Morgunblaðið - 14.07.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978
29
mennsku sem Islendingar kynnt-
ust í Bandaríkjunum. Gott væri ef
við gætum leitt fleiri góð mál til
Dana og kvittað þannig fyrir góða
og slæma fræðslu liðins tíma.
Bréfritari Velvakanda vakti
athygli á Svisslendingum sem
dæmi um þjóð sem langt er komin
í málefnum afbrotamanna. í Sviss
ku vera bannað að birta fregnir af
afbrotamálum segir hann. Ekki
kemur mér á óvart að læra megi
margt gott af Svisslendingum, sem
láta hina óbreyttu borgara kjósa
um afstöðu til ólíklegustu mála og
manna til að laða fram skoðanir
og viðhorf almennings til betra
þjóðfélags. Sama gera Bandaríkja-
menn í ríkara mæli en við höfum
gert hingað til. Misjafnlega full-
komnir kjörnir fulltrúar eru ekki
látnir vafstra með öll mál eins og
hér. á landi og þegar loksins er
kosið á fjögurra ára fresti eru
vandamálin orðin svo yfirþyrm-
andi að ekki verður við neitt ráðið.
Því ekki að spyrja fólkið um álit
á stærri og smærri málum meira
en gert hefur verið? Málaflokka
eins og varnarmál, vegamál, brú-
arlagningar, gengissig, bjórmál,
verndun gamalla húsa o.s.frv.
Hvers vegna ekki að mynda hina
nýju stjórnarskrá með því að
spyrja hinn almenna borgara
hvernig hann vilji að stjórnar-
skráin sé upp byggð úr því hinir
kjörnu fulltrúar voru þess ekki
megnúgir að koma fram með
breytingar á henni eins og talað
hafði verið um?
Stjórnmálamennirnir hafa
veigrað sér við að nota vaid sitt til
að ná tökum á verðbólgunni
jafnvel þótt þeir hafi haft 70%
fylgis kjósenda. Ekki má treysta á
að hinir nýju valdhafar finni
úrlausnir frekar en fyrri daginn.
Það sýnir tvístig þeirra í stjórnar-
viðræðum undanfarinna daga.
Óvissan heldur áfram svo lengi
sem almenningur er ekki látinn
taka af skarið með kosningum.
Það hefur oft sýnt sig að lýðræði
okkar er of veikt og meira aðhalds
frá almenningi sé þörf til að veita
hinum kjörnu fulltrúum brautar-
gengi. Ef við færum það bezta af
reynslu annarra þjóða upp á
aðstæður hérlendis og látum
íbúana taka af skarið í meirihluta-
kosningum þá er ekki vafi á því að
það er bezta* lausnin í landi þar
sem allir eru vel upplýstir.
S.A.“
Þessir hringdu . .
• Hraðið
stjórnarmyndun
Slík var ósk borgara er hafði
samband við Velvakanda og vildi
benda á, að mikið lægi við að
hraða stjórnarmyndun til þess að
hægt væri að ganga strax í að
ieysa þau vandamál sem hvar-
vetna blöstu við í þjóðlífinu og ef
allt ætti ekki bara að fara í strand.
— Auðvitað skii ég að vel þurfi að
huga að öllum atriðum í sambandi
við svo viðamikið og viðkvæmt
mál, sagði borgarinn, og gera þarf
nákvæma málefnasamninga milli
aðila er standa að ríkisstjórn til
þess að allt fari nú vel í samstarfi.
En mér finnst líka að vel þurfi og
hratt að vinna að því máli og ekki
megi slóra. Fram hefur komið að
cokkrar vikur líða jafnan frá
kosningum og þar til stjórn hefur
verið mynduð og tekur til starfa og
þykir það í sjálfu sér ekki
undarlegt, en mér finnst að
ríkjandi aðstæður í efnahagsmál-
um ættu að ýta nokkuð mikið á
eftir því að menn hraði sér við
þetta verkefni. Ég tek fram að
þessi ábending er aðeins sett fram
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á opnu skákmóti í Limhamn í
Svíþjóð í vor kom þessi staða upp
í skák Svíanna Harry Schiisslcrs.
sem hafði hvítt og átti leik, og
Arne Bjuhr.
til þess að lýsa mínum sjónarmið- í einn eða neinn, aðeins bent á þörf
um og sjálfsagt margra annarra, þess að hraða málum sem kostur
en ekki er verið að skammast út er.
HÖGNI HREKKVÍSI
„Annar leynifundur í Högna-sambandinu!"
S\GeA V/GGA 2 itLVt9AH
'Einmitt liturinn.
sem ég hafði hugsað mérr
„Nýtt Kópal gæti ekki verið
dásamlegri málning.
Ég fór með gamia skerminn, sem
við fengum í brúðkaupsgjöf. niður
i málningarverzlun og þeir
hjálpuðu mér að velja
nákvæmiega sama lit eftir nýja
Kópal tónalitakerfinu."
„Þaö er lika allt annaö að sjá
stofuna núna. Það segir málarinn
minn líka.
má/ninghlf
Ég er sannfærð um það, aö Nýtt
Kópai er dásamleg málning.
Sjáðu bara litinnl"
Verktakar
Ræktunarsambönd
INTERNATIONAL
TD8B
Verð 10/778 kr.12.400.000
Til afgreiðslu strax.
Fáið ykkur „nashyrning”.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
(Hvítur hótar nú einfaldlega að
skipta upp í unnið endatafl með 34.
H8b7. Svartur grípur því til
örþrifaráða): IIxd3, 34. cxd3 —
De5. 35. IIIb7+ - Kdfi. 3fi. IId8+
og svartur gafst upp, því að hann
verður mát. Svíarnir Schiissler og
Ernst urðu jafnir og efstir á
mótinu.