Morgunblaðið - 06.09.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978
Nýi iðnaðarráðherrann, Hjörleiíur Guttormsson, í einu aí sínum fyrstu embættisverkum — heimsókn
á sýninguna íslenzk föt og sést hann hér í hópi frammámanna fataiðnaðarins og Félags ísl. iðnrekenda.
Ljósm. Mbl. Emilía.
Ingólfur Arnarson:
Seldi 211 tonn
fyrir 71 millj.
LITLU munaði að togara Bæjar-
útgerðar Reykjavíkur tækist að
slá söluheimsmet Engeyjar RE
Svava
Jakobs-
dóttir
alþingis-
maður:
þegar togarinn lauk við að selja
í Hull í gærmorgun. Alls seldi
Ingólfur Arnarson 211,5 tonn
fyrir 121.200 sterlingspund, sem
er aðeins 275 pundunum minna
en metsala Engeyjar er. Sam-
kvæmt hinu nýja gengi er sölu-
verðmæti fisksins úr Ingólfi
Arnarsyni 71,3 millj. kr.
Meðalverð á hvert kíló hjá
Ingólfi Arnarsyni var kr. 337
samkvæmt nýja genginu, en 287
kr. samkvæmt hinu gamla, Engey
fékk hins vegar aðeins 226 kr. á
kílóið, en magnið sem Engey var
Starfsfólki fækkað í 2 verk-
r
smiðjum SIS á Akureyri
— vegna minnkandi sölu á ullarpeysum til Rússlands
SKYNDILEG minnkun í sölu á
íslenzkum ullarpeysum til Rúss-
lands hefur leitt til þess að orðið
hefur að fækka starfsfólki í
tveimur verksmiðjum S.Í.S. á
Akureyri. í ávarpi Erlends Ein-
arssonar, forstjóra Sambands-
„Ekkert hægt að
segja um bráða-
birgðalögin,,
„ÞAÐ ER svo margt eftir, að það
er hreint ekkert hægt að segja um
bráðabirgðalög ríkisstjórnarinn-
ar og það hvernig fé því sem
kemur í gengismunarsjóð verður
varið. Það veit enginn hvað gert
verður með fiskverðið, hvað ætlar
ríkisstjórnin að gera með vísitöl-
una, hver verður launahækkunin
og hver verður tekjuöflunin,“
sagði Kristján Ragnarsson for
maður Landssambands ísl. út-
vegsmanna þegar Mbl. spurði
hann álits á bráðabirgðalögum
ríkisstjórnarinnar í gær.
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson for-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna tók í sama streng og
Kristján. Þegar Mbl. ræddi við
hann í gær, og sagði að enn ætti
eftir að taka ákvörðun um vaxta-
málin, vísitölu o.fl. o.fl. kostnaðar-
liði. Nýtt fiskverð ætti að taka
gildi innan mánaðar og ekkert
hefði verið ákveðið í þeim efnum
eins og svo mörgum öðrum.
sins, við opnun svokallaðraY
markaðsviku iðnaðardeildar kom
fram, að ríkisfyrirtækið Raznoex-
port í Sovétríkjunum hefur
minnkað kaup sín á prjónavörum
frá S.Í.S. úr 260 þúsund peysum
1977 í 51 þúsund á þessu ári. Hafa
kaupendur borið við gjaldeyris-
skorti, en einnig hefur verið
ágreiningur um verðið.
„Oánægja okkar með þessa
minnkun stafar einkum af því,
hvað hún kemur fyrirvaralaust,"
sagði Bergþór Konráðsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri iðnaðar-
deildar í samtali við Morgunblað-
ið. „Samningar um sölu til Rúss-
lands drógust mikið fram á þetta
ár, og þess vegna vorum við búnir
að missa svo mikla möguleika á
sölu erlendis er þeim lauk. Það
hefur reyndar tekizt að ná miklu
af þessum viðskiptum yfir til
Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu,
en þetta er svo gífurlegt magn, að
við hlaupum ekki fyrirvaralaust
með það inn á aðra markaði."
