Morgunblaðið - 14.07.1978, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978
13
Dæmdir fyrir
að smygla f ólki
Austur-Berlín, 13. júlí — Riemann hefði verið dæmdur í
Reuter. átta ára fangelsi og hinn, Reinhold
TVEIMUR Vestur-Þjóðverjum Lehner til sjö ára fangavistar í
heíur verið stungið í tukthús réttarhöldum í bænum Schwerin í
fyrir tilraunir til að smygla fólki síðustu viku.
írá A-Þýzkalandi yíir landamær Voru mennirnir sagðir v-þýzkir
in til V-Þýzkalands, að sögn glæpamenn og aðeins tveir margra
opinberu ADN fréttastofunnar í slíkra manna sem handteknir hafa
A-Berlín í dag. verið og dæmdir af a-þýzkum
Skýrði fréttastofan ennfremur yfirvöldum fyrir svipað athæfi það
frá því að annar mannanna, Dieter sem af er þessu ári.
Friðarfundir
í undirbúningi
Salzburg, Jerúsalem, 13. júlí, AP.
SADAT Egyptalandsforseti og Ezer
Weizman, varnarmálaráðherra
ísraels, komu f dag saman til
fundar á hóteli f grennd við
Salzburg. Talið var að Weizman
Veður
víða
um heim
Amsterdam 21 aólakin
Apena 37 sólskin
Berlin 23 heiðskírt
BrUasel 15 sólskin
Chicago 25 rtgning
Frankfurt 23 skýjað
Genf 25 sólskin
Helsínki 17 •kýjeð
Jóhannesarb. 15 sólskin
Kaupmannahöf n 17 skýjað
Lissabon 25 sólskin
London 20 •kýjað
Loa Angelea 29 heiðskýrt
Madríd 32 sólskin
Malaga 26 I f
Miami 30 akýjað
Moskva 22 sólskin
New York 29 heiðskýrt
Ósló 21 Palma Mallorca 28 skýjAþ iétfmcýjað
París 21 1 i
Reykjavík 10 akýjað
Róm 29 sólskin
Stokkhólmur 20 skýjað
Tol Aviv 29 sótskin
Tokyó 32 sólskin
Vancouver 22 léttskýjað
Vínarborg 27 sólskin
myndi sfðan eiga viðræður við
varnarmálaráðherra Egypta,
Abdul Ghani el Gamassy, og utan-
rfkisráðherrann, Ibrahim Kamel.
För Weizman til Austurrfkis bar
mjög óvænt að og talaði hann ekki
við fréttamenn hvorki fyrir né eftir
komuna þangað. Weizman hitti
Sadat að máli f Fuschl, þar sem
Sadat ver leyfi sfnu í svonefndu
Kastalahóteli. Talið er að viðræður
þessar séu haldnar til undirbúnings
fundi Dayans, utanríkisráðherra
ísraels, Kamels og Vance, utan-
rfkisráðherra Bandaríkjanna, f
el-Arish á Sinaiskaga.
Það kom fram hjá ísraelska
utanríkisráðherranum, Dayan, i dag
að hann eygði nokkra möguleika á
samkomulagi Egypta og ísraels-
manna nú eftir að þjóðirnar báðar
hafa sett fram skýrt afmarkaðar
tillögur sínar. Dayan færðist hins
vegar undan því að staðfesta fregnir
um að áðurnefndur fundur utan-
ríkisráðherranna hefði verið ákveð-
inn.
Utanríkisráðherrann vék hins
vegar að fyrirhuguðum fundi sínum
með Kamel og Vance í London 18.
og 19. júlí n.k. og sagði að fundur sá
hefði verið ráðgerður að frumkvæði
stjórnvalda í Washington, sem ætla
mætti að þýddi að Egyptar heföu
þegar gefið samþykki sitt. Hann
sagði að á fundi þessum myndi
væntanlega verða rætt um þrjú
atriði einkum; tillögu ísraelsmanna
um takmarkaða sjálfstjórn til handa
Palestínuaröbum á vesturbakka
Jórdanár og Gaza-svæðis, tillögu
Egypta um að ísraelsmenn drægju
sig til baka frá þessum svæðum og
uppástungu Jórdana og Egypta um
fimm ára bráðabirgðastjórn undir
eftirliti Sameinuðu þjóðanna. Hann
sagði að enda þótt Bandaríkjastjórn
hefði fyrst vakið máls á fundinum
hefði hún, að því er hann bezt vissi,
ekki í hyggju að leggja fram eigin
friðaráætlanir.
Kínverjar hætta fjár-
stuðningi við Albaníu
Tókýó, 13. júli — AP.
STJÓRNIN í Peking tilkynnti í dag að hún mundi hætta öllum
f járhagsstuðningi við Albaníu, bæði efnahagslega og hernaðarlega, en
á síðustu 24 árum hefur hún veitt þangað fimm milljörðum
Bandaríkjadala. Ástæðan er að sögn Kínverja fjandsamleg afstaða
Albaníu í garð Kína.
