Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978 Sjálfheldan í Líbanon alger Suður-afrísku veiðimennirnir á myndinni börðust við þennan geysistóra hvíta hákarl í fimm tíma áður en þeim tókst að draga hann í land í höfninni í Gordon’s Bay skammt frá Höfðaborg. Lausn fengin á Namibíudeflunni Beirút. 13. júlí. Reuter. SPENNAN í austurhverfum Beirút rénaði nokkuð í dag Þegar þangað voru sendir líbanskir lögreglumenn en engin leið finnst út úr þeim pólitísku ógöngum sem líbanska bjóðin er komin í. Lögreglumennirnir tóku sér stöðu á götum hverfisins Shrafiyeh, eins helzta vígis kristinna hægrimanna og sýrlenzkum hermönnum var fækkað umhverfis hverfiö: Þar geisuðu einhverjir hörðustu bar- dagarnir í síöustu viku. Forseti líbanska þingsins Kamel Al-Asaad lét í Ijós svartsýni þegar hann kom aftur til Beirút frá Damaskus þar sem hann ræddi ástandið viö sýrlenzka leiötoga. „Ég hef ekkert nýtt að segja ykkur. Viö erum aö leita lausnar á óleysanlegu vandamáli." Hótun Elias Sarkis forseta um að FAO send- ir matvæli til Víetnam Róm, 13. júlí — Reuter MATVÆLASTOFNUN Samein- uðu Þjóðanna hefur ákvcðið að senda matvæli að upphæð 2,74 milljónir dala eða rúmlega 712 milljónir ísl. kr. til kambódískra flóttamanna í Víetnam, og heimil- islauss fólks á landamærasvæðun- um, að því er áreiðanlegar fregnir herma. í Matvælasendingunni cru m.a. rúmlega fimm þúsund tonn af hvciti, 540 tonn af eggjahvítu- ríkri fa>ðu og grænmetisolía. Ákvörðunin um matvælasend- inguna var samþykkt í Róm af aðstoðarframkvæmdastjóra FAO, Edouard Saouma. 1976 — Carter tilnefndur forsetaefni demókrata. 1965 — Stevenson bráðkvadd- ur á götu í London. 1958 — Stjórnarbylting í Bagdad: Feisal íraksk.onungur, ríkisarfinn og Nuri-es-Said for- sætisráðherra vegnir og Huss- ein konungur verður þjóðhöfð- ingi arabísks sambandsríkis. 1934 — Olíuleiðslan frá Mosul til Tripoli opnuð. 1933 — Þýzkir stjórnmála- flokkar bældir niður. 1900 — Liðsafli stórveldanna tekur Tientsin í Kína. 1853 — Bandaríski flotafor- segja af sér átti þátt í því aö fimm daga bardagar sýrlenzkra hægri- manna og vopnaöra kristinna manna hættu þegar um 200 voru fallnir. Forsetinn stendur enn við hótunina þótt fulltrúar erlendra ríkja og líbanskir stjórnmálaleiðtogar hafi grátbeöiö hann aö halda áfram störfum þar sem óttazt er aö afsögn hans geti komiö af staö nýjum blóðsúthellingum. Hins vegar gætir vaxandi óþolin- Framhaid á bis. 19 30 gæzlu- hermenn herfangar Metullah ísrael 13. júlí. Reuter PALESTÍNSKIR skærulið- ar tóku um 30 friðargæzlu- hermenn Sameinuðu þjóð- anna til fanga á Miðjarðar- hafsströnd Suður Líbanons í gærkvöldi að sögn gæzlu- hermanna í dag. Gæzluhermennirnir sögðu óbreyttum borgurum að nokkrir nepalskir her- menn friðargæzluliðsins hefðu særzt í skothríð Palestínumanna í Taibe og að þeir hefðu verið fluttir í sjúkrahús í Naquora. ’ Nánari upplýsingar fengust ekki hvorki um særðu hermennina né þá sem voru teknir til fanga. inginn Perry stígur á land í Tokyo. 1789 — Franska stjórnarbylt- ingin hefst með árásinni á Bastilluna. 