Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR H JULÍ 1978 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Kennara vantar aö Grunnskólanum Eyrabakka. Gott hús- næöi fyrir hendi. Upplýsingar hjá Óskari Magnússyni skóla- stjóra sími 99-3117 Starfskraftur óskast Viljum ráöa vanan starfskraft til gagna- skráninga nú þegar eöa sem fyrst. Upplýsingar í síma 54344. Reiknistofa Hafnarfjarðar h.f. Reykjavíkurvegi 60. Skrifstofa í Hafnarfirði óskar eftir starfskrafti til almennra skrif- stofustarfa hálfan daginn. Umsóknum meö upplýsingum um menntun, og fyrri störf sendist Mbl. fyrir 21. þ.m. merkt: „Skrifstofustarf — 8887“. Staða skólastjóra og nokkrar kennarastöður viö grunnskóla Borgarness eru lausar til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 20. júlí 1978. Umsóknir sendist formanni skólanefndar Jóni Einarssyni, Berugötu 18, Borgarnesi. Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri Lausar stööur: 1. Staöa hjúkrunarforstjóra, 2. staöa kennslustjðra viö Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri eru lausar til umsóknar. Umsókn- arfrestur er til 15. ágúst n.k. en stöðurnar veröa veittar frá 1. okt. n.k. Laun skv. launasamningi Hjúkrunarfélags íslands viö Akureyrarbæ. Umsóknir berist til stjórnar Fjóröungs- sjúkrahússins á Akureyri og greini aldur, menntun og fyrri störf. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu framkvæmdastjóra í síma 96—22100. Stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Ritari Óskum aö ráöa nú þegar ritara. Góö vélritunar- og enskukunnátta áskilin. Upplýsingar gefur skrifstofustjóri, — ekki í síma. HEKLA hf. Laugavegi 170—172 — Simi 21240 Skrifstofustarf Hollywood óskar aö ráöa starfskraft til skrifstofustarfa. Vinnutími kl. 9—1. Umsækjendur þurfa aö hafa reynslu í skrifstofustörfum, s.s. vélritun, launaút- reikningum og enskum bréfaskriftum. Þeir sem áhuga kunna aö hafa á starfinu vinsamlega sendiö upplýsingar um aldur og fyrri störf, ásamt nafni, heimilisfangi og símanúmeri, til augld. Mbl. Merkt: „Hollywood — 7579“. Skrifstofumaður óskast nú þegar til starfa aö vélritun og öörum skrifstofustörfum. Þarf aö geta vélritaö á dönsku, ensku og þýzku. Stúdentspróf æskilegt. Nánari upplýsingar í skrifstofu verkfræö- ingafélags íslands í Brautarholti 20, Reykjavík, á venjulegum skrifstofutíma. Verkfræðingafélag ísiands. Atvinna Stórt iðnfyrirtæki á Noröurlandi, vill ráöa til starfa nú þegar, tæknifræöing eöa Sam- vinnuskóla/ Verzlunarskólamenntaöan mann. Verksvið: umsjón meö daglegum rekstri einnar deildar, ásamt framleiösluskipulagn- ingu og innkaupum. Mögulegt er aö útvega húsnæöi, ef á þarf aö halda. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist á afgr. Mbl. merkt: „Noröurland — 7576“. Húsgagnasmiðir Trésmiðir Innréttingasmiöi og húsgagnasmiöi vantar strax á verkstæöi, mjög mikil vinna framundan, fyrir góöa menn. Gott kaup í boöi fyrir mjög góöa menn. Upplýsingar gefur Guöjón Pálsson, í síma 44866. Trésmiðja Austurbæjar, Smiöjuvegi 3, Kópavogi. Stúlka óskast sem fyrst til afgreiðslu í tískuverslun í miðbænum, hálfan eöa allan daginn. Þarf aö hafa ensku- og vélritunarkunnáttu. Tilboö sendist Mbl. merkt: „Ábyggileg — 7547“. Markaðurinn Járniðnaðarmenn óskast Viljum ráöa járniönaöarmenn. Upplýsingar í síma 86199. Vélsmiðja Orms og Víglundar s.f. Lágmúla 9. Suðumaður óskast Viljum ráöa til okkar mann, vanan kolsýru- suöu. Upplýsingar