Pekingstjórnin tilkynnti enn-
fremur að hún hefði ákveðið að
kalla heim alla kínverska fjár-
mála- og hernaðarsérfræðinga frá
Albaníu. Vinátta Albaníu og Kína
hefur kólnað mjög vegna aukins
hlutleysis Kínverja í alþjóða-
stjórnmálum og nánari tengsla
þeirra við Vesturveldin.
Kínverjar hafa um dagana sent
næstum sex þúsund kínverska
sérfræðinga til smáríkisins
Albaníu, að sögn Hsinhua, opin-
beru fréttastofunnar í Peking, sem
útvarpaði ákvörðun stjórnarinnar
um stöðvun fjárveitinga til
Albaníu þann 7. júlí s.l.
Fréttastofan kom með harðar
ásakanir í garð Albaníu og sagði
að Pekingstjórnin hefði ætíð virt
vináttusamband kínversku og
albönsku þjóðanna, og þrátt fyrir
fjandsamlega afstöðu stjórnarinn-
ar í Albaníu vonuðust Kínverjar
til að samskipti þjóðanna tveggja
yrðu áfram með eðlilegum hætti.
Haft er eftir vestrænum
diplómat í Belgrad að ákvörðun
kínversku stjórnarinnar geti haft
afdrifaríkar afleiðingar og búast
megi við algerum sambandsslitum
milli Albana og Kínverja með
þeim afleiðingum að ný togstreita
komi upp í kommúnistaríkjunum
að undirlagi albanskra kommún-
ista sem eru mjög róttækir.
Hsinhua fréttastofan í Peking
gaf engar nánari skýringar á
rifrildinu en sagði að Albanía
hefði í eigin hagsmunaskyni verið
með fjandsamlegan áróður í garð
Kína og reynt að grafa undan
efnahagslegu og hernaðarlegu
samstarfi milli ríkjanna.
Gorch Fock til Reykjavíkur um helgina
VESTUR-ÞÝZKA skólaskipið Gorch Fock er væntanlegt í heimsókn
til Reykjavíkur um helgina, en ekki er Mbl. kunnugt um hve lengi
viðdvölin verður, þar sem áætlun skipsins hafði ekki borizt v-þýzka
sendiráðinu í gærkvöldi. Myndin hér að ofan var tekin af Gorch Fock
fyrir nokkrum árum, en skipið hefur áður komið til íslands og bæði
haft viðkomu í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri.
Skák tefld
í fomöld?
Moskvu. 12. júlí — AP.
SOVÉZKIR fornleifafræðing-
ar hafa uppgötvað að skák
hafi verið tefld ( fornöld með
mönnum úr leir og steini, að
því er fréttastofa Sovétmanna,
Tass, scgir í dag.
Vadim Mason fornleifafræð-
ingur í Leningrad hcfur grafið
úr jöfðu og komið á sýningu 8
þúsun ára gömlum taflmönn
um sem fundust í Turkmeníu
í Sovétríkjunum skammt frá
írönsku landamærunum. Tass
segir að vísindamaðurinn sé
„ekki í ncinum vafa um að
taflmennirnir séu ófalsaðir
þótt fyrst sé getið um skák í
rituðu máli á 6. öld eftir
Krist“. Sumir mannanna eru
höggnir til eða útskornir.
Barninu
heilsast vel
STÚLKAN sem Varnarliðið
flutti í skyndi til Bretlands fyrr
í vikunni hafði eignast barn á
Landspítalanum 30. júní s.l. þar
sem barnið var tekið með
keisaraskurði og heilsast því vel,
en móðirin liggur nú í sjúkra-
húsi í Aberdeen þar sem hún
þurfti að ganga undir sérstæða
aðgerð.
Það kemur fyrir að skipverjar á rannsóknaskipinu Arna Friðrikssyni þurfi að sinna öðrum störfum en
fiskileit og rannsóknastörfum. Þessa mynd tók óskar Sæmundsson fyrir stuttu þegar skipverjar á Árna
Friðrikssyni voru að skera úr skrúfu vélbátsins Sandgerðings frá Sandgerði. Þeir scm köfuðu niður og
skáru úr skrúfunni voru þeir Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræðingur og Kjartan Thors jarðvegsfræðingur.
Sumar, sumar, sumar og sól
Grasteppi
jafnt utan dyra sem innan
Þú leggur þau beint á steininn.
Tilvalið á svalagólfið, gufubaðið, tómstundaherbergið,
leikvöllinn, veröndina, baðherbergið og á sundlaugarbakkann
Hefur þú fleiri tillögur?
AUÐVELT AÐ ÞRÍFA.
LITUR DOFNAR EKKI
RENNUR EKKI TIL.
V
7ÉPPRLRND
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Grensásvegi 13. Simar S3577 og 83430.