Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978 Mordmá/ / Kaliforníu: MORÐMÁL í Kaliforníu hefur breytt almennri afstöðu fólks til fóstureyðinga sem hafa verið leyfðar þar síðan 1973. Málið snýst um misheppnaða fóstureyð- ingu, þar sem barnið fæddist lifandi. Hefur það magnað raddir sem aldrei hafa þagnað alveg siðan fóstureyðingar voru leyfðar og nú eru þessar raddir um „réttinn til lífs“ háværari en nokkru sinni áður. Sakborningurinn í morðmálinu er ríkur fæðingarlæknir, William Waddill, sem hefur hingað til verið eftirsóttur sakir langrar starfs- reynslu en hann er búsettur í Orange County í suðurhluta Kali- forníu, þar sem bandarísk íhalds- semi á sér djúpar rætur. í júní síðastliðnum var hann leiddur fyrir rétt, ákærður um misheppnaða tilraun til fóstureyð- ingar, þar sem saltupplausn var dælt í móðurina og barnið fæddist lifandi. Konan fer fram á háar skaðabætur en kviðdómurinn hef- ur ékki treyst sér til að úrskurða í þessu einkennilega máli og kemur þar margt til, m.a. skil- greiningin á hvað dauði er, þ.e. hvort barnið hafi raunverulega verið lifandi utan móðurkviðar. Réttarhöldin verða tekin upp að nýju síðan i sumar, þrátt fyrir umkvartanir læknisins sem segist hafa tapað 500 þúsund dölum (um 130 milljónir ísl. kr.) af völdum þeirra. Þar að auki hefur honum verið stefnt þar sem hann er krafinn um sautján milljónir dala (44 milljónir ísl. kr.) í skaðabætur skylda til þess samkvæmt stjórnarskránni. Dr. Ronald Cornelson læknir á spítalanum sagði að dr. Waddill hefði kyrkt barnið og um leið muldrað: „Það ætlar ekki að hætta að anda.“ Cornelson sagði að Waddill hefði því næst talað um að kyrkja barnið eða svæfa það til dauða. Sagði dr. Waddill sér til varnar, að hann hefði ekki gert annað en að þreifa á hálsi barnsins. Á meðan á þessum réttarhöldum stóð safnaðist saman fólk, andvígt fóstureyðingum og fylgjandi hreyfingunni „rétturinn til lífs“, fyrir utan rét'tarsalinn. „Enginn mannlegur máttur hefði getað endurlífgað þetta barn,“ sagði Dr. Wadill ennfremur. Verjandi hans sagði, að lagalega séð hefði barnið ekki verið lifandi utan móðurkvið- ar. í fyrstu virtist kviðdómurinn ætla að komast að neikvæðri niðurstöðu í garð læknis, eins pg einn kviðdómenda skýrði frá síðar. „Hjartsláttur var til staðar," sagði kviðdómurinn. „Hjúkrunarkonur höfðu sagt að barnið hefði barist við að ná andanum. Dómarinn sagði að barnið hefði þar af leiðandi verið með lífsmarki." Á síðustu stundu breyttist þó skilgreining dómarans á „dauða“. Kviðdómurinn var aftur kallaður saman til að fella úrskurð. Kvið- dómnum var skýrt frá nýrri skilgreiningu á dauða samkvæmt heilbrigðislöggjöf Kaliforníu. Hún var svohljóðandi: „Alger og óafturkallanleg stöðvun á heila- starfsemi." Hvað gat kviðdómurinn aðhafst nú? Flestir komust að þeirri niðurstöðu að sýkna ætti dr. Sagði hún lækninum áður, að hún teldi sig ekki tilbúna til að gegna móðurhlutverki og auk þess yrði ástand hennar mikið áfall fyrir föður hennar, sem er skóla- stjóri. Waddill læknir úrskurðaði að Mary væri komin 23 vikur á leið og sprautaði hann saltupplausn í legið. Yfirgaf hann síðan spítalann og bjóst við fósturláti innan 36 klukkustunda. Þessi mynd sýnir bandarískan þingmann halda á tólf vikna gömlu fóstri sem mótmælendur. andvígir fóstureyðingum. notuðu til að mótmæla frjálsum fóstureyðingum í New York árið 1971. Raunin varð önnur. Waddill læknir var vakinn upp við vondan draum og símhringingu hjúkrunarkonu um nóttina. Sagði hún að Mary Weaver hefði fætt stúlkubarn, sem berðiát við að ná andanum. Væri það 30 vikna gamalt og þrjú pund að þyngd. — bamið fæddist IHandi Hvað síðar gerðist greinir menn á um, aðallega Waddill lækni og annað starfslið spítalans. Hjúkrunarkona segir að hann hafi sagt í símann: „Gerið engan andskotann fyrr en ég er mættur á staðinn!" Önnur hjúkrunarkona Konum í Bandaríkjunum er það f sjálfsvald sett hvort þær láta eyða fóstri fyrstu tólf vikur meðgöngutímans. Misheppnuó .fyrir starfsafglöp, árás og morð. Stefnandi er nítján ára gömul stúlka, Mary Weaver, mennta- skólanemi sem gekkst undir fóstureyðingu hjá honum í marz 1977. neitaði að bera vitni á þeim forsendum að slíkt kæmi sér illa fyrir hana og bæri henni ekki „Skátasirkusinn” Opid bréf til Bandalags íslenzkra skáta Hætt er við, að mörgum að- standendum og velunnurum skáta- hreyfingarinnar