Morgunblaðið - 06.09.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.09.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978 3 i i Ljósm.i Sv.P. Loðnuskipið Súlan EA kom til Akureyrar í fyrrakvöld, en sem kunnugt er skemmdist skipið mikið þegar Arnarnes HF rakst á það á loðnumiðunum norður af landinu á mánudagsnótt. Starfsmenn Slippstöðvarinnar h.f. á Akureyri unnu að viðgerð á Súlunni í gær og var aðeins um bráðabirgðaviðgerð að ræða. Átti þessari viðgerð að ljúka í gærkvöldi, en þá átti Súlan að fara til losunar á 560 tonna afla, sem skipið var með og si'ðan átti að halda á ný á loðnumiðin. Fullnaðarviðgerð á skipinu fer fram síðar. Bráðabirgðalög um ráðstöfun gengis- munar sett i gær RÍKISSTJÓRNIN gaf í gær út bráðabirgðalög um ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka íslands um breytingu á gengi íslenzkrar krónu. Mun gengis- skráning hefjast að nýju f dag og verður þá erlendur gjaldeyrir að jafnaði 17,6% hærri en síðast þegar gengisskráning fór fram. Samkvæmt heimildum, sem Morgunblaðið fékk í gær, voru líkur á að ferðamannagjaldeyris- skammtur yrði tvöfaldaður, en hann seldur með 10% álagi á venjulega gengisskráningu. I annarri grein bráðabirgðalag- anna segir að gengismun vegna sölu sjávarafurða skuli varið þannig að hann verði færður á sérstakan reikning í nafni ríkis- sjóðs í Seðlabankanum og skuli ráðstafa því fé í þágu sjávarút- vegs. Skipting fjárins, eftir að verðjöfnunarsjóði sjávarútvegs hefur verið endurgreitt það, sem hann hafði greitt vegna viðmiðun- arverðs, að 50% af því sem kemur í gengismunarsjóð af andvirði frystra sjávarafurða, saltfisks, verkaðs, óverkaðs og flaka, skreið- ar, fiskmjöls, loðnumjöls og loðnu- lýsis skal renna til viðkomandi deilda Verðjöfnunarsjóðs fiskiðn- aðarins, en andvirði saltsíldar skal verða stofnfé deildar fyrir saltsíld. Ofangreint er nefnt í sérstökum lið í lögunum, sem merktur er með bókstafnum A. í B-lið greinarinnar, sem um þetta fjallar, segir síðan: „50% af því, sem kemur í gengismunarsjóð af andvirði þeirra afurða, sem taldar eru undir A-lið þessarar greinar svo og öllu því, sem kemur af andvirði annarra sjávarafurða skal varið a) 50% til að greiða fyrir hagræðingu í fiskiðnaði og b) 50% til að létta stofnfjárkostnað- arbyrði eigenda fiskiskipa, sem orðið hafa fyrir gengistapi vegna erlendra og gengistryggðra skulda, og að hluta til að auðvelda útvegsmönnum að hætta rekstri úreltra fiskiskipa, hvort tveggja eftir þeim reglum og með skilyrð- um sem ríkisstjórnin setur. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum er gengismunurinn vegna sölu sjávarafurða á bilinu U/2 til 5 milljarðar króna. i i Mótmælum forseta borgarstjórn- ar vísaðábug SIGURJÓN Pétursson, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, hefur í samtali við dagblaðið Vísi og í Þjóðviljanum í gær haldið því fram að frásögn Morgunblaðsins af launakröf- um hans sem forseta borgar stjórnar og af skrifstofuað- stöðu fyrir hann á borgarskrif- stofunum, sé uppspuni frá rótum. Fljótlega eftir að meirihluti vinstri flokkanna í borgarstjórn var myndaður fór Sigurjón Pétursson að ræða um