Morgunblaðið - 11.10.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÖBER 1978
5
Guðný Guðmundsdóttir:
IIIjómsvei ti n tekur um-
mæli Ashkenazys sárt
Friðrik Einarsson Bjarni Jónsson
í FRAMHALDI ummæla Vladimirs Ashkenazys um Siníóníuhljóm-
sveit íslands þar sem hann lét þau orð falla í viðtali við tímaritið
Gramophone, að hljómsveitin væri ekki nógu góð og hún væri hálfgerð
atvinnumannahljómsveit hafði Mbl. samþand við Guðnýju Guðmunds-
dóttur konsertmeistara og Herbert H. Ágústsson hornleikara. Hafði
Guðný þetta að segja um ummæli Ashkenazysi
— Hljómsveitina í heild tekur
þessi ummæli sárt og kannski
helzt vegna þess, að Ashkenazy
hóf feril sinn sem hljómsveitar-
stjóri hjá okkur. En við tökum orð
hans í Gramophone e.t.v. of
alvarlega því þar er ekki skýrt
nægilega vel út við hvað hann á
þegar hann segir okkur vera
„hálfgerða" atvinnumannahljóm-
sveit, sem mér finnast vera fremur
niðrandi ummæli. En þar á hann
við að margt fólk í hljómsveitinni
verður að sinna öðrum störfum
jafnframt og þess vegna hljóti það
að koma niður á gæðum. I ljósi
þess má líka segja að við þurfum
nokkuð sérstakan hljómsveitar-
stjóra, sem þarf að vera hæfur til
þess að þjálfa okkur, en við
þurfum óneitanlega meiri þjálfun
og öðruvísi en þær stóru og góðu
hljómsveitir úti í heimi sem
Ashkenazy er nú byrjaður að
kynnast og hann skortir e.t.v. þá
hæfileika sem við þörfnumst mest.
Þá finnst mér það ekki viðeigandi
af honum að nefna unga fólkið
sérstaklega og segja að tala þurfi
sérstaklega til þess vegna þess að
hér sé enn um barnunga nemendur
að ræða.
Því vil ég svara þannig,
að bæði þarf þetta unga fólk að
hljóta sína þjálfun og það gengst
undir strangt próf áður en það fær
að leika með hljómsveitinni og því
er ekki um nein börn að ræða. Um
það fólk sem hann segir að búið sé
að spila of lengi vil ég segja, að þar
er um að ræða marga okkar beztu
menn, sem stofnuðu hljómsveit-
ina.
Herbert H. Ágústsson sagði, að
Loðnuaninn orðinn
sá sami og á allri
vertíðinni í fyrra
AFLI loðnubátanna um
helgina var tæpar 23 þús-
und lestir hjá 42 bátum.
Heildaraflinn á vertíðinni
er þá orðinn rúmlega 260
þúsund lestir eða meiri en
á allri sumar- og haustver-
tíðinni í fyrra, en hún stóð
Framhalds-,
aðalfundur BI
Framhaldsaðalfundur Blaða-
mannafélags íslands verður hald-
inn þriðjudaginn 17. október ki.
20.30 að Hótel Esju. Lagabreyt-
ingar og önnur mál.
Olíumöl lögð
á Vopnafirði
Vopnafirði, 10. október. —
TOGARINN Brettingur er nú að
búa sig undir að sigla annað sinn
með afla í haust og mun hann eiga
að selja í Bretlandi 18. október.
Áður hefur: togarinn selt í Fleet-
wood í haust 85 tonn og fékk sem
meðalverð 371 krónu.
Hér á Vopnafirði er það helzt að
frétta af framkvæmdum á vegum
hreppsins, að unnið er að gatna-
gerð og verða lögð um 700 tonn af
olíumöl á götur kauptúnsins næstu
daga, ef veður leyfir. Verða þá
68% gatna hér komnar með
varanlegt slitlag.
Unnið er við heilsugæzlustöðina,
en framkvæmdir við hana hófust
1976. Á framkvæmdum við stöðina
að verða lokið um mitt næsta ár.
Þá er unnið að smíði leiguíbúða og
er búið að steypa upp kjallara
hússins.
Félagsstarfsemi vetrarins er nú
að hefjast, aðalfundur leikfélags-
ins var haldinn fyrir skemmstu og
því kjörin ný stjórn. Tveir klúbbar
eru hér starfandi, Kiwanis og
Lions-klúbbar og eru þeir að hefja
vetrarstarfsemi sína og fundi, sem
verða hálfsmánaðarlega. Þá er
frúarleikfimi einnig að hefjast,
þar sem 19 áhugasamar konur
stunda líkamsrækt af miklum
krafti. — Katrín.
fram að jólum. Nú er bræla
á miðunum útaf Norður-
landi og engin veiði.
