Morgunblaðið - 14.07.1978, Page 32
_______________FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978_
Benedikt Gröndal:
Alþýðubandalagið eyðilagði
tilraun til stjómarmyndunar
Sj álfstæðisflokkur
svaraði beiðni frá
Alþýðuflokki jákvætt
Bregður
með þeim til
óþurrka?
FYRSTI daKur hundadaga var
í Rær. cn þcir standa fram í
scinnipart ágúst samkvæmt
Almanaki fyrir árið 1978 scm
Iláskóli íslands Kcfur út. I
íslrnzkum þjóðháttum cftir
Jónas Jónasson frá Hrafnanili
scjjir „brcytir jafnan um veður
mcð þcim þannij? að ef þurrt
cr á undan þcim, brcgður með
þeim til óþurrka. og svo hið
gagnsta'ða'4.
Ekki sagðist Páll Bergþórs-
Framhald á bls. 19
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær fól forseti íslands, herra
Kristján Eldjárn, Benedikt Grön-
dal, formanni Alþýðuflokksins, í
fyrradag að mynda stjórn. Um
kvöldið reit Benedikt Geir Hall-
grímssyni og Lúðvík Jósepssyni
bréf, sem voru samhljóða. Bréf
Benedikts til Geirs var svohljóð-
andi:
„Forseti íslands hefur í dag falið
undirrituðum að reyna myndun
ríkisstjórnar, sem njóti stuðnings
meirihluta Alþingis.
Þar sem flokksstjórn Alþýðu-
flokksins veitti mér með samþykkt
3. júlí s.l. umboð til aðildar að
myndun meirihlutastjórnar, tjáði
ég forseta, að ég mundi taka
verkefnið að mér.
Ég skýrði forseta ennfremur frá
því, að yfirgnæfandi meirihluti
flokksstjórnar og þingflokks Al-
Framhald á bls. 18
í VIÐBRAGÐSSTÖÐU — Þessir tveir gæðingar, sem ljósmyndari Mbl. Kristján festi á filmu síðdegis
í gær á Landsmóti Hestamanna í Skógarhólum, biðu þess að þeim yrði riðið inn í dómhringinn. —
Sjá nánar um mótið frétt á bls. 2 og viðtöl á bls. 14.
Fer Alþýðuflokkurinn
í vinstri viðræður?
SAMKVÆMT heimildum, sem
Morgunhlaðið hefur aflað sér,
virðist nú allt bcnda til þess, eftir
að Alþýðuhandalagið hafnaði
viðræðum um myndun samstjórn-
ar Alþýðuflokks, Alþýðubanda
lags og Sjálfstæðisflokks, að
Snorri Jónsson, varaforseti ASÍ:
ASÍ hefur fengið 3,6
milljónir frá Finnum
Fjarstæða að leita að því fé, sem
Alþýðuflokkurinn getur ekki gert
grein fyrir, hjá Alþýðusambandinu
\ ALÞÝÐUSAMBAND íslands hcfur fcngið styrki frá finnska
alþýöusamhandinu og sambandi opinbcrra starfsmanna í
ÍFinnlandi samtals að upphæð tæplcga 3,fi milljónir íslcnzkra
króna. Styrkir þessir eru afhentir ASÍ samkvæmt tillögu
Norræna alþýðusambandsins (NFS), scm oftsinnis hefur styrkt
íslcnzku vcrkalýðssamtökin cinkum í vinnudcilum. Þeir styrkir.
scm jafnframt ciga cftir að berast eru samkvæmt tillögum
norræna sambandsins.
Frá þessu er skýrt í yfirlýs-
ingu frá Snorra Jónss.vni, vara-
forseta Alþýðusambands ís-
lands, sem Morgunblaðinu barst
i gær. Yfirlýsing varaforseta
ASI er svohljóðandi:
„I tilefni af frásögn Morgun-
blaðsins af fjárstyrk, sem Al-
þýðusamband Islands hefur
fengið frá Alþýðusambandinu í
Finnlandi og sambandi opin-
berra starfsmanna þar, sem
ruglað er saman við fjárstyrk
sósíaldemókratanna á Norður-
löndum til Alþýðuflokksins,
viljum við taka eftirfarandi
fram:
Það skal skýrt fram tekið, að
fjárstyrkir sósíaldemókrata á
Norðurlöndurn til Alþýðuflokks-
ins éru Alþýðusambandi íslands
algjörlega óviðkomandi. Þeir
styrkir, sem Alþýðusambandið
hefur fengið, eru frá Sambandi
opinberra starfsmanna í Finn-
landi að upphæð 527.037 rsl.
