Morgunblaðið - 14.07.1978, Side 25
25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JULÍ 1978
+ Fyrir 15 árum fékk þessi danski
náungi söfnunardellu. Hann fékk þá
flugu í höfuðið að gaman gæti verið að
koma sér upp safni flöskulykla. Árang-
urinn er sýnilegur í þess orðs beztu
merkingu, því á heimili hans hanga á
veggnum 992 mismunandi gerðir
flöskulykla. En hann á líka 29, lykla-
samstæður í þessu safni sínu. í safni
þessu getur að líta margvíslega hug-
kvæmni hönnuðanna, einkum er varðar
flöskulykla frá suðurlöndum. Eigandi
safnsins fékk um daginn tilboð í þetta
óvenjulega safn sitt, upp á 50.000
danskar krónur, en hann hafnaði því
boði, kvaðst ekki vera svo blankur um
þessar mundir.
fclk f
fréttum
Ljóðskáldið
Sophia Loren
+ Leikkonan Sophia
Loren ætlar nú að gefa út
sjálfsævisögu sína. Það
er rithöfundur að nafni
A.E. Hotohner sem skrif-
ar hana. Leikkonan hafði
á síðastliðnu ári varið
tveimur mánuðum í sam-
töl við rithöfundinn. Þar
mun birtast eftir hana
ljóð, sem hún hefur ort
um fátækleg uppvaxtarár
sín í Napolí á Italíu.
+ Þessi mynd af forsætis-
ráðherra Breta, James
Callaghan, og forseta Aust-
urríkis, Bruno Kreisky,
var tekin í London um
daginn. Fór þá fram mikil
vígsluathöfn í aðalbæki-
stöðvum brezk-austurríska
félagsins, sem vinnur að
vináttu og nánu samstarfi
þjóðanna. Hámark vígslu-
athafnarinnar var er þeir
sviptu borða af minningar-
töflunni. Kipptu þá þjóðar-
leiðtogarnir báðir svo fast,
hvor í sinn spottann að
þeir slitu töfluna niður af
veggnum!
Grindvíkingur
GK leigður til
Kolmunnaveiða
SjávarútvcKsráðunt'ytið hefur
tekift hift nýja nótaskip Grindvík-
ins GK GOfi á leinu til kolmunna-
veiða í hálfan mánuft a.m.k. Fer
Grindvíkinjíur nú til veiðitilraun-
a á kolmunna í staft rannsókna-
skipsins Iialdurs. sem átti að fara
til þessara veifta. en úr því verftur
ekki sökum seinkunar á afhend-
ingartíma Baldurs.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaöið fékk í gær, þá
átti Baldur aö vera tilbúinn úr
breytingum í marz s.l. en verkinu
hefur sífellt seinkaö. Síöast átti
skipið að vera tilbúiö 10. júní s.l.
en ljóst er að því seinkar enn um
a.m.k. 10 daga.
Þaft var helzt að frétta af
kolmunnamiðunum undan Austur-
landi í gær, að afli var frekar
tregur hjá skipunum sent þar eru,
en að sögn skipstjóranna virðist
kolmunninn nú vera að þétta sig
á ný. þannig að veiðiútlit þykir
sæmilegt.
Framkvæmdamenn
Broyt gröfur X2 — X30 og
X4 í gröft og ámokstur.
Tómas Grétar Olafsson
s/f,
Funahöföa 15,
símar 84865 — 84322
Lee Cooper mótar tiskuna - alþjóölegur tiskufatnaöur sniöinn eftir þinum smekk
þinu máli og þinum gæöakrófum
þveginn „canvas