Morgunblaðið - 06.09.1978, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.09.1978, Blaðsíða 32
Verzlið í aérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki.' ► AIGLÝSINGASÍ.MINN ER: 5^22480 J JUorflimblnbiti MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1978 Voðaverk í verbúðum á Flateyri: Tvítugur piltur varð 18 ára stúlku að bana Verbúðin „Regnboginn“ á Flateyri, þar sem voðaverkið var unnið Ljósm. Mbl. Úlfar Ágústsson. TVÍTUGUR piltur varð átján ára stúlku að bana á Flateyri í gærmorgun. Hengdi piiturinn stúlkuna í herbergi sínu í verbúð- unum þarna í þorpinu, en saf sig síðar fram við hreppstjórann. Rannsóknarlögregla rfldsins tók við rannsókn málsins þegar í Gengisfellingin: Meðalhækkun bifreiða 500-600 þús. LJÓST er að gengisfellinKÍn hefur í för með sér 15—17% hækkun á heimilistækjum, bifreiðum o.fl. og sem dæmi má nefna að sjónvarpstæki, sem fyrir gengisfellingu kost- aði 440 þús. kr. kostar nú rétt um 500 þús. kr. Þá kostar bifreið, sem áður kostaði t.d. 3,6 millj. kr., nú kr. 4,2 millj. kr. Morgunblaðið fékk þær upp- lýsingar hjá einni af raftækja- verzlunum borgarinnar að 22 tommu sjónvarpstæki, sem fyr- ir gengisfellingu hefði kostað 440 þús. kr., myndi nú kosta rétt um 500 þús. kr. og að 300 lítra frystikista sem áður hefði kostað 193 þús. kr. færi í 220 þús. kr. Sem dæmi um þá hækkun sem. yerður á bifreiðum, má nefna aö Ford Fairmont, sem fyrir gengisfellingu kostaði 3,6 millj. kr., mun nú kosta 4,3 millj. kr. Dýrari gerðin af Fairmont, sem kostaði áður 4,3 millj. kr. mun nú kosta 5 millj. kr. og Ford Fiesta sem kostaði fyrir gengisfellingu 2,7 millj. kr. kostar nú rösklega 3,1 millj. gærmorgun og voru rannsóknar- lögreglumenn frá Reykjavík sendir vestur. Hallvarður Ein- varðsson rannsóknarlögreglu- stjóri vildi þó ekki veita neinar upplýsingar um málið, þar sem rannsókn þess væri á frumstigi. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. hefur aflað sér, er pilturinn frá Reykjavík og kom á föstudag- inn til Flateyrar, þar sem hann hugðist ráða sig til vinnu. Fékk hann inni í verbúðum þar í þorpinu, sem í daglegu tali eru nefndar Regnboginn. Stúlkan, sem einnig er úr Reykjavík, hafði á hinn bóginn starfað um skeið í frystihúsi í Hnífsdal en fór þaðan ásamt vinkonu sinni til Flateyrar fyrir helgina til að ná fundum piltsins, en þau munu hafa þekkst úr Reykjavík eftir því sem blaðið kemst næst. Ekki er vitað frekar um endur- fundi þeirra um helgina, nema um kl. 10.30 í gærmorgun kom piltur- inn til hreppstjórans á Flateyri og greindi honum frá því, að hann hefði hengt stúlkuna í herbergi sínu í verbúðunum og báru verks- ummerki í herberginu það með sér. Morgunblaðinu er ekki kunn- ugt um hvaða skýringar pilturinn hefur gefið á þessum verknaði, enda ekkert verið látið uppi um yfirheyrslurnar, sem fóru fram í allan gærdag á skrifstofu frysti- hússins á Flateyri en undir kvöld var pilturinn og lík stúlkunnar flutt til ísafjarðar. Enginn varð var við neitt hugavert í verbúðinni um það leyti, sem talið er að ódæðið hafi verið framið. Pilturinn var ræstur kl. 7 í gærmorgun, líkt og venja er í verbúðum og um kl. 10 átti heimamaður leið um verbúðina án þess að verða nokkurs var, sem vekti grunsemdir hans. Vinnuveitendasambandið; Framlenging kjarasamninga eyk- ur verðbólgu og atvinnuleysi Vinnuveitcndasamband Isiands tel- ur að framlenging kjarasamninganna frá 1977, Ieggi allt of miklar byrðar á atvinnureksturinn með fullum vfsitöiubótum eins og ríkisstjórnin gerir ráð fyrir og telur því engan grundvöll fyrir þeirri framkvæmd — segir í fréttatiikynningu frá samband- inu, sem send var út í gær. Vekur Vinnuveitendasambandið athygli á fyrirsjáanlegri útgjaldaaukningu at- vinnuveganna vegna ýmissa áforma rikisstjórnarinnar, m.a. um afnám laga um efnahagsráðstafanir og nýjar kauphækkanir í kjölfar þess. Segir að hækkanirnar séu bersýnilega meiri en stjórnvöld virðist gera sér grein fyrir og framundan virðist því nýjar víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags. „Undrun sætir einnig," segir í fréttatilkynningunni, „að jafnfrartlt þvi sem ríkisstjórnin viðurkennir að Stálsmiðjan fékk 90 iniUj. króna verk fyrir ISAL STÁLSMIÐJAN vinnur nú að smíði hluta af hreinsikerfi ál verksmiðjunnar í Straumsvík, en verk þetta hafði verið boðið út hér á landi, í Noregi og Sviss og reyndist tilboð Stálsmiðjunnar meðal hinna lægstu, svo að þvi var tekið. Verkefni þetta nemur um 90 