1544 — Hinrik VIII af Eng- landi fer til Calais til að taka þátt í innrás Karls V keisara í Frakklandi. Afmæli dagsinsi Jules Maza- rin franskur stjórnskörungur (1602—1661) — Irving Stone bandarískur skáldsagnahöfund- ur (1903— ) — Terry Thomas brezkur leikari (1911— ) — Gerald Ford fv. forseti Banda- ríkjanna (1913— ) New York 13. júlí — AP. SKÆRULIÐAR blökkumanna hafa loks samþykkt áætlun vest- rænna rikja um sjálfstæði Suð- vesturAfríku sem Suður Afríku- stjórn samþykkti fyrir sjö vikum 29% Breta með EBE Briissel 13. júlí — AP. Stuðningsmönnum aðildar Bretlands að Efnahagsbanda- laginu hefur fækkað í 29% og þeir hafa aldrei verið eins fáir síðan skoðanakannanir um stuðning Breta við EBE hóf- ust fyrir sjö árum samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnun- ar er birtar voru í dag. Sköðanakönnunin gefur einnig til kynna að aðeins um helmingur brezkra kjósenda sé ákveðinn í að taka þátt í beinum kosningum til Evrópu- þingsins á næsta ári. I síðustu skoðanakönnun um stuðning Breta við EBE í fyrrahaust voru 35% fylgjandi aðildinni að bandalaginu. Síð- an hafa deilur Breta við bandalagið harðnað í fiskveiði- málum og öðrum málum og aðildin hefur orðið æ meira hitamál í innanlandsstjórn- málum. Innlenti Hringvegurinn tek- inn í notkun 1974 — Reglugerð um 50 mílna fiskveiðilögsögu 1972 — Ólafur Jóhannesson myndar vinstri stjórn 1971 — Varðskipiö „Ægir“ kemur 1929 — D. Jón Sigmundsson 1212 — F. Björn M. Olsen 1850. . Orð dagsins. Ef Rómverjar hefðu verið neyddir til að læra latínu hefðu þeir ekki haft tíma til að leggja undir sig heiminn — Heinrish Heine, þýzkt skáld (1797-1856). og nú kemur málið til kasta Öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna. Samþykki skæruiiða getur lcitt til skjótrar lausnar á deilu sem hefur staðið f rúma þrjá áratugi um framtfð Suðvestur Afríku. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir kosningum. sem Suður-Afríkumenn stjórna og verður undir eftirliti SÞ, og sjálfstæði landsins að kosningun- um loknum. Samstarfsnefnd Bandaríkjanna, Kanada, Bretlands, Frakklands og Vestur-Þýzkalands fékk áæltunina samþykkta á öðrum degi „hrein- skilinna og alúðlegra" viðræðna við blökkumannasamtökin Barcelona, Tarragona, 13. júlí, AP, Reuter. Aðstoðarheilbrigðismálaráð- herra Spánar, Jose de Palacios y Carvajal. sagði í dag að telja mætti öruggt að um 120 fórnar- lömb gassprengingarinnar miklu á austurströnd Spánar ættu enn eftir að láta lífið af völdum brunasára nokkra næstu daga. Reynist ráðherr- ann hafa á réttu að standa verður tala iátinna um 300. „Ég er á þeirri skoðun að þetta sé versta tilfelli sinnar tegundar í heimssögunni" er haft eftir lækni við Barcelona- sjúkrahús þar sem viðbúið er að- um 50 manns muni látast á næstu sex dögum. Hann sagði að svo til allir þessir sjúklingar hefðu þriðjastigs brunasár um allan líkamann og væri að öllum jafnaði lítil von fyrir fólk sem misst hefði meira en sextíu prósent af skinni sínu. I þessu tiltekna sjúkrahúsi vinna nú um 20 læknar hörðum höndum við að reyna