„Sölumálin hafa kannski farið
betur en á horfðist," sagði Berg-
þór, „því að fyrstu 6 mánuði
ársins, fyrir Rússlandssamning-
ana, var útflutningur okkar á
peysum 30% meiri í krónutölu en
á sama tíma í fyrra, sem er
töluverð hækkun. Þessi minnkun á
sölu til Rússlands hefur hins vegar
haft þau áhrif, að við höfum orðið
að fækka starfsfólki bæði í fata-
verksmiðjunni Heklu, þar sem ein
vakt var afnumin, og í spunaverk-
smiðjunni Gefjun, sem framleiðir
bandið í peysurnar. Ég álít að
þessi fækkun nemi milli 40 og 60
manns.
„Við höfum átt mikil og góð
viðskipti við Rússa, sem hafa
reyndar vaxið frá ári til árs í 17
ár,“ sagði Bergþór. „En ég hef þá
trú, að þau verði aldrei aftur
jafnmikil og þau voru t.d. á síðasta
Neitar fyrir-
fram að svara
spurningum
Morgunblaðsins
Svava Jakobsdóttir alþingis-
maður Alþýðubandalagsins
neitaði í gær að svara
spurningum fréttamanns
Morgunblaðsins og kvaðst ekki
einu sinni vilja vita
spurningarnar. „Ég nenni ekki
að taka þátt í þessum leik
Morgunblaðsins," sagði þing-
maðurinn.
Skipstjóri á Ingólfi Arnarsyni
var að þessu sinni Ólafur Órn
Jónsson, aðeins 27 ára gamall.
Þá seldi Stígandi 2. 49.8 lestir í
Cuxhaven í gær fyrir tæp 100 þús
mörk eða 15.2 millj. kr., meðalverð
á kíló var kr. 305. Énnfremur seldi
Aukureyrartogarinn Sólbakur í
Fleetwood, alls 126,8 lestir fyrir
69.700 pund eða 41 millj. kr.
Meðalverð á hvert kíló var kr. 323.
XN31NNI
INNLENT
Geir Gunnarsson:
„Hitaveitan inn á Völlinn,,
Kjartan Ólafsson:
Engan bita til hersins
Morgunblaöið hafði í gær sam-
band við prjó pingmenn Albýöu-
bandalagsins, pá Geir Gunnars-
son, Kjartan Ólafsson og Gils
Guömundsson og innti pá áfíts á
framkvæmd Hitaveitu Suöur-
nesja í sambandi við Keflavíkur-
flugvöll, en komiö hefur fram í
fréttum aö rekstrargrundvöllur
hitaveitunnar raskast verulega ef
fyrirtækið fær ekki aö vinna pá
framkvæmd innan vallarsvæöis-
ins sem gert hefur verið ráö fyrir.
Þingmennirnir höfðu skiptar
skoöanir á málínu og voru
reyndar á algjörlega öndverðum
meiði eins og fram kemur í
svörum peirra hér á eftir:
Mbl. innti Gils Guðmundsson
alþingismann einnig álits á hita-
veitumálinu í sambandi við Kefla-
víkurflugvöll.
„í stórum dráttum,“ svaraði Gils,
„mótast mitt svar af því hvort við
erum að festa herinn í sessi með
þessari hitaveituframkvæmd innan
Keflavíkurflugvallar eða ekki. Ég
hlýt að spyrja að því fyrst. Ef
hitaveitufyrirtækið leggur út veru-
lega aukinn kostnaö vegna vallar-
svæðisins, er það þá orðið keppi-
kefli fyrirtækisins og þeirra sem að
því standa að hafa herinn hér? Ég
tel að þetta megi ekki eiga sér
stað. .
Eg tel að þaö geti ekki verið
að fyrirtækið standi og falli með
því og ég held að þetta sé ágætis
fyrirtæki fyrir Suöurnes hvað sem
vellinum líður."
