Morgunblaðið - 06.09.1978, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 6. SEPTEMBER 1978
Cœsar Hallbjörnsson
Mar — Minningarorð
Fæddur 25. maí 1897
Dáinn 28. ágúst 1978.
Bróöir minn Cæsar, var einn af
tólf börnum þeirra hjóna Sigrúnar
Sigurðardóttur og Hallbjarnar E.
Oddssonar, er lengi bjuggu að
Bakka í Tálknafirði. Hann var sá
sjöundi í röðinni að ofan. Cæsar
ólst upp í foreldrahúsum, fór
kornungur út í atvinnulífið, því að
mörgu var að sinna á landi og sjó.
Það kom fljótt fram hve hann var
laginn við allt er hann tók sér fyrir
hendur og uppfindingasamur bæði
við störf og í leik. Hann var eins
konar Edison í augum okkar yngri
barnanna.
Við Cæsar vorum á líku reki og
unnum mikið saman, meðan báðir
voru á Bakka. Hann var bráðvel
gefinn og mjög fríður sem dreng-
ur, allur vel á sig kominn og er
hann fullorðnaðist vakti hann
athygli hvar sem hann fór.
Um fjórtán ára aldur fluttist
Cæsar með foreldrum sínum til
Súgandafjarðar. Þar var lítið um
atvinnu að ræða nema sjómennsk-
una. Næstu þrjú árin réri hann á
mótorbátum er gengu frá Suður-
eyri, en um seytján ára aldurinn
fór hann alfarinn að heiman. Hélt
til Noregs og hóf siglingar, fyrst á
seglskipum og síðar á alls konar
gufuskipum. Hann sigldi um
heimshöfin og kom til fjölda
landa. Þetta var á stríðsárunum
1914 til 1918. Þrisvar varð hann
fyrir því að skip hans var skotið
niður og sumir félagarnir fóru með
í sjóinn, en Cæsar komst alltaf á
land, einu einni á skyrtunni einni
saman.
Að stríðinu loknu kom Cæsar
aftur heim til lands síns. Fór
áfram á sjóinn. Varð stýrimaður
og skipstjóri á stórum og smáum
skipum. Svo urðu þáttaskil í lífi
hans. Hann var á línuveiðaranum
Fróða með Þorsteini Eyfirðingi og
veiktist þar af taugaveiki ásamt
öðrum félögum sínum. Eftir það
bar hann aldrei sitt barr, hvað
heilsuna snerti. Hann hættir þá
alfarið sjómennsku og snýr sér að
öðrum störfum.
Cæsar kvæntist 28. janúar 1930
Jóhönnu Guðfinnsdóttur, ættaðri
frá Bolungarvík, hinni ágætustu
konu, og eignuðust þau tvo sonu,
Oskar og Sigurð. Áður en þau hjón
stofnuðu til hjónabands hafði
Cæsar eignast son, Elías Mar
rithöfund. Einnig átti Jóhanna
Minning—Ástþór
Pétur Olafsson
Fæddur 15. marz 1938.
Dáinn 23. ágúst 1978.
Mig langar til að setja á blað
örfá kveðjuorð við fráfall góðs
vinar.
Hver er tilgangur lífsins? Hví
eru menn í blóma lífsins kallaðir
burt frá ástvinum?
Þannig mætti spyrja við fráfall
ungs manns sem svipt er burt frá
okkur, aðeins fertugum að aldri.
Allt hefur sinn tilgang, enda
þótt okkur mannanna börnum sé
meinað að skilja það.
Enginn nema Guð einn skilur
lífið og tilgang þess.
Fyrir hart nær þrettán árum
kynntumst við Ástþór, og hefur
hann ætíð verið mér góður vinur.
í ferðalögum jafnt sem heima
höfum við átt margar ánægju-
stundir saman. Mér, konu minni
og börnum hefur hann ætíð reynst
sannur vinur. Margt var Ástþóri
til lista lagt utan síns lærða
starfssviðs sem var mjólkurfræði.
Snyrting og fegrun umhverfisins
var honum ætíð mikilvæg. Ástþór
var hjálpsamur og einlægur vinur
minn, og aldrei féll skuggi á okkar
vináttu, þó að við værum ekki
alltaf sammála í öllum málum.
Ástþór var að eðlisfari dulur
maður sem flíkaði ekki tilfinning-
um sínum. Að hugsa rökrétt og
framkvæma síðan var honum að
skapi.
Ástþór bjó eftirlifandi unnustu
sinni Sigrúnu og börnum hennar
hlýlegt og gott heimili að Flúðaseli
65 hér í borg. Veg heimilisins og
fjölskyldunnar vildi hann sem
mestan. Börn Sigrúnar tók hann
eins og væri hann þeirra eigin
faðir.