krónur, og frá finnska Alþýðu-
sambandinu að upphæð
3.047.200 ísl. krónur. Þessir
st.vrkir komu í október sl. sá
fyrri og hinn í febrúar. Rétt er
að geta þess, að þessir styrkir og
þeir sem kunna að eiga eftir að
koma, eru veittir skv. tillögu
Norræna alþýðusambandsins
(NFS), en það hefur áður
oftsinnis staðið fyrir fjárhags-
aðstoð til íslenzku verkalýðs-
samtakanna, einkum í sambandi
við vinnudeilur. Fyrrnefnt fé
Framhald á bls. 19
Alþýðuflokkurinn ætli að beita
sér fyrir viðræðum um myndun
vinstri stjórnar. Mun það þó ekki
vcrða cndanlcga ákveðið, fyrr en
á flokksstjórnarfundi Alþýðu-
flokksins, sem boðaður er f dag
klukkan 16.
Þá hefur Morgunblaðið það eftir
áreiðanlegum heimildum, að það
sé aðeins þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins, sem hafnað hafi
viðræðum um myndun nýsköpun-
arstjórnar. } fyrradag var haldinn
fremur stuttur fundur með verka-
lýðsforingjum Alþýðubandalags-
ins, þar sem mestur fundartíminn
fór í að kynna gang könnunarvið-
ræðna við Alþýðuflokkinn, en
möguleikinn á þátttöku í
nýsköpunarstjórn var þar aldrei
ræddur hvað þá borinn undir
atkvæði.
í verkalýðsarmi Alþýðubanda-
lagsins mun vera talsverður vilji
fyrir því að mynduð verði
nýsköpunarstjórn eða a.m.k. að
möguleikar á slíkri stjórnarmynd-
un verði kannaðir. Þetta er eini
fundur Alþýðubandalagsforyst-
unnar með verkalýðsleiðtogum
flokksins fram til þessa eftir að
viðræður milli stjórnmálaflokka
hófust. Var fundurinn haldinn í
hádeginu í fyrradag og gafst
fremur lítill tími til skoðana-
skipta.
Innan Alþýðuflokksins eru
margir þeirrar skoðunar, að
flokkurinn eigi ekki að hverfa frá
stjórnarmyndunartilraunum að
svo stöddu. Neitun Alþýðubanda-
lagsins kom Alþýðuflokksmönnum
almennt í opna skjöldu og var vart
við öðru búizt en að Alþýðubanda-
lagið myndi þrátt fyrir allan
ágreining ljá máls á viðræðum.
Smíði heimiluð á 2
skipum í Portúgal
Kaupendur verða að selja önnur úr landi
MORGUNBLAÐIÐ fékk
staðfest í gær, að íslenzk
stjórnvöld hafa nú heimilað
kaup á tveimur fiskiskipum frá
Portúgal en sem kunnugt er
hafa Portúgalir lagt ríka
áherzlu á skipasmiðar fyrir
íslendinga og m.a. gefið í skyn,
að þeir hefðu ekki áhuga á
meiri saltfiski héðan nema því
aðeins að íslendingar semdu
um kaup á 1—3 fiskiskipum
þaðan.
Fjölmargir hafa áhuga á
skipakaupum frá Portúgal, en
enn er ekki afráðið hverjir það
verða sem kaupa skipin. Hafa
stjórnvöld sett þau skilyrði, að
þeir sem semji við Portúgali um
skipakaup selji önnur skip á
móti úr landi. Helzt er rætt um
Framhald á bls. 18
„VIÐ MUNUM gefa okkur örlítinn tíma til þess að fjalla
um þá stöðu, sem svo skyndilega hefur komið upp með
synjun Alþýðubandalagsins,“ sagði Benedikt Gröndal,
formaður Alþýðuflokksins, í samtali við Morgunblaðið
í gær. Benedikt sagði að flokksstjórn Alþýðuflokksins
yrði kvödd saman til fundar klukkan 16 í dag og „þar
verður fjallað um þessa fyrstu tilraun okkar, sem
flokksstjórnin taldi skynsamlegasta og Alþýðubandalag-
ið hefur nú eyðilagt.“ Sjálfstæðisflokkurinn svaraði
málaleitan Benedikts um viðræður um stjórnarmyndun
jákvætt í gær með bréfi Geirs Hallgrímssonar til
Benedikts.