Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978 GRANI göslari Ilcyrðu pabbi, það er trans- isturta-kið mitt sem þú ert að reyna að raka þi(? með! Sem sálfra'ðingur hef ég engin vandamál við að glíma, meðan aðrir efea það! V ellíðan og stjórnmál BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í da»í líeta lesendur spreytt sík á viðfanK-sefni í vörn oj; hafa sér til leiðbeiningar þá fullyrðinjju. að nákva-m talninK slaga ok skiptinK litanna leysi vandann. Gjafari suður. austur — vestur á hættu. Norður S. Á862 II. G6 T. 54 L. Á9864 Austur S. DG1054 II. D972 T. 72 L. 103 Vestur spilar út laufkóng gegn fjórum hjörtum eftir þessar sagnir. Vestur Norður Austur Suður 1 II pass i S pass 2 T pass 2 II pass 4 II Lesendur hafa hönd austurs en sagnhafi tekur fyrsta slagrnn í borði með ás. Síðan tígulás og kóng og trompar þriðja tígul með sexu. Vestur lét sjöu, níu og gosa og lesendur fá siaginn á hjartasjö. Hvað nú? Sagnhafi virðist hafa átt fimm spil í báðum rauðu litunum og vestur tíguldrottningu. Svörtu ásarnir í borðinu sjá um tvö af þrem svörtum spilum sagnhafa og því aðeins einn slag þar að fá. Þarf því að fá slag á tíguldrottningu auk annars trompslags. Og ekki nægir að trompa yfir borðið aftur því þá verða tveir slagir að einum. Við spilum þess vegna trompi. Norður S. Á862 II. G6 T. 54 L. Á9864 Veslur Austur S. K93 S. DG1054 II. 104 H. D972 T. DG93 T. 72 I.. KDG7 Suður S. 7 H. ÁK853 T. ÁK1086 L. 52 L. 103 En ekki látum við það henda okkur að spila lágu trompi. Þá hleypir sagnhafi á gosann og við missum trompslaginn. Nei, við spilum drottningunni og hann ræður ekki við okkur. Þú getur sleppt núna, það er stúlka að koma! „í dálkum Velvakanda 11. júlí birtist bréf um sjúkt fólk, svo- nefnda afbrotamenn, og sjúka blaðamennsku, sem gerir sér ólán þessara manna að atvinnu sinni með því að blása upp fréttir af ógæfu þeirra í söluskyni. Öll greinin finnst mér athyglisverð og hverju orði sannari og langar mig að leggja nokkur orð í belg. Bréfritari nefnir að íslendingar séu mörgum árum á eftir þeim þjóðum, sem lengst séu komnar í meðferð og málefnum afbrota- manna. Flest eru afbrotin framin undir áhrifum vímugjafa, sem nú eru orðnir nokkuð margir, löglegir eða ólöglegir, eða vegna einhvers konar vanlíðunar sem menn kunna ekki ætíð skil á. Ef mönnum líður illa af ein- hverjum orsökum í þjóðfélagi okkar er meiri hætta á að leitað sé á náðir vímugjafa eða á vit öfga í trúmálum eða stjórnmálum til að dreifa og deyfa hugarástandið. Menn eru ávallt að leita að vellíðan hugar og líkama og fara ýmsar leiðir, en flestir eru ánægð- ir ef þeir fá notið sín og takast hæfilega á við lífið. Á síðustu tveimur árum hafa nýir straumar þekkingar og upp- lýsinga komið frá Norð- ur-Ameríku varðandi endurþjálf- un þeirra sem leitað hafa óhóflega á náðir Bakkusar. Hefur orðið verulegur árangur og menn tala um undur og vakningu sem orðið hefur á fræðslu um áfengi og vímugjafa. Sú var tíðin að ný menntun og fræðsla var að mestu sótt til Dana og nágranna þeirra. Þá var og algengt að sjá drukkna menn setja svip á miðbæinn í Reykjavík á daginn. Sjón sem hefur farið verulega minnkandi að undanförnu. Aftur á móti er áberandi í dag hve vímufólk í miðbæ Kaupmannahafnar er hrópandi dæmi um vanlíðan. Það er eins og Danir séu að komast á sama stig í þessum efnum og ríkti hér fyrir nokkrum árum. Eftir