Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978 t Móöir okkar LÁRA STEFÁNSDÓTTIR, ' Austurgeröi 1, Reykjavík, andaöist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 13. júlí. Ásdís Kristjánsdóttir, Björn Kristjðnsson, Edda Kristjánsdóttir. t Móöir okkar, ÞÓRUNN EINARSDÓTTIR Irá Merki, lézt í sjúkrahúsi Keflavíkur miövikudaginn 12. júlí. Fyrir hönd tengdabarna og barnabarna Gunnpórunn Gunnarsdóttir, Einar Gunnarsson. Faöir okkar, t JÓHANN PÁLSSON, trésmiöur, er látinn. Elísabet Jóhannsdóttir, Elin Jóhannsdóttir, Þórörn Jóhannsson. Bróöir minn, t GUDMUNDUR GUDMUNDSSON, lézt af slysförum aö morgni 12. þ.m. Jaröarförin auglýst síöar. Fyrir hönd barna fööur, systkina og annarra aöstandenda. Páll Guðmundsson, Breiövangi 16. t Eiginmaöur minn og faöir JÓN KRISTJÁNSSON fré Glasibn er andaðist á Kristneshæli 7. júlí, verður jarösunginn frá Mööruvöllum í Hörgárdal mánudaginn 17. júlí kl. 2 e.h. Geirlaug Konráðsdóttir, Jenný Jónsdóttir. t Eiginmaöur minn, stjúpfaöir og bróöir GUNNLAUGUR EGILSSON, skipstjóri, Sörlaskjóli 66, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 18. júlí kl. 10.30. Jóhanna Jóhannesdóttir, Ágúst Ormsson Sveingerður Egilsdóttir Egill Egílsson. Minning: Sr. Sigurður Ó. Lárus- son fyrrv. prófastur Þegar ég fluttist til Reykjavíkur vorið 1911, fékk ég húsnæði á Spítalastíg 6 (í útbyggingunni) hjá heiðurshjónunum frú Guðrúnu Þórðardóttur og Lárusi Pálssyni smáskammtalækni. Einnig hafði ég fæði hjá frú Guðrúnu, en alls bjó ég í húsinu um níu ára skeið. — Þá var sr. Sigurður í mennta- skólanum, en lauk prófi þaðan 1914. Bróðir hans, sr. Jakob, var þá kominn til Vesturheims, þar sem hann gegndi prestsstörfum um skeið. v01afur bróðir hans var þá orðinn héraðslæknir á Brekku á Fljótsdalshéraði. Margrét, systir sr. Sigurðar, var flutt austur að Stórólfshvoli í Rangárvallasýslu með manni sínum Guðmundi Guðfinnssyni lækni. En heima voru systurnar Pálína, sem hjálp- aði móður sinni við matreiðsluna, Ágústa hjúkrunarkona, og Guð- rún, sem var yngst systranna, en giftist síðar Helga Ingvarssyni lækni, sem um langan tíma var yfirlæknir á Vífilsstaðahæli. Enn- fremur Páll trésmiður, bróðir hans. Af honum hafði ég fremur lítil kynni. Um veru sr. Sigurðar í Stykkis- hólmi, athafnasemi hans þar og frekari störf, geri ég ráð fyrir að þeir, sem betur þekkja til, muni rita nánar um og þau störf hans, og aðrar framkvæmdir, er hann innti þar af höndum. — Þess í stað ætla ég að minnast sérstaklega á nokkra þeirra kunningja hans, sem hann hafði samskipti við á menntaskólaárunum og síðar á háskólabrautinni. Séra Sigurður og nokkrir aðrir æskufélagar hans voru í knatt- spyrnufélaginu Fram. Man ég sérstaklega eftir Tryggva Magnús- syni, sem var einn af stofnendum Litla ferðafélagsins og bróður hans Pétri Hoffmann, svo og Pétri Sigurðssyni fangaverði, sem síðar varð ritari Háskóla íslands. Eftir að menntaskólanámi lauk og tekið var að iðka háskólanám, eru mér einna minnisstæðastir sr. Eiríkur Helgason, sem stundaði guðfræðinám ásamt sr. Sigurði. Af kunningjum hans stunduðu læknanám þeir Jónas Sveinsson og Knútur Kristinsson. Lögfræðinám stundaði Gunnar E. Benediktsson, faðir fyrrv. borgarstjóra í Reykja- vík. Sennilega