Morgunblaðið - 11.10.1978, Side 3

Morgunblaðið - 11.10.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978 3 Sjómenn í Þorlákshöfn: Mótmæla árásum á s j ó m ann as t é ttin a ALMENNUR félagsfundur sjó- manna í Uorlákshöfn, sem hald- inn var 7. október, lýsir undrun sinni á því kaupráni. sem fram kemur í síðustu fiskverðsákvörð- un, þar sem með þeirri ákvörðun eru stórlega skert kjör sjómanna umfram aðrar stéttir. „ , . rundunnn fordæmir harðlega síendurteknar árásir á sjómannastéttina, sem er undifstöðuaflið í þjóðfélaKÍnu, eins ox segir í fréttatilkynningu. sem Mbl. barst í gær. Fundurinn skorar á ríkisstjórn- ina, að snúa sér frekar að höfuðmeinsemdinni í þjóðfélaginu og uppræta það „gegndarlausa fjármálabrask og milliliðagróða, sem ríkt hefur hérlendis, auk þess að fækka fólki í opinberri þjónustu og öðrum óarðbærum störfum og flytja það til undirstöðuatvinnu- vegar þjóðarinnar.“ Myndina tók Guðfinnur í Grinda- vík af hvalnum þar sem hann rásaði við bauju í Grindavíkur höfn. Háhyrning- ur á leið vestur um haJ Háhyrningur dólaði í gær í Grindavíkurhöfn, en Guðrún GK veiddi hann í fyrradag vestan við Ingólfs- höfða fyrir sædýrasafn í Orlanda í Florida í Banda- ríkjunum. Menn frá safninu voru með í veiðiferðinni. Hvalurinn var vel hress og brattur þegar búið var að koma honum fyrir í Grinda- víkurhöfn, en hann er 280 sm langur, karldýr sem vegur um 700 kg. 2 ný banka- útibú opnuð í í Hafnarfirði TVÆR bankastofnanir opna á næstuunni útibú í Hafnarfirði. Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur fengið leyfi Seðlabankans til að opna útibú í Hafnarfirði og er nú unnið að innréttingu húsnæðis þess á Reykjavíkurvegi 66 en gert er ráð fyrir að það verði opnað öðru hvoru megin við áramótin. Útvegsbanki Islands hefur fengið leyfi bankamálaráðherra til að opna útibú í Hafnarfirði og er verið að innrétta húsnæði fyrir það við Reykjavíkurveg. Er gert ráð fyrir að útibú Útvegsbankans opni fyrir jól en það verður þá jafnframt fyrsta bankaútibúið í Hafnarfirði, sem hefur leyfi til viðskipta með gjaldeyri. Júní og Stígandi seldu í gær TOGARINN Júní seldi í gær 172 tonn í Bremerhaven fyrir 46,3 millj.kr. eða 270 kr. meðalverð á kg. Þá seldi Stígandi 30 tonn fyrir 8,8 millj.kr. eða 258 kr. meðalverð en 5 tonn að auki reyndist ekki unnt að selja vegna þess, að fiskurinn var skemmdur. í dag er áætlað að Ögri selji í Þýzkalandi. Einum sleppt FÍKNIEFNADEILD lögreglunn- ar sleppti úr haldi í gær einum fjögurra manna, sem verið hafa í gæzluvarðhaldi vcgna fíkniefna- málsins, sem deildin hefur til mcðferðar. Þrír menn sitja áfram inni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.