Morgunblaðið - 14.07.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978
31
Valur með góða forystu
eftir stórsigur í Eyjum
VALSMENN tóku afKerandi forystu í 1. deildinni í knattspyrnu þegar
þeir lögðu ÍBV að velli í Vestmannaeyjum í gærkvöldi 3.0. Þar með
hafa Valsmenn unnið 10 fyrstu leiki sína og hafa þeir nú þriggja stiga
forystu í deildinni. Með sigri sínum í gærkvöldi hafa Valsmenn jafnað
met KR-inga frá 1959 er þeir unnu alla 10 leiki sína í 1. deild og
kannski ná Valsmennirnir metinu á sunnudaginn þegar þeir mæta
Víkingum í Laugardal. Leikurinn í gærkvöldi var mikill baráttuleikur
þar sem Valsiiðið var mun betra og verðskuldaði sigur. Töluverð
harka var í leiknum en ágætur dómari Guðmundur Haraldsson hélt
ieikmönnum í skefjum en hann neyddist þó til að bóka f jóra leikmenn.
tvo úr hvoru liði. laglega niður. Einar Friðþjófsson
Eyjamenn leku undan nokkuð varnarmaður Vestmannaeyinga
• Ingi Björn sækir að marki
Eyjamanna í gærkvöldi en
Páll markvörður slær boltann
frá. Ljósm. Þórarinn Ragnars-
sterkri vestan gjólu í f.h. og hófu
leikinn á mikilli sókn að marki
Vals og fengu strax hornspyrnu og
upp úr henni átti Sveinn Sveinsson
gott skot, sem hafnaði í stönginni.
Eyjamenn sóttu mjög stíft fyrstu
mínúturnar og fengu þá fjórar
hornspyrnur á Val. Bezta mark-
tækifæri þeirra kom á 16. mínútu
þegar Sigurlás lék upp miðjuna og
gaf síðan góðan bolta á Karl
Sveinsson, sem var inni í vítateig
og Sigurður Haraldsson varði gott
skot Karls.
Fyrsta markið
Valsmenn skoruðu sitt fyrsta
mark á 27. mínútu f.h. Þá kom
mjög hár bolti frá vinstri kantin-
um inn í vítateig til Guðmundar
Þorbjörnssonar, sem tók knöttinn
STAÐAN
STADAN í 1. deild er Þessi eftir
sigur vals í gserkvöldi:
Vaiur 10 10 0 0 29—5 20
ÍA 10 8 1 1 28—10 17
Fram 10 5 1 4 13—13 11
ÍBV 10 4 2 4 14—15 10
Vikingur 10 4 1 5 18—19 9
Þróttur 10 2 5 3 15—16 9
FH 10 2 4 4 17—22 8
ÍBK 10 2 3 5 11—16 7
KA 10 1 4 5 15—25 6
UBK 10 1 1 8 9—26 3
Markhæstu leikmenn:
Ingi Björn Albertsson Val 10
Matthías Hallgrímsson ÍA 10
var í baki Guðmundar en engu að
síður tókst Guðmundi að snúa sér
við og skora með góðu skoti
framhjá Páli Pálmasyni.
Vestmannaeyingum gekk illa að
hemja knöttinn við jörðina í fyrri
hálfleik og reyndu þeir alltof
mikið langspyrnur til Sigurlásar
og Tómasar en þeim gekk illa að
vinna úr sendingunum enda vörn
Vals mjög sterk fyrir.
Síðari hálfleikur var mjög lífleg-
ur og bæði liðin léku mjög vel.
Samleikur Eyjamanna var allur
anriar og betri en í fyrri hálfleik.
Börðust þeir ákaft og reyndu allt
hvað af tók að jafna metin en
þrátt fyrir góðar tilraunir tókst
þeim ekki að skapa sér verulega
hættuleg tækifæri þar sem bæði
vörn Vals og Sigurður markvörður
stóðu sig mjög vel.
Gert út um leikinn
Leikurinn var opinn og bæði
liðin sóttu mjög. Það var svo á 14.
mínútu seinni hálfleiks að Guð-
mundur Þorbjörnsson fékk góða
sendingu út á kantinn. Hann lék
upp að endamörkum og sendi góða
sendingu inn í vítateig, þar sem
Ingi Björn kom á fullri ferð inn í
eyðu og skoraði með góðu skoti í
bláhorn marksins af markteig.