Þessar örfáu línur lýsa í engu
söknuði okkar við fráfall góðs
dóttur áður en fundum þeirra
hjóna bar saman, Kristínu, sem
Cæsar ættleiddi.
Þar sem Cæsar vegna heilsu
sinnar gat ekki lengur stundað
sjóinn, réðust þau hjón í það að
stofna til verzlunar hér í borg. Þau
ráku matvöruverzlun um nokkura
ára skeið. En þar sem hugur
Cæsars var alla tíð bundinn
uppfindingum og að móta eitthvað
nýtt sat verzlun hans á hakanum.
Næsta verkefni hans var að
útvega sér trollgarn í vörpu, og
finna upp flotvörpu, sem þá var
óþekkt hér á landi. Hann sat svo
tímum saman, langa daga í hinu
ófullgerða Þjóðleikhúsi við
Hverfisgötu, og baukaði við vörpU
sína. Lauk verkinu. Vörpugerðinni.
Svo fékk hann varðskipið Þór, með
leyfi stjórnvalda, til að reyna
hana. Nokkrar síldar veiddust í
þetta nýja tæki, en eitthvað var
ennþá að, en Cæsar hafði engin
fjárráð til að halda tilraunum
áfram til að fullkomna vörpu sína.
Nú hættir hann að verzla, fær
sér skúr á Þórsgötu og fer að
hreinsa notaðar úrgangs olíur,
sem áður hafði verið hent. Vélar-
nar fann hann upp sjálfur og
smíðaði þær einnig að miklu leyti.
Síðar flutti hann þessa starfsemi
að Sætúni 4 í Rvík. Þar byggði
hann gott hús og fullkomnaði
vélakostinn. Um fjölda ára rak
hann þar olíuhreinsun og bíla-
drengs og vinar. Unnustu hans
Sigrúnu og börnum hennar bið ég
Guðs blessunar. Megi hann styrkja
þau og vernda í sorg sinni. Einnig
votta ég Steinunni og Þormóði,
Hilmari, Ásgeiri, Áslaugu og
þeirra fjölskyldum svo og öðrum
ættingjum og vinum mína dýpstu
samúð. Megi orðstír um góðan
dreng lifa.
Halldór Örn Svansson.
smurstöð. En þetta fór einhvern
veginn úr höndum hans.
Enn setti Cæsar upp sjálfstæð-
an atvinnurekstur. Þá fann hann
upp vél sem hann setti upp í
bílskúr sínum. I vélinni framleiddi
hann „Fittings", þ.e. efni til
miðstöðvarlagna. Þessar vörur
seldi hann síðan í verzlanir. Við
þetta vann hann svo lengi sem
heilsan leyfði. Hann var andlega
hraustur og lagði því ekki árar í
bát, en fór að skrifa bækur og
sögur, sem lesnar hafa verið í
útvarpinu.
Segja má að Cæsar hafi verið
gæfumaður. Hann lifði fjölbreyttu
og starfsömu lífi. Eignaðist glað-
lynda, atorkusama konu, sem stóð
við hlið hans til hinstu stundar,
bjó honum og fjölskyldunni hlý-
legt og fallegt heimili og reyndist
honum í veikindum síðustu ára
hinn tryggi og góði lífsförunautur.
Að leiðarlokum bið ég honum
blessunar Guðs, og óska að hann
finni sér eitthvað gott uppfindinga
efni í nýja heiminum. eftirlifandi
konu hans og börnum votta ég
innilega samúð og virðingu.
Páll Hallbjörnsson.
Vorið 1897 létu hjónin á Bakka
í Tálknafirði, Sigrún Sigurðardótt-
ir og Hallbjörn E. Oddsson, skíra
sjöunda barn sitt. Það var dreng-
ur. Sigrúnu hafði áður dreymt
konu, sem látin var fyrir nokkru,
og hafði hún þar með vitjað nafns.
Draumkonan hét Sesselja. Til þess
að verða við beiðni konunnar, þótti
foreldrunum rétt að láta drenginn
heita Sesselíus. Þegar presturinn
spurði, hvað barnið ætti að heita,
nefndi hann Sesar — Cæsar. Þar
með var búið að skíra drenginn
þessu fágæta rómverska nafni, —
fyrir misheyrn eða mismæli.
I maímánuði 1912 fluttist þessi
Bakkafjölskylda frá hinum mjúka
og græna Tálknafirði norður til
Súgandafjarðar. Það var fríður
flokkur, sem þá steig á land í
gullnemabænum á Suðureyri.
Sigrún og Hallbjörn höfðu eignazt
12 börn, af þeim voru ellefu á lífi.
Fjögur elztu börnin voru áður flutt
til Suðureyrar, þar á meðal
Sigurður og Oddur, báðir orðnir
formenn og aflamenn í fremstu
röð.
