Morgunblaðið - 14.07.1978, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978
11
Waddill en dómendur gátu samt
ekki komið sér saman um það.
Aldrei áður hafði það gerst eftir
margra vikna hlé á réttarhöldum
að kviðdómi væri sagt að breyta
skilgreiningunni á dauða. Þá hafði
það ekki gerzt áður í Kaliforníu að
læknir væri ákærður fyrir brot á
lögum um misþyrmingu á barni og
morð í senn.
Kviðdómurinn horfist því í augu
við mikinn vanda, þegar réttar-
höldin verða tekin upp að nýju.
Hann verður að úrskurða hvort
heili „Weaver-stúlkubarnsins"
eins og fóstrið hefur verið kallað,
hafi starfað. Ákvörðunin verður
ekki auðveld. Heilasérfræðingur
nokkur hefur til dæmis lýst því
yfir, að þegar saltupplausn sé
notuð til fóstureyðingar valdi hún
slíkum heilaskemmdum á fóstrinu
og heilinn verði næstum ef ekki
algerlega óstarfhæfur. „Samt
barðist barnið við að ná andanum
og grét,“ segja hjúkrunarkonur.
Hver svo sem úrskurður kvið-
dómsins verðúr og hvort sem Mary
Weaver fær 17 milljónir dala í
skaðabætur eða ekki, þá er aug-
ljóst að mál þetta hefur mikil
áhrif í heimi læknavísindanna og
á viðhorf fólks til frjálsra fóstur-
eyðinga. Sjúkrahús vítt og breitt
um Bandaríkin hafa hert mjög
eftirlit með fóstureyðingum. Mörg
sjúkrahúsanna hafa endurbætt
öndunartæki sín til að koma í veg
fyrir að það sama gerist og í
Weaver-málinu.
Hópar andvígir fóstureyðingar-
löggjöfinni notfæra sér þetta mál
þó óspart og benda á það, að þegar
saítupplausn er notuð við fóstur-
eyðingu fæðist barn oft lifandi til
þess eins að verða síðan drepið.
Hæstiréttur Bandaríkjanna úr-
skurðaði 1973 að fyrstu tólf vikur
meðgöngutímans væri konum það
í sjálfsvald sett hvort þær létu
eyða fóstri. Eftir þann tíma geta
yfirvöld í ríkjum Bandaríkjanna
fyrirskipað vissar takmarkanir en
í Kaliforníu eru engin ákvæði um
slíkt.
Fáir læknar munu hætta á að
eyða fóstri eftir 24 vikna með-
göngu. Dr. Waddill hefur þegar
viðurkennt að hafa ranglega álykt-
að að Mary Weaver væri komin 23
vikur á leið. En meginákæra
stúlkunnar er sú að læknirinn hafi
logið að sér um lengd meðgöngu-
tímans.
Ákvæði um frjálsar fóstureyð-
ingar hafa þegar verið hert í
vissum fylkjum í Bandarikjunum
og í mörgum öðrum, þ.á m.
Kaliforníu, eru uppi tillögur um
slíkt.
„Verði dr. Waddill fundinn
sekur,“ skrifaði þekktur fæðingar-
læknir, „mun það fá alla lækna og
hjúkrunarkonur i Bandaríkjunum
til að hugsa sig tvisvar um áður en
fósturlát er framkvæmt...“
H.Þ. tók saman.
hverfum Lundúnaborgar til að
bjarga sér í nokkra daga á eigin
spýtur úti i náttúrunni. Það þarf
varla að minna forystumenn B.I.S.
á, að þetta var upphafið að
fjölmennustu og ég leyfi mér að
segja beztu æskulýðshreyfingu
heims.
Með skátakveðju,
Ólafur B. Halldórssoh.
ritari
Skátafélagsins Einherja,
Isafirði.
AUGLÝSIIMG ATEIK NISTOFA
MYNDAMÓTA
Aðalstræti 6 sími 25810
Sævar og
Jón L. með
4 vinninga
SÆVAR Bjarnason gerði jafntefli
við Rohde frá Bandaríkjunum í
fimmtu umferð opna skákmótsins
í New York og Jón L. Árnason
vann Meyer frá Bandaríkjunum.
