og fram í
miðjan ágúst. Aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis. A sunnu-
dögum er messað í Skálholts-
kirkju að tónleikum loknum kl.
17.
Þetta er fjórða sumarið sem
sumartónleikar eru haldnir í
Skálholtskirkju. Efnisskrá er að
venju mjög fjölbreytt, m.a. verða
flutt verk frá 16., 17. og 18. öld
einnig nútímaverk og þar á meðal
ný verk eftir Atla Heimi Sveinsson
og Leif Þórarinsson. Verður ný
efnisskrá um hverja helgi.
Um næstu helgi, 15. og 16. júlí,
flytja þau Glúmur Gylfason orgel-
leikari og Helga Ingólfsdóttir
semballeikari einleiks- og sam-
leiksverk fyrir orgel og sembal.
Flytjendur auk þeirra á Skál-
holtstónleikum í sumar eru: Man-
uela Wiesler flautuleikari, Sigurð-
ur I. Snorrason klarínettuleikari,
Óskar Ingólfsson klarínettuleikari
og Hafsteinn Guðmundsson
fagottleikari.
Góða
ferð
mmo
er vörumerki yfir ýmiss konar sportfatnaö,
fatnaö, sem er ávallt hannaöur og framleiddur
eftir ströngustu kröfum tízkunnar.
Nú er mmo fatnaður líka til í barna-
í riffluöu flaueli og denim.
mimo
sportfatnaöur fæst í verzlunum Karnabæjar
svo og öllum verzlunum, sem hafa umboö fyrir
Karnabæ.