á íslandi hafi brugið ha§tarlega í brún þegar Dagblaðið upplýsti hvernig í pottinn var búið með sirkus þann, sem auglýstur var á vegum Bandalags íslenzkra skáta. Ein- hverjir hafa ef til vill álitið þetta vera venjulegt blaðamannaslúður, en ekki var því til að dreifa, því fréttin var staðfest í kvöldfréttum útvarpsins þann sama dag, þar sem vitnað var í viðtal við skátahöfðingja. Það skal tekið skýrt fram, að sá, sem þessar línur ritar, gerir það sem einstaklingur, en ekki í nafni síns skátafélags. Eg hef hins vegar tilheyrt skátahreyfingunni frá því ég var átta ára gamall. Vonast ég til að gera það lengi enn, því ég tel mig hafa fengið ómetanlegt vega- nesti úr skátastarfinu á Isafirði, og einnig af kynnum mínum af ikátum erlendis. Ég ætla því að vona, að fleiri skátum en mér hafi verið nóg boðið, þegar fjölmiðlar fóru að fletta ofan af fjármálahneyksli á vegum Bandalags íslenzkra skáta. Ég vil af þessu tilefni varpa nokkrum fyrirspurnum til stjórn- ar B.Í.S., sem ég vona að hægt verði að svara sem fyrst. 1. Telur stjórn B.Í.S., að ein- staklingar, sem ætla sér að hagnast persónulega á fjár- öflunarstarfsemi B.Í.S. séu hæfir í trúnaðarstöður fyrir skátahreyf- inguna á íslandi? 2. Telur stjórn B.Í.S. það rétt- lætanlegt, að þessir sömu ein- staklingar blekki vísvitandi vel- viljaða embættismenn í mennta- málaráðuneytinu til að veita undanþágu frá skemmtanaskatti m.a. í þeim tilgangi að hagnast sjálfir á nafni skátahreyfingarinn- ar? 3. Hefur engin grein skátalag- anna verið brotin með þessu hátterni, eða skipta þær minna máli en ágóðahluti Jókers h.f.? Sem betur fer er starfsemi skátafélaganna á íslandi ekki á þeim villigötum, sem fjáröflunar- starfsemi B.Í.S. virðist vera, og skal ég nefna dæmi því til staðfestingar, ef þau mættu verða til eftirbreytni. Skátafélögin á ísafirði halda í ár upp á 50 ára afmæli sín, og eins og gengur og gerist í skátastarfi hafa skipzt á skin og skúrir í hálfrar aldar skátastarfi. Seinni árin hefur fjárhagur félaganna verið nokkuð traustur, sem er þó ekki vegna opinberra styrkja eða fyrir- greiðslu, því þau hafa aldrei farið fram á slíkt. Ástæðan fyrir góðum fjárhag er, að skátarnir hafa frá fyrstu tíð unnið endurgjaldslaust að fjáröflun fyrir félögin eins og hverju öðru skátastarfi, og hefur hugtakið „launað skátastarf" ekki átt upp á pallborðið hér, enda er það ekki í anda skátahreyfingar- innar. Fjáröflun hefur að mestu verið sala á fermingarskeytum, sem frá upphafi hefur gengið vel. Kemur þar að mínu mati hvort tveggja til, hugulsemi bæjarbúa við fermingarbörn og velvilji í garð skátastarfsins. Skátamót Vestfjarða var haldið nýlega í tilefni afmælis félaganna, og unnu félagsforingjar beggja skátafélaganna á ísafirði ásamt sveit ungra drengja og stúlkna vikum og mánuðum saman að því að gera þetta mót sem bezt úr garði til þess að skátar frá Vestfjörðum og víðar að gætu kynnzt því bezta og heilbrigðasta, sem skátastarf hefur upp á að bjóða. Það voru þeirra laun. Þau unnu í anda stofnandans, Baden Powells. Ágæta stjórn BÍS. Berið þetta saman við undirbúnings- vinnu forráðamanna Jókers h.f. að komu sirkusins til Reykjavíkur. Hver var þeirra hugsjón? Það eru áreiðanlega til farsælli leiðir til að leysa fjárhagsvandít B.Í.S. heldur en að fela þau í hendur ævintýramönnum. Vett- vangurinn til að leysa slík mál er að sjálfsögðu skátaþing, en þar sem þau eru aðeins haldin annað hvert ár, mætti vel hugsa sér að kalla saman aukaþing, þegar við aðkallandi vanda er að glíma. Skátar víðsvegar um landið hljóta að krefjast þess, að forystan forði hreyfingunni frá að falla í áliti í augum almennings og það er vissulega enn hægt. í þessu tilfelli virðist mér naöðsynlegt að gera þrennt. 1. V Vísa þeim mönnum úr trúnaðarstöðum hjá hreyfingunni sem hafa skaðað hana með hátt- erni sínu og greiða þeim umsamin laun í þrjá mánuði. 2. Greiða að fullu skemmtana- skatt af tekjum af sirkusnum. 3. Kalla saman aukaþing til að ræða fjármál B.Í.S. og hvernig réttur skuli við sá álitshnekkir, sem hreyfingin hefur orðið fyrir. Telji stjórn B.Í.S. hins vegar farsælla að láta málið liggja í þagnargildi, þá hefur okkur borið langt af leið frá þeirri hugsjón, sem varð til þegar Baden Powell valdi sér unga drengi jafnt úr fátækrahverfum sem efnaðri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.