Eftir 5 umferðir er Rohde efstur
með 4 xk vinning og Sævar og Jón
koma næstir ásamt fleiri skák-
mönnum, þar á meðal Benkö, með
4 vinninga.
Næstur Islendinganna er Bragi
Halldórsson sem vann sína skák í
5. umferð og er með 3 vinninga.
Guðni Sigurbjarnason er með 2'/2
vinning en hann gerði jafntefli í
fimmtu umferð, Jóhannes Gísla-
son og Ásgeir Þ. Árnason eru með
tvo vinninga, en Jóhannes gerði
jafntefli en Ásgeir tapaði sinni
skák í fimmtu umferð. Margeir
Pétursson er með 1 '/1 vinning en
hann tapaði fyrir Pavlovich frá
Júgóslavíu í fimmtu umferðinni.
Sex umferðir eru eftir.
Guðmundur
í 2.—3. sæti
GUÐMUNDUR Sigurjónsson er
nú í 2—3. sæti á skákmótinu í
Esbjerg ásamt Mestel og eru þeir
með 3'/2 vinning eftir 5 umferðir,
en Larsen er með 4 vinninga og
biðskák sem Guðmundur sagði i
gærkvöldi að hann myndi líklega
vinna og verða þá með „fullt hús“.
í fjórða sæti er Farintos með 3
vinninga og biðskák.
Guðmundur tefldi við Danann
Jens Christiansen í 4. umferð og
lauk skákinni með jafntefli og í
fimmtu umferð vann Guðmundur
Norðmanninn 0gaard. Guðmund-
ur hefur þá hlotið 3'/2 vinning úr
síðustu fjórum umferðum en hann
tapaði fyrir Mester í fyrstu
umferð.
Umferðirnar verða 13.
Fálkinn í fararbroddi
(Ceittei
€
30 ORIGINAL DISCO HITS
Moody Blues
Þá eru þeir loksins byrjaðir aftur og
hafa aldrei verið betri og ferskari en
einmitt nú.
Andy Gibb
Einn þeirra Bee Gees bræðra meö
sína aðra breiöskífu, sem er enn
betri en sú fyrri og trjónar nú í efstu
sætum vinsældalista um heim allan.
ftáxx**
Hí-Tensí"on, Let’s Afl Chant, Whot'iYour Name
Mov&Yovr Body, Emotions, Native NewYbrker
- Greatest Party Albvm fver!
Disco Double
Ný frábær tvöföld plata frá K-tel með
Abba, Baccara, Hot Chocolate, Barry
White, Samantha Sang o.fl. o.fl.
l'HE ALBION BAND
Tom Petty and The Graham Parker
Heartbreakers
Tom Petty er einn athyglisverðasti
tónlistamaöurinn sem komið hefur
fram í Bandaríkjunum lengi. Hann
sameinar „west-coastrock“ og
„nýbylgjurock" á frábæran hátt.
Ein af mögnuðustu hljómleikaplötum
sem út hafa komið í langan tíma.
Nýbylgjutónlist í sérflokki.
The Albion
Þegar 9 af bestu „folkrock11 tónlistar-
mönnum Bretlands koma saman
getur útkoman ekki orðið nema á
einn veg; FRÁBÆR!
Darkrsosa
;orj ths 2'
.ot. Toívn
Meistari Dylan með nýja plötu sem
gagnrýnendur keppast hver um
annan þveran að dásama.
Bruce Springsten. Bob Seger
Þegar Bruce Springsten kom fram
var hann talinn bjartasta von banda-
rískrar rocktónlistar og þessi plata
sannar að hann var traustsins
verður.
Ef þú ert Eagles aðdáandi og ert
þreyttur á að bíða eftir plötum frá
þeim þá bjóöum viö þig velkominn í
verslanir okkar að hlusta á Seger,
þar sem honum svipar um margt til
þeirra, enda aðstoöa þeir hann á
þessari plötu.
Versliö þar sem úrvalið er mest.
Sendum í póstkröfu samdægurs um land allt.
Heildsölubirgðir fyrirliggjandi.
FALKINN
Suðurlandsbraut 8
Sími 84670
Laugavegi 24
Sími 18670
Vesturver
Sími 12110