Með flutningi þessarar fjöl-
skyldu úr Tálknafirði var sagan
ekki öll. Um svipað leyti fluttust
úr Tálknafirði tvær aðrar barna-
fjölskyldur til Suðureyrar. Á
Suðureyri hafði þá gerzt æfintýri
með vélbátaöldinni á fyrstu ára-
tugum þessarar aldar. Þar sem
skömmu fyrir aldamótin voru um
20 sálir á Suðureyri, var 15 árum
síðar risið nálega 300 manna
kauptún og 22 vélbátar fyrir landi.
Cæsar var nálægt miðri fjöl-
skyldunni, en fjögur börn yngri.
Yngst systkinanna voru tvíbura-
systur sjö ára að aldri.
Sigrún var frá Hofsstöðum á
Barðaströnd, myndarleg
dugnaðarkona. Hallbjörn var
Oddsson prests Hallgrímssonar í
Gufudal. Þau voru í hvívetna ötul
og framsækin, bæði í atvinnu og til
menningar. Eftir 16 ára veru á
Suðureyri, fluttust þau Sigrún og
Hallbjörn til Akraness og áttu þar
heima til dauðadags. Til Akraness
voru þá fluttir synir þeirra,
Sigurður og Oddur, og voru þar
skipstjórar og útgerðarmenn.
Sigrún lézt 1934, 73 ára að aldri,
en Hallbjörn lézt 1953, tæplega 86
ára.
Það var tímamótadagur í lífi
Cæsars, fimmtán ára piltsins,
þegar hann kvaddi æskustöðvar
sínar og steig á land á Suðureyri.
Vitanlega var það einnig tíma-
mótadagur systkina hans. En það
var í rauninni ný veröld, sem
opnaðist, og héðan lágu allar leiðir
til æfintýra. Útþráin seiddi og
laðaði. Cæsar var í flokki fríðra
ungmenna, bjartur í ásjónu og
glaður, hár vexti og þreklegur og
setti gleðisvip á umhverfi sitt.
Sú tíð var ekki langt undan, að
fólk var bundið átthagafjötrum.
En nú var búið að slíta það helsi
og ný kynslóð dreifðist í allar áttir
í leit að atvinnu, frama og
æfintýrum. Og sú varð raunin með
hinn unga innflytjanda. Ekki liðu
nema nokkur missiri, þar til hann
hvarf úr plássinu, til þess að
kanna heiminn.
Og hann leitaði ekki eftir
fjarðalogni. Öðru nær. Þá var
heimsstyrjöldin mikla, 1914 til
1918, skollin á, og Cæsar fór í
siglingar um heimshöfin á þeim
hættutímum og kom aldrei aftur
til stöðvanna fyrir vestan.
Hann kom þó heill úr baráttu og
hættum styrjaldaráranna og sett-
ist að fyrir sunnan. En nú hefur
hann siglt í höfn og bundið bátinn
í naust eftir hina löngu og
margbreytilegu vegferð. Hann lézt
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Aöalfundur
Heimdallar
Aöalfundur Helmdallar SUS í Reykjavík veröur haldlnn sunnudaglnn
17. september 1978 í Valhöll viö Háaleitisbraut, kl. 14:00. Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf.
Nánar auglýst síöar.
Stjórnin.
fundir — mannfagnaöir
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
Almennur safnaöarfundur veröur haldinn í
Fríkirkjunni fimmtudaginn 7. september kl.
8:30.
Fundarefni:
1. Kosning kjörstjórnar fyrir væntanlegar
prestskosningar.
2. Önnur mál. Safnaöarstjórnin.
Söluturn
í fullum rekstri á góöum staö í Reykjavík til
sölu. Tryggt húsnæöi. Tilboö leggist inn á
afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld merkt:
„Söluturn — 1845“.
Skip til sölu
6 — 8 — 9 — 10 — 11 — 12 — 14 —
15 — 22 — 26 — 29 — 30 — 36 — 38
— 45 — 48 — 51 — 53 — 54 — 55 —
59 — 62 — 64 — 65 — 66 — 85 — 86
_ 88 — 90 — 92 — 120 — 140 tn.
Einnig opnir bátar af ýmsum stæröum.
Aðalskipasalan.
Vesturgötu 1 7.
Símar 26560 og 28888.
Heimasími 51119.
Tilboð óskast
í neðangreindar bifreiöar, sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
Toyota Corolia árg. 1978.
Toyota Carina árg. 1974.
Saab 99 árg. 1974.
VW 1200 árg. 1977.
Cortina árg. 1970.
Bifreiðarnar veröa til sýnis viö skemmu
Hagtryggingar h.f. Hvaleyrarholti, Hafnar-
firöi, fimmtudaginn 7. sept. kl. 2 til 7 e.h.
Tilboðum sé skilaö á skrifstofu okkar fyrir
kl. 17 á föstudag. Hagtrygging.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AIGLYSINGA
SIMINN F.K:
22480