Morgunblaðið - 11.10.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 11.10.1978, Síða 1
32 SÍÐUR Kjameðlisfræð- ingur rekinn frá Rússlandi Carter og Owen fúlsa við Smith Sergei Polikanov kemur til Kaupmannahafnar ásamt konu sinni og dóttur í gærdag. kuupmannahöfn. 10. okt. AP. SOVÉZKUR kjarneðlisfræðing- ur. Sersei Polikanov. hefur verið rekinn í útlegð frá Sovétríkjun- um (>K kom hann til Kaupmanna- hafnar 1 dau. ásamt konu sinni og dóttur. Hann sajíðist ekki líta á það sem refsinjíu að vera rekinn úr landi þar sem ómöjíuleKt væri að starfa ojí lifa frjálsu einkalífi. Hann sajjði að þrátt fyrir erfitt sumar hefðu andófsmenn í Sovét- ríkjunum sýnt. að ofsóknir KGB yrðu aðeins til að þjappa þeim hetur saman. um leið oj; hann kvað líkur á því að KGB mundi á næstunni skipta um aðferðir í baráttunni jíejjn andófsmönnum. reyna framvejjis að spilla á milli þeirra ojí eyðilejfjcja hrcyfinjíu þeirra innan frá. Enn er ekki afráðið hvar Poli- kanov sezt að, en Niels Bohr-stofn- unin í Höfn hefur sýnt áhuga á að fá hann til starfa. Nokkrir banda- rískir háskólar hafa sótzt eftir Borgar- stjórinn sviptur embætti Pokinu — 10. október — Reuter. WU TEH, borgarstjóri í Pek- ing, sem bendlaður hefur verið við ekkju Maós og þorparaklíku hennar, hefur verið sviptur embætti sínu, en áreiðanlegar heimildir herma að hann haldi þó enn sæti sínu í stjórnmála- nefnd miðstjórnar kínverska kommúnistaflokksins. Olíklegt er að þessi ráðstöfun eigi eftir að hafa í för með sér víðtækar breytingar á valdakerfinu, en síðustu tvö árin hefur Wu Teh ' margsinnis verið skammaður á veggspjöldum í Peking. Iran: Tohoran. 10. októhcr. Router. SEX vopnaðir og grímuklæddir menn gerðu aðför að ræðismanns- skrifstofu íraks í Khorramshahr í suð-vestur íran í dag. í heiftar legum skotbardaga við hervörð féll einn hermaður. Árásarmenn- irnir lögðu á flótta áður en þeim tókst að bera eld að skrifstofu- hyggingunni og skildu þeir eftir talsvert magn aí benzíni og sprengiefni. Ekki er vitað með vissu um tilgang árásarmannanna, en líkur benda til að hér hafi átt að hefna brottreksturs íranska múhameðs- honum, en Polikanov er þekktur vísindamaður og hefur áður starf- að erlendis. Það var fyrst í vor, sem Polikanov fór að skipta sér opinberlega af málum sovézkra andófsmanna, en hann var meðal þeirra, sem mótmæltu harðlega réttarhöldum og dómum yfir Orlov og Ginzburg. Hann sagði í viðtali við blaðamenn við komuna til Kastrup í dag, að ekki væri hægt að jafna andstöðu sinni við stefnu sovézkra stjórnvalda við frammi- stöðu Sakharovs eða annarra leiðtoga andófsmanna. Polikanov sagði að síðustu mánuðina, sem hann var í Sovétríkjunum, hefðu yfirvöld gert sér lífið nánast óbærilegt. Æðsta ráðið hefði til dæmis svipt sig öllum vegtyllum og heiðursmerkjum, og hafnar hefðu verið aðgerðir til að vísa honum úr sovézku vísindaakadem- íunni. Hann kvaðst hafa hitt Andrei Sakharov að máli fyrir tíu dögum, og hefði Nóbelsverðlauna- hafinn þá sagt að hvað sem KGB tæki til bragðs yrði ekkert lát á baráttu andófsmanna fyrir því að sovézk yfirvöld virtu ákvæði Hel- sinki-sáttmálans. Washington — Lundúnum — Salisbury 10. október — Rcutor — AP. CARTER Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í kvöld. að hann sæi enga ástæðu til að hitta Ian Smith forsætisráðherra bráða- birgðastjórnarinnar í Rhodesíu að máli, en Smith hafði áður sagt. að þar sem viðræður hans og Vance utanríkisráðherra hefðu engan árangur borið hefði hann hug á að ræða við trúarleiðtogans Khomaini frá írak á dögunum. Khomaini er mikill strangtrúarmaður og er einn þeirra sem krefjast þess að Iranskeisari láti af völdum, og að umbótaáform keisarans, sem með- al annars fela í sér skiptingu landareigna, verði að engu gerð. Khomaini stýrði til skamms tíma áróðursherferð á hendur keisaran- um frá írak, en stjórnin þar vísaði honum úr landi í síðustu viku og kvaðst ekki lengur geta fóstrað hann þar sem hann misnotaði aðstöðu