að bjarga því sem bjargað verður. Flestir SWAPO undir forystu Sam Nujoma í Luanda Angola. í sameiginlegri fréttatilkynn- ingu sagði að nokkur atriði tillagna fimmveldanna hefðu verið útskýrð og að sendinefndirnar hefðu að svo búnu fallizt á að vísa málinu til Öryggisráðsins. Kurt Waldheim framkvæmda- stjóra SÞ var skýrt frá árangri viðræðnanna. Samkvæmt áreiðan- legum heimildum vilja fimmveldin að Öryggisráðið samþykki ályktun þar sem þess verði farið á leit við Waldheim að hann semji skýrslu um leiðir sem hann geti farið til að hrinda tillögunum í fram- kvæmd nú þegar báðir aðilar hafa samþykkt þær. sjúklinganna munu vera á lyfj- um en ekki í sáraumbúðum. Er þeim haldið í litlum herbergjum með sótthreinsuðu lofti og geta skyldmenni rætt við þá í síma og séð þá gegnum litlar rúður. Sumir þeirra er lifðu munu vera eins illa leiknir og þeir er fórust í sprengingunni. Geta sumir hreyft sig og einn eða tveir hafa fótavist. „Það er ekki margt sem við getum gert til að hjálpa þeim nema að láta fara vel um þá“ sagði læknirinn Banuelos. Hann sagði að flestir sjúklinganna fyndu ekki til kvala þar sem taugar þeirra hefðu skemmst mjög illa í brunanum. Sjö börn munu vera á sérstakri deild, en aðeins eitt þeirra eða tvö eiga sér lífsvon. Tuttugu og sex sjúklinganna eru Frakkar, sex Þjóðverjar, þrír Hollendingar, fimm Belgar og tíu Spánverjar. Langar biðraðir skyldmenna og aðstandenda gengu framhjá um 150 líkum úr sprengingunni í dag og reyndu að bera kennsl á þau, en mörg þeirra eru óþekkjanleg. Aspiringetur hindrað slag Baston 13. júlí — AP HÆFILEGUR daglegur skammtur af aspirini getur stórum dregiö úr líkum á pví að karlmenn fái slag samkvæmt niðurstöðum athug- ana kanadískra laekna. Læknarnír komust að Þeirri níðurstöðu að slagtilfelli voru 48% undir meðallagi hjé karl- mönnum sem tóku aspirin. Hins vegar kemur aspirin ekki í veg fyrir að konur fii slag en lækn- arnir kunna enga skýringu ó pví. Margar uppgötvanir hafa verið gerðar að undanfömu um gagn- semi aspirins svo að áhrifamáttur lyfsins gegn hjarta- og æðasjúk- dómum er aöeins sú síðasta í rööinni. Aspirin dregur auk þess úr sársauka, hita og liðabólgu. Læknar í Boston sögöu í fyrra að aspirin kæmi í veg fyrir blóðtappa í sjúlkingum sem gang- ast undir skurðaðgerð. Önnur rannsókn benti til þess aö aspirin gæti komið í veg fyrir hjartaáfall. Sjúklingarnir, sem tóku þátt í rannsóknum kanadísku læknanna, tóku eina aspirlntöflu á dag í sjö ár. Yfirmaöur rannsóknarinnar Henry J.M. Barnett frá háskólan- um í Vestur-Ontario, sagöi hins vegar að minni skammtur gerði sennilega sama gagn. í ritstjórnargrein í „Medical Journal" segir að þessi uppgötvun geti hæglega orðið til þess aö segja mætti aö „aspirin á dag bægir slaginu frá!“ Flestum er óhætt að taka aspirin en lyfið getur valdið ertlngu og blæöingu í fólki sem er slæmt í maga einkum þeim sem eru með magasár. Sumt fólk hefur ofnæmi fyrir aspirini. . Þetta gerðist Vonlaus barátta fórnarlamba við dauðann á Spáni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.