Morgunblaðið - 06.09.1978, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978
Útvarp kl. 10.45 og 17.50:
Rætt um talgalla
Þáttur Gísla Helgasonar, „Er
hægt að laga talgalla hjá
börnum", er á dagskrá útvarps-
ins í tvígang á morgun, kl. 10.45
og 17.50. í þættinum mun Gísli
ræða við Guðrúnu Bjarnadóttur
talkennara en hún hefur aðsetur
í Víðistaðaskóla. Að sögn Gísla
er þessi þáttur í beinu fram-
haldi af þætti sem hann hafði í
útvarpinu fyrir viku og fjallaði
um talkennslu fullorðinna. Þá
var aðallega rætt um talgalla
sem orsökuðust af slysum eða
sjúkdómum en ekkert farið út í
gormælgi, stam eða aðra þess
háttar talgalla. „Sannleikurinn
er sá,“ sagði Gísli, „að það er oft
foreldrunum að kenna þegar um
talgalla er að ræða hjá börnum,
sérstaklega ef það er haldið í
tæpitungu hjá þeim og lítið
talað við þau.“
Sjónvarp kl. 20.30:
”Nýjasta tækni og vísindi”
í ÞÆTTINUM „Nýjasta tækni og
vísindi" í kvöld verða 4 fræðslu-
myndir. Sú fyrsta nefnist „Reiki-
stjarnan Venus" og fjallar um
rannsóknir sem Bandaríkjamenn
hafa hafið á gufuhvolfi Venusar
og yfirborði stjörnunnar. Tvö
geimskip hafa verið send til
Venusar og eiga þau að koma
þangað í desember í ár og hefja
þar rannsóknir.
Önnur myndin nefnist „Lestrar-
vél fyrir blinda" í henni er greint
frá tilraunum sem verið er að gera
með vél nokkra sem getur lesið
upp úr bókum. Bókin er lögð ofan
á vélina sem í er tölva sem greinir
orð og gefur frá sér merki í
samræmi við þau. Þannig getur
vélin lesið upp úr bókum. Það er
gert ráð fyrir því að ef þessar
tilraunir ganga vel þá komi þessi
vél á markað innan nokkurra ára.
Þriðja fræðslumyndin ber nafn-
ið „Vindorkan beizluð". Þar segir
frá tilraunum sem verið er að gera
til að beizla vindorku. Kosturinn
við vindorkuna er sá, að hún er
algjörlega mengunarlaus og hægt
er að beizla hana til ýmissa nota,
einkanlega til rafmagnsfram-
leiðslu.
Síðasta myndin í „Nýjasta
tækni og vísindi" í kvöld nefnist
„Gróðureyðing og uppblástur" og
fjallar hún um vandamál sem við
íslendingar eigum við að stríða. í
þessu tilfelli er sagt frá áhrifum
ofbeitar í Bandaríkjunum og
þeirri gróðureyðingu og upp-
blæstri sem víða hefur fylgt í
kjölfarið.
James (Christopher Timothy) og Helen (Carol Drinkwater).
Sjónvarp kl. 20.55:
V ofa f er á kreik
„DÝRIN mín stór og smá“ eru
á dagskrá sjónvarpsins í kvöld
og heitir þátturinn, sem sýndur
verður „Reynslan er ólygnust".
Þetta er 6. þátturinn en 7 þættir
eru enn eftir af þessum mynda-
flokki.
í þættinum í kvöld kemur
Helen með veikan hund til
James og vill að hann lækni
hundinn og býður James Helen
út með sér. Ýmsir óvæntir
atburðir taka að gerast, vofa fer
á kreik í nágrenninu og gerir
fólk mjög skelkað og gamall
sérkennilegur karl sem James
kemst í kynni við stendur á því
fastara en fótunum að kýrin
hans hafi dáið er eldingu laust
í hana. James fer að rannsaka
málið en engu tauti er við
karlinn komandi, hann trúir
sjálfum sér betur en læknunum.
Samt sem áður ná þeir sér niður
á karlinum á gamansaman hátt.
Þátturinn í kvöld hefst kl.
20.55
Útvarp Reykjavík
A1IÐNIKUDKGUR
6. september
MORGUNNINN__________________
7.00 Veðuríregnir. Fréttir. _
7.10 Létt lög og morgunrabb.
(7.20 Morgunleikfimi).
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 veðurfr. Forustugr.
daghl. (útdr.).
8.30 Af ýmsu tagii Tónleikar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna<
Jón frá Pálmholti byrjar að
lesa nýja sögu sína „Ferðina
til Sædýrasafnsins."
9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Til-
kynningar.
9.45 Iðnaður< Umsjónarmaður<
Pétur J. Eiríksson
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Kirkjutónlisti Rose Kirn
leikur á orgel St. Jósefs-
kirkju í Hamborg Prelúdíu
og fúgu í g-moll eftir
Dietrich Buxtehude, Salve
Regina eftir Paul Hofhaimer
og Preambulum og kanzónu
eftir Heinrich Scheider
mann. (Hljóðritun frá út-
varpinu í Hamborg).
10.45 Er hægt að laga talgalla
hjá börnum?
Gísli Helgason tekur saman
þáttinn.
11.00 MorguntónIeikar< Lazar
Berman leikur Píanósónötu
nr. 3 eftir Beethoven/ Fritz
Wunderlich syngur lög eftir
Schubert. Koeckert kvartett-
inn leikur Strengjakvartett
nr. 1 í Es-dúr op. 20 eftir
Haydn.
12.00 Dagskráin. Fréttir. Til-
kynningar.
SÍÐDEGIÐ ""
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkvnningar.
Vi inuna< Tónleikar.