sína þar til að grafa undan löglegum yfirvöldum í nágranna- ríki. forsetann. I>á lét David Owen utanríkisráðherra Breta svo um madt í Lundúnum í kvöld.að heimsókn Smith til Bretlands yrði ta>plega til þess að stuðla að lausn Rhodesíu deilunnar, og gæti brezka stjórnin ekki ábyrgzt að Smith yrði ekki lögsóttur ef hann kæmi til Bretlands. Brezk stjórnvöld eiga óuppgerðar sakir við Smith frá því að hann lýsti einhliða yfir sjálfstæði Rhodesíu fyrir 13 árum. Carter forseti skýrði afstöðu sína til málsins meðal annars með þeim orðum, að í samvinnu við brezku stjórnina vildi stjórn hans reyna að búa svo um hnútana í Rhodesíu, að blóðbað- ið þar tæki enda, en til þess að svo mætti verða væri nauðsyn- legt að allir aðilar deilunnar settust í einu að samningaborði, einnig þjóðernissinnaðir skæru- liðar, sem hafnað hafa bráða- birgðastjórn Smiths sem nauð- syn til að koma á meirihluta- stjórn í landinu. Carter sagði ennfremur, að ef allir deiluaðilar gætu fallizt á aðra leið til lausnar deilunni en að koma á slíkri ráðstefnu þá mundu stjórnir Bandaríkjanna og Bret- lands ekki standa í vegi fyrir því. Viðbrögð við formlegri yfirlýs- ingu bráðabirgðastjórnar Smiths í dag um að kynþátta- misréttið í landinu væri úr sögunni hafa orðið misjöfn. I Bretlandi fékk málið almennt góðar undirtektir, í Washington hafa fulltrúar stjórnarinnar látið í ljós efasemdir um að þessi yfirlýsing ætti eftir að ná tilgangi sínum, en í nágranna- ríkjum Rhodesíu hafa menn yfirleitt sagzt taka lítið mark á henni, og Zambíustjórn segir að hér sé aðeins um að ræða áróðursbragð af hálfu Smiths og stuðningsmanna hans. Beirút — 10. október — AP. HVAÐ EFTIR annað kom til skotbardaga í Beirút í dag þrátt fyrir vopnahléið, en í kvöld virtist þó allt með kyrrum kjöruni. Fregnir um að Sovétstjórnin hafi kallað heim alla sovézka borgara frá Beirút hafa verið bornar til baka, enda hafa starfsmenn sendi- ráðsins verið á sínum stað í dag, en ótti greip um sig í borginni vegna sögusagna urn að brott- kvaðning Sovétmannanna væri undanfari loftárása Sýrlendinga á Rauðu her- deildirnar myrða dóm- ara í Róm Róm — 10. október. AP. RAUÐU herdeildirnar hafa gengizt við morðinu á hæstarétt- ardómaranum Girolamo Tartagli- one, sem skotinn var niður í íbúðarhúsi sínu í Róm í dag. Tartaglione var virtur lögfræðing- ur, og hefur meðal annars veitt forstöðu þeirri deild dómsmála- ráðuneytis Italíu, sem fjallar um refsidóma. Dómarinn var á leið til vinnu þegar atburðurinn átti sér stað, og gat sjónarvottur lýst morðingjan- um, sem komst undan í svörtum bíl. Tartaglione var sautjánda fórnarlamb Rauðu herdeildanna á þessu ári. Selveiði- menn björguðu Greenpeaee mönnum Orkneyjum — 10. október — Reuter. NORSKIR selveiðimenn björguðu í dag tveimur Greenpeace-mönnum af Rainbow Warrior og banda- rískum blaðamanni, en menn- irnir voru á gúmmíbát og hugðust koma í veg fyrir selveiðar við Orkneyjar. Hvolfdi gúmmíbátnum þegar mótmælamennirnir gerðust of ákafir í eltingaleik sínum við veiðimennina, sem síðan komu þeim til bjargar. . Norsku selveiðimennirnir eru í þjónustu brezku stjórn- arinnar, sem telur að selur á þessum slóðum sé of gráðugur í fisk. Er í ráði að sálga 900 selum og 4000 kópum á næstunni, en Green- peace-menn telja ekki full- sannað, að selurinn eyðileggi fiskimiðin á svæðinu og vilja því að honum verði þyrmt. hana. Að mati fréttaritara á staðnum bendir ekkert til þess að meiriháttar árásir Sýrlendinga séu yfirvofandi, og stjórnmála- skýrendur telja ólíklegt að til nýrra stórtíðinda dragi meðan stjórnir Líbanons og Sýrlands eru að leitast við að finna máiamiðlun- arleið í samráði við stjórnir annarra Arabaríkja. Mikill fólksfjöldi er á leið frá borginni norður og vestur á bóginn, og greinilegt er að íbúar Beirút treysta því varlega að vopnahléið standi til lengdar. Arás á ræðismanns- skrifstofu íraks Otryggt vopna- hlé í Líbanon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.