milljónum króna og er annað vcrkið af þessu tagi sem fyrirtækið hreppir með tilboði. Að því er Pálmi Stefánsson, byggingastjóri Islenzka álfélags- ins, tjáði Mbl. er verkið sem hér um ræðir afsogsstokkar fyrir kí rgufur, en verið er að loka um 40 kerfum og stefnt að því að ljúka því fyrir áramót. Hluti sá sem Stálsmiðjan vinnur nú að, er hluti af stærra kerfi, sem á að leiða gufurnar frá verksmiðjunni í sérstaka hreinsistöð. Pálmi sagði að verk þetta hefði verið boðið út hér á landi, í Noregi og Sviss og að tilboð hefðu borizt frá 9 fyrirtækjum frá þessum löndum og Þýzkalandi að auki. Lægstu tilboðin hefðu verið frá Stálsmiðjunni, norsku fyrirtæki og þýzku, og hefði verið ákveðið að taka því íslenzka. EITT furðufyrirbærið enn bættist í hóp þeirra afbrigða af svartfugla- ættinni sem fundist hafa 1 Eyjum í sumar. en áður hefur verið sagt frá langvíukeisara og lundakeisara í Bjarnarey og í Elliðaey fannst lundi með hattkúf. En nú um helgina fannst lundapysja með feikn mikinn fjaðrahatt og er ekki vitað um slíkt afbrigði fyrr. Mynd- ina tók Sigurgeir í Eyjum en á bls. 14 segir nánar frá undrapysjunni. tryggja þurfi rekstrargrundvöll at- vinnuveganna, þá boðar hún nýja skatta á atvinnurekstur. í samstarfsyf- irlýsingu ríkisstjórnarflokkanna segir, að ríkisstjórnin muni leita eftir samkomulagi við samtök launafólks um framlengingu kjarasamninga til 1. desember 1979. í lok fréttatilkynningarinnar segir: „Vinnuveitendasamband íslands leggur áherzlu á, að miðað við núverandi rekstraraðstöðu atvinnuveg- anna og að óbreyttu vísitölukerfi er enginn grundvöllur fyrir framlengingu kjarasamninga. Þvert á móti myndu framlenging þeirra auka vanda at- vinnuveganna, magna verðbólguna og auka atvinnuleysi. Kjarasamningarnir, sem gerðir voru í júní 1977, voru nauðungarsamningar, sem aldrei fengu staðizt og standast ekki enn.“ Þess má geta að fulltrúar vinnuveit- enda voru á fundi með Ólafi Jóhannes- syni forsætisráðherra í gær, en í fyrradag voru fulltrúar Iaunþegasam- takanna á fundi með ráðherra. Þrír þing- menn Alþbl: jFlugstöðvarbygg- íngin ekki á dagskrá MORGUNBLAÐIÐ hafði sam band við þrjá þingmcnn Alþýðubandalagsins í gær og innti þá eítir afstöðu þeirra í flugstöðvarmálinu á Keflavík- urflugvclli. Þingmennirnir Geir Gunnarsson, Kjartan Ólafsson og Gils Guðmundsson svöruðu spurningum blaðsins og væru þeir allir sammála um að bygging flugstöðvar væri ekki á dagskrá, en hér fara svör þeirra á eftiri „Við höfum talið það fráleitt að flugstöð af þeirri stærðar- gráðu sem um hefur verið rætt yrði byggð hér og fyrir banda- ríska peninga. Við teljum það ekki koma til greina og um það höfum við samið í stjórnar- samningnum," sagði Kjartan „Við getum hins vegar hugsað okkur að fara út í alinnlenda framkvæmd af þeirri stærðar- gráðu sem hentar okkur. Slíkt verður að fara eftir efnum og ástæðum, en við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að sú aðstaða sem er þarna er ekki til frambúðar." „Ég tel að það þurfi enga flugstöð strax," svaraði Geir Gunnarsson alþingismaður þegar Mbl. innti hann álits á málinu," það er líka stefnan að draga úr fjárfestingum og flug- stöðvarmálið er ekki í fremstu röð. Það kemur að því, en það er engin þörf á henni nú. Þessi umrædda flugstöðvarbygging er einnig að mínu mati byggð á rangri spá.“ „Ég tel að það sé nauðsynlegt að það liggi ljóst fyrir hvernig þetta samkomulag er sem Einar Ágústsson gerði um byggingu flugstöðvar á Keflavíkurflug- velli áður en ég get tjáð mig um þetta mál og hvernig þessu samkrulli er háttað milli Is- lands og Bandaríkjanna og síðan er að taka afstöðu til þess hvort þetta sé það sem liggur mest á,“ sagði Gils Guðmunds- son. „Ég veit ekki hvernig þessu samkomulagi er háttað, en háar tölur hafa verið nefndar í sambandi við byggingarkostnað. Sé um að ræða einhverjar stórar fjárupphæðir, jafnvel milljóna- tugi, þá tel ég að ekki séu tímar til þess nú en hitt er annað að ég tel að Islendingar verði sjálfir að leysa þetta verkefni við sitt hæfi. Ég vil í sambandi við þesar umræður gefa ráðlegg- ingu til mín sjálfs og annarra stjórnarmanna að egna okkur ekki hvern gegn öðrum og láta Morgunblaðið ekki spila með okkur.“ Blaðamaðurinn spurði Gils þá hvort hann teldi óeðlilegt að menn hefðu skiptar skoðanir? „Nei, það er það í sjálfu sér ekki. En í ríkisstjórn hljóta menn að gera upp á öðrum vettvangi en í andstæðingablöð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.