það, að hann þyrfti að fá hærri laun og starfsaðstöðu á borgarskrifstof- unum vegna aukinna starfa. Björgvin Guðmundsson og Kristján Benediktsson munu hafa komið í veg fyrir að Sigurjón fengi einkaskrifstofu til afnota og frekari umræður um launakjör forseta borgar- stjórnar hafa ekki komizt á dagskrá. Frétt Morgunblaðsins á sunnucjag er þvi rétt og mótmælum forseta borgar- stjórnar vísað á bug. Þá skal þess getið að í viðtali .Sigurjóns Péturssonar. við dagblaðið Vísi, sem birtist 21. júlí, segir: „Hvað snerti forseta borgar- stjórnar sérstaklega sagði Sig- urjón að ekki hefði verið afráðið endanlega, hvernig starfi hans yrði háttað og hvort hann kæmi til með að verða launaður umfram það sem verið hefur. Forseti borgarstjórnar hefur haft um 20 þús. krónur á mánuði umfram laun borgarfulltrúa. „Það er ljóst, að starfið hefur aukizt mjög með því fyrirkomu- lagi, sem haft verður, en sjálfur er ég nú aðeins í litlu hlutastarfi hjá Trésmiðafélaginu," sagði Sigurjón." Um skrifstofuaðstöðuna í Vís- issamtalinu segir Sigurjón Pétursson: „Ég hef ekki farið dult með, að það væri til mikils hagræðis ef flokkarnir gætu fengið einhverja aðstöðu hér á borgarskrifstofunum. Það yrði til mikils hagræðis fyrir borgar- fulltrúa í sambandi við aðgang að ýmsum skjölum, sem hafa þarf vi höndina í starfinu," sagði Sigurjón. Hins vegar sagði hann ekkert hafa verið ákveðið um þessi mál ennþá, en húsnæð- ismál borgarinnar væru í athug- un og ekki vitað fyrir víst, hver þörfin yrði á hverjum stað.“ Vill endurskoða öll bifreiðafríðindin „Ég ætla að beita mér fyrir því að tollfríðindi ráðherra vegna bif- reiðakaupa verði afnumin,“ sagði Tómas Árnason fjármálaráð- herra í samtali við Morgunblaðið í gær. Sagði Tómas að ef sú regla yrði afnumin, sem nú væri í íögum varðandi stjórnarráðið, teldi hann eðlilegt að sama regla yrði afnumin hvað varðar bif- reiðakaup bankastjóra, fram- kvæmdastjóra Framkvæmda- stofnunar ríkisins og Þjóðhags- stofnunar. Hann kvað hlunnindi í tveimur síðastnefndu stofnununum hafa verið af % hlutum, en-hann kvað vandaverk að ákveða þessa hluti. Menn, sem væru ráðherrar og í svo þýðingarmiklum störfum sem þessir menn væru, þyrftu að hafa einhverja bifreiðaþjónustu. Hins vegar kvað hann þær reglur, sem settar hefðu verið um þessi bifreiðakaup, hafa afskræmzt í þeirri óðaverðbólgu, sem verið hefði í þjóðfélaginu undanfarin ár og því væru nú allir sammála um að endurskoða ætti þær. Colgate MFP fluor tannkrem herðir tennurnar og ver þær skemmdum. Colgate MFP fluor tannkrem er reyndasta tannkremið á markaðnum. Þúsundir barna um viða veröld hafa um árabil verið Þáttakendur i vísindalegri Colgate-prófun og hefur hún ótvírætt sannað að Colgate MFP fluor tann- krem herðir glerung tannanna við hverja burstun. þannig að tennurnar verða sifellt sterkari og skemmast siður. Þess vegna velja milljónir foreldra um heim allan Colgate MFP fluor tannkrem handa börnum sínum. Ofí 1. Colgate MFP fluor gengur inn i glerunginn og herðir hann. 2 Þess vegna verður glerungurinn sterkari. y^röirinn^ Og börnunum likar bragðiö. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.