15.00 ðdegissagani
„Bri.Jilíufararnir“ eftir
Jóhann Magnús Bjarnason
Ævar R. Kvaran les (20).
15.30 Miðdegistónleikari Pál
Kadosa og Sinfóníuhljóm-
sveit ungverska útvarpsins
leika Píanókonsert nr. 3 op.
47 eftir einleikarannt
György Lehel stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorni Halldór
Gunnarsson kynnir.
17.20 Litli barnatíminn
Gísli Ásgeirsson sér um
tímann.
17.40 Barnalög
17.50 Er hægt að laga talgalla
hjá börnum?
Endurtekinn þáttur frá
morgninum.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLPIÐ
19.30 Landsleikur í knatt-
spyrnui íslendingar — Pól-
verjar. Hermann Gunnars-
son lýsir frá Laugardals-
velli.
20.20 Einleikur í útvarpssah
Guðríður Sigurðardóttir
Icikur „Gosbrunninn“ eftir
Ravel og Píanósónötu í
Es-dúr „Das Levewohl“ eftir
Beethoven.
20.45 Á níunda tímanum.
Guðmundur Árni Stefánsson
og Hjálmar Árnason sjá um
þátt með blönduðu efni fyrir
ungt fólk.
21.25 „Einkennilegur blómi“
Silja Aðalsteinsdóttir fjallar
um fyrstu bækur nokkurra
ljóðskálda sem fram komu
um 1960. Annar þátturi
„Þröskuldur hússins er þjöl“
eftir Arnfríði Jónatansdótt-
ur. Lesarii Björg Árnadótt-
ir.
21.45 Samleikur á lágfiðlu og
pfanó
Zoltán Toth og Szuzsa Eszto
leika „La Campanella“ eftir
Paganini/ Primrose og
Konserttónlist eftir Enescu.
22.05 Kvöldsagani „Líf í list-
um“ eftir Konstantín
Stanislavskí Kári Halldór
les (6).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Djassþáttur
í umsjá Jóns Múla Árnason-
ar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
FIM44TUDKGUR
7. september
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgunrabb.
(7.20 Morguníeikfimi).
7.55 Morgunbæn.
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veðurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.30 Af ýmsu tagii Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnannai
Jón frá Pálmholti les sögu
sína „Ferðina til Sædýra-
safnsins“ (2).
9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Til-
kynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Víðsjái Friðrik Páll Jóns-
son fréttamaður stjórnar
þættinum.
10.45 Dagvistunarheimili á
vegum fyrirtækja. Þórunn
Sigurðardóttir tekur saman
þáttinn.
11.00 Morguntónleikari Aaron
Rosand og Útvarpshljóm-
sveitin í Baden Baden leika
Sex húmorcskur fyrir fiðlu
og hljómsveit op. 87b og op.
89 eftir Sibeliusi Tibor Szöke
stj./ Josef Greindi syngur
ballöður eftir Carl Loewe(
Hertha Klust leikur með á
píanó./ Barokk-hljómsveit
Lundúna leikur „Litla
sinfóníu“ fyrir blásarasveit
eftir Gounodi Karl Haas stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ____________________
Á frívaktinnii Sigrún Sig-
urðardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
15.00 Miðdcgissagani
„Brasilíufararnir“ eftir
Jóhann Magnús Bjarnason.
Ævar R. Kvaran leikari les
(21).
15.30 Miðdegistónleikari
Sinfóníuhljómsveit danska
útvarpsins leikur í bláa
hellinum", þátt úr ballettin-
um „Napólí“ eftir Níels
Gade< Launy Gröndahl stj. /
Geza Anda og Sinfóníu-
hljómsveit útvarpsins í
Lundúnum leika Píanókon-
sert nr. 1 eftir Béla Bartóki
Ferenc Fricsay stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar:
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.10 Lagið mitti Ilelga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna.
17.50 Víðsjá. Endurtekinn
þáttur frá morgni sama
dags.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kvnningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Daglegt mál.
Gísli Jónsson flytur þáttinn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja.
20.10 Leikrit. „Dagur er lið-
inn“ eftir George Shiels.
Þýðandi og leikstjórii Þor-
steinn Ö. Stephensen.
Persónur og leikendur.
John Fibbs/ Valur Gíslason,
Frú Fibbs/ Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Peter Fibbs/
Sigurður Skúlason, Charles
Daw/ Rúrik Haraldsson,
Annie hjúkrunarkona/
Helga Stephensen, Læknir/
Ævar R. Kvaran, Herra
Black/ Flosi ólafsson,
Samson/ Sigurður Karlsson,
Looney/ Þórhallur Sigurðs-
son, Herra Hind/ Karl
Guðmundsson.
22.30 Yeðurfregnir. Fréttir.
22.45 Áfangar.
Uínsjónarmcnn. Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKÚDAGUR
6. september
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Nýjasta tækni og vísindi
(L)
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
20.55 Dýrin mín stór og smá
(L)
Breskur myndaflokkur.
6. þáttur. Reynslan er
ólygnust
Efni fimmta þáttar.
Að ráði Tristans ákveður
James að bjóða Helen á
dýran veitingastað. En það
gengur síður en svo eins og
best verður á kosið og
James telur óvíst, að stúlk-
an vilji sjá hann framar.
Siegfried ákveður að selja
svinin sem hann hafði bund-
ið svo miklar vonir við. og
verður Tristan því feginn.
Hann og James fara á
dansleik mcð tveimur vin-
konum Tristans. En þcgar
fagnaðurinn stendur sem
hæst, koma Helcn og Ed-
mundson kunningi hennar
á vettvang, James til mikill-
ar hrellingar.
Þýðandi Oskar Ingimars-
son.
21.45 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
23.20 Dagskrárlok