í síma 83470. Bílavörubúðin Fjöðrin hf. Grensásvegi 5. Aðstoð á hárgreiðslustofu Starfskraftur óskast til aöstoöarstarfa á hárgreiöslustofu, hálfan eöa allan daginn, helst ekki yngri en 25 ára. Þarf aö geta byrjaö sem fyrst. Upp. sendist í pósthólf 5061, Reykjavík. Skipstjóra og stýrimann vantar á stóran skuttogara. Tilboö, ásamt uppl. um fyrri störf, aldur og réttindi, leggist inn á afgreiöslu blaösins fyrir 22. júlí n.k. merkt „skuttogari — 7578“ Atvinnurekendur Ég er 21 árs maöur meö Verslunarskólapróf og nokkra reynslu í almennum skrifstofu- störfum. Mig vantar vinnu á Reykjavíkur- svæöinu frá og meö 1. sept. n.k. helst viö verslunar- og þjónustustörf. Er til viötals á kvöldin og um helgar í síma 96—44146, Benedikt. Niðurlagið féll niður í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær, þar sem rætt var við Gunnar Flóvenz, framkvæmdastjóra Síldarútvegsnefndar, urðu þau mistök að niðurlag fréttarinnar féll niður og birtist það hér á eftir. Hinn 20. júní s.l. hringdu fulltrúar Framleiðslueftirlitsins og SÚN frá Finnlandi og skýrðu þá lASÍMÍNN ER: 22410 (05 3H«t-0«nb!afcib m.a. frá því aö síldin hjá þessum tveimur fyrirtækjum væri geymd við alltof hátt hitastig eða 10—14 gr. C. Var þá strax óskað eftir því við fulltrúa Framleiðslueftirlitsins og Síldarútvegsnefndar að um- ræddum tveimur finnskum síldar- kaupendum yrði tafarlaust til- kynnt að algjörlega óforsvaranlegt væri að geyma síld frá s.l. ári við þetta hitastig. Eðlilegast væri að geyma fullverkaða síld í kælihús- um, þar sem hiti væri 1—4 gr. C og þegar færi að vora mætti hiti á svona gamalli síld ekki vera meiri en 1—2 gr. C. Benda yrði viðkomandi kaupendum á, að skemmdirnar væru algjörlega á þeirra ábyrgð og að koma yrði síldinni tafarlaust í kæligeymslu með réttu hitastigi, ella myndi öll síldin eyðileggjast á skömmum tíma. Var þessum skilaboðum þá þegar komið til viðkomandi kaup- enda. Þá sagði Gunnar Flóvenz, að fyrir síðustu helgi hefði Síldarút- vegsnefnd borizt ítarleg skýrsla frá Framleiðslueftirliti sjávar- afurða um umrædda skoðun í Finnlandi og kæmi þar m.a. fram að umræddir tveir kaupendur hefðu upplýst að orðið hefði vart við enn fleiri tunnur með „seigum pækli" og súrri síld. í skýrslunni segði orðrétt: „Það eina sem við sjáum raunverulega athugavert er hið háa hitastig, sem sildin var geymd við í Fihnlandi. Hitastig mældist hærra hjá báðum fyrir- tækjunum heldur en forráðamenn þeirra gáfu upp áður en farið var í geymslurnar eða frá 10—14° C. Við slíkan hita getur létt verkuð síld skemmst á mjög stuttum tíma.“ „Síldarútvegsnefnd lítur mjög alvarlegum augum á þessi mistök hjá hinum tveimur firinsku kaup- endum og bendi ég á, að engar kvartanir hafa borizt frá öðrum finnskum kaupendum, þar sem síldin hefur verið geymd við betri geymsluskilyrði,“ sagði Gunnar Flóvenz að lokum. Mikill fiskur til Ólafsvíkur Ólafsvík 13. júlí VEL hefur aflazt í öll veiðarfæri í blíðunni undanfarnar tvær vikur. Um síðustu helgi bárust yfir 120 lestir til hraðfrystihússins og var það afli af bátum. í fyrradag landaði svo skuttogarinn Lárus Sveinsson 110 lestum og hefur gengið allvel hjá honum að undanförnu. Mikii atvinna er nú í hraðfrysti- húsinu og eru frystigeymslur þess að fyllast. Saltfiskstöðvarnar vinna einkum að pökkun á saltfiski en fá auk þess nokkuð af fiski til vinnslu. Helgi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.