Aflahæstu bátarnir eru þessir:
Sigurður 10.800 lestir, Pétur Jóns-
son 8.700, Gísli Árni 8.720, Börkur
8.700, Loftur Baldvinsson 7.820,
Bjarni Ólafsson 7.730, Eldborg
7.100, Skarðsvík 7.020, Súlan 7.000,
Hilmir 6.900, Hrafn 6.700 og Gígja
6.650.
Afli báta var sem hér segir:
Föstudagur: Ársæll 250 tonn og
Örn 300.
Sunnudagun Pétur Jónsson 600,
Stapavík 540, Óskar Halldórssoii
410, Magnús 540, Sæbjörg 580,
Gullbert 570, Hilmir 530, Eldborg
540, Húnaröst 520, Gígja 640,
Skarðsvík 630, Hákon 820, Albert
600, Gísli Árni 620, Faxi 320, Jón
Finnsson 570.
Mánudagurt Náttfari 530, Börk-
ur 1030, Fífill 560, Keflvíkingur
600, Súlan 730, Helga II 520, Hrafn
550, Ljósfari 280, Gunnar Jónsson
320, Harpa 520, Örn 580, Helga
230, Helga Guðmundsdóttir 650,
I’reyja 300, Huginn 500, Kap II
650, Grindvíkingur 700, Bjarni
Ólafsson 750, Jón Kjartansson 800,
Sigurður 750, Víkingur 550; Loftur
Baldvinsson 400, Rauðsey 350,
Bergur II 280.
Aðalfundir
hverfafélaga
Sjálfstæðis-
flokksins
AÐALFUNDUR hverfafélags
Sjálfstæðisflokksins í Fella- og
Hólahverfi var haldinn um helg-
ina. Gunnlaugur B. Daníelsson var
endurkjörinn formaður og ásamt
honum þau Helgi S. Árnason,
Jónína Hansen, Eyþór S. Jónsson
og Svavar Sæmundsson en í
stjórnina bættust nú Jónas Jónas-
son og Sigrún Indriðadóttir.
I kvöld er aðalfundur hverfafé-
lags Smáíbúða-, Bústaða- og
Fossvogshverfis, annað kvöld hjá
félaginu fyrir Árbæ og Selás og á
fimmtudag í félaginu fyrir Aust-
urbæ og Norðurmýri.
sér fyndust ummæli Ashkenazys
dálitið furðuleg, „og líka að hann,
sem byrjaði sinn feril hjá okkur,
skuli dæma okkur svona. Það er
heldur ekki stórmannlegt að nefna
nöfn, því áreiðanlega má bæta við
þennan lista hans og það er aldrei
vinsælt þegar talað er svona um
einstaka menn, því hættan er sú
að gleymt sé öðrum sem eiga
heima í sömu upptalningunni,"
sagði Herbert H. Ágústsson.
Heiðursfélagar Skurð-
lœknafélags íslands
SKURÐLÆKNAFÉLAG íslands fagnaði félagsins en það átti 20
hefur kjörið þá dr. med Friðrik ára afmæli sl. vor. Var þess
Einarsson og dr. med. Bjarna minnst með skurðlæknaþingi f
Jónsson heiðursfélaga Skurð- tengslum við aðalfund félagsins
læknafélagsins og voru þeim og boðið var til þingsins tveimur
afhent heiðursskjölin í afmælis- gestafyrirlesurum.
Sambandsverksmiðjurnar — Akureyri
VERKSMÐJU-
ÚTSALAN
Iðnaðarmannahúsinu Hallveigarstíg 1.
SLÆR ÖLL FYRRI MET
Peysur kr.
Skólapeysur
'rá kr-1500
Tepp
ffrá kr.
karlmannaskór ffrá kr. 2.900
FRÁG Ullarteppi Teppabútar Áklæði Gluggatjöld Buxnaefni Kjólaefni iEFJUN Ullarefni Sængurveraefni Garn - Margar gerðir Loðband Lopi o.m.m. fl. FRÁ SKÓVERKSM. IÐUNNI Karlmannaskór Kvenskór Kventöflur Ungllngaskór FRA FATA- VERKSM. HEKLU Fyrir dömur, herra og börn Gallabuxur Anorakkar Vinnubuxur Peysur Smekkbuxur Sokkar FRÁ HETTI Fyrir dömur, herra og börn. Mokkalúffur Mokkahúfur
Lager — Iðnaðardeildar Peysur frá kr. 2000.- phs frá kr. 2.000.- ♦ í-7Lri iwnn r \\r ill Fóöraðir jakkar frá kr. 5.000.- Vesti frá kr. 2000- llZKUVOrUr Uf Ull Prjónakápur frá kr 4.000.- Ofnar slár frá kr. 6.000.-
Allir gera þaö gott...
og þú líka — þegar þú kemur
SAMBANDSVERKSMIÐJURNAR
AKUREYRI
Verksmidjuútsalan lönaöarmannahúsínu Hallveigarstíg 1.