hefur verið um fleiri að ræða, þótt mér séu nú nöfn þeirra fallin úr minni. — Sigurður varð cand. theol. frá Háskóla íslands 1918, en það ár skildi leiðir okkar að mestu, ég ferðaðist þá til Austfjarða, en hann mun litlu síðar hafa haldið í vesturátt. Þó var ég kominn aftur til Reykjavíkur skömmu áður en Spánska veikin hertók flest mið- aldra fólk í Reykjavík. Sr. Sigurð- ur var þá enn hér í bænum, enda nutum við Helgi Ingvarsson, síðar mágur hans, góðs af veru hans hér, meðan veikin stóð yfir. Þá bjuggu í útbyggingunni á neðri hæð þeir Helgi Ingvarsson og Jón Sigur- jónsson prentari, en ég hafði efri hæðina. Af þeim, sem hér voru taldir, eru ekki aðrir enn á lífi en Helgi Ingvarsson og undirritaður. Eftir rúmlega tveggja áratuga skeið, en ég var þá tekinn til starfa í Edduprentsmiðju, fórum við í skemmtiför alla leið til Stykkis- hólms og um Dalasýslu. í þeirri för heimsóttum við, sem búið höfðum á Spítalastíg 6, okkar gamla og góða æskuvin, sr. Sigurð og hans ágætu frú Ingigerði Ágústsdóttur Þórarinssonar, verslunarstjóra í Stykkishólmi. Þar nutum við frábærrar gestrisni og höfðinglegra veitinga af hendi þeirra heiðurshjóna. Rifjaðar voru upp gamlar minningar frá veru okkar á Spítalastíg 6, og margt annað sér til gamans gert. Mér og konu minni eru ógleymanlegar hinar hlýju viðtökur er við nutum á heimili prestshjónanna. Það var svo hlýtt yfir öllu í návist þeirra og allt gert, sem hugsast gat til að gleðja gestina og uppfylla óskir þeirra. Heimsókna til þeirra hjóna munum við æ minnast með hlýju og unaði. Nú, þegar sr. Sigurður er horfinn sjónum okkar, veit ég að himnafaðirinn mun láta ljósengil sinn tilreiða honum hina bestu hvílu, meðan hann er að átta sig á því, að nú er hann kominn á annað og æðra tilverustig í al- heiminum. Systur hans, fóstursonum og niðjum þeirra öllum vottum við innilega samúð og biðjum þeim öllum guðsblessunar. Jón Þórðarson t Alúðarþakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu við andlát og jaröarför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og iangömmu SESSELJU SÍMONARDÓTTUR Sigurður Grímsson Grímur Sigurösson, Ásta Kristinsdóttir, Ágústa Siguröardóttir, Siguröur Guðmundsson, Sigurður Símon Sigurösson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Gróa Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir til allra fyrir auösýnda samúö og vlnáttu viö andlát og útför móður, tengdamóöur og ömmu, ÞURÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR fré Gaddstöðum. Sigurður Halldórsson, Erna Sverrisdóttir, Halldóra Halldórsdóttir, Ingvar Guðmundsson, Ingibjörg Halldórsdóttir, Holgi Eyjólfsson, Sigríöur Þorgrímsdóttir, Sölvi Ólafsson og barnabörn. Anna Kristín Jóns- dóttir Hveragerði Fædd 30. ágúst 1919. Dáin 5. júlí 1978. Þegar komið er að leiðarlokum, hrannast upp minningar. Minn- ingar, sem eiga eftir að ylja manni um hjartarætur, um ókomin ár. Eflaust væri hægt að skrifa langan pistil um hana Önnu frænku, ég læt öðrum ritfærari það eftir, ég get aðeins þakkað fyrir mig. Hún var falleg, glaðlynd og góð kona og hún virtist alltaf hafa tíma fyrir stelpukrakka, sem bókstaflega eltu hana á röndum. „Besta frænka í heimi,“ sagði ég oft og ég meinti það. Hún reyndist líka vera það. Hún átti oft ótrúlega erfitt, ekki síst eftir að hún hafði misst manninn sinn úr þeim sjúkdómi, er síðar dró hana til dauða. En hún bar sinn kross með hetjulund. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför JÓHÖNNU ODOSDÓTTUR Oddný Hólm og d»tur. Til eru menn gæddir einhverjum þeim eiginleikum er gera þá ógleymanlega öllum sem af þeim hafa nokkur kynni. Þeir sem eru og til, en færri miklu, sem bregða svo sterkum svip yfir heimkynni sín að þeir verða nánast hluti af þeim í ímynd vorri. Enn eru þeir menn til, en langfæstir, sem búa yfir slíku andlegu þreki og þeim persónutöfrum að eftir kynni við þá verður maður aldrei samur. Allt þetta var séra Sigurður Ó. Lárusson, fyrrum prófastur Snæ- fellinga, og miklu fleira þó. í hugarheimi hans var svo hátt til lofts og vítt til veggja að jafnvel andstæður hljómuðu saman. Hann var manna miskunnsamastur en gat þó verið harðskeyttur. Hann var manna sannmenntaðastur og því hógvær, alþýðlegur og umburð- arlyndur. Hann var manna vitr- astur en þó barnslega einlægur. Við ævilok er honum þökkuð leiðsögnin, traust og markvís, vináttan, heil og hlý, hjartalagið, „sanna og góða“. Ólafur Haukur Árnason Nú þegar ég í fáum orðum kveð fyrrverandi sóknarprest minn, séra Sigurð Ó. Lárusson, koma margar myndir og minningar fram í hugann. Hann vardhér sóknarprestur nærri hálfa öld, litríkur og aðsópsmikill hvort sem hann var á heimili sínu, götunni eða í ræðustól. Það stóð af honum gustur geðs og einnig sú hjarta- hlýja sem samferðamanni yljar lengi. Til embættisverka var aldrei kastað til höndum. Þau voru leyst á þeim tímum sem ákveðnir voru og heill og óskiptur stóð hann í þeim, hvort sem gleðin eða sorgin voru á ferð. Kenning hans var hrein og bein. Það var enginn vandi að skilja hann og köllun sinni var hann trúr eins og séra Árni myndi hafa orðað það. Ég minnist þess ekki að hann hafi þurft að tala í tómri kirkju allan þennan tíma, og það vissu allir að orð hans voru frá uppsprettu góðs og viðkvæms hjarta. Sr. Sigurður var mikill skapmaður, það fór ekki framhjá neinum. Gat orðið eins og gosbrunnur, en það stóð skamma hríð, á eftir kom hlýtt bros og mild hönd og allt varð hreint og tært. Heima fyrir var sr. Sigurður hinn víðlesni maður sem miðlaði af fróðleik sínum og sóttu margir á hans fund og auðguðust. Hjálp- samur þegar þess var þörf. Eru því margar ljúfar minningar tengdar hans heimili og konu hans, frú Ingigerðar Ágústsdóttur. Það fundu menn hvað best er hann hvarf til Reykjavíkur að loknu prestsstarfi hér að mikið hafði Hólmurinn misst og hans var því einlæglega saknað. Ég heimsótti hann oft eftir að hann fluttist suður og seinast á þessu ári þar sem hann dvaldi á Elliheimilinu Grund. Við rifjuðum margt upp og alltaf fann ég betur Framhald á bls. 19 Hún átti líka góða daga og þá fór ekki hjá því að við hin fengjum hlutdeild í gleði hennar. Henni verður seint fullþakkað allt það góða sem hún gerði öðrum. Börnunum hennar votta ég mína dýpstu samúð og ég óska elsku- legri föðursystur minni góðrar heimkomu og gleðiríks ástvina- fundar. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Bergþóra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.