Á 29. mínútu kom þriðja mark
Vals og var það jafnframt glæsi-
legasta mark leiksins. Grímur
Sæmundssen brunaði upp völlinn
og rétt utan við hægra horn
vítateigsins var brotið á honum og
dæmd aukaspyrna á Vestmanna-
eyinga. Hörður Hilmarsson fram-
kvæmdi aukaspyrnuna mjög vel,
gaf boltann fyrir markið þar sem
Atli Eðvaldsson kom á fullri ferð
og skallaði boltann glæsilega í
hornið fjær, þrumuskalli.
Eyjamenn áttu mjög gott tæki-
færi á 32. mínútu síðari hálfleiks
þegar Tómas Pálsson lék í gegnum
vörnina og renndi knettinum á
Sigurlás í dauðafæri en Sigurður
var enn sem fyrr vel á verði og
hann varði auðveldlega.
Góður leikur Vals
Valur átti afbragðsleik að þessu
sinni og Valsmenn sýndu að þeir
verða ekki lagðir auðveldlega að
velli. Þeir spiluðu mjög fast og
gáfu aldrei eftir þumlung. Þá var
áberandi hvað stöðubreytingar
voru miklar hjá liðinu, menn
reyndu ætíð að finna eyður og
skapa sér tækifæri þegar þeir
höfðu ekki boltann. Guðmundur og
Albert voru mjög sprækir frammi,
Atli og Hörður yfirburðamenn á
miðjunni, vörnin ákaflega traust
og Sigurður markvörður sömuleið-
is.
í Eyjaliðinu voru þeir beztir
Karl Sveinsson, Örn Óskarsson og
framlínumennirnir Sigurlás og
Tómas. Ekkert markanna verður
skrifað á reikning Páls markvarð-
ar. Eyjaliðið mætti einfaldlega
ofjarli sínum að þessu sinni.
í STUTTIJ MÁLI>
fslandsmótið 1. deild. Vestmannaeyjavöllur
13. júlí. ÍBV - Vaiur 0.3 (0.1).
Mörk Vals. Guðmundur Þorbjörnsson á
27. mínútu, Inid Björn Albertsson á 59.
mfnútu og Atli Eðvaldsson á 74. mínútu.
Áhorfendur. 698.
Áminningar. Einar Friðþjófsson. Þórður
Iiallgrimsson. Ingi Björn Albertsson og
Aibert Guðmundsson bókaðir.
Stigahæstir.
ÍBV. Karl Sveinsson 3, örn óskarsson 3,
Tómas Pálsson 3.
Valur. Aibert Guðmundsson 4, Atii Eðvalds-
son 4, Guðmundur Þorbjörnsson 3. Hörður
Hilmarsson 3, Sigurður Haraldsson 3,
Guðmundur Kjartansson 3. Dýri Guðmunds-
son 3.
Dómari. Guðmundur Haraldsson 4.
-ÞR/SS.
Sviptingar í „British Open"
ÖNNUR umferð Opna brezka
meistaramótsins í golfi var leikin
ARNOR MEÐ SAMN
ING FRÁ LOKAREN
Knattspyrnumaður-
inn ungi, Arnór Guð-
johnsen, og faðir
hans, Eiður Guðjohn-
sen, komu til landsins
í fyrrinótt eftir fjög-
urra daga dvöl hjá
belgíska 1. deildarlið-
inu Lokaren. Komu
þeir með uppkast að
sarnningi við félagið.
Þá áttu þeir samtöl
við forráðamenn Stan-
dard Liege í ferðinni
og var afráðið að
Arnór færi utan til
Standard á mánudag-
inn kemur og dveldi
þar í nokkra daga við
æfingar.
Að sögn Eiðs Guðjohnsens
verður Arnór 17 ára gamall 30.
júlí n.k. og ef hann skrifar undir
samning fyrir þann tíma nýtur
hann sömu réttinda í belgísku
knattspyrnunni og innfæddir
menn og verður ekki að hlíta
reglum, setn settar eru vegna
erlendra leikmanna. Er því
Fer til Standard Liege eftir helgina
mikið atriði að gengið verði frá
samningum fyrir þann tíma.
Þær reglur gilda m.a. um
erlenda leikmenn að aðeins tveir
útlendingar mega leika sama
leikinn fyrir félög í 1. deildinni.