„Ég hef alltaf gert ráð fyrir að
Hitaveita Suöurnesja verði byggö
upp samkvæmt þeirri áætlun sem
fyrirtækið hefur gert,“ sagði Geir
Gunnarsson, „og það breytir engu
hvað mig snertir í sambandi við
völlinn. Ég hef alltaf talið aö
hitaveituframkvæmdirnar eigi að
fara inn á Vallarsvæðið eins og
reiknað hefur verið með.“
Aðspurður um frmkvæmdir
tengdar Hitaveitu Suðurnesja á
Keflavíkurflugvelli sagði Kjartan
Ólafsson: „Ég hef ekki kynnt mér
málin, en tel sjálfsagt aö sú
starfsemi sem er þarna og fer fram
á vegun innlendra aðila, og hún er
margvísleg, eigi kost á tengingu
við Hitaveitu Suðurnesja, en ég
dreg ekki dul á það að herinn á
ekki að vera þar nokkur aðili á
einn eða annan hátt.“
Steingrímur Hermannsson, dóms- og landbúnaðarráðherra:
Efnahagsdæmi Alþýðu-
flokksins gengur ekki upp
Tómas Árnason vill engu svara um fyrirvara þingmanna Alþýðuflokksins
„ÞAÐ er loíorð aí minni hálfu
að vinna að þessum málum á
þeim grundvelli sem við
mótuðum í okkar stjórnar-
myndunarviðræðum og við það
verður staðið. Það er alveg
samstaða um fjölmarga þætti,
en það er ekki búið að vinna
prógramm úr þessu og til
dæmis liggur ekki fyrir, hvaða
endurskoðun fæst á vísi-
tölunni,“ sagði Steingrímur
Hermannsson dóms- og land-
búnaðarráðherra, er Mbl.
spurði hann í gær, hvort hann
hefði á síðustu stundu stjórnar-
myndunarviðræðnanna gefið
Alþýðuflokknum eitthvert lof-
orð um það að Framsóknar-
flokkurinn myndi í ríkisstjórn
ganga inn á stefnu AJþýðu-
flokksins í efnahagsmálum
varðandi næsta ár. „Annars
væri ekki úr vegi að þessir
þingmenn Alþýðuflokksins,
sem eru að gaspra um þetta
mál, segi það hreint út, hver sé
stefna Alþýðuflokksins í efna-
hagsmálum. Er hún sú sem
lögð var fram í stjórnar-
myndunarviðræðunum eða er
hún ef til vill eitthvað annað?“
„Mér er til dæmis engin
launung á því,“ sagði Steingrím-
ur, „að samkvæmt útreikningum
Þjóðhagsstofnunar gengur efna-
hagsdæmi Alþýðuflokksins ekki
upp miðað við að samningarnir
séu í fullu gildi.
Ríkisstjórnin mun vinna að
lausn efnahagsmálanna á þeim
grundvelli sem mótaður var í
stjórnarmyndunarviðræðunum
en það segir sig sjálft að sú
stefnumótun er ekki eitthvað,
sem menn inna af hendi á einni
kvöldstund," sagði S'teingrímur
Hermannsson en kvaðst ekki
hafa aðstöðu til að ræða þetta
mál frekar í gær.
Þá spurði Morgunblaðið í gær
Tómas Árnason fjármálaráð-
herra um þessi loforð, sem gefin
hafi verið þingmönnum Alþýðu-
flokksins. Vildi hann ekki svara
neinu um þau.
Mokafli
hjá Ólafs-
víkurbátum
Ólafsvík, 5. september.
MJÖG góður afli hefur verið hjá
togbátum að undanförnu. í gær og
dag lönduðu fjórir togbátar 20—30
lestum hver eftir fjögurra daga
veiðiferð. Aflinn er aðallega vænn
þorskur, og ufsi sem er mjög stór.
Dragnótabátar hafa fiskað
sæmilega, en handfærabátar eru
hættir veiðum. Togarinn Lárus
Sveinsson landar hér í dag 80—90
lestum af bolfiski. Mb. Steinunn
lagði hér á land í gær 115 tunnur
af síld, sem fóru í frystingu. Lítið
er hægt að frysta af síld sökum
anna við verkun bolfisks. Einn
bátur rær með net og hefur fiskað
vel.
Helgi.