sem áður eiga Danir sína Kristíaníu og Islendingar fyrir- bæri eins og Læragjá að nætur- þeli. Nýlega fóru Danir að nema Dale Carnegie fræði af íslendingum. Námskeið eru haldin m.a. í ræðu- IÆ f llÁ|f AfHhAK Framhaldssaga eftir Mariu Lang | wj ■ I II lf III wj I Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzka 13 Persónur sögunnar> Fimm af yngri kynslóðinni, þar af einn morðingi og annar verður fórnarlamb morðingj- ansi Judith Jernfelt Matti Sandor Klemens Klemensson BKO Roland Norell Nanna-Kasja Ivarsen og tvær miðaldra fraukar sem eru mikilvæg vitnii Helena Wijk Lisa Billkvist og læknir og yfirlögreglu- þjónn sem hafa ólíkar skoðan- ir á morðmálinui Daniel Severin Leo Berggren ásamt með lögregiuforingjan- um sem dregst inn í málið í nokkur dægur áður en glæpur- inn fyrnisti Christer Wijk. — Ég hef fengið algera söfnunardellu á scinni árum. í hvert skipti sem við komum í höfn fer ég að leita að líkjör- merkjum sem ég á ekki fyrir. — Safnarðu bara líkjör? Ekki koníaki eða rommi eða einhverju svoleiðis? — Einhvers staðar verður maður að setja mörkin. Og líkjörflöskurnar eru skcmmti- legastar. Oft sniðugar í laginu og mikil litadýrð. En nú hafði Lisa Bilikvist dregið skóna á fætur sér og var ferðbúin og Ilelenu gafst ekki tóm til þess að skoða pínuflösk- urnar nánar. Skömmu síðar sat hún í næstu íbúð sem var um flest ólik íbúð vinkonu hennar og umfram allt vantaði þann heimilislega þokka sem hvíldi yfir öllu sem Lisa kom nálægt. Þær sátu þarna og snæddu eggjaköku og lifur. Eggjakak- an var bragðgóð og hafði matseldin á allan hátt tekizt hið bezta — enda var hún dugleg við margt hún Nanna Kasja. Hún var liðlega þrítug og hin mesta prýðishúsmóðir. Hún var í svörtum kjól og liturinn undirstrikaði Ijóst hárið og heilbrigðan hörunds- litinn. Ivarsen sölustjóri, sem var hclmingi eldri en eiginkon- an. hafði verið lukkunnar pamfill þegar hún snerist til fylgilags við hann. Enda þótt hún talaði óneitan- lega eins og hún fengi borgað fyrir það. Sérstaklcga þegar hún var óstyrk — og það var hún sýnilega þetta sunnudags- kvöld — því að hún talaði án afláts. samhengis- og meining- arlaust um allt mögulegt sem ekkcrt kom gestum hennar við. Hún talaði um heilsulausa móður sína og þrcytandi öku- ferðir með rútubílum til Halle- fors að heimsækja hana. Og allar æfingarnar sem kirkjukórinn hafði haldið f tilefni af andláti hans hátign ar. Um Zacharías gamla Ivarsen sem hafði dregið fána Móbakka í hálfa stöng og hafði síðan gengið inn. lagzt upp í rúm og fengið hjartaslag alcinn og yfirgefinn. Um jarðarför sem ekki var ha'gt að skipulcggja fyrr en Ivar kæmi heim frá París og tæki ákvörðun um hvað ætti að eyða miklu í útförina og hvað a-tti að standa í dánartilkynn- ingunni. Hvort hún ætti að setja slör á sorgarhattinn eða ekki. Og hvar hún ætti að kaupa hattinn — í hattabúð Ainu Löfgrens eða hjá Ek eða kannski bara hjá Thela Blohm? — Það er hún sem saumaði flauelshattinn fyrir þig, Ile- lena. Hann er svo afskaplega smekklegur og þú ert ánægð með hann... Jú. frú Wijk viðurkenndi að svo væri sannarlega. Svo upp- götvaði hún allt í einu að hún hafði ekki heyrt nema öriftið brot af allri romsunni í Nönnu Kösju og að tíminn hafði flogið áfram og nú var tími til að fara. Hún reis upp og ætlaði fram á snyrtiherbergið. en nam

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.