Eiður sagði að samningur sá,
sem Lokaren byði, væri aö hans
áliti mjög góður. Hann er til
skamms tíma og tryggir Arnóri
góð kjör. Þá eru ennfremur
ákvæði í samningnum um að
félagið sjái fjölskyldu Arnórs
fyrir húsnæði og atvinnu, en
meiningin er að Eiður og
fjölskylda hans flytjist utan til
Belgíu í einhvern tíma ef Arnór
gerist atvinnumaður í knatt-
spyrnu.
Að sögn Eiðs var dvölin hjá
Lokaren mjög ánægjuleg. Völlur
félagsins er í vinalegum bæ
nokkru fyrir utan Antwerpen.
Eru aðstæður hjá félaginu allar
hinar beztu og völlur þess hefur
nýlega verið stækkaður. Arnór
æfði með félaginu þá daga sem
hann var ytra og vildu forráöa-
menn þess ólmir undirrita
samning við Arnór strax en þeir
feðgar töldu rétt að bíða með
undirskrif enn um sinn. Með
Lokaren leika nokkrir þekktir
kappar og er Pólverjinn Lu-
banski þeirra þekktastur en
hann er margreyndur landsliðs-
maður.
Ásgeir Sigurvinsson heim-
sótti þá Eið og Arnór á miðviku-
daginn ásamt aðalþjálfara
Standard Liege. Varð það að
samkomulagi að Arnór færi
utan til Belgíu strax eftir leik
Vals og Víkings á sunnudags-
kvöld og dveldi hjá félaginu við
æfingar í nokkra daga.
Sem kunnugt er geta íslenzkir
leikmenn ekki farið utan á
miðju keppnistímabili nema
með leyfi viðkomandi félags og
KSI. Mun það ætlun Arnórs að
fara ekki utan fyrr en í haust þó
hann skrifi undir atvinnusamn-
ing fyrir 30. júlí. — SS.
Arnór var mættur á æfingu hjá Víkingi f gærkvöldi og var þá
þessi mynd tekin. Arnór stoppar hér stutt við, á mánudaginn
verður hann kominn til Belgíu á ný, í þetta skipti til Standard
Liege. Ljósm. Król.
í St. Andrews í Skotlandi í gær og
gekk á ýmsu eins og venjulega í
þessari stórkeppni. Þegar leiknar
hafa verið 36 holur af 72 er
staðan þessi í kcppninni.
Isao Aoki, Japan 68—71139
Severiæno Ballesteros Spáni 69—70 139
Ben Crenshaw Bandar. 70—69139
Gary Cullen Bretl. 76—69140
Robert Shearer Ástralíu 71—69140
Bob Bynan Bandar. 72—69 141
Tom Kite Bandar. 72—69 141
Tsuneyki Nakajima Japan 70—71 141
Masashi Ozaki Japan 72—69 141
Tom Watson Bandar. 73—68 141
Tom Weiskopf Bandar. 69—72 141
AArir.
Arnold Palmer Bandar. 71—71142
Jack Nicklaus Bandar. 71—72143
Gary Player S*Afríku 74—71145
Lee Trevino Bandar. 75—72 147
Johnny Miller Bandar. 73—77 150
Dómarinn
ekki á veg-
um Víðis
INGIMUNDUR Þ. Guönason, for-
maður Knattspyrnufélagsins Víðis í
Garöi, haföi samband viö blaöiö í
gær vegna greinar um 3. deildina í
blaðinu þann dag. Vildi Ingimundur
taka þaö fram aö dómarinn í leik
UMFG og Selfoss heföi ekki verið á
vegum félagsins heldur heföi Knatt-
spyrnudómarafélag Suðurnesja
skipaö hann í leikinn. Umræddur
dómar væri félagi í Víöi enda legði
Víöir til dómara eins og skylt væri.
Hins vegar sæi Knattspyrnudómara-
félagiö um að velja dómara í leikina
og vildi Ingimundur taka fram að
félagið heföi staðið sig mjög vel í því
starfi.
Valur vann
VALUR sigraði Fram 2.0 í
kvennadeildinni í knattspyrnu f
gærkvöldi. Leikið var á Vals-
vellinum. Erna Lúðvíksdóttir
skoraði bæði mörk Vals.