Morgunblaðið - 11.10.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978
3
Sjómenn í Þorlákshöfn:
Mótmæla árásum á
s j ó m ann as t é ttin a
ALMENNUR félagsfundur sjó-
manna í Uorlákshöfn, sem hald-
inn var 7. október, lýsir undrun
sinni á því kaupráni. sem fram
kemur í síðustu fiskverðsákvörð-
un, þar sem með þeirri ákvörðun
eru stórlega skert kjör sjómanna
umfram aðrar stéttir. „ , .
rundunnn
fordæmir harðlega síendurteknar
árásir á sjómannastéttina, sem er
undifstöðuaflið í þjóðfélaKÍnu,
eins ox segir í fréttatilkynningu.
sem Mbl. barst í gær.
Fundurinn skorar á ríkisstjórn-
ina, að snúa sér frekar að
höfuðmeinsemdinni í þjóðfélaginu
og uppræta það „gegndarlausa
fjármálabrask og milliliðagróða,
sem ríkt hefur hérlendis, auk þess
að fækka fólki í opinberri þjónustu
og öðrum óarðbærum störfum og
flytja það til undirstöðuatvinnu-
vegar þjóðarinnar.“
Myndina tók Guðfinnur í Grinda-
vík af hvalnum þar sem hann
rásaði við bauju í Grindavíkur
höfn.
Háhyrning-
ur á leið
vestur um haJ
Háhyrningur dólaði í gær
í Grindavíkurhöfn, en
Guðrún GK veiddi hann í
fyrradag vestan við Ingólfs-
höfða fyrir sædýrasafn í
Orlanda í Florida í Banda-
ríkjunum. Menn frá safninu
voru með í veiðiferðinni.
Hvalurinn var vel hress og
brattur þegar búið var að
koma honum fyrir í Grinda-
víkurhöfn, en hann er 280
sm langur, karldýr sem
vegur um 700 kg.
2 ný banka-
útibú opnuð í
í Hafnarfirði
TVÆR bankastofnanir opna á
næstuunni útibú í Hafnarfirði.
Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur
fengið leyfi Seðlabankans til að
opna útibú í Hafnarfirði og er nú
unnið að innréttingu húsnæðis
þess á Reykjavíkurvegi 66 en gert
er ráð fyrir að það verði opnað
öðru hvoru megin við áramótin.
Útvegsbanki Islands hefur fengið
leyfi bankamálaráðherra til að
opna útibú í Hafnarfirði og er
verið að innrétta húsnæði fyrir
það við Reykjavíkurveg. Er gert
ráð fyrir að útibú Útvegsbankans
opni fyrir jól en það verður þá
jafnframt fyrsta bankaútibúið í
Hafnarfirði, sem hefur leyfi til
viðskipta með gjaldeyri.
Júní og
Stígandi
seldu í gær
TOGARINN Júní seldi í gær 172
tonn í Bremerhaven fyrir 46,3
millj.kr. eða 270 kr. meðalverð á
kg. Þá seldi Stígandi 30 tonn fyrir
8,8 millj.kr. eða 258 kr. meðalverð
en 5 tonn að auki reyndist ekki
unnt að selja vegna þess, að
fiskurinn var skemmdur.
í dag er áætlað að Ögri selji í
Þýzkalandi.
Einum sleppt
FÍKNIEFNADEILD lögreglunn-
ar sleppti úr haldi í gær einum
fjögurra manna, sem verið hafa í
gæzluvarðhaldi vcgna fíkniefna-
málsins, sem deildin hefur til
mcðferðar. Þrír menn sitja áfram
inni.